Fleiri fréttir

Vill aukna samkeppni á sorpendurvinnslumarkaði

Samkeppniseftirlitið telur að nýlegar breytingar á verklagi tiltekinna sveitarfélaga við söfnun á pappír og pappa í Blátunnur hindri samkeppni til tjóns fyrir heimili og íbúa.

"Það þarf tvo til að semja“

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að kjör lækna verði samkeppnishæfari við erlenda markaði.

Forseti Alþingis til Þýskalands

Einar K. Guðfinnsson og Halldór Ásgrímsson eru meðal ræðumanna á fjölþjóðlegri ráðstefnu í Berlín í tilefni af 25 ára afmælis falls Berlínarmúrsins.

Dagur segir fundarboðið stórfurðulegt

Borgarstjóri vísar því á bug að hugleysi og undanbrögð hafi ráðið því að hann afboðaði sig á þingnefndafund um flugvöllinn í Vatnsmýrinni í morgun.

„Aldrei haldið því fram að þetta væru heildarlaunin“

Læknir sem á dögunum birti launaseðil sinn á Facebook birti einungis hluta hans. Launaseðillinn er í tvennu lagi og skipt upp í dagvinnu og yfirvinnu. Þá var heldur ekki tekin í myndina 1,5 milljón króna launagreiðsla frá Heilsugæslunni á Egilsstöðum.

Förguðu eftirlíkingum af Egginu

Rúmlega fimmtíu stykkjum af húsgögnum var fargað fyrr í vikunni en þar reyndir eftirlíkingar á ferð sem komu til landsins árið 2011.

Kæra ákvörðun borgarráðs um sambýli

„Krefjumst við þess að ákvörðun þessi verði felld úr gildi,“ segir í bréfi eigenda Austurbrúnar 14 sem kært hafa ákvörðun borgarráðs um byggingu sambýlis fyrir fjölfatlaða við Austurbrún 6.

Þrír jarðstrengir fyrir 400 milljónir

Landsnet hefur lokið samningagerð vegna umfangsmestu jarðstrengjakaupa fyrirtækisins til þessa. Samið hefur verið við sænska kapalframleiðandann NKT Cables AB um kaup á þremur jarðstrengjum vegna fyrirhugaðra verkefna á næsta ári. Þeir eru samanlagt 45 kílómetrar að lengd og ætlaðir fyrir 66 kílóvolta spennu.

Líkamsárás í Grafarvogi

Tveir ungir karlmenn þurftu að leita aðhlynningar á slysadeild Landsspítalans eftir árás.

Nýbúinn hefur gefið 100 milljarða

Viðsnúningur á eiginfjárstöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja er hátt í 200 milljarðar frá hrunárinu 2008. Vöxtur tæknigeirans í greininni er eftirtektarverður eitt árið enn. Fjárfestingar aukast í skipum og tæknibúnaði. Stóraukin ásókn er í sjávarútvegs

Fékk ekki að nota glærur

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi fékk ekki að nota glærur á fundi borgarstjórnar í fyrradag. Til umræðu voru bætt göngutengsl barna og ungmenna yfir Hringbraut.

Vilja ferðamennsku í hættumat

Hópur þingmanna úr öllum stjórnmálaflokkum á Alþingi hefur lagt fram þingsályktunartillögu um áhættumat vegna ferðamennsku á Íslandi.

Hafna ásökunum framkvæmdastjórans

Stjórnendur Íbúðalánasjóðs hafna því alfarið að lagaheimild skorti fyrir stofnun og rekstri leigufélagsins Kletts, eins og Benedikt Sigurðsson, framkvæmdastjóri Búseta á Norðurlandi, hélt fram í Fréttablaðinu í gær.

Halda eftir launum en rukka þjónustugjöldin

Þótt Kópavogsbær hafi um mánaðamótin ákveðið að greiða starfsmönnum aðeins laun fram til 10. nóvember vegna verkfalls bæjarstarfsmanna sem þá kann að hefjast eru notendur þjónustu bæjarins rukkaðir um full gjöld út mánuðinn.

Ekki ljóst hvað mun sparast á uppsögnum

Framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Stjórnarráðins segir uppsagnir ræstitækna hluta af því að gera reksturinn hagkvæmari. Búið sé að undirbúa útboð á ræstingunum sem verði nú unnar á dagvöktum. Forsætisráðherra segist ekkert hafa vitað.

Getur breytt stöðu þúsunda barna

Ekki eru til peningar til að fjármagna aðgengi barna og fjölskyldna þeirra að hugrænni meðferð og foreldrafærninámskeiðum. Að mati þingmanns myndi slík aðstoð breyta stöðu þúsunda barna. Það verði að finna fjármagn til þess.

Hafa miklar áhyggjur af stöðu Landspítalans

Forseti Alþingis tók við áskorun til stjórnvalda um að hætta við fyrirhugaðan niðurskurð í fjárlagafrumvarpi. Áhyggjur sjúklinga eru sagðar aukast og formaður Hjartaheilla segir fólk deyja meðan biðlistarnir lengist.

Samþykktu að veita börnum án kennitölu leikskólaþjónustu

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur samþykkti einróma að bjóða börnum sem eru ekki með íslenska kennitölu eða lögheimili leikskólaþjónustu. Það á til dæmis við börn foreldra sem bíða eftir dvalarleyfi eða hæli hér á landi.

Vill svör um eftirlit með lögreglunni

Helgi Hrafn Gunnarsson hefur lagt fram skriflega fyrirspurn til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar eftir að hafa rætt um sama mál í óundirbúnum fyrirspurnum á mánudag.

Stál í stál í læknadeilu og lítið fundað

Á bilinu sextán til tuttugu bráðaaðgerðir gerðar á Landsspítalnum á dag en venjulega eru aðgerðir um sextíu. Engin þjónusta á göngudeild geðdeildar Landsspítalans í dag.

Sjá næstu 50 fréttir