Innlent

"Sérkennilegt að borgaryfirvöld skuli ekki forgangsraða í þágu barna"

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. mynd/GVA
Varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir sérkennilegt að borgaryfirvöld skuli ekki forgangsraða í þágu barnanna og taka börn fædd 2011 inn á leikskólana. Útlit er fyrir að ekki sé hægt að taka börnin inn þar sem fjármagns skortir en varaborgarfulltrúinn bendir á að á meðan ekki er hægt að fjölga leikskólaplássum sé hægt að rífa upp aspir og styrkja kvikmyndahús.

Útlit er fyrir að börn fædd árið 2011 fái ekki pláss á leikskólum borgarinnar fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári vegna sparnaðar. Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi Besta flokksins sagði í fréttum okkar í gær að þó pláss væri á einhverjum leikskólanna fyrir fleiri börn þá yrði að fylgja plássinu fjármagn en það væri ekki til.

Marta Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr með Evu í skóla- og frístundaráði borgarinnar. Marta segir þetta koma sér á óvart og ekki vera í samræmi við það sem rætt hafi verið í ráðinu.

„Við höfum alltaf fengið þær upplýsingar í ráðinu að þessi börn yrðu tekin inn þar sem að pláss er," segir Marta.

Marta segir mikilvægt að reynt sé að taka börn inn sem eru orðin 18 mánaða líkt og stefnan var áður hjá borginni.

„Vegna þess að þetta skapar mikil vandræði fyrir foreldra að koma þeim ekki í leikskóla og líka vegna þess að það er orðið erfitt að fá pláss hjá dagmæðrum og það er orðið allt yfirfullt í ungbarnaleikskólunum."

Marta segir að sjálfstæðismenn muni taka málið upp á næsta fundi ráðsins en hann verður þó ekki fyrr en í haust. Hún gefur lítið fyrir þær skýringar að fjármagn sé ekki til eins og er.

„Mér finnst það mjög sérkennilegt að borgaryfirvöld skuli ekki forgangsraða í þágu barnanna. Það er hægt að rífa upp aspir við Ráðhúsið og það er hægt að styrkja Bíó Paradís en við getum ekki fjölgað leikskólaplássum fyrir börnin okkar," segir Marta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×