Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enginn landshluti sleppur Enginn landshluti sleppur við hvassviðrið sem gengur nú yfir landið í kvöld og næstu daga, að sögn veðurfræðings. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi á öllu landinu og búast má við hviðum allt að 45 m/s á Suðausturlandi. Þá verða næstu dagar litaðir miklu kuldakasti, sem til að mynda verður trúlega það mesta á höfuðborgarsvæðinu í sjö ár. 2.12.2020 19:03
Ábyrg stjórnvöld lagfæra annmarka, segir Katrín um dóm MDE Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu er skýr um að málsmeðferð við skipan nýrra dómara við Landsrétt árið 2017 var ekki í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt Mannréttindasáttmálanum. 2.12.2020 18:22
Ný úrræðaleitarvél á eittlif.is Sérsniðin leitarvél er nú aðgengileg á vefnum eittlif.is en henni er m.a. ætlað að auka sýnileika úrræða fyrir ungmenni í vanda og auðvelda þeim og aðstandendum þeirra að finna upplýsingar og aðstoð. 2.12.2020 18:07
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Forstjóri Lyfjastofnunar segir raunhæft að hefja bólusetningar hér á landi í janúar. Hún reiknar með að bóluefni sem nægir fyrir alla landsmenn komi í einni sendingu. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 2.12.2020 18:01
Séra Skírnir stefnir Agnesi og þjóðkirkjunni Fyrrverandi héraðsprestur á Suðurlandi hefur stefnt biskupi Íslands og þjóðkirkjunni og fer fram á tæplega tíu milljónir króna í miska- og skaðabætur. Hann telur þau bera ábyrgð á skaða sem hann hafi hlotið vegna færslu í embætti árið 2015, í kjölfar kvörtunar hans vegna eineltis, og svo brottrekstri úr kirkjunni fyrr á árinu. 2.12.2020 16:48
„Við berum okkar ábyrgð“ Þingmenn hafa streymt upp í pontu Alþingis í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag til að ræða Landsréttardóminn. 2.12.2020 15:44
Hárstofuhrellirinn fer um land allt og gerir hárgreiðslumeistara gráhærða Kona nokkur virðist haldin einskonar hárgreiðsluáráttu því hún fer um án afláts milli hárgreiðslustofa og er komin víða á bannlista. 2.12.2020 15:23
Vilja að beðist verði afsökunar Þrettán þingmenn tveggja flokka hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi lýsi því yfir að rangt hafi verið að samþykkja málshöfðun gegn fjórum ráðherrum í september 2010 vegna starfa þeirra í ríkisstjórn Íslands fyrir efnahagshrunið. Auk þess eigi ráðherrarnir skilið afsökunarbeiðni. 2.12.2020 15:15
Ekkert spurst til Arnars síðan í september Lögreglan á Austurlandi lýsir eftir Arnari Sveinssyni, 32 ára karlmanni, en ekkert hefur spurst til hans síðan í september síðastliðnum. 2.12.2020 14:57
Anna Aurora bakvörður ætlar í mál við íslenska ríkið og fleiri Anna Aurora Waage Óskarsdóttir ætlar að stefna íslenska ríkinu vegna handtöku hennar á Vestfjörðum í apríl þar sem hún var grunuð um að villa á sér heimildir sem bakvörður á Hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Þá ætlar hún að stefna fjölmiðlum og einstaklingum sömuleiðis. Lögmaður hennar segir mikla vinnu framundan að hreinsa mannorð skjólstæðings síns. 2.12.2020 14:57
Neyðarskýlin opin allan sólarhringinn vegna kuldakastsins Neyðarskýlin fjögur sem Reykjavíkurborg rekur – Konukot, gistiskýlið á Lindargötu, neyðarskýlið á Granda og tímabundið neyðarskýli fyrir konur – verða öll opin allan sólarhringinn frá 3.til 7. desember, vegna kuldakastsins sem framundan er. 2.12.2020 14:46
Býður upp á líkamsræktartíma þrátt fyrir íþróttabann Einkaþjálfari sem selur líkamsræktartíma segist ekki telja þá falla undir skilgreiningu á íþróttastarfi sem er bannað samkvæmt sóttvarnareglum. Embætti landlæknis segir tímana virðast brot á samkomureglum óháð hversu fjölmennir þeir eru. 2.12.2020 14:01
Víðtæk bilun í símkerfum og netkerfum heilsugæslunnar Víðtæk bilun hefur verið í símkerfum og netkerfum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í allan dag. Bilunin hefur haft mikil áhrif á starfsemina og hefur neyðst til að fresta miklum fjölda tíma og verkefna. 2.12.2020 13:59
Rak skúffu vörubíls í brú Umferðaróhapp varð á mótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar skömmu eftir klukkan átta í morgun þegar skúffa vörubíls rakst í brúna þegar ekið var undir hana. 2.12.2020 13:33
Bakvörðurinn á Bergi verður ekki ákærður Kona sem var grunuð um að hafa villt á sér heimildir sem bakvörður á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins verður ekki ákærð. Þetta staðfestir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari við Vísi. 2.12.2020 13:05
Spilakassar verði svartur blettur á okkar sögu Formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn segir að í fyrsta skipti frá árinu 1994 fái spilafíklar frelsi frá spilakössum vegna samkomubannsins. 2.12.2020 12:52
Gerir ekki ráð fyrir því að fólk geti valið hvaða bóluefni það muni fá Yfirvöld hér á landi bíða eftir því að bóluefni gegn Covid-19 fái samþykki hjá Lyfjastofnun Evrópu. 2.12.2020 12:28
„Vonandi erum við að fara að sjá þetta eitthvað niður á við“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir tölur dagsins yfir fjölda kórónuveirusmita sýni að smituðum fjölgi ekki mjög skarpt upp á við. Það þurfi þó að bíða aðeins og sjá þróunina næstu daga varðandi það hvort smitum fari fækkandi. 2.12.2020 11:48
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Sextán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og þar af voru fimm utan sóttkvíar. 2.12.2020 11:30
Sextán greindust innanlands Sextán manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim sem greindust voru ellefu í sóttkví, eða um 69 prósent. 2.12.2020 10:51
„Mér líður betur núna en klukkan átta í morgun“ Preben Pétursson, sem rekur Grand þvott á Akureyri, þar sem eldur kom upp í morgun, segir að það hafi aðeins liðið um sjö til átta mínútur frá því að öryggiskerfi gerði viðvart um eld í húsnæðinu og þangað til búið var að slökkva eldinn. 2.12.2020 10:50
Appelsínugul viðvörun á Suðausturlandi: Hviður allt að 45 m/s Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir Suðausturland sem tekur gildi klukkan 16 í dag og gildir til miðnættis annað kvöld. 2.12.2020 10:03
Slökkvilið kallað út vegna elds í húsnæði Grand þvottar á Akureyri Slökkvilið á Akureyri var kallað út vegna elds í húsnæði Grand þvottar í Freyjunesi á Akureyri í morgun. 2.12.2020 08:19
MAST gefur út upplýsingar vegna yfirvofandi „harðs“ Brexit Matvælastofnun hefur gefið út upplýsingar um atriði sem íslensk matvælafyrirtæki verða að hafa í huga ef ekki nást samningar milli Evrópusambandsins og Bretlands áður en aðlögunartímabilinu vegna Brexit lýkur 31. desember nk. 2.12.2020 08:03
Selalaugin í Húsdýragarðinum stækkuð á næsta ári Til stendur að stækka selalaugina í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Hönnun er að hefjast og er lagt upp með að framkvæmdir hefjast á næsta ári. Kostnaður er enn óljós en í fjárfestingaráætlun Reykjavíkurborgar eru áætlaðar 100 milljónir króna í verkefnið. 2.12.2020 07:49
Fólk hvatt til að fara sparlega með vatn vegna kuldakastsins Veitur hafa virkjað viðbragðsáætlun í rekstri hitaveitunnar og hvatt fólk til að fara sparlega með heita vatnið til að allir hafi nægt vatn til húshitunar. Þetta er gert í ljósi þess að eitt mesta kuldakast frá árinu 2003 virðist ætla að skella á íbúa suðvesturhornsins á næstu dögum. 2.12.2020 07:15
Óboðni gesturinn sem neitar að fara Árið 2020 er senn á enda. Því verður seint lýst sem venjulegu ári enda hefur samkomubann verið í gildi meirihlutann af árinu og daglegt líf allt öðruvísi en fyrir kórónuveirufaraldurinn. Það birti þó aðeins til í sumar en það var skammgóður vermir og má líkja veirunni við óboðinn gest sem neitar að fara. 2.12.2020 07:01
Grímulaus og til vandræða í matvöruverslun Laust eftir klukkan fimm síðdegis í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann sem var í annarlegu ástandi, grímulaus og almennt til vandræða í matvöruverslun. 2.12.2020 06:25
Sagnir um bardaga sem skýra nafn Orustuhóls Orustuhóll er áberandi kennileiti í Skaftárhreppi sem blasir við frá hringveginum skammt austan við bæjahverfið Foss á Síðu. Brunahraun, en svo nefnist hraun Skaftárelda á þessum slóðum, umlykur hólinn á alla kanta. 2.12.2020 05:05
Jón Páll áfrýjar nauðgunardómnum Jón Páll Eyjólfsson, fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, ætlar að áfrýja skilorðsbundnum fangelsisdómi fyrir nauðgun sem hann hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Þetta segir Björgvin Jónsson, lögmaður Jóns Páls, í samtali við Ríkisútvarpið. 1.12.2020 23:55
Frost í Reykjavík jafngildi 16 stigum í trúlega mesta kuldakasti síðan 2013 Kuldakastið sem gengur yfir landið næstu daga verður trúlega það mesta í Reykjavík í sjö ár. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í færslu á vefnum Bliku.is. Þegar vindkæling er tekin með í reikninginn megi búast við að frost í höfuðborginni jafngildi sextán stigum á fimmtudag og föstudag. 1.12.2020 23:41
Hefur alltaf séð mjög eftir „já“-inu Fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar, sem sat á Alþingi þegar Landsréttarmálið var afgreitt snemmsumars 2017, segist alltaf hafa séð mjög eftir því að hafa greitt atkvæði með málinu. Þá segir hann Sjálfstæðisflokkinn hafa beitt aðra stjórnarflokka miklum þrýstingi í málinu á sínum tíma og lýsir hótunum um stjórnarslit „við minnsta tilefni“. 1.12.2020 23:22
Beit lögreglumann eftir að upp úr sauð í pottapartýi Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær konu í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að bíta lögreglumann í höndina. Lögregla var kölluð til í útskriftarveislu konunnar, sem varð að „pottapartýi“ líkt og lýst er í dómi, hvar upp úr sauð með fyrrgreindum afleiðingum. 1.12.2020 21:42
„Hentar ekki málstað sumra að ræða málefnalega um niðurstöðuna“ Í „pólitískum átökum“ um skipan Landsréttar gleymist oft að ræða hið eiginlega mál sem sem Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp dóm um í dag. Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í færslu á Facebook. 1.12.2020 21:20
