Fleiri fréttir

Ari Trausti: Ætlar að fara oftar til Akureyrar en Kína

Ari Trausti Guðmundsson myndi reyna að brúa bilið á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar næði hann kjöri sem forseti lýðveldisins, þetta kom fram í kappræðum forsetaframbjóðenda sem fram fara í beinni útsendingu í Hörpu. Hann bætti svo við:

Óraunhæft að forseti leggi fram frumvarp

Forsetaframbjóðendur eru ósammála um það hvort forseti geti lagt fram frumvarp. Andrea Ólafsdóttir telur að forseti geti lagt fram slíkt frumvarp, en það myndi hann gera í fullu samráði við forsætisráðherra. Ari Trausti líka. "Eins og ég les stjórnarskrána þá getur hann það," sagði Ari Trausti Guðmundsson. En hann sagði að forsetinn yrði algjörlega áhrifalaus um það hvað yrði um slíkt frumvarp. Forsetinn yrði að gera þetta í samráði við forsætisráðherra.

Vill lækna vantraust almennings á Alþingi

"Þessi umræða endurspeglar nýtt og djúpstætt vandamál,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í kappræðunum á Stöð 2 í Hörpunni, þegar rætt var um það hvort það væri eðlilegt að forseti legði fram frumvarp á Alþingi líkt og Andrea Ólafsdóttir lýsti sig reiðutilbúna að gera varðandi skuldamál heimilanna.

Hannes Bjarnason: "Kannski þarf forsetinn hirðfífl“

Hannes Bjarnason segist fullviss um að hann geti orðið góður leiðtogi landsins þegar hann var spurður út í viðbrögð ungs fólks sem rætt var við á dögunum og sýnt var frá í kappræðum Stöðvar 2 sem nú fara fram í Hörpu.

Ólafur Ragnar: Fólkið vill öryggi

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Andrea Ólafsdóttir eru sammála um það að fólk hugsi um öryggi þegar það lítur til framtíðar. Þá vilji það fá tækifæri til þess að nýta málskotsrétt forsetans áfram. "Þannig túlka ég niðurstöður skoðanakannana," sagði Andrea Ólafsdóttir.

Kappræðurnar hófust á átökum á milli Þóru og Ólafs

Kappræður forsetaframbjóðenda í Hörpu á Stöð 2 fór af stað með átökum á milli Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur. Þannig var Andrea Ólafsdóttir spurð að því hvernig hún upplifði kosningabaráttuna. Hún sagðist hafa orðið vör við aukna hörk

Sjónvarpskappræður forsetaframbjóðendanna í beinni

Kappræður forsetaframbjóðenda í Hörpu eru í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi. Það eru þau Kristján Már Unnarsson, fréttastjóri Stöðvar 2, og Lóa Pind Aldísardóttir fréttamaður sem stjórna umræðunum. Smelltu hér til að horfa á þáttinn á Vísi.

Hversu langt kemst maður á fimm þúsund krónum?

Ferðalangar koma til með að finna fyrir lækkun olíuverðs í sumar þar sem tankurinn dugar lengur nú en fyrir fjórum mánuðum. Fréttastofa kannaði hversu langt hægt er að komast ef tekið er bensín fyrir fimm þúsund krónur.

Hópreið í aðdraganda landsmóts

Um eitt hundrað hestar og knapar tóku þátt í hópreið í dag en hún var nokkurs konar óformlega setning landsmóts hestamanna sem hefst á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík á morgun.

"Framtíð okkar er björt eins og sumarnóttin"

"Við erum ekki eyland. Við sem nú þjónum kirkjunni byggjum á því sem var og mótum það sem verður. Verkefni okkar er því sístætt. Sem kirkja höfum við þurft að horfast í augu við mörg lærdómsrík mál og búa þannig um hnúta að við horfum björtum augum til framtíðar. Það starf hefur eflt okkur og þeir ferlar sem mótaðir hafa verið eru öðrum fordæmi í samfélaginu."

Agnes tók við biskupsembætti Íslands

Agnes M. Sigurðardóttir hefur formlega tekið við embætti biskups Íslands. Fjölmenni var í Hallgrímskirkju þegar vígsluathöfnin hófst klukkan 14 í dag.

Biskupsvígsla hafin í Hallgrímskirkju

Vígsluathöfn hófst klukkan 14 í Hallgrímskirkju. Þar mun herra Karl Sigurbjörnsson, fráfarandi biskup Íslands, vígja Agnesi M. Sigurðardóttur í embætti biskups.

Á batavegi eftir vinnuslys

Karlmaðurinn sem slasaðist þegar hann vann við uppgræðslu við snjóflóðavarnargarðinn á Bolungarvík er á batavegi.

