Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögregla kölluð til vegna grunsamlegs pakka í Hlíðahverfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til vegna líkamsárásar í póstnúmerinu 111 um klukkan 22 í gærkvöldi. Áverkar þolandans reyndust minniháttar en ekki er vitað hver eða hverjir voru að verki. 29.11.2022 06:26
Skjálftar í Bárðarbungu og Goðabungu Um klukkan eitt í nótt varð skjálfti af stærðinni 3,8 í Bárðarbungu í Vatnajökli og um 20 mínútum síðar reið yfir skjálfti af stærðinni 3,0 í Goðabungu í Mýrdalsjökli. 29.11.2022 06:15
Landsréttur hafi ekki haft forsendur til að lengja dóm Angjelin Verjandi Angjelins Sterkaj, sem var dæmdur í tuttugu ára fangelsi fyrir morð í Rauðagerði í febrúar 2021, segir dóm Landsréttar í málinu stangast á við lög. Miðað við rökstuðning Landsréttar átti ekki að vera hægt að dæma hann í meira en sextán ára fangelsi. 28.11.2022 22:47
Segir stærsta hluta nýrra íbúða enda í höndum eignafólks Samtök iðnaðarins gagnrýna Reykjavíkurborg fyrir lóðarskort. Uppbygging nýs íbúðarhúsnæðis sé ekki að mæta þörf. Þá taki skipulagsferlið í kringum nýbyggingar alltof langan tíma. Formanni samtaka leigjanda líst ekkert á stöðuna og segir það á ábyrgð ríkisins og sveitarfélaga að útvega almenningi húsnæði á viðráðanlegu verði. 28.11.2022 22:41
Óvissustigi á Austurlandi aflýst Ríkislögreglustjóri hef ákveðið að aflýsa óvissustigi á Austurlandi vegna skriðuhættu. Óvissustig var sett 23. nóvember síðastliðinn vegna mikillar rigningar á landshlutanum í nóvember. 28.11.2022 22:04
Norðurljósin dansa á Akureyri Einstakt sjónarspil mátti sjá á himni yfir Akureyrarbæ í kvöld. Himininn skartaði sínu fegursta þegar norðurljós dönsuðu yfir bænum. 28.11.2022 21:33
Mikil tilhlökkun er fyrir nýja veginum um Hornafjörð Mikil spenna og tilhlökkun er á meðal heimamanna í Hornafirði og næsta nágrenni yfir nýjum vegi á hringveginum um Hornafjörð og nýjum fjórum tvíbreiðum brúm, sem verða byggðar þar, meðal annars yfir Hornafjarðafljót. Þegar framkvæmdum verður lokið mun hringvegurinn styttast um 12 kílómetra. 28.11.2022 21:06
Þórdís Kolbrún átti fund með Selenskí í Kænugarði: „Dagurinn hefur verið stór og mikill“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segir það skipta hana miklu máli að sjá aðstæður í Kænugarði með eigin augum. Í dag átti hún og aðrir utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fundi með Selenskí Úkraínuforseta ásamt forsætisráðherra og utanríkisráðherra landsins. 28.11.2022 20:37
Viðbrögðin megi ekki verða verri en vandamálið Borgarstjóri segist sleginn eftir hnífstunguárás á Bankastræti club fyrir viku. Nýr veruleiki blasi við en ekki megi fara offari í viðbrögðum. Starfsmanni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið vikið frá störfum fyrir að leka myndbandi af árásinni. Þá eru nú fimm sakborningar í haldi eftir að einum var sleppt í dag og varðhald framlengt yfir fjórum. 28.11.2022 20:09
Læknir fékk þriggja mánaða dóm fyrir brot gegn dætrum sínum Karlmaður, sem starfað hefur sem læknir á Vestfjörðum og Húsavík, var á dögunum dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir ofbeldisbrot gegn þremur dætrum sínum. Hann var hins vegar sýknaður af öllum ákæruliðum sem sneru að meintu grófu ofbeldi gegn eiginkonu sinni 28.11.2022 20:06
Æskuheimili Ólafs Ragnars nýtt til ræktunar alþjóðlegs fræðanets Alþjóðlegu fræðaneti var ýtt úr vör á fyrsta málþingi stofnunar Ólafs Ragnars Grímssonar á Ísafirði í dag. Innlendir og erlendir fræðimenn geta starfað á æskuheimili forsetans fyrrverandi í bænum í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða og háskólanna í Reykjavík og á Akureyri. 28.11.2022 19:36
