Fleiri fréttir

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Ekkert lát er á eldgosinu í Meradölum. Þrátt fyrir að sprungan hafi minnkað hefur ekki dregið úr kraftinum. Við verðum í beinni útsendingu frá gosstöðvum og sýnum frá sjónarspilinu við Fagradalsfjall í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Bein útsending: Eldgosið við Fagradalsfjall í nærmynd fram á kvöld
Vísir verður með beina útsendingu frá eldgosinu við Fagradalsfjall þar sem nokkur fjöldi fólks hefur safnast saman til að njóta sjónarspilsins.

Skortur á læknum og staðan versnar hratt: „Þetta er mjög aðkallandi vandamál“
Framkvæmdastjórar lækninga á höfuðborgarsvæðinu og Norðurlandi taka undir áhyggjur formanns læknafélagsins um að neyðarástand gæti skapast í heilbrigðiskerfinu. Mikill skortur sé á starfandi heimilislæknum og ljóst að staðan eigi aðeins eftir að versna. Bæta þurfi starfsumhverfi og kjör til að laða fólk að, ekki síst á landsbyggðinni.

Í gæsluvarðhald grunaður um brot gegn tveimur konum
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegum kynferðis- og ofbeldisbrotum.

Nýtt frjókornagreiningatæki sett upp á Akureyri
Nýtt sjálfvirkt frjókornagreiningatæki hefur verið sett upp á Akureyri af Náttúrufræðistofnun Íslands en stofnunin hefur annast frjókornavöktun í meira en þrjátíu ár.

Veitingamenn á Suðurnesjum hugsa sér gott til glóðarinnar
Jóhann Issi Hallgrímsson veitingamaður er nú að skoða hvort ekki megi koma upp veitingavagni á gosslóð til að þjónusta þær þúsundir sem ekki hlýða Víði og vilja skoða gosið. En skortur á starfsfólki setur strik í reikninginn.

Drónamyndband sýnir gosið í allri sinni dýrð
Óhætt er að segja að sjónarspilið hafi verið mikið við eldgosið í Merardölum í gærkvöldi og í nótt.

Bjarni staðfestir að hann sækist eftir endurkjöri
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, hefur staðfest að hann muni sækjast eftir endurkjöri sem formaður flokksins á landsfundi hans í nóvember.

Ísland sé leiðandi afl í rafrænni auðkenningu
Ísland lenti í fjórða sæti þegar kemur að stafrænni opinberri þjónustu en könnun á þessu er framkvæmd árlega. Malta lenti í fyrsta sæti en könnunin er framkvæmd meðal aðildarríkja Evrópusambandsins ásamt Íslandi, Albaníu, Noregi, Sviss, Svartfjallalandi, Norður Makedóníu og Tyrklandi.

Mikil ásókn í þyrluferðir: „Þetta er sko enginn ræfill núna“
Gríðarleg ásókn er í þyrluflug yfir gosstöðvarnar og flugfélögin finna fyrir auknum áhuga á landinu. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir erfiðara en síðast að taka á móti miklum fjölda með skömmum fyrirvara vegna bókunarstöðu.

Kraftur gossins sé sá sami en á minna svæði
Nýjustu tölur hraunrennslis vegna eldgossins í Meradölum eru ekki komnar til Veðurstofunnar en þær fást eftir mælingar vísindaflugsins í hádeginu. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni segir sprunguna hafa minnkað en kraftinn vera þann sama á minna svæði.

Ekki æða af stað upp í fjall, segir Víðir
Eldgosið í Merardölum hefur haldið uppteknum hætti frá því að það hófst eftir hádegi í gær. Því er enn beint til almennings að fara ekki að gosinu fyrr en viðbragðsaðilar hafa náð utan um aðstæður þar. Tveir slösuðust í Fagradalsfjalli í gær - en Víðir Reynisson segir það hörkuferðalag að fara upp að gosinu.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Eldgosið á Reykjanesi verður í aðalhlutverki í hádegisfréttum okkar í dag.

Atvinnuleysi jókst um 0,5 prósent milli mánaða
Atvinnuleysi jókst um 0,5 prósentustig á milli maí og júní samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands en atvinnuleysi mældist fjögur prósent í júní. Hlutfall starfandi einstaklinga lækkaði um 1,4 prósentustig.

