Fimm milljóna tjón af kjúklingaúrgangi 19. september 2012 05:00 Svona vilja veiðimenn hafa umhorfs þegar þeir heimsækja bakka Ytri-Rangár. Fréttablaðið/Garðar
Leigutaki Ytri-Rangár vill að Rangárþing ytra borgi fimm milljóna króna bætur vegna tjóns sem varð er kjúklingaúrgangur og klósettpappír lak frá sláturhúsi á Hellu í fyrra. Ekki okkar ábyrgð þótt við eigum fráveituna segir sveitarstjórinn. „Við getum ekki samþykkt að óskoðuðu máli að greiða skaðabætur enda er tjónið ekki af völdum sveitarfélagsins heldur þeirra sem nota fráveitu þess,“ segir Gunnsteinn Ómarsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra um kröfu Lax-ár ehf. um að sveitarfélagið borgi fimm milljónir króna vegna tjóns á veiðiskapnum í Ytri-Rangá. Lax-á er leigutaki Ytri-Rangár sem er aflasælasta laxveiðiá landsins. „Þann 7. september 2011 urðu veiðimenn sem voru við veiðar í Ytri-Rangá varir við að í hana lak alls kyns úrgangur, meðal annars kjúklingafita, kjúklingainnyfli og klósettpappír,“ segir í bréfi sem Rangárþingi ytra barst á dögunum frá lögmannskrifstofunni Lögmáli fyrir hönd Lax-ár. Í ljós hafi komið að úrgangurinn stafaði frá sláturhúsi Reykjagarðs. Yfirflæði hafi orðið í veitukerfi. „Eins og gefur að skilja vakti mengun þessi mikinn viðbjóð meðal þeirra veiðimanna sem voru við veiðar í ánni og hættu þeir þegar veiðum og yfirgáfu ána,“ segir í bréfi Lögmáls sem kveður Lax-á hafa orðið fyrir fjártjóni sem rekja megi til aðgerða eða eftir atvikum aðgerðarleysis Rangárþings ytra og starfsmanna Reykjagarðs. „Þeir veiðimenn sem áttu veiðidag þegar hið umrædda atvik átti sér stað hafa óskað eftir endurgreiðslu eða skaðabótum enda var áin ekki veiðifær. Þá er einnig ljóst að umbjóðandi minn átti í erfiðleikum með að selja veiðileyfi í ánni sökum þeirra fjölmiðlaumfjöllunar sem átti sér stað vegna mengunarinnar,“ segir Lögmál og bætir við að koma hefði mátt í veg fyrir tjónið ef rétt hefði verði staðið að verki. Lax-á meti tjónið á 5.118.920 krónur. Þess sé óskað að sveitarfélagið taki afstöðu til þess hvort bótaskylda sé viðurkennd og til þess hvort skaðabætur verði greiddar. Einnig hefur verið leitað afstöðu Reykjagarðs til málsins. „Tjónið er talið nema rúmum fimm milljónum króna án þess að það sé á nokkurn hátt útskýrt,“ segir Gunnsteinn sveitarstjóri. Eins áður kom fram telur hann sveitarfélagið ekki bera ábyrgð á því sem aðrir setja ofan í fráveitukerfi þess. „Við funduðum með forsvarsmönnum Lax-ár strax eftir þetta leiðindatilvik og niðurstaða þeirra funda var sú að tjónið yrði tekið saman og ábyrgðaraðila yrði leitað í framhaldinu og hugsanlegra trygginga sem á tjóninu gætu tekið,“ segir Gunnsteinn sem kveður málið nú til skoðunar hjá lögmanni sveitarfélagsins. gar@frettabladid.is
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira