

Kennsla í leikskólum hefst víða í dag eftir hefðbundna sumarlokun í júlímánuði og þá hefst jafnframt í dag seinni bólusetning kennara og starfsmanna skóla sem fengu bóluefnið frá Janssen á vordögum.
Laust fyrir miðnætti í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um rúðubrot í skóla í Vesturbænum. Í ljós kom að búið var að mölva rúður í mörgum gluggum.
Hinsegin dagar 2021 hefjast með málningu hinsegin fánalita á Ingólfsstræti, milli Laugavegar og Hverfisgötu klukkan 12 á morgun, þriðjudag. Málun regnboga er hefðbundið upphaf Hinsegin daga í Reykjavík. Þema Hinsegin daga í ár er Hinsegin á öllum aldri.
Eggert Eyjólfsson, bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir að bráðamóttakan sé ekki í stakk búin að taka á móti nema einum alvarlega slösuðum sjúklingi í kvöld.
Hellir sem fornleifafræðingar rannsaka núna í Odda á Rangárvöllum var í notkun á tíma Sæmundar fróða og er elsta staðfesta dæmi um manngerðan helli á Íslandi. Gríðarleg stærð hans vekur athygli og bendir til að Oddaverjar hafi staðið fyrir miklum búrekstri.
Kylfingar standa orðlausir þegar þeir sjá Alexöndru Eir Grétarsdóttur frá Stokkseyri spila á völlum landsins því hún slær höggin sín með vinstri hendi þrátt fyrir að vera rétthent.
Einn liggur í öndunarvél á Landspítalanum vegna Covid-19 og er það í fyrsta sinn sem sjúklingur hefur þurft á slíkri aðstoð að halda í þessari fjórðu bylgju faraldursins. Unnið er að opnun nýrrar Covid-deildar á spítalanum og hefur þurft að kalla starfsfólk úr sumarleyfum vegna álags.
Rúta á vegum ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Rafting keyrði út af vegi í Biskupstungum á Suðurlandi. Um fimmtíu manns voru í rútunni.
Í kvöldfréttum okkar segjum við frá því að unnið er að opnun nýrrar Covid-deildar á Landspítalanum, en kalla hefur þurft út starfsfólk úr sumarleyfum vegna álags.
Héraðssaksóknari hefur hafið rannsókn á andláti karlmanns eftir handtöku í austurbæ Reykjavíkur í gær. Skýrslutökur fóru fram í dag auk þess sem læknisfræðileg rannsókn fer fram í vikunni.
Gestir tjaldsvæða halda nú heim á leið eftir vel heppnaða verslunarmannahelgi. Þetta segir umsjónarmaður tjaldsvæðis á Suðurlandi sem kveðst ánægður með helgina. Rólegra var á tjaldsvæðinu Hömrum á Akureyri í gær en dagana á undan.
Tveir sjúklingar liggja á gjörgæsludeild Landspítalans með Covid-19. Annar þeirra var settur í öndunarvél í gær. Fimm voru lagðir inn með sjúkdóminn síðasta sólarhring.
Mikil uppbygging á sér nú stað í Sveitarfélaginu Vogum á Suðurnesjunum því þar eru að hefjast framkvæmdir við byggingu á átta hundruð nýjum íbúðum. Íbúar sveitarfélagsins í dag eru um þrettán hundruð.
Þrjátíu ferðamenn eru komnir í farsóttahús eftir að hafa greinst með kórónuveiruna um borð í Herjólfi. Hópurinn hafði áður gert tilraun til að ferðast til Vestmannaeyja en kórónuveirufaraldurinn setti strik í reikninginn, segir Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður húsanna.
Þetta var algjör heiður, segir Magnús Kjartan Eyjólfsson um brekkusönginn sem hann stýrði í fyrsta sinn í gær. Hann segir upplifunina stórkostlega og væri tilbúinn til að stýra söngnum aftur að ári.
Álag er á starfsfólki sýnatökuhússins við Suðurlandsbraut, en langar raðir í sýnatöku virðast nú daglegt brauð. Verkefnastjóri skimana segir að von sé á fleira starfsfólki í næstu viku.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fór í fimmtíu Covid-tengda sjúkraflutninga á síðasta sólarhring. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir fjölda flutninganna í takt við fjölgun smita en fólk hefur verið kallað inn úr sumarfríum til að bregðast við auknu álagi vegna veirunnar.
Að minnsta kosti 67 greindust með kórónuveirusmit hér innanlands eftir sýnatökur í gær. Af þeim sem greindust innanlands í gær voru 36 utan sóttkvíar og 31 í sóttkví við greiningu.
Eldur kviknaði á efstu hæð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði á fjórða tímanum í nótt. Viðbragðsaðilar voru kallaðir til um tuttugu mínútur yfir þrjú í nótt en sjáanlegur eldur var á efstu hæð húsnæðisins.
Margir sem keyptu sér aðgang að streymi brekkusöngsins á Þjóðhátíð hafa lýst yfir óánægju með kaupin.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konu sem slasast hafði lítillega á Úlfarsfelli í kvöld.
Brekkusöngur á Þjóðhátíð fer fram í fyrsta sinn fyrir tómri brekkunni í kvöld. Hátt í sextíu manns hafa unnið að uppsetningu enda var ákveðið að bjóða upp á dagskrá í fullri stærð og svo getur fólk keypt sér aðgang að streymi.
Að minnsta kosti 83 greindust smitaðir af kórónuveirunnin innanlands í gær þegar færri sýni voru tekin en dagana á undan. Samkomutakmörkunum er mótmælt víða um heim og fóru fjölmenn mótmæli fram í Ísrael í dag. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Maður í geðrofsástandi sem var handtekinn fyrir utan áfangaheimilið Draumasetrið lést í haldi lögreglu í nótt.
Björgunarsveitir voru kallaðar út fyrr í dag vegna mótorhjólaslyss sem átti sér stað í Árneshreppi. Einn einstaklingur slasaðist en ekki er vitað um líðan hans sem stendur.
Nýtt farsóttarhús verið tekið í gagnið í dag þar sem hin eru yfirfull. Um er að ræða Hótel Storm í Þórunnartúni.
Starfsmaður á hjúkrunarheimili Grundar við Hringbraut greindist jákvæður fyrir Covid-19 í gærkvöldi. Hann vinnur á deildunum Litlu Grund og Minni Grund.
Fimmtán farþegar sem voru um borð í Herjólfi í gær greindust smitaðir af kórónuveirunni. Um er að ræða erlenda ferðamenn sem fengu jákvæðar niðurstöður úr sýnatöku eftir að þeir komu til Vestmannaeyja.
Þrátt fyrir að verslunarmannahelgin hafi verið óvenjuleg í ár virðast Íslendingar hafa skemmt sér vel á tjaldsvæðum víða um land. Umsjónarmaður á tjaldsvæðinu Hömrum á Akureyri segir talsverðan eril hafa verið þar í gærkvöldi og í nótt.
Hópur sem kallar sig Coviðspurnuna stóð fyrir mótmælum á Austurvelli í gær þar sem bólusetningum og sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda var mótmælt. Hópurinn hefur nú boðað til „stórmótmæla“ fyrir framan heilbrigðisráðuneytið á fimmtudag.
Að minnsta kosti 83 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Samskiptastjóri almannavarna segir að færri sýni hafi verið tekin í gær en dagana á undan og því of snemmt að hrósa happi. Mikið álag er á símaveri Covid-19 göngudeildarinnar.
Að minnsta kosti 83 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Samskiptastjóri almannavarna segir að færri sýni hafi verið teki í gær en dagana á undan og því of snemmt að hrósa happi. Mikið álag er á símaveri Covid-19 göngudeildarinnar.
Að minnsta kosti 83 greindust með kórónuveirusmit hér innanlands eftir sýnatökur í gær. Af þeim sem greindust innanlands í gær voru 42 í sóttkví en 41 utan sóttkvíar við greiningu.
Síðasta myndin úr GoPro-myndavél Johns Snorra Sigurjónssonar, sem hann var með á sér á K2 þegar hann fórst þar í byrjun febrúar, hefur verið birt á netinu. Sajid Sadpara, sonur Ali Sadpara, sem fórst með John í leiðangrinum, náði GoPro-myndavélinni úr jakka Johns þegar hann fann lík göngumannanna á mánudaginn var.
Verslunarmannahelgin hefur farið afskaplega vel fram í Vestmannaeyjum. Varðstjóri lögreglunnar á svæðinu segir fólk almennt glatt og skemmtilegt.
Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu.
Tveir menn voru handteknir í Kópavogi eftir líkamsárás í nótt. Við handtökuna kom í ljós að annar þeirra ætti að vera í sóttkví.