„Eins og gosið komi upp í hringleikahúsi“
Tómas Guðbjartsson, læknir og útivistarmaður, brýnir fyrir þeim sem ætla að skoða eldgosið við Meradali að kynna sér leiðina og aðstæður vel áður en haldið er af stað. Hann líkir gosstöðvunum við hringleikahús.

Tveir slösuðust við eldgosið í nótt
Tveir ferðamenn slösuðust við eldgosið í Meradölum í nótt og þurfti aðstoð Landhelgisgæslunnar við að flytja annan þeirra á sjúkrahús. Lögregla biðlar til þeirra sem leggja leið sína að eldgosinu að taka fullt tillit til leiðbeininga viðbragsaðila.

Myndaveisla frá Meradölum: RAX flaug yfir gosstöðvarnar
Mikið var um dýrðir á Reykjanesskaga í gær þegar eldgos hófst í Meradölum. RAX, ljósmyndari Vísis, fór að sjálfsögðu á flugvél sinni að gosstöðvunum og myndaði þær í bak og fyrir.

„Ég varð að setjast niður og gráta“
Erlendir fjölmiðlar víða um um heim hafa fjallað um eldgosið við Meradali sem hófst í gær. Útgangspunkturinn hjá flestum virðist vera að gosið sé nærri Keflavíkurflugvelli og Reykjavík, þó tekið sé fram að engin hætta virðist vera á ferðum.

Heiðra minningu æðarfugla sem drápust í olíuslysi
Á laugardaginn munu Súgfirðingar ganga minningargöngu til heiðurs minningar fjölmargra æðarfugla sem þurfti að aflífa eftir olíuslys á Suðureyri í mars síðastliðnum.

Ferðamenn flykktust að eldgosinu
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína að gosstöðvunum í Meradölum í gær til þess að freista þess að sjá eldgosið með eigin augum. Ferðamenn, innlendir sem erlendir, sem fréttastofa ræddi við í gær, voru allir mjög spenntir.

Bæjarstjóri segir ákvörðun kærunefndar ekki endanlega
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir ákvörðun kærunefndar útboðsmála um að stöðva samningagerð milli Garðabæjar og Fortis ehf um byggingu nýs leikskóla í Urriðaholti ekki endanlega. Ákvörðunin var tekin fyrir á fundi bæjarráðs 26. júlí síðastliðinn og málinu vísað til bæjarstjóra.

Töluvert dregið úr hraunflæði frá því í gær
Eldgosið í Meradölum hélt uppteknum hætti í nótt og breyttist lítið að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni. Þá er norðvestanátt í kortunum og því ætti dreifing gass frá eldstöðinni að haldast óbreytt.

Léttir að fá gosið
Eldgosið í Meradölum virðist leggjast vel í Grindvíkinga sem hafa þurft að bíða milli vonar og ótta eftir fregnum af jarðhræringum í bakgarðinum síðustu daga. Flestir fagna endalokum jarðskjálftanna og vonast til að eiga rólegri nætur fram undan.

Grindvíkingar vonuðust eftir eldgosi og á góðum stað
Grindvíkingar eru rólegir yfir eldgosi við Geldingadali. Eldgos þýðir færri jarðskjálftar og svo virðist sem það hafi komið upp á góðum stað. Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir mikilvægt að tryggja öryggi þeirra sem vilji skoða eldstöðvarnar en fólk verði að fylgja fyrirmælum.

Dáðust að náttúrufegurðinni við gosið
Ekki leið langur tími frá því að gos hófst að nýju nærri Fagradalsfjalli þar til fólk byrjaði að streyma að gosstöðvunum til að bera sjónarspilið augum.

Börn eiga ekki erindi að eldstöðvunum
Börn eiga ekki erindi upp að eldstöðvunum við Geldingadali. Bæði vegna gasmengunar og erfiðrar gönguleiðar. Þetta segir Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu hjá Veðurstofu Íslands, en börn og fullorðnir með undirliggjandi sjúkdóma eru viðkvæmari gagnvart gasmengun.

Tannlæknir og prófessor með 80 geitur á Snæfellsnesi
Geitur eru í miklu uppáhaldi hjá tannlækni og háskólaprófessor á Snæfellsnesi en þar eru þau með um 80 geitur og 50 kið.

Töluvert stærra gos og virðist byrja af meiri krafti
Eldgosið sem hófst við Geldingadali í dag er töluvert stærra en það sem sást í fyrra og virðist byrja af meiri krafti. Þrátt fyrir það telst gosið vera lítið og er lítil hætta á því að það ógni byggð eða innviðum á nærliggjandi svæði.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Kvöldfréttir Stöðvar 2 verða á sínum stað klukkan 18.30.

Fann tvo menn sem voru fastir og skutlaði þeim alveg upp að hrauninu
Gylfi Blöndal var á ferð með vini sínum nálægt gosstöðvunum í Geldingadal þegar hann rakst á tvo blaðamenn mbl.is á leið að gosinu. Þeir voru fastir en Gylfi var á mun betri bíl en þeir og skutlaði þeim alveg upp að lekandi hrauninu með aðstoð blaðamannapassa þeirra.

Svona var blaðamannafundurinn vegna eldgossins
Almannavarnir hafa boðið til fjölmiðlafundar klukkan 17:30 í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Tilefnið er eldgosið sem hófst við Geldingadali á öðrum tímanum í dag.

„Þetta er með meiri heppnisstundum í lífinu“
Guðrún Lára Pálmadóttir og eiginmaður hennar voru með þeim fyrstu til að sjá eldgosið með eigin augum í dag. Hún segir aðdragandann vera með meiri heppnisstundum lífs síns.

Blásið til upplýsingafundar vegna eldgossins
Almannavarnir hafa boðað til blaðamannafundar klukkan 17:30 vegna eldgossins sem hófst við Geldingadali í dag. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á Vísi.

Gosið leggst vel í Grindvíkinga
Guðrún Kristín Einarsdóttir er formaður slysavarnadeildarinnar Þórkötlu í Grindavík, sem er deild innan Landsbjargar. Hún var hress þegar Vísir heyrði í henni, gosið leggst bara vel í hana.

Búið að loka fyrir akstur á vegslóðum við gosstöðvarnar
Neyðarstig almannavarna var virkjað um klukkan þrjú í dag vegna eldgossins sem hafið er í Geldingadölum. Þetta ákvað ríkislögreglustjóri í samráði við lögregluna á Suðurnesjum.

Í þyrlu á ystu nöf yfir gosinu
Þar er aldeilis ekki fyrir lofthrædda að standa vaktina sem fréttatökumenn hjá Stöð 2 og RÚV þegar eldgos eru annars vegar.

„Hressandi að fá eitt eldgos í viðbót“
Bogi Adolfsson formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík segir að allar björgunarsveitir á Suðurnesjum hafi verið kallaðar út, þau séu að ná tökum á málunum og fara yfir stöðuna. Hann hvetur almenning til að hlusta á tilmæli.

Léttir að gosið sé hafið
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir í samtali við fréttastofu að það sé ákveðinn léttir að það sé farið að gjósa, sérstaklega á svona góðum stað. Enginn mannvirki séu í grennd við gosstöðvar en það kom honum ekkert sérlega á óvart að gosið skyldi hefjast í dag.

Bein útsending frá eldgosinu
Eldgosið er hafið á Reykjanesskaga, nánar tiltekið í vestanverðum Meradölum.

„Lítið og nett hraungos“
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir í samtali við fréttastofu að gosið sem hófst á Reykjanesi í dag sé lítið og nett. Virknin sé að draga sig saman í ákveðna gíga og þá muni gjósa úr gígopum frekar en sprungunni.

Eldgos hafið við Fagradalsfjall
Eldgos hófst í Meradölum á Reykjanesi á öðrum tímanum í dag í framhaldi af mikilli skjálftavirkni á svæðinu undanfarna daga. Jarðeldar sáust greinilega á vefmyndavélum frá svæðinu og staðfestu sérfræðingar Veðurstofunnar í framhaldinu að um eldgos væri að ræða.

Enn engin merki um gosóróa á Reykjanesi
Mikil skjálftavirkni er enn á Reykjanesskaga en engin merki um gosóróa. Búast má við að skjálftavirkni komi í hviðum næstu daga og vikur.

Innviðaráðherra telur minnkandi líkur á flugvelli í Hvassahrauni
Innviðaráðherra telur ljóst að líkurnar á flugvelli í Hvassahrauni fari minnkandi vegna jarðhræringa á svæðinu. Sérfræðingahópur á vegum stjórnvalda fundar í dag um jarðhræringar á Reykjanesi.

Skjálfti af stærðinni 4,2 varð við Kleifarvatn
Snarpur jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Jarðskjálftar og mögulegt gos verða í aðalhlutverki í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag.