Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldsvoði í potti Litlu munaði að illa færi þegar eldur kviknaði í potti sem stóð á eldavél á gistiheimili á Veghúsastíg í kvöld. Slökkviliðið var kallað til vegna reykjar. Einn dælubíll var sendur á staðinn og þegar þangað kom var mikill hiti og reykur í umræddu herbergi. Slökkviliðinu tókst að slökkva eldinn áður en hann barst úr pottinum. 26.8.2012 19:21
Armstrong var foringinn í Öskju Íslenskur fréttamaður, sem fyrir 45 árum fylgdist með Neil Armstrong æfa sig í Öskju fyrir tunglferðina, segir að þótt hann hafi verið hógvær og lítillátur hafi hann verið foringinn í hópnum. Bandarísku geimfararnir skelltu sér meðal annars á sveitaball í Mývatnssveit. Landslagið í Öskju þótti nægilega framandi og ógnvekjandi til að þjálfa geimfarana andlega undir tunglgöngu og kannski hjálpaði það Neil Armstrong að hafa setið á brún Vítis tveimur árum fyrr þegar honum tókst með snarræði á síðustu stundu að afstýra tunglferjunni frá því að lenda oní álíka gíg á tunglinu. 26.8.2012 19:15
Pilturinn fundinn 15 ára piltur sem lögregla lýsti eftir fyrr í dag er kominn í leitirnar. Hann hafði ekki sést síðan 21. ágúst en fannst í dag eftir að lögregla lýsti eftir honum. Hann var að sögn heill á húfi. 26.8.2012 19:00
Áfram mikil makrílgegnd við landið Endanlegar niðurstöður úr rannsóknarleiðangri Íslands, Noregs og Færeyja staðfesta að makríll er áfram í miklu magni við strendur landsins. 29% af heildarmagni makríls í Norðaustur Atlantshafi fannst innan íslenskrar efnahagslögsögu. 26.8.2012 18:56
Katrín réðist á þá sem vörðu grunnstefnuna Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra Vinstri grænna sakar Katrínu Jakobsdóttur varaformann flokksins um að ráðast ómaklega að andstæðingum ESB aðildar. Hann segir forystuna ekki geta hælt sér af því að ganga gegn grunnstefnu flokksins. 26.8.2012 18:38
Lesari sumarsins las yfir fimm þúsund síður Lesari sumarsins var krýndur á Ísafirði en 42 börn tóku þátt í sumarlestri Bókasafnsins á Ísafirði þetta árið. Lesari ársins var Rán Kjartansdóttir sem las 5.314 blaðsíður í sumar. Krakkarnir lásu samtals 380 bækur. 26.8.2012 17:39
Ef Alþingi ákveður annan kjördag verður að hlíta því Innanríkisráðuneytið lítur svo á að þjóðaratkvæðagreiðslan sem auglýst var í vikunni um frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnarskrár sé ekki ólögleg þó hún sé haldin 20. október. Ef hins vegar Alþingi ákveður annan kjördag þegar það kemur saman verður ráðuneytið að hlíta því. 26.8.2012 17:15
Framkvæmdir við Stúdentakjallarann skotganga Framkvæmdir við Stúdentakjallarann skotganga. Frá því í júní hafa verktakar unnið á svæðinu og nú á föstudaginn var staðan á framkvæmdunum svona. Stefnt er að því að Stúdentakjallarinn opni 1. desember með pompi og prakt. Sara Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs HÍ, segir að þó það sé smá klikkun að opna bar fyrir háskólanemendur nokkrum dögum fyrir lokapróf verði staðurinn líklega kærkomið afdrep fyrir prófþreytta háskólanema. 26.8.2012 16:36
Fimleikamenn þurfa meira pláss Alls staðar vantar meira húsnæði til fimleika en sprening hefur verið meðal ungmenna á íþróttinni undanfarinn ár. Formaður Fimleikasambands Íslands segir sveitarfélögin ekki hafa brugðist við þessum vaxandi áhuga. 26.8.2012 15:18
Synda boðsund yfir Faxaflóann Fjórar sjósundskonur þreyta þessa stundina hið svokallaða Faxaflóasund, en það er vegalengdin milli Reykjavíkur og Akraness. Konurnar eru allar þaulvanar sjósundskonur og skiptast á að synda í eina klukkustund í senn. Á meðan bíða hinar í bát sem fylgir þeim á leiðinni. 26.8.2012 15:11
Vilja efla tengsl Alaska og Íslands Á Norðurslóðaþingi sem nú er haldið í Alaska kom fram mikill áhugi á að efla samvinnu Alaska og Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti fundi með ráðamönnum á þinginu. 26.8.2012 15:02
Engin sundlaug í Fossvoginn í bili Ólíklegt má telja að sundlaug í Fossvoginum verði að veruleika á allra næstu árum en borgarstjóri og bæjarstjórinn í Kópavogi ræddu málið á fundi fyrir helgina. 26.8.2012 14:17
Ólýsanlega gott að geta hlaupið Í dag leggur Helgi Sveinsson af stað til London, þar sem hann keppir í þremur greinum á Ólympíumóti fatlaðra og stefnir á gullið í tveimur þeirra. Helgi hefur náð undraverðum árangri á stuttum tíma, en hann byrjaði aftur að hlaupa fyrir einu og hálfu ári, eftir að hafa misst annan fótinn í kjölfar krabbameins þegar hann var 19 ára. 26.8.2012 15:23
Lýst eftir Marínó Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Marínó Birni Kristinssyni 15 ára. Marínó, sem er grannvaxinn og 165 sm á hæð, er með blá augu og stutt, brúnt hár. Síðast er vitað um ferðir hans í Búðardal þann 21. ágúst. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Marínós eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. 26.8.2012 14:47
Norðurljósin verða tíð í vetur Norðurljósin eru nú þegar byrjuð að dansa á himninum yfir landinu á kvöldin þó enn sé sumar. Myndin hér til hliðar var tekin á föstudaginn síðasta af ljósmyndaranum Olgeiri Anderssyni. Að hans sögn verður sólvirknin í hámarki í vetur með tíðum sólgosum og sólstormum. Það mun skila sér í óvenjumiklum norðurljósum, „og fleiri ferðamönnum," segir Olgeir sposkur. Íslendingar mega því eiga von á að himinninn logi óvenju oft í vetur. 26.8.2012 13:53
Ekki ástæða til að banna einkarekstur í heilbrigðisþjónustu Hugmyndir fyrrverandi heilbrigðisráðherra um að leggja fram frumvarp um að banna einkarekstur innan heilbirgðiskerfisins eru ótímabærar að mati formanns Læknafélags Íslands. 26.8.2012 13:19
Nyrsta hlaup landsins Fyrsta almenningshlaupið sem efnt hefur verið til í Grímsey verður 8. september næstkomandi. Það verður því nyrsta hlaup sem nokkurn tíma hefur verið hlaupið á Íslandi. 26.8.2012 12:57
Fimmtíu manns leituðu að konunni sem aldrei týndist Mannleg mistök urðu til þess að umfangsmikil leit að erlendri konu stóð yfir í meira en hálfan sólarhring í gær. Leitinni var hætt þegar í ljós kom að konan var ekki týnd heldur hafði verið oftalið rútuna sem hún hafði ferðast með. 26.8.2012 12:36
Ölvaður ökumaður í árekstri Í gærkvöldi varð harður árekstur á milli tveggja fólksbifreiða á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar. Ekki urðu slys á fólki. Báðar bifreiðarnar eru mikið skemmdar og voru fluttar með dráttarbílum af vettvangi. Hreinsa þurfti olíu af gatnamótunum. Ökumaður annarar bifreiðarinnar, kona á fimmtugsaldri, var ölvuð og gistir fangageymslu. Hún verður yfirheyrð þegar hún verður í ástandi til þess. 26.8.2012 12:14
Ótímabært að Jóhanna hætti sem formaður Katrín Júlíusdóttir, samfylkingarkona og verðandi fjármálaráðherra, fann fyrir miklum stuðningi við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær. Henni finnst algerlega ótímabært að Jóhanna hætti sem formaður flokksins núna. 26.8.2012 12:11
Miklar hræringar innan stjórnmálaflokka í vetur Það verður mikil barátta innan stjórnarflokka næsta vetur þegar raðað verður á framboðslista. "Það verða miklar hræringar. Það er alveg ljóst," segir Guðmundur Hálfdanarson, sagnfræðingur, í viðtali í útvarpsþættinum Á Sprengisandi í dag. 26.8.2012 12:00
Evrópumálin munu koma Samfylkingunni til góða Umræðan á næstu mánuðum innan Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna mun að mestu leyti snúast um að sýna fram á ágæti ríkisstjórnarsamstarfsins og hve mikill árangur hefur náðst. Þetta segir Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, sem er gestur Sigurjóns M. Egilssonar í útvarpsþættinum Á Sprengisandi þennan morguninn. 26.8.2012 11:28
Kjálkabrotinn hjólreiðamaður þurfti ekki hjálp Rúmlega eitt í nótt datt maður síðan af reiðhjóli og hlaut töluverða áverka í andliti og brotnar tennur. Hann brást hinn versti við þegar lögregla kom á staðinn og reyndi að koma undan poka sem hann var með í fórum sínum sem virtist innihalda kannabisefni. Eftir að lögregla hafði haldlagt efnin í pokanum var hann fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Maðurinn var ölvaður og hjálmlaus á reiðhjólinu. Á slysadeild kom í ljós að hann var með brotinn kjálka og var lagður á gjörgæsludeild. 26.8.2012 10:51
Kviknaði í tusku á hótelherbergi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til þegar eldur kviknaði á gistiheimili í miðborginni í nótt. Eldurinn var smár í sniðum og kviknaði inni á herbergi. Slökkviliðið sendi einn dælubíl á vettvang en þegar hafði tekist að slökkva eldinn þegar slökkviliðið kom á staðinn en þörf var á að reykræsta herbergið. Eldurinn kviknaði í tusku á herberginu. Ekki er útilokað að um íkveikju sé að ræða. 26.8.2012 10:50
1500 manns á flugeldasýningu við Jökulsárlón Um 1500 manns komu saman við Jökulsárlón í gær og fylgdust með flugeldasýningu Björgunarfélags Hornafjarðar yfir lóninu. Auk þess fylgdist talsverður fjöldi fólks með henni í beinni útsendingu á vefmyndavél Mílu. Sýningin stóð í um fjörutíu mínútur. Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls, segir að upplifunin hafi verið engu lík. Bæði gefi umhverfið sýningunni töfrandi blæ auk þess sem hún sé óvenju vegleg og vari lengi. Sýningin var þáttur í fjáröflun Björgunarfélags Hornafjarðar. Hver gestur greiddi þúsund krónur í aðgang. Þar sem gestirnir voru 1500 má gera ráð fyrir að sýningin hafi skilað drjúgum tekjum. 26.8.2012 10:21
Tekur ekki undir með Lilju Sigurjón M. Egilsson, þáttarstjórnandi á Bylgjunni, tekur ekki undir með Lilju Mósesdóttur að nýir og litlir stjórnmálaflokkar eigi erfitt uppdráttar í fjölmiðlum hér á landi og fái ekki nægilegt aðgengi að þeim. Lilja Mósesdóttir tilkynnti í vikunni að hún hyggðist hætta sem formaður nýja flokksins Samstöðu. Þá sagði hún að fjölmiðlar hefðu lítinn áhuga á því að fjalla um ný stjórnmálaöfl. 26.8.2012 10:17
Týnda konan leitaði að sjálfri sér Leit að erlendri konu sem hafði verið saknað síðan um hádegi í gær var hætt um klukkan þrjú í nótt þegar í ljós kom að hún var alls ekki týnd. Hún hafði þvert á móti hjálpað samviskusamlega til við að leita að sjálfri sér. 26.8.2012 10:07
