Fleiri fréttir Tilkynnt um fleiri rafmagnstruflanir á Norðurlandi Víða eru enn truflanir á rafflutningskerfum vegna aftakaveðursins sem gekk yfir landið í vikunni. Í kvöld barst síðast tilkynning um það að rafmagnslaust væri í Langadal og Blöndudal á Norðvesturlandi vegna bilunar í flutningskerfi RARIK. Enn er unnið að því að leita að uppruna bilunarinnar. 15.12.2019 23:00 Ríflega þrjú hundruð skjálftar síðan í morgun Jarðskjálftahrinan sem hófst um klukkan átta í morgun hefur tekið sig upp að nýju. 15.12.2019 21:49 Fátækir hafi ekki efni á þvottaefni og dömubindum í desember Þvottaefni og dömubindi eru vörur sem hópur fátækra á Íslandi hefur ekki efni á að sögn formanns samtaka fólks í fátækt, sérstaklega ekki í desembermánuði. Einstæðar mæður á örorku hafi það einna verst yfir hátíðarnar enda erfitt að geta ekki boðið börnum sínum upp á það sama og önnur börn fá. 15.12.2019 20:15 Annar skjálfti við Fagradalsfjall Skjálfti að stærðinni 3,9 mældist nú skömmu fyrir átta tæplega þrjá kílómetra suðaustur af Fagradalsfjalli. 15.12.2019 20:06 Býður Breiðhyltingum upp á bragðgóðan aðventugraut Ungur maður með Breiðholtshjarta hefur yljað Breiðhyltingum síðustu sunnudaga með heimatilbúnum aðventugraut. Í dag bauð hann íbúum Fellahverfis upp á ávaxtagraut með rjóma. 15.12.2019 20:00 Spillingarlögreglan í sambandi við aðila á Íslandi Paulus Noa, framkvæmdarstjóri spillingarlögreglunnar ACC í Namibíu, segir í samtali við RÚV að embætti hans hafi verið í sambandi við "þá sem hlut eiga að máli“ í Samherjamálinu hér á landi, aðspurður um það hvort embættið hafi átt í samskiptum við yfirvöld hér á landi. 15.12.2019 19:55 Tungnamenn vilja alls ekki þjóðgarð á miðhálendinu Sveitarstjórn Bláskógabyggðar mótmælir harðlega áformum stjórnvalda um að koma upp þjóðgarði á miðhálendi Íslands. Tungnamenn eru mjög heitir vegna málsins. 15.12.2019 19:15 „Velti fyrir mér hvort öryggismál hafi farið niður á við eftir að við misstum koparlínurnar“ Fara þarf í mikla naflaskoðun á fjarskiptakerfi landsins eftir að það brást í óveðrinu í liðinni viku. Þingmaður segir þjóðaröryggi undir og að skoða þurfi hvort það sé ofar samkeppnislögum landsins. 15.12.2019 19:00 Kjötkrókur og Kertasníkir stálu hangikjöti á Árbæjarsafni í dag: „Þeir eru alveg gúgú“ Kjötkrókur og Kertasníkir stálu hangikjöti á Árbæjarsafni í dag og fannst börnunum á svæðinu þeir vera alveg ruglaðir. Þeir vöktu þó mikla lukku. 15.12.2019 19:00 Telur það heppni að öryggi og lífi sjúklinga hafi ekki verið stefnt í hættu Sveitarstjórn Húnaþings vestra sendi í vikunni frá sér nokkuð harðorða bókun vegna þess alvarlega ástands sem skapaðist í sveitarfélaginu vegna aftakaveðrisins sem gekk yfir landið. Rætt var við Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings vestra og Tryggva Þór Haraldsson, forstjóra RARIK, í Víglínunni á Stöð 2. 15.12.2019 19:00 Landsnet vilji nota jarðstrengi eftir fremsta megni og tekur undir gagnrýni á fyrirtækið Forstjóri Landsnets segir að skapa þurfi sátt um lagningu raflína. Fyrirtækið vilji nota jarðstrengi eftir fremsta megni og hann tekur undir gagnrýni um að fyrirtækið hafi ekki staðið sig við innviðauppbyggingu. 15.12.2019 18:30 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í beinni útsendingu klukkan 18:30. 15.12.2019 18:15
Sjá næstu 50 fréttir
Tilkynnt um fleiri rafmagnstruflanir á Norðurlandi Víða eru enn truflanir á rafflutningskerfum vegna aftakaveðursins sem gekk yfir landið í vikunni. Í kvöld barst síðast tilkynning um það að rafmagnslaust væri í Langadal og Blöndudal á Norðvesturlandi vegna bilunar í flutningskerfi RARIK. Enn er unnið að því að leita að uppruna bilunarinnar. 15.12.2019 23:00
Ríflega þrjú hundruð skjálftar síðan í morgun Jarðskjálftahrinan sem hófst um klukkan átta í morgun hefur tekið sig upp að nýju. 15.12.2019 21:49
Fátækir hafi ekki efni á þvottaefni og dömubindum í desember Þvottaefni og dömubindi eru vörur sem hópur fátækra á Íslandi hefur ekki efni á að sögn formanns samtaka fólks í fátækt, sérstaklega ekki í desembermánuði. Einstæðar mæður á örorku hafi það einna verst yfir hátíðarnar enda erfitt að geta ekki boðið börnum sínum upp á það sama og önnur börn fá. 15.12.2019 20:15
Annar skjálfti við Fagradalsfjall Skjálfti að stærðinni 3,9 mældist nú skömmu fyrir átta tæplega þrjá kílómetra suðaustur af Fagradalsfjalli. 15.12.2019 20:06
Býður Breiðhyltingum upp á bragðgóðan aðventugraut Ungur maður með Breiðholtshjarta hefur yljað Breiðhyltingum síðustu sunnudaga með heimatilbúnum aðventugraut. Í dag bauð hann íbúum Fellahverfis upp á ávaxtagraut með rjóma. 15.12.2019 20:00
Spillingarlögreglan í sambandi við aðila á Íslandi Paulus Noa, framkvæmdarstjóri spillingarlögreglunnar ACC í Namibíu, segir í samtali við RÚV að embætti hans hafi verið í sambandi við "þá sem hlut eiga að máli“ í Samherjamálinu hér á landi, aðspurður um það hvort embættið hafi átt í samskiptum við yfirvöld hér á landi. 15.12.2019 19:55
Tungnamenn vilja alls ekki þjóðgarð á miðhálendinu Sveitarstjórn Bláskógabyggðar mótmælir harðlega áformum stjórnvalda um að koma upp þjóðgarði á miðhálendi Íslands. Tungnamenn eru mjög heitir vegna málsins. 15.12.2019 19:15
„Velti fyrir mér hvort öryggismál hafi farið niður á við eftir að við misstum koparlínurnar“ Fara þarf í mikla naflaskoðun á fjarskiptakerfi landsins eftir að það brást í óveðrinu í liðinni viku. Þingmaður segir þjóðaröryggi undir og að skoða þurfi hvort það sé ofar samkeppnislögum landsins. 15.12.2019 19:00
Kjötkrókur og Kertasníkir stálu hangikjöti á Árbæjarsafni í dag: „Þeir eru alveg gúgú“ Kjötkrókur og Kertasníkir stálu hangikjöti á Árbæjarsafni í dag og fannst börnunum á svæðinu þeir vera alveg ruglaðir. Þeir vöktu þó mikla lukku. 15.12.2019 19:00
Telur það heppni að öryggi og lífi sjúklinga hafi ekki verið stefnt í hættu Sveitarstjórn Húnaþings vestra sendi í vikunni frá sér nokkuð harðorða bókun vegna þess alvarlega ástands sem skapaðist í sveitarfélaginu vegna aftakaveðrisins sem gekk yfir landið. Rætt var við Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings vestra og Tryggva Þór Haraldsson, forstjóra RARIK, í Víglínunni á Stöð 2. 15.12.2019 19:00
Landsnet vilji nota jarðstrengi eftir fremsta megni og tekur undir gagnrýni á fyrirtækið Forstjóri Landsnets segir að skapa þurfi sátt um lagningu raflína. Fyrirtækið vilji nota jarðstrengi eftir fremsta megni og hann tekur undir gagnrýni um að fyrirtækið hafi ekki staðið sig við innviðauppbyggingu. 15.12.2019 18:30
Bjarni segir greinilega veikleika í kerfum sem ekki var vitað nóg um "Það er alveg greinilegt að það hafa komið fram veikleikar í kerfum okkar sem við vorum ekki nægilega meðvituð um. Það er til að mynda mjög alvarlegt þegar við áttum okkur á því að grunnstofnanir eru ekki með neitt varaafl og vararafstöðvar á viðkvæmum svæðum hefðu þurft að vera til staðar,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra í Víglínunni í dag. 15.12.2019 18:00
Ofsaveðrið hitamál í Víglínunni Ofsaveðrið sem gekk yfir landið í vikunni og þær afleiðingar sem það hefur haft hefur vakið margar spurningar um innviði landsins og hvað þurfi að gera betur. Elín Margrét Böðvarsdóttir fréttamaður fær Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í Víglínuna á Stöð 2 í dag. 15.12.2019 17:15
