Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Framhald Hungurleikanna er vinsælast Þriðja bókin í þríleiknum um Hungurleikana er mest selda bók síðustu viku í Eymundsson. Hún skýtur sér þar með upp fyrir erótísku skáldsöguna Fimmtíu gráa skugga sem hafnar í þriðja sæti listans. 19.9.2012 10:53
Vilja þýða Rannsóknarskýrsluna á ensku Þingflokkur Hreyfingarinnar auk Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, leggja til að Rannsóknarskýrsla Alþingis verði þýdd á ensku í heild sinni. Þingmennirnir lögðu fram þingsályktunartillögu þess efnis í gær. 19.9.2012 10:23
Fræðslusýning um kjarnorkusprengjurnar í HÍ Fræðslu- og ljósmyndasýning um kjarnorkusprengjurnar sem varpað var á Hírósíma og Nagasaki opnaði í dag á Háskólatorgi. Sýningin fjallar um geigvænleg áhrif kjarnorkusprenginganna á íbúa og mannvirki. 19.9.2012 10:03
Kristján Möller stefnir á fyrsta sætið í Norðausturkjördæmi Kristján L. Möller hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sætið á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Þetta kemur fram á vefsíðu blaðsins Vikudagur á Akureyri. 19.9.2012 09:45
Skjálftahrina fyrir norðan Jarðskjálftahrina varð við sunnanverðan Eyjafjarðarál snemma í morgun. Stærsti skjálftinn varð um þrjár mínítur í átta en hann var 4,3 að stærð. Einn skjálfti varð fimm mínútur í átta, en hann var 3,0 að stærð og þriðji var klukkan 8:28, en hann var 4 að stærð. Þessi skjálftar eru hluti af stærri hrinu sem hefur staðið yfir frá því um helgina, en ekki er talið að um sé að ræða fyrirboða um frekari jarðhræringar. Stærstu skjálftarnir í morgun fundust greinilega á Siglufirði og Ólafsfirði. Nokkrir eftirskjálftar, sem allir eru minni en 3, hafa fundist í morgun. 19.9.2012 09:42
Vilja greiða strætókortin í áföngum Hópur nemenda í Háskóla Íslands skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að aðstoða stúdenta við kaup á nemendakorti í strætó fyrir veturinn. Hópnum finnst verðið á kortunum helst til of hátt og leggur til að stúdentum verði gert kleift að skipta gjaldinu niður og greiða kortið í fjórum greiðslum. 19.9.2012 09:40
Hanar bannaðir á Selfossi Bæjarráð Árborgar hefur gefið húsráðendum í Hafnartúni á Selfossi leyfir fyrir að halda sex landnámshænur í garðinum til eins árs. Ekki er gefið leyfi til að hafa hana. Bæjarráð fer fram á það að hænunum sé haldið innan girðingar. 19.9.2012 09:15
Óttast að tollstjóri hafi mismunað fyrirtækjum sem skulda skatta Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður segist hafa áhyggjur af því að jafnræðis hafi ekki verið gætt í meðferð tollstjóra á fyrirtækjum sem skulda skatta. Tollstjóri kom fyrir efnahags- og viðskiptanefnd í morgun. Guðlaugur vill að Ríkisendurskoðun skoði málið. 19.9.2012 12:09
Sveppaeitur í barnagraut Yggdrasill hefur innkallað þriggja korna lífrænan barnagraut þar sem í honum mældist aukið magn OTA (mycotoxin), sem er myglusveppaeitur. 19.9.2012 08:00
Skýrsla Seðlabanka krefst mikillar yfirlegu Efnahagsmál Forsvarsmenn aðila vinnumarkaðarins fagna nýrri skýrslu Seðlabankans um valkosti Íslands í gjaldmiðilsmálum. Framkvæmdastjóri SA segir að treysta þurfi krónuna og forseti ASÍ segir ljóst að upptaka evru sé besti kosturinn í stöðunni. Þá telja þeir báðir mikilvægt að skýrslan verði rædd. 19.9.2012 07:30
Skynjarar og eftirlit besta vörnin gegn gasóhöppum Gassprengingin sem varð í íbúð við Ofanleiti hefur vakið almenning til umhugsunar um slysavarnir. Farsælast er talið að setja upp skynjara, vanda til verka við uppsetningu búnaðar og stunda reglulegt eftirlit. 19.9.2012 07:00
Tveir teknir vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann sem fór um Árbæjarhverfið í gærkvöldi vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. 19.9.2012 06:24
Mikið þýfi, riffill og dínamít hjá Outlaws Ungur maður tengdur vélhjólasamtökunum Outlaws úrskurðaður í varðhald í kjölfar húsleita í Mosfellsbæ og Hafnarfirði. Þar fannst mikið af raftækjum sem talin eru stolin, riffill og dínamíttúba. Nýr leiðtogi Outlaws ekki handtekinn. 19.9.2012 06:00