"Sérkennilegt að borgaryfirvöld skuli ekki forgangsraða í þágu barna"

Varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir sérkennilegt að borgaryfirvöld skuli ekki forgangsraða í þágu barnanna og taka börn fædd 2011 inn á leikskólana. Útlit er fyrir að ekki sé hægt að taka börnin inn þar sem fjármagns skortir en varaborgarfulltrúinn bendir á að á meðan ekki er hægt að fjölga leikskólaplássum sé hægt að rífa upp aspir og styrkja kvikmyndahús.

Herdís og Andrea vilja opið bókhald

Andrea J. Ólafsdóttir og Herdís Þorgeirsdóttir hafa farið fram á að meðframbjóðendur þeirra opni bókhald sitt og láti kjósendur vita hvaðan fjárframlög koma.

Reykræst í Vestmannaeyjum

Mikill reykur myndaðist í íbúð við Faxastíg í Vestmannaeyjum snemma í morgun. Engin meiðsl urðu á fólki en allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn.

Fótbrotin á Esjunni

Laust fyrir miðnætti í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um slasaða konu á Esjunni.

Agnes vígð til biskups dag

Séra Agnes M. Sigurðardóttir verður vígð í embætti biskups í Hallgrímskirkju í dag. Hún er fyrsta konan til að gegna embættinu.

Fyrsti vinningur gekk út

Fyrsti vinningur í Lottóinu gekk út í kvöld. Vinningstölurnar voru 8, 14, 19, 21, 24 og bónustalan var 29.

Hannes Bjarnason gagnrýnir auglýsingar frambjóðenda

Hannes Bjarnason forsetaframbjóðandi gagnrýnir auglýsingar meðframbjóðenda sinna í tölvupósti sem hann sendi fjölmiðlum í dag. Hann segir það ekki vera gott fordæmi að eyða peningum í auglýsingar fyrir framboð sitt á meðan ástandið sé bagalegt hjá mörgum heimilum í landinu og fólk, sem á vart til hnífs og skeiðar, berjist í bökkum.

Eldri bílafloti – minna öryggi

Bílafloti landsins heldur áfram að eldast. Þetta sýna bæði tölur yfir nýskráða bíla og tölur yfir bíla sem skilað hefur verið til úrvinnslu. Á árunum fyrir hrun var í kringum átta þúsund bílum fargað á ári miðað við tæplega þrjú þúsund í fyrra samkvæmt tölum frá Úrvinnslusjóði.

Auðlindir skýr eign þjóðar og arður af þeim sýnilegur

Stjórnvöld eru hvött til að færa alla umsýslu með auðlindum þjóðarinnar á eina hönd. Þá ber að stofna auðlindasjóð til að tryggja að auðlindaarðurinn og meðferð hans verði sýnileg og auðlindareikning til að arðurinn sé aðskilinn frá öðrum fjármálum ríkisins.

Landlæknir skal eyða gögnum eftir eftirlit

Landlækni ber að fá allar þær upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu sem hann óskar eftir til að sinna eftirliti sínu, en sumar má hann bara geyma í tiltekinn tíma. Heilbrigðisyfirvöld telja ótvírætt að læknum beri skylda til að afhenda landlækni þau gögn sem hann telur nauðsynleg og eru persónugreinanlegar upplýsingar þar með taldar. Þetta kemur fram í greinargerð frumvarps velferðarnefndar Alþingis um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu.

Ísland vitundarvakning um mikilvægi jökla og íss

Íslenska verkefnið Vox Naturae var kynnt á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfismál, sem haldin er í Brasilíu. Verkefninu er ætlað að bregða ljósi á mikilvægi jökla og íss og þau áhrif sem hlýnun jarðar hefur.

Ólafur með forskot á Þóru

ForsetakjörÓlafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur tæplega 8 prósentustiga forskot á Þóru Arnórsdóttur samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR á fylgi forsetaframbjóðenda. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 44,5% myndu kjósa Ólaf Ragnar og 36,9% Þóru Arnórsdóttur. Þá sögðust 10,1% myndu kjósa Ara Trausta Guðmundsson og 4,6% Herdísi Þorgeirsdóttur. Loks sögðust 2,0% myndu kjósa Andreu J. Ólafsdóttur og 1,9% Hannes Bjarnason.

Kosningar um sameiningu

Íbúum í Garðabæ og á Álftanesi gefst kostur á að kjósa um sameiningu sveitarfélaganna þann 20. október næstkomandi.

