Breyting á deiliskipulagi Hlíðarenda samþykkt Stefán Árni Pálsson skrifar 5. nóvember 2014 21:11 vísir
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í dag breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda. Málinu verður vísað til samþykkis borgarráðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að helsta breytingin á deiliskipulaginu sé sú að íbúðum á Hlíðarendasvæðinu er fjölgað úr 360 í 600. Fjölgunin byggist á því að íbúðirnar verða minni og rými atvinnuhúsnæðis minnkar talsvert. Ekki er gert ráð fyrir hækkun húsa í breyttu deiliskipulagi. Hins vegar eykst fjölbreytileiki húshæða, en byggingarnar á svæðinu voru í eldra deiliskipulagi 4-5 hæðir en verða nú 3-5 hæðir. Einnig er aðgengi bætt fyrir sorpflokkun með djúpgámum sem staðsettir verða í götukössum. Slíkir djúpgámar eru notaðir víðsvegar í bæði nýjum hverfum og eldri í Evrópu. Í breyttu deiliskipulagi er einnig gert ráð fyrir leikskóla í forbyggingu knatthúss á svæðinu. Hægt verður að samnýta íþróttavelli og yfirbyggt knatthús til leiks á veturna. Mikil áhersla er lögð á að byggðin verði fjölbreytt en kvaðir eru settar um uppskiptingu húsreita, mismunandi útlit og fjölbreytileika húshæða. Auk þess eru settar fram kvaðir sem eiga að tryggja aðlaðandi umhverfi. Helmingur íbúða á svæðinu verða tveggja herbergja, 21% 3 herbergja, 15% 4 herbergja og 14% stærri. Á svæðinu verður einnig íbúðahótel fyrir námsmenn.Rannsóknir og vöktunarhópur vegna vatnabúskapar Stefnt er að því að framkvæmdir við Hlíðarenda hefjist áður en rannsóknum á vatnafari Vatnsmýrarinnar og tilsvarandi líkangerð er lokið. Því verður spurningum um áhrif framkvæmda á vatnafarið ekki svarað áður en framkvæmdir hefjast. Byggð, flugvöllur og gróður á svæðinu mun taka miklum breytingum á næstu misserum og árum.vísir/vilhelmÞví eru sérstakar kvaðir settar fram í deiliskipulaginu um vöktun á framkvæmdatíma, svo fylgst verði vel með áhrifum framkvæmda á vatnafar. Með vöktuninni má bregðast við hugsanlegum neikvæðum áhrifum á vatnafar með skjótum hætti. Auk þess fæst vitneskja til fullnaðarákvörðunar fráveitukerfis svo mæta megi markmiðum aðalskipulags með sem bestum hætti. Einnig fæst enn betri vitneskja um vatnafar Vatnsmýrarinnar og viðbrögð kerfisins við breytingum sem framkvæmdir hafa í för með sér. Framkvæmdir á Hlíðarenda geta því orðið nokkurs konar prófsteinn á næstu skref í uppbyggingu Vatnsmýrarinnar og gefið upplýsingar sem byggja má á við mat á áhrifum framtíðarframkvæmda á vatnafar Vatnsmýrarinnar. Skipaður verður þverfaglegur samráðshópur sem mun fylgjast með vöktun, m.a. á vatnsflæði, vatnsgæðum og lífríki friðlendis og Tjarnarinnar meðan á framkvæmdum stendur. Sex aðilar gerðu athugasemd við breytingu á deiliskipulagi á auglýsingartíma. Fimm athugasemdir voru gerðar vegna lokun flugbrautar 06-24 en flugbrautina er ekki lengur að finna á skipulagi Reykjavíkurflugvallar sem tók gildi 6.júní 2014 og varðar því ekki efnislega þætti tillögunnar. Einn aðili gerði athugasemd við deiliskipulagstillöguna sem svarað var efnislega.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu Sjá meira