Krefjast yfir fjórðungs launahækkunar Nokkur hundruð hjúkrunarfræðingar söfnuðust saman í gærmorgun við skrifstofu Landspítalans á Egilsgötu til að hvetja samninganefnd félagsins sem þá átti fund með fulltrúum sjúkrahússins vegna svokallaðs stofnanasamnings sem gera á í kjölfar miðlægs kjarasamnings allra heilbrigðisstofnana á landinu. 19.9.2012 06:00
Fimm milljóna tjón af kjúklingaúrgangi Leigutaki Ytri-Rangár vill að Rangárþing ytra borgi fimm milljóna króna bætur vegna tjóns sem varð er kjúklingaúrgangur og klósettpappír lak frá sláturhúsi á Hellu í fyrra. Ekki okkar ábyrgð þótt við eigum fráveituna segir sveitarstjórinn. 19.9.2012 05:00
Fjölmenningarsetur fær meira Fjölmenningarsetur, sem starfrækt hefur verið á Ísafirði, verður eflt samkvæmt frumvarpi til laga um málefni innflytjenda. Ráðherra mun skipa forstöðumann setursins til fimm ára í senn. 19.9.2012 05:00
Engin stimpilgjöld við skipti á banka Nefnd vinnur að frumvarpsdrögum sem eiga að draga úr kostnaði við flutning viðskipta á milli lánardrottna. Önnur nefnd á að endurskoða neytendavernd á íslenskum fjármálamarkaði. Hún skilar skýrslu í síðasta lagi 15. janúar 2013. 19.9.2012 04:30
„Menn finna bara hrúgu og grafa það sem er dautt“ Hundruð hræja hafa verið grafin á víð og dreif í fjöllum Norðurlands eftir vetrarhörkurnar. Umhverfisstofnun segir skýrt að einungis eigi að farga slíku hjá viðurkenndum aðilum. Þúsundir fjár enn týndar. 19.9.2012 04:00
Bjargráðasjóður bæti bændum tjónið Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, ræddi fjárskaðann á Alþingi í gær og benti á að fé úr Bjargráðasjóði hefði verið ráðstafað til bænda vegna eldgosanna árin 2010 og 2011. Steingrímur J. Sigfússon atvinnumálaráðherra sagði Bjargráðasjóð verða nýttan til að bæta bændum tjónið. 19.9.2012 04:00
Hafa þurft að keyra framhjá slysum vegna manneklu Lögreglumenn á Selfossi eru að bugast undan vinnuálagi því lögreglumönnunum fækkar stöðugt á vöktum, eru oft bara þrír en eiga á sama tíma að sinna fimmtán þúsund íbúum í Árnessýslu og ferðamönnum á svæðinu. Yfirlögregluþjónn segir að lögreglumenn þurfi stundum að keyra fram hjá slysum til að sinn öðrum brýnni verkefnum. 18.9.2012 21:21
Eina vegagerðin næstu tvö ár Lægsta boð í lagningu nýs Álftanesvegar reyndist tvöhundruð milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Þetta er stærsta verk sem boðið hefur verið út í vegagerð á Reykjavíkursvæðinu í fjögur ár og eina stóra verkið sem þar verður unnið næstu tvö árin. Verkið var áður boðið út árið 2008 en þá slegið af vegna hrunsins. 18.9.2012 20:30
Ók upp á torg og reif kjaft við lögreglu Lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina tæplega tvítugan karlmann sem ók undir áhrifum fíkniefna og endaði aksturinn uppi á Reykjavíkurtogi á Hafnargötu. 18.9.2012 20:24
Bakpoki titraði á Keflavíkurflugvelli Starfsmenn öryggisgæslunnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar urðu um helgina varir við bakpoka sem titraði á flughlaði við flugstöðina. Þeir höfðu samband við lögregluna á Suðurnesjum og tilkynntu henni um málið. 18.9.2012 19:59
Orðið "svín" rispað á bíl Bifreið sem stóð á plani við verkstæði í Reykjanesbæ varð fyrir barðinu á skemmdarvörgum í gær. Skorið hafði verið á hægra afturdekk og vinstra framdekk. 18.9.2012 19:42
Íslenskir bændur ekki jafn tækjaóðir og Economist heldur fram Íslenskir bændur eru tækjaóðustu bændur veraldar ef marka má hagfræðitímaritið The Economist. Þar er fullyrt að hvergi í heiminum séu jafn margir traktorar miðað við ræktarland. Bændasamtökin segja útreikninginn galinn. 18.9.2012 19:33
Kvíðir því að sjá Djúpið Ungur maður sem sjö ára missti föður sinn þegar skipið Hellisey fórst við Vestmannaeyjar vonar að kvikmyndin Djúpið vekji athygli á harmleiknum og þeim þjáningum sem fjölskyldur sjómanna þurfa að ganga í gegnum þegar skipskaði verður en ekki aðeins afreki Guðlaugs. Faðir hans hefði orðið 55 ára í dag. 18.9.2012 18:45