Ekkert bólar á Skaftárhlaupinu Ekkert hefur gerst í nótt sem bendir til þess að Skaftárhlaup sé hafið eða að hefjast. Flugmaður tilkynnti um það í gær að íshellan yfir vestari katlinum hefði sigið, sem er merki um hlaup. Snorri Zophoníasarson hjá Veðurstofunni segir hinsvegar að enn bendi ekkert til þess að eitthvað sé að gerast en þó mælist ketilvatn í ánni. Hafi hlaupið úr katlinum í gær tekur það vatnið um tuttugu til tuttugu og fjóra tíma að renna út í Skaftá en sextíu kílómetra leið er úr katlinum og að ánni. Í gærmorgun varð vart við jarðhræringar á svæðinu en nóttin var hinsvegar róleg. 26.8.2012 09:58
Neil veiddi í Mývatnssveit og fór á sveitaball "Hann var frekar hlédrægur maður og lét lítið yfir sér, kurteis og elskulegur mjög," sagði Sverrir Pálsson, ljósmyndari á Akureyri, um Neil Armstrong, en Sverrir hitti geimfarann á Íslandi sumarið 1967. Sverrir tók þá fjölda ljósmynda sem nú eru orðnar ómetanlegar heimildir um æfingar geimfara NASA í Öskju og Dyngjufjöllum fyrir tunglferðirnar heimssögulegu. NASA stóð fyrir tveimur leiðöngrum til Íslands, sá fyrri var árið 1965 og sá seinni 1967. Armstrong var í síðari 26.8.2012 01:15
Íslensk vindmylla fyrir sumarbústaði Ungur uppfinningamaður hefur hannað vindmyllu sem hentar vel fyrir sumarbústaði. Myllan kemur á markað snemma á næsta ári. 25.8.2012 21:15
Magnað sjónarspil yfir Jökulsárlóni - bein útsending Í kvöld verður árviss flugeldasýning yfir Jökulsárlóni auk þess sem ísjakar verða lýstir upp með kertaljósi. Míla verður með beina útsendingu frá dýrðinni af vefmyndavél á þessari slóð. Því geta þeir sem ætla að hafa huggulegt kvöld heima við fylgst með sjónarspilinu úr sófanum. Sýningin hefst um ellefu og varir í um hálftíma. 25.8.2012 20:35
Allt appelsínugult í Nostalgíu fyrir konurnar Appelsínuguli dagurinn er í dag en hann er uppátæki samtakanna UN Women, hugsaður til að minna á réttindabaráttu kvenna. Í tilefni dagsins gera verslanir við Laugaveginn miðbæinn appelsínugulari en gengur og gerist. Verslunin Nostalgía er fremst meðal jafningja í átakinu. 25.8.2012 15:09
Færa op frárennslisins lengra frá ströndinni Í gærkvöldi var heljarinnar plastleiðsla sjósett í Vestmannaeyjahöfn. Ætlunin er að tengja leiðsluna á næstu dögum við frárennslisrör bæjarins. Við þá breytingu færist op frárennslisrörsins 250 út frá ströndinni. 25.8.2012 17:12
Ræða Jóhönnu í heild sinni Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hélt ræðu á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í morgun. Þar talaði hún um afstöðu flokksins til Evrópusambandsaðildar, góðan árangur í að verja velferðarkerfið og stóru málin í kosningabaráttu komandi vetrar svo fátt eitt sé nefnt. 25.8.2012 16:46
Íslandsmeistaramót í fjallahjólreiðum Íslandsmeistaramótið í fjallahjólreiðum fer fram við Hvaleyrarvatn á morgun. 30 hjólreiðagarpar eru skráðir til leiks. 25.8.2012 16:21
Ríkisstjórnarsamstarfið hefur skilað ótvíræðum árangri Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs er lokið. Á fundinum voru samþykktar nokkrar ályktanir, meðal annars um að ríkisstjórnarsamstarf VG og Samfylkingarinnar hafi skilað miklum og ótvíræðum árangri, að brotið hafi verið á stúlkunum þremur í pönksveitinni Pussy Riot, að varasamt sé að leggja rafmagnsstreng milli Íslands og Skotlands, að rétt sé að auglýsa opinberar stöður og að minnka eigi takmörkun á tjáningafrelsi. 25.8.2012 16:14
Hundur í óskilum í Hafnarfirði Hundur fannst í Hafnarfirði í gær en eigandi hans hefur enn ekki fundist þrátt fyrir góða dreifingu á þessari mynd á fésbókinni og víðar. Ef einhver saknar hundsins má ná í manneskjuna sem fann hann í síma 8672253. 25.8.2012 15:53
Þynnkumáltíð fyrir meistara Þeir sem sváfu yfir sig í morgun hafa enn möguleika á að næla sér í þynnkumáltíð sem þeir munu aldrei gleyma því Beikonhátíðin á Skólavörðustígnum í dag stendur til fimm. 25.8.2012 15:16
Sameinumst um að sýna lit "Appelsínuguli liturinn er einkennislitur UN Women og á að minna okkur á réttindabaráttuna fyrir betra lífi kvenna," segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Samtökin halda appelsínugulan dag 25. hvers mánaðar í fimm mánuði sem á að vekja almenning til vitundar um ofbeldi gegn konum í heiminum og þörfina á að berjast gegn því. "Verslanir við Laugaveginn ætla að gera miðbæinn svolítið appelsínugulan í dag með því að vera með þann lit í gluggunum. Svo hvetjum við líka alla til að klæðast appelsínugulu og sýna þannig stuðning sinn í verki á táknrænan hátt," segir Inga Dóra og biður fólk að senda sér myndir. 25.8.2012 14:41
Hvetur strandveiðimenn til samstöðu Margir strandveiðimenn eru ósáttir við uppskiptingu strandveiðisvæða, en landinu er skipt í fjögur svæði og skiptingin hefur verið óbreytt síðan veiðarnar voru aftur leyfðar. Formaður smábátafélags á norðanverðum Vestfjörðum hvetur strandveiðimenn til að sýna samstöðu, fjölmenna á aðalfund Landsambands smábátaeigenda til að láta í sér heyra. 25.8.2012 14:05
Aldrei verið jafnfljótir að sjá hlaupið "Við höfum aldrei verið svona fljótir að sjá þetta," segir Snorri Zóphóníasson, jarðfræðingur hjá Veðurstofunni, um Skaftárhlaup sem hófst í nótt. Hlaupið er enn ekki komið undan jöklinum, er í um 20 km fjarlægð frá jökulsporðinum og mun ekki ná í Skaftá fyrr en seint í kvöld eða á morgun. 25.8.2012 13:20
Hlaup að hefjast í Skaftá Hlaup hófst í Skaftá í gærkveldi eða nótta. Þetta var staðfest fyrir hádegi í dag þegar flugmaður flaug yfir svæðið. Hlaupið kemur úr vestri katlinum og staðsetning ísskjálfta bendir til að hlaupvatnið sí nú í um 20 km fjarlægð frá jökulsporðinum. Því mun hlaupið ekki ná í Skaftá fyrr en seint í kvöld eða snemma á morgun. 25.8.2012 12:50
Oddný mun mæla fyrir fjárlagafrumvarpinu Katrín Júlíusdóttir tekur við embætti fjármála- og efnahagsráðherra 1. október næstkomandi af Oddnýju Harðardóttur. 25.8.2012 12:46
Katrín: Stærstu vonbrigðin eru átök innan flokksins Hópur innan vinstri grænna virðist vilja að flokkurinn gerist einsmálshreyfing sem byggi afstöðu sína til allra mála á andstöðu sinni við Evrópusambandið. Þetta kom meðal annars fram í opnunarræðu varaformanns á flokkráðfundi í gærkvöld. Segist hún ánægð með árangurinn í ríkisstjórn, stæstu vonbrigðin séu átök innan eigin flokks. 25.8.2012 12:34
Ölvaðir, réttindalausir og reiðir í umferðinni Nokkuð hefur verið um ölvaða ökumenn í umferðinni í morgun og hefur lögregla stöðvað fjóra ökumenn vegna ölvunar síðan klukkan 5 í nótt. 25.8.2012 12:24