Enn skorti lóðir í Reykjavík og regluverk allt of flókið Samtök iðnaðarins gagnrýna Reykjavíkurborg fyrir lóðarskort. Uppbygging nýs íbúðarhúsnæðis sé ekki að mæta þörf. Þá taki skipulagsferlið í kringum nýbyggingar alltof langan tíma. Hægt væri að ná fram meiri hagkvæmni með því að einfalda regluverk. 28.11.2022 19:30
Segir lögreglumann hafa brotið tölvuskjá sinn á bjórkvöldi í sal Gróttu Rapparinn Ísleifur Eldur Illugason segir lögreglumann hafa brotið skjá tölvu sinnar síðastliðið föstudagskvöld. Ísleifur var að skemmta á bjórkvöldi menntaskólanema í sal Gróttu á Seltjarnarnesi. Fjölmennt lið lögreglu mætti á svæðið með mikinn viðbúnað og leysti upp samkvæmið. 28.11.2022 18:56
Gæsluvarðhald fjögurra framlengt og einum sleppt Gæsluvarðhald yfir fjórum, sem taldir eru tengjast árásinni á Bankastræti club fyrir tíu dögum, var framlengt í dag. Einum var sleppt úr haldi og nú sitja alls fimm í gæsluvarðhaldi í tengslum við árásina. 28.11.2022 18:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Borgarstjóri segist sleginn óhug eftir hnífstunguárás á Bankastræti Club fyrir viku. Mögulega þurfi borgin að grípa til aðgerða gegn nýjum veruleika. Við fjöllum nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 28.11.2022 18:05
Safnað fyrir fimmtán ára pilt sem slasaðist illa í bruna „Hann er núna á brunadeildinni í Uppsölum og er haldið sofandi. Mér skilst að það sé allt samkvæmt áætlun en það er löng og erfið barátta framundan. Langur og hægur batavegur,“ segir Jón Ármann Gíslason sóknarprestur og prófastur á Skinnastað í Öxarfirði. Hrundið hefur verið af stað söfnun til að styðja við bakið á hinum 15 ára gamla Sigurgeir Sankla Ísakssyni og foreldrum hans en Sigurgeir hlaut alvarleg brunasár í síðustu viku og dvelur nú á sérhæfðri brunadeild á háskólasjúkrahúsinu í Uppsölum. 28.11.2022 17:35
Vikið úr starfi fyrir að dreifa myndskeiðum frá Bankastræti Club Starfsmanni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið vikið úr starfi fyrir að hafa staðið að dreifingu á myndskeiði af hnífstunguárásinni á Bankastræti Club fyrr í mánuðinum. Talið er að starfsmaðurinn hafi ekki ætlað að myndböndin færu til fjölmiðla. 28.11.2022 15:55
Ætlunin að styðja við við börn sem verða fyrir eða beita ofbeldi Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag samning til styrktar Veru, úrræðis Foreldrahúss fyrir börn í áhættuhegðun. Samningurinn snýr að stuðningi við börn sem eru þolendur ofbeldis eða sem beita ofbeldi. 28.11.2022 15:50
Leggur til tvö hundruð króna gjald á hvern farþega til að byggja upp varaflugvelli Lagt verður varaflugvallagjald sem nemur 200 krónum á hvern farþega ef frumvarp innviðaráðherra sem lagt var fram í samráðsgátt stjórnvalda í dag nær fram að ganga. Sé miðað við sex milljón farþega gætu tekjur ríkissjóðs orðið allt að einn og hálfur milljarður króna. Isavia og Icelandair hafa mótmælt gjaldtökunni. 28.11.2022 15:00
„Það þorði enginn í okkur Bjössa“ „Þetta var bara stuð, við sluppum alveg við vesen og leiðindi. Þetta snerist eiginlega meira um það að fólk vildi fá mynd af sér með okkur,“ segir Jóhannes Felixson bakari og veitingamaður, betur þekktur sem Jói Fel. Margir ráku upp stór augu fyrir utan Bankastræti Club á föstudagskvöld þegar hann og Björn Leifsson eigandi World Class tóku að sér dyravörslu á staðnum, en eins og kunnugt er þá er dóttir Björns, Birgitta Líf á meðal eigenda skemmtistaðarins. 28.11.2022 13:54
Hafa ekki lagt það í vana sinn að skrópa þegar kallið kemur Samtök reykvískra skemmtistaða hafa farið fram á annan fund með mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði Reykjavíkurborgar. Fjarvera stjórnarinnar á fundi sem haldinn var á fimmtudag skýrist af því að fundarboð barst ekki. Lögregla verður áfram með aukinn viðbúnað í miðbænum eftir hnífaárás á Bankastræti club fyrr í mánuðinum. 28.11.2022 13:45