Saka minnihlutann um ómálefnalegan málflutning Borgarfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar segja að tillaga Sjálfstæðisflokksins um útsvarslækkun sé algjörlega ófjármögnuð. Tillagan sé lögð fram af því að borgarreksturinn gangi svo vel. Sjálfstæðismenn hafi aftur á móti sent frá sér tilkynningu í síðustu viku um að aðgerða væri þörf því borgarreksturinn væri á hverfanda hveli. 18.9.2012 17:52
Tvítugur Outlaws-maður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Karlmaður um tvítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald í fjórar vikur að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Maðurinn var handtekinn í aðgerðum lögreglu í gær þegar hún gerði húsleitir í Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Lagt var hald á fíkniefni, þýfi, skotvopn og sprengiefni, en það síðastnefnda fannst í félagsheimili Outlaws í Hafnarfirði. 18.9.2012 17:21
Flestir ganga eða hjóla í skólann Yfir 90% nemenda og starfsfólks í Fossvogsskóla hefur hjólað í skólann síðustu daga en nú stendur yfir átakið Göngum/hjólum í skólann í grunnskólum borgarinnar. Átakið hvetur börn og starfsfólk til aukinnar hreyfingar. 18.9.2012 17:02
Veistu hver er á myndinni? Maðurinn sem sést á meðfylgandi mynd, íklæddur í blárri yfirhöfn og dökkum buxum, í Herjólfsdal mánudaginn 6. ágúst síðastliðinn klukkan 05:35 er beðinn um að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010. Aðrir þeir sem telja sig geta upplýst um hver þessi maður er eru líka beðnir um að koma þeim upplýsingum til lögreglu. Maður þessi er talinn búa yfir upplýsingum sem gagnast gætu við rannsókn máls. 18.9.2012 16:58
Krefjast gæsluvarðhalds yfir Outlaws-manni Krafist er gæsluvarðhalds yfir karlmanni í tengslum við húsleitir sem gerðar voru í Hafnarfirði og í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Á báðum stöðum var hald lagt á fíkniefni en á öðrum þeirra var jafnframt að finna veruleg magn af því sem talið er vera þýfi úr innbrotum á bæði höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Á síðarnefnda staðnum var einnig lagt hald á skotvopn en þar tók lögreglan ennfremur sprengiefni í sína vörslu. Fulltrúar frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem gæsluvarðhaldskrafan er tekin fyrir. Fyrir utan bíða félagar mannsins og eins og sést á þessari mynd er að minnsta kosti annar þeirra merktur samtökunum. 18.9.2012 16:48
Nafn mannsins sem lést Karlmaðurinn sem lést eftir sprengingu í íbúð í Ofanleiti í Reykjavík hét Jón Hilmar Hálfdánarson. Hann var fæddur 1973. Sprengingin varð fyrir hádegi á sunnudag og var Jón Hilmar fluttur umsvifalaust á sjúkrahús. Hann lést eftir hádegi í gær. 18.9.2012 16:32
Taka kröfur stúdenta alvarlega Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, kynntu kröfur stúdenta í ríkisstjórn í morgun. Stúdentaráð Háskóla Íslands stóð í gær fyrir gjörningi fyrir utan Alþingishúsið og afhenti ráðherrunum tveimurum 3000 póstkort frá nemendum í HÍ. 18.9.2012 16:27
30 daga fangelsi fyrir fíkniefnabrot Karlmaður var í dag dæmdur í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft rúm 70 grömm af kannabisefnum og tæp 13 grömm af amfetamíni í vörslum sínum. Auk þess fannst eins meters löng sveðja í íbúð hans. 18.9.2012 15:52
Upplýsingavefur um þjóðaratkvæðagreiðslu Samtök um nýja stjórnarskrá hafa opnað vefsetið sans.is. Þar er að finna kynningarefni, fræðigreinar, viðtöl og fjölmiðlaumfjöllun fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um tillögur Stjórnlagaráðs þann 20. október næstkomandi. 18.9.2012 15:40
Ríkisstjórnin mun bæta tjón fjárbænda Ríkisstjórnin mun styðja fjárhagslega við bændur á Norðurlandi sem hafa orðið fyrir tjóni vegna veðurfarsins á landssvæðinu í síðustu viku. Þetta kom fram í svari Steingríms J. Sigfússonar, atvinnuvegaráðherra, við fyrirspurn Kristjáns L. Möller, formanns atvinnuveganefndar, á þinginu í dag. 18.9.2012 14:44