144% verðmunur á bossakremi

Það er dýrast að kaupa aðrar vörur en lyf í Apótekaranum á Akureyri. Skipholtsapótek fylgir fast á hæla Apótekarans og er með næstdýrustu vörurnar á landinu. Lægsta verðið var oftast í Lyfjum og heilsu á Selfossi. Þetta kemur fram í nýrri verðlagskönnun sem Alþýðusambands Íslands gerði fyrr í vikunni.

Framkvæmd í hendur Malava

Malaví Þáttaskil urðu á samstarfi Malaví og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) með nýrri fjögurra ára samstarfsáætlun sem tekur gildi í byrjun júlí.

Krakkar hvattir til sumarlesturs

Í sumar efnir Borgarbókasafnið og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO til sumarlesturs fyrir börn á öllum aldri. Til að taka þátt þarf að koma við í einu af sex söfnum Borgarbókasafnsins þegar bók hefur verið lesin og skrifa nafn sitt, aldur, heiti bókar og símanúmer á blað í formi sólargeisla. Geislanum er svo komið fyrir á lestrarsólinni sem skáldfákurinn Sleipnir gætir í söfnunum.

Gagnrýnir orð fólks á netinu

Egill Einarsson vill fá skýringar á því hvers vegna mál hans tók jafn langan tíma að fara í gegn um kerfið og raun bar vitni.

Selastofnarnir hafa minnkað verulega

Stofnar landsels og útsels eru mun minni en þeir voru árið 1980 þrátt fyrir takmarkaða veiði frá þeim tíma. Fækkunin hefur mest orðið í Breiðafirði, Faxaflóa, við Suðurströndina og Austfirði.

224 milljónum hent í ruslið

Átta milljónir skilagjaldsskyldra áldósa lenda í almennu heimilissorpi landsmanna á ári hverju. Með þessum hætti verða Íslendingar af andvirði 112 milljóna króna árlega.

Sæti gæti færst af sjálfsdáðum

BL innkallar nú Nissan Navara (D40) og Nissan Pathfinder (D51). Ástæðan er galli í útbúnaði á bílstjórasæti sem gæti leitt til þess að stjórnborð fyrir sætisstillingar verði óvirkt. Í versta falli gæti bílstjórasætið tekið upp á því að færast af sjálfsdáðum.

Kröfur hertar um kælingu á fiskinum

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur breytt reglugerð um hollustuhætti matvæla til að tryggja kælingu fiskjar. Reglugerðarbreytingin er sett að stærstum hluta vegna strandveiða.

Kemur vampíruleikurinn út árið 2014?

Vísbendingar eru um að þriðji leikur CCP, World of Darkness, komi út árið 2014. Í frétt í Viðskiptablaðinu í gær er vitnað í ársskýrslu fyrirtækisins. Þar er farið yfir þróunaráætlun og gert ráð fyrir því að leikurinn verði tilbúinn til framleiðslu í ár og hann verði gefinn út árið 2014.

Gefur jöklunum rödd

Vox Naturae var gert að umræðuefni á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Ríó + 20 sem haldin var í þessari viku. Vox Naturae er íslenskt verkefni sem felst í því að listamenn munu lýsa upp Svínafellsjökul um leið og frumsamin tónlist Bergljótar Arnalds mun ljá honum rödd.

Brýnt að styrkja línukerfið milli landshluta

Markaðsstjóri Landsvirkjunar telur brýnt að styrkja flutningskerfi raforku milli landshluta, - það myndi efla uppbyggingu iðnaðarsvæðis við Húsavík. Vegna fyrirhugaðra iðjuvera á Bakka er rætt um að reisa þurfi tvær virkjanir í Mývatnssveit. Landsvirkjunarmenn líta hins vegar ekki svo á að þeir séu að selja orku frá tilteknu orkuveri heldur úr raforkukerfi fyrirtækisins sem heild.

Útvega Skúla fógeta félagskap

Þriggja manna hönnunarteymi hefur tekið Fógetagarðinn í miðbænum í gegn og lífgað upp á torgið með tiltækum ráðum. Opnun á verkinu fer fram á morgun.

Kaldhæðnislegt ef femínistar myndu krefjast afsagnar Jóhönnu

Það væri afar kaldhæðnislegt ef Femínistafélag Íslands kallaði eftir afsögn fyrsta kvenkyns forsætisráðherra íslands þegar ráðherrar hafa brotið jafnréttislög á undan henni og komist upp með það án þess að þurfa að segja af sér. Þetta segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, ráðskona feministafélagsins.

Umsóknarferli Íslands gengur óvenju hratt

Þrír kaflar til viðbótar voru í morgun opnaðir í viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Stefan Fulhe stækkunarstjóri segir að gangurinn í viðræðunum sé betri en hjá nokkru öðru landi frá árinu 2006.

Sjá næstu 50 fréttir