„Ungt fólk gert að glæpamönnum og fyrir það eitt að rækta arfa sem má reykja“ Bubbi Morthens tónlistarmaður getur ekki leynt furðu sinni vegna dóms yfir Vigni Þór Liljusyni sem dæmdur var í 15 mánaða fangelsi vegna ræktunar 15 kannabisplantna í íbúðarhúsi á Akureyri. 28.11.2022 13:33
Húsnæðisverð leitar upp á við þrátt fyrir minni eftirspurn Þrátt fyrir að íbúðum í byggingu hafi fjölgað um ríflega fimmtung milli ára vantar enn að minnsta kosti þúsund til að uppfylla þörfina að mati sérfræðings hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun. Töluvert hafi dregið úr eftirspurn eftir húsnæði en verð samt haldið áfram að hækka. 28.11.2022 13:30
Fimmtán mánaða fangelsi fyrir kannabisræktun á Akureyri Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir karlmanni, sem sakfelldur var fyrir að hafa staðið að ræktun fjórtán kannabisplantna í íbúðarhúsi á Akureyri. Þrír aðrir einstaklingar voru sakfelldir fyrir aðild sína að brotinu en þau leituðu ekki endurskoðunar héraðsdóms. 28.11.2022 12:10
Verkefni í þágu trans barna og hinsegin fólks styrkt um fjórar milljónir Tvö verkefni á vegum heilbrigðisráðuneytisins hafa hlotið ríflega fjögurra milljóna króna styrk úr Framkvæmdarsjóði hinsegin málefna. Annars vegar er um að ræða rannsókn sem miðar að því að kortleggja þarfir og óskir hinsegin fólks sem leitar til transteymis Landspítala og hins vegar þróunarverkefni sem felur í sér fræðsluhópi fyrir foreldra trans barna á BUGL. 28.11.2022 11:53
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á íbúðamarkaðinum en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er enn á því að það vanti íbúðir hér á landi þrátt fyrir fjölgun á milli ára. 28.11.2022 11:35
Bræður berjast fyrir bótum vegna Brúneggjamálsins Aðalmeðferð í skaðabótamáli fyrrverandi eigenda Brúneggja gegn Ríkisútvarpinu og Matvælastofnun hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þetta er í annað skiptið sem eggjaframleiðendurnir láta reyna á rétt sinn fyrir dómstólum. 28.11.2022 11:26
Utanríkisráðherra í óvæntri heimsókn í Kænugarði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, er nú stödd í heimsókn í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, ásamt sex starfssystkinum sínum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjum. 28.11.2022 11:21
Fjölmenn tekk-sölusíða með óvænt nýtt hlutverk Nokkuð fjölmenn sölusíða á Facebook, sem hingað til hefur gegnt hlutverki sölumarkaðs fyrir tekk-húsgögn á Íslandi, hefur skipt um hlutverk. Síðan er nú, nokkuð óvænt, orðin að sölusíðu fyrir tölvuleikinn Clash of Clans. 28.11.2022 11:06
Fræðafólki býðst að dvelja á æskuheimili Ólafs Ragnars Erlendum og íslenskum vísindamönnum, sérfræðingum og fræðafólki verður boðið að dvelja í tvær til sex vikur í Grímshúsi á Ísafirði. Grímur Kristgeirsson, faðir Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta, reisti húsið árið 1930. 28.11.2022 10:31
Aðeins barnlausum og heilbrigðum fullorðnum neitað um niðurgreidda heilbrigðisþjónustu Ákvæði í nýju frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um útlendinga er varðar niðurfellingu á heilbrigðisþjónustu mun eingöngu koma til skoðunar í tilviki barnlausra og heilbrigðra fullorðinna einstaklinga sem dvelja hér ólöglega og neita að yfirgefa landið. 28.11.2022 07:31
„Þegar ég hætti þá ætla ég bara að hætta“ „Þú verður að hafa ástríðuna og viljann og langa til þess að gera þetta til þess að starfa í þessu. Þetta er ekki þægileg innivinna,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra en hann kveðst svo sannarlega ekki vera hættur í stjórnmálum þrátt fyrir að hafa tapað formannskjöri Sjálfstæðisflokksins í byrjun mánaðarins. 27.11.2022 23:59
Minni mótstaða við umgangspestum eftir heimsfaraldur Þennan fyrsta vetur án sóttvarnaaðgerða yfirvalda leggjast árstíðabundnar öndunarfærasýkingar af fullum þunga á landsmenn. Fleiri börn eru að veikjast og það verr en á undanförnum árum, sem veldur vanlíðan á meðal foreldra að sögn barnalæknis. Covid-sýking getur líka breytt ónæmissvari við öðrum veirusýkingum. 27.11.2022 22:46
Óvarkárt orðalag um afbrot ýtir undir fordóma „Þetta snýst fyrst og fremst um orðanotkun. Ég held að það væri farsælla fyrir alla að sleppa því að nota þetta og hugsa um þetta á annan hátt,“ segir Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur en hún telur óvarkárt orðalag um afbrot ala á fordómum. 27.11.2022 21:14
Eingöngu kennt á ensku í Hallormsstaðaskóla Fimmtán nemendur eru nú í Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað þar sem fjölbreytt kennsla fer fram. Allt nám í skólanum er kennt á ensku. 27.11.2022 20:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segjum við meðal annars frá því að verð á bensínlítranum er nú fimmtíu krónum dýrara en það var í byrjun árs, þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á olíu sé svipað og þá. Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir græðgi stjórna ferðinni hjá íslenskum bensínfyrirtækjum. 27.11.2022 18:00
Neitaði að yfirgefa lögreglustöð þrátt fyrir að vera laus úr haldi Ofurölvi einstaklingur sem fluttur var á lögreglustöð í nótt neitaði að fara heim þrátt fyrir að vera laus úr haldi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en talsverður erill var hjá lögreglunni í nótt. 27.11.2022 17:48
Landhelgisgæslan dró skip til Reykjavíkur og myndaði aðgerðir Áhöfn varðskipsins Þórs kom íslensku togskipi til bjargar í gær þegar upp kom vélarbilun og leki inn í skipið. Áhöfnin tók aðgerðir sínar upp. 27.11.2022 15:28
Leggur til að arðgreiðslur banka greiði skuldir ÍL-sjóðs Doktor í fjármálum segir Íslandsbankaskýrsluna vera svarta og að mikilvægt sé umræðan endi ekki í pólitískum skotgröfum. Þá leggur hann til að hagnaður banka í ríkiseigu verði nýttur til að greiða niður skuldir ÍL-sjóðs. 27.11.2022 14:39
Móttaka flóttamanna á Austurlandi gengur einstaklega vel Flóttamönnum frá Úkraínu, sem búa nú á Eiðum býðst nú allskonar atvinna á Austurlandi. Forseti sveitarstjórnar Múlaþings vonar að fólkið verði ekki lengi á Eiðum, heldur komi inn í samfélagið, sem fyrst, hvort sem það er í Múlaþingi eða Fjarðabyggð. 27.11.2022 14:03
„Það er raunveruleg ógn sem að okkur steðjar“ Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að styrkja lögregluna og þá sérstaklega varðandi rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi og varðandi forvarnir. Aukin notkun stunguvopna kallaði líka eftir því að lögregluþjónar fengju rafmagnsbyssur. 27.11.2022 13:32
Þrír skjálftar yfir þremur að stærð í dag Í dag hafa þrír skjálftar mælst yfir þremur að stærð í Mýrdalsjökli. Sá stærsti mældist í hádeginu og var 3,4 að stærð. 27.11.2022 13:08
Ljós Oslóartrésins tendruð Ljós Oslóartrésins verða tendruð við hátíðlega athöfn á Austurvelli klukkan 16 í dag, fyrsta sunnudag í aðventu. 27.11.2022 12:06
Íslandsbanki, stýrivextir og átök í undirheimum í Sprengisandi Það verður farið um víðan völl í Sprengisandi á Bylgjunni þennan sunnudaginn. Kristján Kristjánsson fær til sín góða gesti og munu þau meðal annars ræða söluna á Íslandsbanka, stýrivexti, nýlega baráttu um formannasæti Sjálfstæðisflokksins og átök í undirheimum Íslands. 27.11.2022 09:31
Um þrjú hundruð flugmenn vantar á næstunni Um þrjú hundruð flugmenn mun vanta til starfa á Íslandi á næstu tveimur til þremur árum, og því er mikill áhugi á að læra flug hjá Flugakademíu Íslands hjá Keili á Keflavíkurflugvelli þar sem framtíðar atvinnuflugmenn eru þjálfaðir. 27.11.2022 09:04