Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Magnús Orri segir rústabjörgun hrunsins vera lokið Stjórnarmeirihlutinn hefur reynt að verja hina tekjulægri við afleiðingum hrunsins, sagði Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, við eldhúsdagsumræður á Alþingi í dag. 29.5.2012 20:13
Virkjanir langstærstu tækifæri Skaftárhrepps Ein virkjun gæti aukið tekjur Skaftárhrepps af fasteignasköttum um 40 prósent. Sveitarstjórinn segir fyrirhugaðar virkjanir langstærstu tækifærin sem sveitarfélagið hafi til atvinnusköpunar. Tvær stórar virkjanir í Skaftártungu eru nú á teikniborðinu. Landsvirkjun vill virkja Hólmsá ofan Hrífuness og Suðurorka vill virkja Skaftá með Búlandsvirkjun. Báðar virkjanir eru umdeildar, í rammaáætlun ríkisstjórnar eru þær settar í biðflokk. 29.5.2012 19:15
Erlendu drengirnir láta reyna á flóttamannasamning SÞ Aðeins einu sinni hefur reynt á grein í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að ekki skuli refsa þeim sem koma ólöglega inn í land ef lífi þeirra var ógnað. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður furðar sig á þessu. Í 31. grein flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna segir meðal annars að aðildarríkin skulu ekki beita refsingum gagnvart flóttamönnum vegna ólöglegrar komu þeirra til landsins ef þeir koma beint frá landi, þar sem lífi þeirra eða frelsi var ógnað gefi þeir sig tafarlaust fram við stjórnvöld. Á þessa grein æltar Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður að láta reyna í máli drengjanna frá Marakkó og Alsír sem dæmdir voru í 30 daga fangelsi í lok apríl fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum en hann hefur áfrýjað dómi yfir þeim til Hæstaréttar. 29.5.2012 18:38
Íslendingar greiddu um 68 þúsund atkvæði Íslendingar greiddu hátt í 68 þúsund atkvæði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á laugardaginn. Flest atkvæðin fóru til Svíþjóðar, sem sigraði í keppninni, og næstflest til Eistlands sem fékk 10 stig frá Íslendingum. 29.5.2012 15:17
Þurfti allt að fjórðung blóðeininga Blóðbankans "Þetta er mjög mikið,“ svarar Þorbjörn Jónsson læknir hjá Blóðbankanum spurður út í blóðmissi Skúla Eggerts Sigurz, framkvæmdastjóri Lagastoða. Guðgeir Guðmundsson hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps þegar hann stakk Skúla fimm sinnum, fjórar hnífstungur voru lífshættulegar. Í árásinni missti Skúli 50 lítra af blóði samkvæmt ákæruskjali. 29.5.2012 14:20
Bandaríski herinn sýnir kúnstir í Íslandi í dag Bandaríski flugherinn hefur sinnt loftrýmisgæslu NATO á Íslandi frá 8. maí og verður hér til 7. júní. Í Íslandi í dag í kvöld verður farið á æfingu með bandaríska flughernum. Þátturinn fékk að fara með hernum í loftið og fylgjast með því þegar F15 orrustuþota er fyllt af eldsneyti í 22 þúsund feta hæð. 29.5.2012 14:00
140 milljónir til viðbótar vegna eldgosanna Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag 139 milljóna aukafjárframlög vegna brýnna verkefna á gossvæðum á Suðurlandi í kjölfar eldgosanna árin 2010 og 2011. 29.5.2012 13:07
Þessir tala í eldhúsdagsumræðunum Eldhúsdagsumræður á Alþingi hefjast klukkan tíu mínútur i átta í kvöld. Umræðurnar verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmenn utan flokka tala síðastir í hverri umferð og hafa 4 mínútur. 29.5.2012 12:39
Jón Páll er 700 hestafla tryllitæki Kraftmesti "rib“ bátur landsins fór í jómfrúarsiglingu sína á dögunum. Tryllitækið hlaut nafnið Jón Páll eftir sterkasta manni heims, og það var Sigmar sonur hans sem sigldi bátnum fyrstu metrana. Sigríður Elva og Gísli Berg fengu að fljóta með og herlegheitin verða sýnd í Íslandi í dag klukkan 18.55 í kvöld. 29.5.2012 00:00
Steingrímur: Atvinnuleysið að ná niður í sex prósent Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og formaður VG, býst við því að atvinnuleysið fari niður í sex prósent núna í maí eða júní á sama tíma og íbúatala landsins fari upp í 320 þúsund. Þetta sagði Steingrímur við eldhúsdagsumræður í dag. 29.5.2012 21:16
Ákærð fyrir að sparka í lögreglumenn Kona á sextugsaldri var í dag ákærð fyrir að hafa ráðist á tvo lögreglumenn við skyldustörf sín í nóvember árið 2010 og sparkað í bringu annars en höfuð hins. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í dag. Lögreglumennirnir höfðu handtekið konuna við íbúðarhús í Vesturbæ Reykjavíkur vegna eignaspjalla og flutt hana á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Þegar þangað var komið snerist hún gegn lögreglumönnunum með fyrrgreindum hætti. 29.5.2012 19:06
Um sextíu teknir fyrir of hraðan akstur Um sextíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu um hvítasunnuhelgina en í grófustu brotunum var ekið á 50-60 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru þrír þessara ökumanna ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna en alls voru nítján teknir fyrir ölvunarakstur í umdæminu og þrettán fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. 29.5.2012 17:20
Líklega eldur í ræsinu - eldsupptök ókunn Ekki reyndist nein hætta á ferð á Öldugötunni en allt tiltækt slökkvilið var kallað á vettvang um hálf fimm vegna gruns um eldsvoða á Öldugötu 58. 29.5.2012 16:46
Sáttatillaga lögð fram í veiðigjaldamálinu Sáttartillaga var lögð fram í morgun á fundi atvinnuveganefndar um frumvarp um veiðileyfagjald. Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG, og fulltrúi í atvinnuveganefnd segir að um sé að ræða tillaga frá meirihluta atvinnuveganefndar sem meirihlutinn telji að geti náðst ágætis samstaða um. 29.5.2012 16:25
Allt tiltækt slökkvilið kallað að Öldugötu Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað að húsi á Öldugötunni í miðborg Reykjavíkur vegna reyks. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sást reykur koma úr þakskeggi húss, en ekki er vitað nákvæmlega hvar eldurinn er þegar þetta er skrifað. 29.5.2012 16:23
Hátt í 700 hjólum stolið á ári Rúmlega 100 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á laugardag klukkan 13. Þetta eru reiðhjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja. Uppboðið verður haldið í húsnæði Vöku í Skútuvogi 8 í Reykjavík. 29.5.2012 15:12
20 stiga hiti í Borgarfirði Um og yfir tuttugu stiga hiti hefur mælst á veðurstöðvum í Borgarfirði og á Mýrum í dag. Hæstur hefur hitinn mælst á Hvanneyri, 20,5 gráður, en í Húsafelli og á Fíflholtum á Mýrum 20,1 gráða. Vestan- og norðvestanvert landið, sem og uppsveitir Suðurlands, hafa vinninginn í hitatölum dagsins. 29.5.2012 15:00
Neyðarskilaboð klukkan 16 í dag Klukkan fjögur í dag verður prófað viðvörunarkerfi almannavarna, sem sendir neyðar-sms-skilaboð í farsíma. Skilaboðin verða send á alla farsíma, bæði innlend og erlend númer, sem eru á þjónustusvæði símafyrirtækjanna í Vík í Mýrdal. Þau verða send úr númerinu 112 og verða á íslensku og ensku. 29.5.2012 14:33
Al Thani málið dregst á langinn Héraðsdómari veitti í dag verjendum sakborninga í svokölluðu al-Thani máli fresti til þess að skila greinargerðum í málinu til 1. október næstkomandi. Þeim hafði áður verið gefinn frestur til 12. júní. 29.5.2012 14:17
Guðgeir sýndi engin svipbrigði - Skúli missti 50 lítra af blóði Guðgeir Guðmundsson sýndi engin svipbrigði þegar fulltrúi ríkissaksóknara las yfir ákæruatriðin gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Guðgeir er ákærður fyrir tilraun til manndráps er hann stakk Skúla Eggert Sigurz fimm sinnum með hníf þegar hann réðist á hann á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum, þar af voru fjórar stungur lífshættulegar. 29.5.2012 13:14
Lítil flugvél í vanda Viðbúnaður var á Reykjavíkurflugvelli núna í hádeginu vegna eins hreyfils vélar sem var að koma inn til lendingar. Tveir menn voru í vélinni. Gangtruflanir voru í vélinni en hún lenti heilu og höldnu. 29.5.2012 12:32