Forstöðumaður Zuism orðinn þreyttur á stríði við yfirvöld "Ég er búinn að fá nóg, ég er búinn að eiga í þessum slag og standa einn í þessum slag fyrir félaga mína og búinn að bjóða þeim öllum að fá borgað ef þeir vilja fá borgað og nú munu þeir aftur geta fengið borgað, ef þeir telja sig hafa misst af,“ segir Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumaður trúfélagsins Zuism. 15.12.2019 14:02
Vill hægja á umferð fyrir umhverfið Þingmaður telur það í andstöðu við loftslagsmarkmið yfirvalda að ætla að hækka hámarkshraða á vegum úr 90 í 110 kílómetra hámarkshraða. 15.12.2019 13:15
Michelle Ballarin fór af landi brott í morgun Bandaríska athafnakonan Michelle Ballarin fór af landi brott í morgun en hún hefur verið hér síðustu daga og unnið að endurreisn WOW Air. 15.12.2019 12:46
Jarðskjálfti á Reykjanesskaga í morgun fannst á Hellu Snarpur jarðskjálfti, 3,5 að stærð, sem varð á Reykjanesi klukkan átta í morgun, fannst alla leið til Hellu. Hátt í sjötíu eftirskjálftar hafa mælst í morgun. 15.12.2019 12:30
Landsnet beið í rúm tvö ár eftir leyfi frá sveitarfélaginu fyrir framkvæmdum á Sauðárkrókslínu Línan brást algjörlega í óveðrinu. 15.12.2019 12:22
Þrýstingur heitavatnsins að komast í eðlilegt horf Lítill þrýstingur var á heitavatnskerfi Kórahverfis í gær og í nótt. Íbúar hverfisins ræddu það á Facebook-síðu hverfisins og virðist sem að einhverjir hafi verið alfarið án heits vatns. 15.12.2019 12:01
Skjálfti að stærð 3,5 mældist við Fagradalsfjall Nokkrir smærri skjálftar mældust í aðdraganda hans og hafa fylgt honum en samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu Íslands hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist á höfuðborgarsvæðinu. 15.12.2019 08:47
Stútar á ferð og flugi um höfuðborgarsvæðið Einn slíkur bakkaði á staur í miðbænum og var hann handtekinn. 15.12.2019 08:23
Flugvél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak vegna bilunar Flugvél Icelandair sem verið var að fljúga til Boston var snúið við skömmu eftir flugtak í kvöld. Engin hætta var á ferð. 14.12.2019 21:04
Opna vinnustofu föður síns fyrir almenningi Synir myndlistarmannsins Braga Ásgeirssonar, sem lést árið 2016, opnuðu vinnustofu hans fyrir almenningi í dag. Þar er meðal annars hægt að sjá dauðagrímu Edwards Munch í verki Braga. Þá opnuðu synir hans einnig verkasafn föður síns í dag. 14.12.2019 20:00
Segja veðjað fyrir allt að hundrað milljónir á leik ÍR og Tindastóls Íslenskar getraunir hafa beðið alþjóðlega fyrirtækið GLMS, sem hefur aðgang að upplýsingum frá veðmála- og getraunafyrirtækjum og sérhæfir sig í að rannsaka veðmálasvindl, hvort veðmál tengd leiknum hafi verið óeðlilega mikið. 14.12.2019 19:50
Tannlæknafjölskylda á Selfossi sem gerir það gott Andri Hrafn Hallsson á Selfossi, sem er 28 ára gamall er nýútskrifaður sem tannlæknir. Afi hans er líka tannlæknir, mamma hans og pabbi. 14.12.2019 19:15
Tjón Landsnets áætlað 3 - 400 milljónir Fimm heimili eru án rafmagns í dreifikerfi Rariks og verða það væntanlega til morguns en allir aðrir sem urðu fyrir rafmagnsleysi eru komnir með rafmagn. 14.12.2019 18:35
Segir ráðamenn og stjórnendur orkufyrirtækja á flótta undan ábyrgðinni Ekki sé hægt að kenna kærum landeigenda eða náttúruverndarsinna um rafmagnsleysið í vikunni. 14.12.2019 18:30
Björgólfur segist viss um að Samherji hafi ekkert ólöglegt gert Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Samherja, segist í viðtali við blaðið Dagens Næringsliv í Noregi ekki trúa því að Samherji hafi greitt neinar mútur. 14.12.2019 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö segjum við frá vinnu við að koma aftur á rafmagni á þeim stöðum sem misstu það í veðurhamnum fyrr í vikunni, en búist er við að það verk klárist í kvöld og þá verði allir komnir með rafmagn sem misstu það. 14.12.2019 18:00
