Ekki ástæða til að banna einkarekstur í heilbrigðisþjónustu Karen Kjartansdóttir skrifar 26. ágúst 2012 13:19 Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands.
Hugmyndir fyrrverandi heilbrigðisráðherra um að leggja fram frumvarp um að banna einkarekstur innan heilbirgðiskerfisins eru ótímabærar að mati formanns Læknafélags Íslands. Álfheiður Ingadóttir þingmaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs vill að lagt verði fram frumvarp sem bannar velferðarþjónustu í gróðaskyni. Þetta kom fram í stjórnmálaumræðum á flokksráðsfundi sem lauk í gær en fréttavefurinn Smugan greinir frá málinu. Þar segir að á fundinum sagði Álfheiður að í stað nýlenduherra væru komin fram risafyrirtæki sem geri út kerfið. Hún fagnaði því að vinstri flokkurinn í Svíþjóð hefði lagt fram slíkt frumvarp og vildi að vinstri græn fylgdu dæmi þeirra. Skoraði hún á þingflokkinn að vinna slíkt frumvarp og leggja fram. Um 40 prósent af heilbrigðisþjónunni í landinu væri nú ekki á vegum hins opinbera. Að stórumhluta væru það mikilvægar sjálfseignarstofnanir sem ekki væru reknar í gróðaskyni. Hún væri hins vegar að ræða um heilbrigðisþjónustu sem rekin væri í ábataskyni og til að soga fé út úr þjónustinni, það væru til að mynda tannlænkningar og ýmsar sérgreinalækningar. Fréttastofa hafði samband við Þorbjörn Jónsson, formann Læknafélags Íslands, vegna þessara hugmynda. Sagði hann að sér þættu þessar hugmyndir ótímabærar hér á landi. „Ég held að það kerfi sem við höfum haft, sem er blanda af ríkisreknu og einkareknu heilbrigðiskerfi, hafi gefist Íslendingum ákaflega vel og það sé ekki mikil ástæða til að breyta því," segir hann. Hann sagði að eflaust hefði þetta verið vandamál í sumum löndum en hann hafi ekki vitað til þess að það hafi verið vandamál hérlendis. „Við erum ekki að tala um það hér á landi. Þetta eru þá hópar eða læknar sem hafa tekið sig saman og starfað saman. Þetta eru ekki stór fyrirtæki sem eru í eigu einhverra annarra en lækna," segir Þorbjörn Jónsson.
Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Sjá meira