Viðbúnaður vegna varúðarlendingar Töluverður viðbúnaður er á Reykjavíkurflugvelli vegna flugvélar sem er með gangtruflanir. 29.5.2012 12:18
Flóttadrengir áfrýja Máli drengjanna sem dæmdir voru í fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum fyrir skömmu verður áfrýjað til Hæstaréttar. Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur sem fer með mál drengjanna segir óheppilegt að ákæruvaldið hafi sent tilkynningu um að drengirnir væru hugsanlega eldri en þeir segjast vera. 29.5.2012 12:05
Tillögur að breyttum kvótafrumvörpum kynntar Breytingartillögur við kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar verða kynntar á fundi atvinnuveganefndar nú rétt eftir hádegið. Forseti Alþingis ræðir í dag við formenn þingflokkanna um möguleg þinglok, og í kvöld eru eldhúsdagsumræður. 29.5.2012 12:00
Íslendingar fara bjartsýnni inn í sumarið en í fyrra Íslendingar fara mun bjartsýnni inn í sumarið nú en í fyrra, samkvæmt Væntingavísitölu Gallup og Capacent Gallup birti í morgun. Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maí en það er annar mánuðurinn sem væntingar landsmanna glæðast á milli mánaða. 29.5.2012 11:30
Varúð - sterkt sólskin framundan á Íslandi Sól og blíða er í veðurkortunum fyrir Ísland eins langt og spár ná. 29.5.2012 11:15
Ísland myndi fagna aðild Bandaríkjanna Ísland fullgilti, fyrst vestrænna ríkja, Hafréttarsamning Sameinuðu þjóðanna fyrir 27 árum. Bandaríkjastjórn leggur áherslu á að landið gerist aðili og tryggi með því hagsmuni sína. Bandaríkin eru eina stórþjóðin sem ekki hefur fullgilt samninginn. 29.5.2012 11:00
Enn einn hnakkastuldurinn á Selfossi Brotist var inn í hesthús við Bæjartröð á Selfossi um helgina og þaðan stolið Royal Air Ástundarhnakki með koparístöðum. 29.5.2012 10:31
Venus gengur fyrir sólu Að kvöldi 5. júní og aðfaranótt 6. júní næstkomandi mun plánetan Venus ganga fyrir sólina. Þvergangan hefst klukkan 22:04 og tekur rúmar sex klukkustundir. Reykjavík er eina borgin í heiminum þar sem sólin sest og rís aftur á meðan gangan stendur yfir. 29.5.2012 10:27
Jóhanna fer til Þýskalands Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, heldur út til Þýskalands í dag þar sem hún tekur þátt í leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins á morgun og fimmtudag. Fundurinn fer fram í bænum Stralsund. 29.5.2012 09:49
Mál Guðgeirs þingfest í dag Mál Guðgeirs Guðmundssonar verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi í dag. Guðgeir er ákærður fyrir að hafa ráðist á Skúla Eggert Sigurz, framkvæmdastjóra Lagastoðar, í byrjun mars, og stungið hann ítrekað með hnífi. Það var líklega samstarfsmaður hans, lögfræðingurinn Guðni Bergs, sem kom í veg fyrir að Guðgeir yrði Skúla að bana. 29.5.2012 09:48
Grunaður um ölvunarakstur hafnaði utan vegar Ökumaður, sem er grunaður um ölvunarakstur, missti stjórn á bíl sínum á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú um miðnætti og hafnaði bíllinn utan vegar. 29.5.2012 08:52
Ferðakonan gekkst undir aðgerð Breska ferðakonan, sem féll nokkra metra ofan í Hamragil við Þórsmerkurleið síðdegis í gær, gekkst undir aðgerð á Landsspítalanum í gærkvöldi. 29.5.2012 08:48
Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna Útvegsfyrirtækið Eskja á Eskifirði ætlar að rafvæða fiskimjölsverksmiðjuna og hætta að nota olíu við bræðsluna. Jafnframt verða mengunarvarnir auknar til muna og verður meðal annars reistur 42 metra hár reykháfur. 29.5.2012 08:47
Enn skelfur jörð á Ítalíu Jarðskjálfti sem mældist 5.8 stig reið yfir nú í morgun um 50 kílómetrum norðaustur af borginni Parma á Ítalíu á tæplega tíu kílómetra dýpi. Aðeins rúm vika er liðin frá því að svipað stór skjálfti reið yfir með þeim afleiðingum að sex létust. Engar upplýsingar hafa enn borist um hvort einhver hafi slasast í skjálftanum í morgun en við flytjum af því fréttir á Vísi um leið og þær berast. 29.5.2012 08:03