Holtavörðuheiði lokað og ekkert lát á hvassviðrinu Holtavörðuheiði var lokað á áttunda tímanum í kvöld eftir að bílar festust þar á veginum. Vegagerðin bendir á hjáleið um Laxárdalsheiði, Skógarströnd og Heydal. Vetrarfærð er á landinu öllu og bálhvasst en ekki er útlit fyrir að lægi svo um munar fyrr en á föstudag. 1.12.2020 21:04
Segir oddvita Sjálfstæðisflokks eiga líta sér nær með gagnrýni um skuldasöfnun Reykjavíkurborg ætlar að mæta kórónuveirukreppunni með hátt í tvö hundruð milljarða króna fjárfestingarátaki og fjármagna það framan af með lántöku. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir borgina taka bæði á góðæri og kreppu með skuldsetningu. 1.12.2020 21:00
Sex milljóna króna akstursstyrkjum sagt upp hjá Rangárþingi ytra og Ásahreppi Byggðasamlagið Oddi, sem rekur grunn- og leikskóla í Rangárþingi ytra, þ.e. á Hellu og á Laugalandi í Holtum hefur sagt upp akstursstyrkjum nokkurra starfsmanna og ætlar sér að spara þannig sex milljónir króna. Um er að ræða tímabundna styrki sem tóku gildi 1 ágúst 2019 og áttu að falla út í lok júlí á næsta ári en falla út fyrr. 1.12.2020 20:40
Þakklæðningar, lausamunir og jólaskraut á flugi Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ hafa verið kallaðar út á áttunda tímanum í kvöld vegna foktjóns. 1.12.2020 20:01
„Neyðin kennir nöktum Bubba að spinna“ Of miklir fordómar eru gagnvart skrifblindum í samfélaginu, segir Bubbi Morthens, sem hefur hafið sölu á listaverkum sem unnin eru út frá frumtextum á hans þekktustu lögum. Hann hvetur fólk til að óttast ekkert og leyfa náðargáfunni að skína. 1.12.2020 20:01
Vísar ábyrgðinni á hendur Alþingi Það er vitleysa að „mylja eigi niður Hjörleifshöfðann fyrir námuvinnslu“. Þetta segir Einar Freyr Elínarson, oddviti sveitarstjórnar Mýrdalshrepps, í færslu sem hann birti á Facebook fyrir stundu. 1.12.2020 19:23
Forsætisráðherra segir fyrrverandi dómsmálaráðherra hafa axlað ábyrgð Forsætisráðherra segir dóm Mannréttindadómstólsins verða skoðaðan ítarlega af stjórnvöldum. Fyrrverandi dómsmálaráðherra hafi sagt af sér eftir fyrri dóm undirdeildar og því axlað ábyrgð á málinu, Dómsmálaráðherra segir dóminn nú ekki kalla á viðbrögð að hálfu stjórnvalda. 1.12.2020 19:20
Sigríður segir Mannréttindadómstólinn sýna Alþingi ótrúlega óvirðingu Sigríður Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra segir Mannréttindadómstólinn sýna Alþingi ótrúlega óvirðingu með dómi sínum í dag varðandi skipan dómara í Landsrétt. En dómurinn gagnrýnir hana og Alþingi fyrir hvernig staðið var að skipan dómaranna fimmtán. 1.12.2020 19:20
Gerir sér ekki vonir um að hver einasti landsmaður verði sáttur Umhverfisráðherra telur komið til móts við athugasemdir í nýju frumvarpi um hálendisþjóðgarð en segir ekki hægt að gera öllum til geðs. Sveitarstjóri segist enn mótfallin málinu. 1.12.2020 19:01
Ekki verjandi að hverfa frá niðurskurðaraðgerðum Matvælastofnun telur líklegt að riðusmit sé til staðar í hjörðinni á Syðri-Hofdölum og því ekki verjandi að hverfa frá aðgerðum til að hefta útbreiðslu veirunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST vegna andmæla landbúnaðarnefndar Skagafjarðar. 1.12.2020 18:33
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Sigríði Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra,sem segir Mannréttindadómstólinn sýna Alþingi ótrúlega óvirðingu með dómi sínum í dag varðandi skipan dómara í Landsrétt. 1.12.2020 18:00