Veikindi í háloftunum Þrjár flugvélar hafa lent á Keflavíkurflugvelli á undanförnum dögum með veika farþega. Ein þeirra, sem var á leið frá Berlín til New York, lenti í gær með veika konu. Í fyrradag lenti önnur vél, á leið frá Abu Dabi til New York, vegna konu sem veikst hafði hastarlega um borð. Þriðja flugvélin kom frá Minneapolis á laugardag og um borð í henni var aldraður maður sem átti í öndunarerfiðleikum. Allir farþegarnir þrír voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og einn þaðan á Landspítalann. 18.9.2012 14:12
Kýldi lögreglumann á Café Kósý Tuttugu og fjögurra ára gamall karlmaður á Fáskrúðsfirði var í morgun dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kýlt lögregluþjón á Café Kósý á Reyðarfirði í júní. Hann reif svo í talstöð lögreglumannsins með þeim afleiðingum að talstöðin lenti í jörðinni. Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómnum. Hann hefur tvívegist gengist undir sáttir hjá lögreglustjóra vegna brota á umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. 18.9.2012 14:06
Erlend ríki horfa til Íslands Eiríkur Bergmann, stjórnlagaráðsmeðlimur, segir að erlend ríki sem stefna að endurskoðun stjórnarskráa sinna horfi gjarna til vinnu stjórnlagaráðs og fyrirkomulags endurskoðunarinnar hérlendis. Íslenska endurskoðunin þykir víða til fyrirmyndar, að sögn Eiríks. 18.9.2012 13:53
Ætla að leigja þyrlur fyrir Gæsluna í stað þess að kaupa Ríkistjórnin samþykkti í morgun tillögu Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um að falla frá samstarfssamningi við Norðmenn um kaup á nýrri björgunarþyrlu sem gerður var 30. nóvember 2007. Í sameiginlegri yfirlýsingu Ögmundar Jónassonar innanríksráðherra og Grete Faremo, dómsmálaráðherra Noregs, segir að þessi ákvörðun sé tekin vegna mikils aðhalds í ríkisútgjöldum. Kaup á nýjum björgunarþyrlum krefjist mikilla fjárfestinga sem ekki sé unnt að ábyrgjast á næstu árum. Þess í stað áformi íslensk stjórnvöld að bjóða út langtímaleigu á tveimur þyrlum til viðbótar við núverandi þyrlu Landhelgisgæslunnar til þess að tryggja að hér verði þrjár björgunarþyrlur tiltækar. 18.9.2012 13:41
Erfðabreyttra hráefna ekki getið Ný íslensk rannsókn sýnir að talsvert er um að vörur sem seldar eru í verslunum landsins innihaldi erfðabreytt hráefni án þess að um það sé getið á vörumerkingum. Með þessu er vegið að valfrelsi neytenda en síðan í janúar á þessu ári hefur verið skylt að tilgreina um erfðabreytt hráefni á vörumerkingum hér á landi. 18.9.2012 13:35
Enn treystir enginn sér til að meta tjónið Atvinnuveganefnd fundaði í morgun um veðurhamfarirnar á Norðurlandi í síðustu viku. Enn treystir enginn sér til að meta tjónið sem varð af óveðrinu og ekki er von á neinum tölum fyrr en í fyrsta lagi í október. 18.9.2012 13:21
Grunaður um kynferðisbrot gegn pilti yngri en 15 ára Karlmaður á miðjum aldri frá Akureyri hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því á fimmtudaginn í síðustu viku vegna gruns um kynferðisbrot gegn pilti yngri en fimmtán ára gömlum. 18.9.2012 13:20
Ekki tekið ákvörðun um áfrýjun Maðurinn sem dæmdur var í átta ára óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir gróf kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort að dómnum verði áfrýjað. Áfrýjunarfrestur rennur út 15. október næstkomandi. 18.9.2012 13:08
Um 200 hjúkrunarfræðingar söfnuðust saman við Landspítalann Að minnsta kosti tvö hundruð hjúkrunarfræðingar söfnuðust saman við Eiríksstaði á Landspítalanum klukkan níu í morgun til að sýna samninganefnd sinni stuðning. Samningafundi í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga á spítalanum lauk nú rétt fyrir hádegi en stofnanasamningar þeirrra eru lausir og hafa verið það í rúmt ár. 18.9.2012 12:06