42% vilja að Huang Nubo fái að leigja Ríflega fjórir af hverjum tíu Íslendingum vilja leyfa kínverska athafnamanninum Huang Nubo að leigja jörðina Grímsstaði á Fjöllum en tæpur þriðjungur er því mótfallinn, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. 29.5.2012 07:00
Blíðan varir út vikuna „Menn fara sennilega að kvarta undan úrkomuleysi í lok vikunnar,“ segir Björn Sævar Einarsson veðurfræðingur. Veðurstofa Íslands spáir blíðskaparveðri á landinu öllu út vikuna, en útlit er fyrir að hitinn haldist í um 20 gráðum í innsveitum norðaustanlands fram til laugardags. „Það verður yfirleitt heitast inn til landsins og má alveg búast við við þessum hita út vikuna,“ segir Björn Sævar.. „Þetta verður mjög aðgerðarlítið veður.“ 29.5.2012 06:00
Mæta auknum umsvifum fyrir austan HB Grandi vinnur að því að stækka og betrumbæta frystihús sitt fyrir uppsjávarfisk á Vopnafirði. Unnið er að því að auka afkasta- og frystigetu auk þess sem starfsmannaaðstaða er stækkuð. Vinnsla liggur niðri bæði í uppsjávarfrystihúsinu og fiskmjölsverksmiðjunni og hefst starfsemi að nýju væntanlega ekki fyrr en í lok júní, eins og kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins. 29.5.2012 05:00
Innan við eitt prósent barna býr við skort Innan við eitt prósent íslenskra barna býr við efnislegan skort samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan er hluti af rannsóknarritröð sem nefnist Report Card, eða einkunnaspjaldið. Í henni er barnafátækt í velmegandi ríkjum skoðuð. 29.5.2012 05:00
Verktaki segir komið til móts við borgina Kári Arngrímsson, forstjóri Atafls, segir ekki rétt að verktakafyrirtækið hyggist byggja fjölbýlishús á Mýrargötu 26 eftir sömu teikningum og samþykktar voru hjá Reykjavíkurborg árið 2006. Í Fréttablaðinu á fimmtudag sagði frá því að aðeins neðsti hluti hússins á Mýrargötu hefði verið steyptur þegar kom að hrunárinu 2008. Haft var eftir Ástu Olgu Magnúsdóttur tölvunarfræðingi, sem er andvíg byggingu háhýsis á lóðinni, að fulltrúar borgarinnar hafi reynt að semja við lóðarhafann um að lækka húsið í fimm hæðir en lóðarhafinn hafi á endanum ákveðið að halda sig við samþykkta teikningu og hafa húsið sjö hæðir. 29.5.2012 03:15
Þrír Íslendingar slógu í gegn í karókí í Berlín Þó svo Íslendingar hafi ekki riði feitum hesti frá Euorvison keppninni í ár þá voru þrír dularfullir Íslendingar sem héldu uppi söngheiðri lands og þjóðar í Þýskalandi í gær. Þannig má finna þetta myndband á Youtube af þremur íslenskum strákum sem syngja sívinsælan slagara eftir kónginn sjálfann, Elvis Presley. 28.5.2012 22:00
Frábær flugsýning - myndir Boðið var upp á 25 flugatriði í lofti á flugsýningunni á Reykjavíkurflugvelli í dag. Meðal annars sveif Catalina tignarlega yfir Reykjavíkurborg áhorfendum til skemmtunar. 28.5.2012 21:00
Féll niður gil og margbrotnaði Bresk kona um fimmtugt féll um fimm metra niður í grýtt gil í Þórsmörk um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli þá er konan margbrotin eftir fallið og mjög illa slösuð. Konan gekk eftir göngustíg ásamt hópi samlanda sinna þegar svo virðist sem henni hafi skrikað fótur með þeim afleiðingum að hún féll niður Hamragilið. 28.5.2012 20:06
Yfirkjörstjórn ekki vottað framboð Ástþórs Magnússonar án fyrirvara Lögregla rannsakar mögulegar falsanir á undirskriftarlistum hans. Formaður yfirkjörstjórnar segir ekki vísbendingar um falsanir hjá öðrum frambjóðendum. Ástþór segir einhvern reyna leggja steina í götu lýðræðisins. 28.5.2012 19:45
Segir Ólaf Ragnar einu óvissuna í stjórnskipan landsins Þóra Arnórsdóttir segist ekki vera nein puntudúkka. Hún hnýtti í Ólaf Ragnar Grímsson þegar hún ávarpaði stuðningsmenn sína í dag, og sagði hann sekan um lýðskrum. 28.5.2012 19:15