Skíðasvæðið í Bláfjöllum opið í fyrsta sinn í vetur: „Það er heimsklassafæri“ Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opnað í dag, í fyrsta sinn í vetur og eru sjö skíðalyftur opnar. Vetrarveður síðustu daga hefur komið sér vel fyrir skíðaáhugafólk en brekkurnar opnuðu klukkan tíu í morgun. 14.12.2019 15:45
Vegan búðin segist ekki hafa hrakið hestvagna úr jólaþorpinu Vegan búðin hefur birt yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni þar sem því er hafnað að hestvagnar hefðu verið bannaðir í jólaþorpinu vegna búðarinnar og viðskiptavina hennar. 14.12.2019 14:02
Rarik vonast til að svo til allir verði komnir með rafmagn í lok dags Starfsmenn Rarik leggja allt kapp á að koma rafmagni til þeirra sem eru án hitaveitu vegna kulda. 14.12.2019 12:45
Þór mun þurfa að sjá Dalvík fyrir rafmagni næstu daga Íbúarnir þakklátir fyrir ylinn. 14.12.2019 12:03
Þrjátíu daga fangelsi fyrir að slá barn á íþróttamóti Atvikið átti sér stað á körfuboltamóti í Hafnarfirði í aprílmánuði á síðasta ári. 14.12.2019 11:55
Landsréttardómari fjallaði um emoji í sératkvæði Dómarinn var sammála niðurstöðu héraðsdóms um að sýkna ætti af ákæru fyrir blygðunarsemisbrot. 14.12.2019 10:23
365 miðlar greiða rúmar tvær milljónir króna vegna vangreidds orlofs Kveðinn var upp dómur í máli Petreu Ingileif Guðmundsdóttur í landsrétti í gær en hún hafði stefnt 365 hf. vegna uppsagnar og vangreidds orlofs. 14.12.2019 09:56
Hefur trú á að stjórnin styðji einhver mál stjórnarandstöðunnar Frumvarp um hækkun starfslokaaldurs og þingsályktanir um gæðastýringu í sauðfjárrækt og rannsóknir á þunglyndi meðal eldri borgara eru meðal þeirra mála sem stjórnarandstaðan fær á dagskrá Alþingis fyrir áramót. 14.12.2019 09:00
Fyrsti skíðadagur vetrarins í Bláfjöllum Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opnað í dag en það er fyrsti skíðadagur ársins. 14.12.2019 08:46
Hafði á sér eina milljón króna í reiðufé Mikið var um umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt og er það sem helst ber á í dagbók lögreglu. Hátt á annan tug ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og þó nokkrir voru teknir af lögreglu réttindalausir. 14.12.2019 07:25
Heyrnarhlífar í matsalnum vegna hávaða og ofnar sem slá allt út Foreldrar, starfsfólk og stjórnendur í Melaskóla segja þörf á endurbótum á húsnæði skólans brýna sem aldrei fyrr. 14.12.2019 07:00
Fimm manna fjölskyldu bjargað eftir rafmagnslausan sólarhring: „Þið eruð að koma með okkur“ Björgunarsveitarmenn unnu þrekvirki þegar þeir björguðu fimm manna fjölskyldu á miðvikudag sem hafði setið rafmagnslaus á bóndabæ sínum í botni Svarfaðardals í rúman sólarhring. 13.12.2019 23:16
Mynduðu kross á Heimakletti til minningar um elsku vin sinn Leif Magnus Það er óhætt að segja að sorg ríki í Vestmannaeyjum eftir að Leif Magnus Grétarsson Thisland fannst látinn í Núpá í Sölvadal þar sem slys varð á miðvikudagskvöld hvar Leif var við vinnu. 13.12.2019 22:52
Kærir gæsluvarðhaldsúrskurð vegna andlátsins í Úlfársárdal Maðurinn sem er grunaður um að hafa átt þátt í dauðsfalli manns í Úlfársárdal síðasta sunnudag hefur kært gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sér til Landsréttar. Farið var fram á gæsluvarðhald yfir honum á mánudag eftir að maður á sextugsaldri lést af sárum sínum þegar hann féll af svölum fjölbýlishúss 13.12.2019 22:20
Þjóðaröryggi þurfi að vega þyngra en hagsmunir landeigenda Ráðherrar segja ljóst að tjónið á Norðurlandi sé mikið og forgangsraða þurfi kerfinu svo þjóðaröryggi vegi þyngra heldur en hagsmunir einstaklinga til að tryggja innviði landsins. Þetta sögðu ráðherrarnir eftir að hafa kynnt sér aðstæður í dag. 13.12.2019 21:43