Fleiri fréttir

Félagið Kolvetni stofnað um olíuvinnslu á Drekanum

Aðaleigandi BYKO, Verkfræðistofan Mannvit og helsti sérfræðingur Norðmanna um Jan Mayen-hrygginn eru meðal stofnenda íslensks olíuleitarfélags sem ætlar að sækja um Drekasvæðið í samstarfi við fjársterkt erlent olíufélag. Markmiðið er að byggja upp íslenskan olíuiðnað. Kolvetni var skráð sem einkahlutafélag í dag um olíuleit og vinnslu.

Eldri borgarar ósáttir við auðlegðarskatt

Óánægju gætir meðal margra eldri borgara með auðlegðarskattinn, en ríflega þriðjungur þeirra sem greiðir skattinn er í þeim hópi. Ísak Sigurðsson, eldri borgari, segir skattinn ósanngjarnann fyrir stóran hóp, sem eigi lítið annað en húsnæði. Helgi Hjörvar segir skattinn óhjákvæmilegt, tímabundið neyðarúrræði.

Tvö og hálft ár fyrir frelsissviptingu

Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Kristmundi Sigurðssyni sem var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á síðasta ári fyrir fjölmörg brot, meðal annars frelsissviptingu.

Handrukkari hótaði bræðrum með keðjusög

Karlmaður á Akureyri situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa framið fjölmörg brot á Akureyri. Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsdúrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra í dag.

Verkfallið ólögmætt

Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu í dag að boðað verkfall flugliða hjá Iceland Express semhefjast átti á miðnætti í nótt, sé ólögmætt. Ekki kemur því til vinnustöðvunar flugliða og engin röskun verður á flugi Iceland Express á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express.

Mottumars lýkur síðdegis

Mottumars, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands lýkur klukkan korter í sex í dag. Búið er að safna rúmum tuttugu og sex milljónum króna á vefsíðunni, mottumars.is en að sögn Ragnhildar Haraldsdóttur, forseta Krabbameinsfélagsins, á sú upphæð eftir að hækka þegar ágóði af sölu á varningi tengdum átakinu bætist við.

Sakar ákæruvaldið um misbeitingu valds

Ólafur Ólafsson, einn af aðaleigendum Kaupþings, segir að verið sé að misbeita valdi með ákærum gegn sér í svokölluðu al-Thani máli. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Hitametið fallið

Sextíu og fjögurra ára gamalt hitamet fyrir marsmánuð féll í morgun þegar hitinn á Kvískerjum í Öræfum mældist 18,6 gráður fyrir hádegi í morgun. Fyrra metið er frá árinu 1948 en þá fór hiti í 18,3 gráður á Sandi í Aðaldal. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er mjög heitt á suðausturlandi í dag. Á Höfn í Hornafirði fór hitinn upp fyrir 18 gráður og einnig á Teigarhorni í Berufirði.

Þremenningarnir neituðu allir sök

Hreiðar Már Sigurðsson, Ólafur Ólafsson og Magnús Guðmundsson sem allir eru ákærðir í svokölluðu al-Thani máli mættu fyrir dóminn í dag. Þeir lýstu allir yfir sakleysi sínu í málinu. "Ég lýsi mig saklausan af öllum ákæruliðum," sagði Hreiðar Már, fyrrverandi bankastjóri, frammi fyrir fullum dómssal. Ólafur Ólafsson, einn aðaleigandi bankans, sagði hið sama. "Saklaus,“ sagði Magnús Guðmundsson þegar dómarinn beindi orðum sínum að honum. Eftir að þinghaldinu lauk í dag lýsti Ólafur Ólafsson yfir miklum vonbrigðum með ákæruna í samtali við fjölmiðla.

Braut gróflega gegn dóttur sinni - fjögurra ára fangelsi

Karlmaður var í gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi í héraðsdómi Vesturlands fyrir gróf kynferðsbrot gegn tíu ára gamalli dóttur sinni. Þá var hann dæmdur til þess að greiða henni 1200 þúsund krónur í bætur. Málið komst upp þegar stúlkan sagði vinkonum sínum frá athæfi mannsins. Lögregla handtók manninn og hefur hann sætt gæsluvarðhaldi frá því í desember á síðasta ári. Sú vist dregst frá fangelsisdómnum.

Jóhanna kenndi Jóni Bjarna um seinagang kvótafrumvarpsins

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sakaði Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, á Alþingi morgun um að hafa dregið það í nærri tvö ár að koma fram með frumvarp um breytingar á kvótakerfinu. Hann hafi verið seinn í allri vinnu og verið í litlu sambandi við aðra ráðherra um málið.

Al Thani-málið tekið fyrir í dag

Fyrirtaka í Al Thani málinu svokallaða verður fram haldið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Búist er við að Hreiðar Már Sigurðsson, Ólafur Ólafsson og Magnús Guðmundsson mæti fyrir dómara.

Utanríkisráðherra kallaði Tómas Heiðar yfir til sín

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra kallaði Tómas H. Heiðar, aðalsamningamann Íslendinga í makríldeilunni, yfir í vinnu fyrir utanríkisráðuneytið rétt fyrir síðustu áramót. Það er ástæða þess að hann hætti að vinna fyrir sjávarútvegsráðuneytið í makríldeilunni.

Nýr forsetaframbjóðandi: Ég hef kjark og þor

Skagfirðingurinn Hannes Bjarnason hefur tilkynnt framboð sitt til embættis forseta Íslands. Hann er búsettur í Noregi en vill snúa heim til að taka þátt í að byggja upp nýtt Ísland.

Þrándur óttast að hann sitji einn eftir með ábyrgðina

Þrándur hefur áhyggjur af því að hann einn muni taka þátt í rafrænni íbúakosningu Reykjavíkurborgar. "Ég hef engar faglegar forsendur til að vinna svona ," segir Þrándur í nýjasta örþætti sem Jón Gnarr borgarstjóri hefur sett á Youtube.

Ósáttir eigendur Kalda: Risarnir tveir einoka markaðinn

„Þetta er leiðinlegt, því þetta var orðið mjög vinsælt," segir Agnes Sigurðardóttir, eigandi Bruggverksmiðjunnar sem framleiðir bjórinn Kalda. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta nú ekki lengur keypt sér Kalda á krana á pöbbarölti um miðbæinn því eini barinn sem seldi bjórinn er nú hættur að selja hann. Risarnir tveir einoka markaðinn, segir eigandi Kalda.

Tók upp samtal sitt við bæjarlögmann

Sigrún Ágústa Bragadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Kópavogsbæjar, tók upp samtal sitt við Þórð Clausen bæjarlögmann þar sem hann mun hafa lagt að henni að breyta framburði sínum í sakamáli sem höfðað hefur verið á hendur stjórn sjóðsins. Áður hefur komið fram að markmiðið með samtalinu hafi verið að fá

Hagstæðast að kaupa páskaeggin í Bónus

Hagstæðast er að gera páskaeggjakaupin í Bónus samkvæmt nýrri könnun Verðlagseftirlits ASÍ. Könnunin var gerð í 7 matvöruverslunum víðsvegar um landið á mánudaginn var. Kannað var verð á 28 algengum páskaeggjum. Kostur og Víðir neituðu þátttöku í könnuninni.

Innbrot í Lágmúla

Lögreglunni var tilkynnt um innbrot í hús við Lágmúla í Reykjavík laust fyrir klukkan tvö í nótt.

Sleðahundasport vaxandi grein

Fjöldi fólks og hunda tók þátt í Íslandsmeistaramóti Sleðahundaklúbbs Íslands á Mývatni um síðustu helgi. Veðrið lék við keppendur, sem voru 28 talsins, og keppt var í 21 grein. Er þetta í annað sinn sem keppnin er haldin á vegum Sleðahundaklúbbs Íslands.

Segja tekjujöfnun verða auðveldari

Ákveðin skilyrði þarf til þess að gegnumstreymiskerfi borgi sig betur en sjóðsöfnun lífeyrisréttinda. Áhugi stjórnmálamanna á lífeyrissjóðum er sagður ills viti. Skiptar skoðanir eru um ágæti kerfisbreytingar í lífeyriskerfi landsmanna.

Ræðst í dag hvort kosið verður í júní

Alþingi samþykkti í gær að vísa þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskrár til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Nefndin fundaði um málið í gær og leggur meirihlutinn til talsverðar orðalagsbreytingar á spurningum sem leggja á fyrir þjóðina samhliða frumvarpsdrögunum.

Horft til bankakerfis Kanada

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, vill efla stjórnmálaleg og viðskiptaleg tengsl Íslands og Kanada. Hann er nú staddur í Kanada til að ræða efnahagsmál við þarlenda ráðamenn og fundaði meðal annars með seðlabankastjóra og fjármálaráðherra Kanada í gær. Hann sagði fundina hafa verið afar gagnlega og telur ljóst að það sé áhugavert fyrir Ísland að byggja upp aukin tengsl við Kanada og horfa til þess

Ferðamannastaðir sumir við þolmörk

Ójöfn dreifing ferðamanna veldur miklu álagi á umhverfi auk þess sem upplifun ferðamanna skerðist ef þeir eru of margir. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Önnu Dóru Sæþórsdóttur, dósents í ferðamálafræði við Háskóla Íslands, á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) í síðustu viku.

Engin reikistjarna eins lík jörðinni

Í lífbelti umhverfis stjörnur í vetrarbrautinni okkar, svokallaða rauða dverga, er að finna milljarða af bergreikistjörnum sem eru ekki mikið stærri en jörðin. Lífbeltið er sú fjarlægð frá stjörnunum þar sem hitastig er með þeim hætti að líf geti þrifist þar.

Telja betra að leyfa spilavíti

Það er kominn tími á nýjan hugsanahátt varðandi vanda spilafíkla. Þetta segir Arnar Gunnlaugsson, í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag. Hann og Bjarki bróðir hans hafa áhuga á að opna spilavíti hér á landi.

Aðalsamningamaðurinn látinn hætta

Aðalsamningamaður Íslendinga við Evrópusambandið í makríldeilunni var látinn hætta um síðustu áramót. Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fullyrti þetta í umræðum um kvótafrumvarpið á þingi í kvöld.

Barnaafmæli á listasafni

Nýstárleg sýning stendur yfir í Nýlistasafninu sem hefur tímabundið verið breytt í leiksvæði fyrir börn. Listamaðurinn Curver Thoroddsen stendur fyrir sýningunni. Hann segir að listaverkið verði til þegar fjölskyldan mættir á sýninguna til að leika sér og skemmta.

Þurfum að eiga fyrir því sem við kaupum

Það er allt í lagi að eignast hluti ef maður hefur efni á því, segir Jón Jónsson, tónlistarmaður og hagfræðingur. Í Reykjavík síðdegis í dag ræddi Jón um samtal sem hann átti við börn á fermingaraldri hjá Arion banka í gær.

Þjóðverja þyrstir í skrif Ragnars

Þýska útgáfurisinn Fischer Verlage hefur tryggt sér útgáfuréttinn á íslensku bókinni Myrknætti eftir Ragnar Jónasson, rithöfund. Bókaforlagið gaf líka út Schneebraut, sem var valin ein af fjórum bestu bókum haustsins 2011 af þýsku tímariti.

Íslensk ættleiðing í fjársvelti

Svo gæti farið að eina ættleiðingafélag Íslands hætti að taka við umsóknum á þessu ári vegna fjárskorts. Formaður segir félagið þurfa áttatíu milljónir aukalega frá ríkinu til að geta haldið rekstrinum áfram.

Íslendingur vann 108 milljónir í Víkingalottói

Íslendingur varð 108 milljónum króna ríkari eftir að dregið var í Víkingalottóinu í kvöld. Miðinn var seldur í Olís við Glerá á Akureyri. Tölurnar sem komu upp voru 7 16 27 28 35 45. Bónustölurnar voru 6 og 14

Katrín mælti fyrir kvótafrumvarpinu

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG, mælti fyrir frumvarpi um stjórn fiskveiða á Alþingi í dag. Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, var fjarverandi þegar málið var sett á dagskrá. Katrín er starfandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á meðan.

Lögreglustjóri trúir ekki Guðrúnu Ebbu

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segist ekki eiga annað en góðar minningar um tengdaföður sinn heitinn, séra Ólaf Skúlason. Sigríður er gift séra Skúla Ólafssyni sem kom fram fyrir alþjóð í vetur þar sem hann lýsti því yfir að hann legði ekki trúnað á orð systur sinnar, Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur, sem hefur sakað föður þeirra um kynferðisbrot gegn sér. Í forsíðuviðtali við Nýtt líf, sem kemur út á morgun, er Sigríður spurð hvort hún sé skoðunar og Skúli og efist um frásögn Guðrúnar Ebbu. "Hann hefur sagt að bældar minningar séu afar umdeilt fyrirbæri meðal sérfræðinga um þessi mál. Sú er vitaskuld raunin, því fátt hefur vakið eins miklar deilur innan sálarfræðinnar eins og mál af þessum toga. Og hann hefur sagt að þessi mynd sem var máluð af heimilishaldinu og af föður hans standist ekki. Ég get vissulega tekið undir það. Ég er búin að vera meira en 20 ár í fjölskyldunni og ég á bara góðar minningar um tengdaföður minn. Við verðum að treysta á réttarríkið og það að fólk sé saklaust þar til sekt þess hefur verið sönnuð." Athygli vekur að það er Sigríður Dögg Auðunsdóttir, verðlaunablaðamaður, sem tekur viðtalið í Nýju lífi og markar það því endurkomu hennar í fjölmiðla eftir áralangt hlé.

Fara fram á lögbann á innheimtuaðgerðir Landsbankans

Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda hafa farið fram á lögbann á innheimtuaðgerðir Landsbankans hjá sýslumanninum í Reykjavík. Þannig vilja samtökin og talsmaður að komið verði í veg fyrir að bankinn innheimti greiðsluseðla sem tilkomnir eru vegna veðskuldarbréfa eða skuldabréfa sem eru gengistryggð í erlendri mynt eða hafa verið gengistryggð í erlendri mynt en eru nú íslenskum krónum og hvíla á fasteign eða lausafé og veitt hafa verið neytendum, frá og með lögbanni sýslumanns.

Aðskotahlutir í First Price salthnetum

Með hliðsjón af neytendavernd og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur þá hefur Kaupás hf tekið úr sölu First Price salthnetur í 250g umbúðum, varan hefur verið í sölu í verslunum Krónunnar, Nóatúns, Kjarvals & 11-11. Í öllum framantöldum verslunum hefur varan verið fjarlægð úr hillum verslana.

RFF hefst á morgun - Tískuvaka í miðbænum

Reykjavík Fashion Festival hefst á morgun og verður Tískuvaka haldin í Hörpunni og miðbæ Reykjavíkur. Um 60 verslanir munu taka þátt í vökunni og verða þær opnar til klukkan níu annað kvöld.

Tófú með chili innkallað vegna örverumengunar

Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík hefur innkallað Six fortune tófú með chili af markaði vegna örverumengunar. Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hafa borist upplýsingar frá Matvælastofnun um innköllun af markaði á Six fortune tófú með chili vegna örverumengunar af völdum Bacillus cereus.

Rafrænar kosningar í Reykjavík hefjast eftir miðnætti

Rafrænar íbúakosningar í Reykjavík, þar sem kosið verður um verkefni í hverfum borgarinnar, hefjast þegar klukkan verður eina mínútu gengin í eitt í nótt, fimmtudaginn 29. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en opið verður fyrir móttöku atkvæða fram yfir miðnætti þriðjudaginn 3. apríl.

Vinnuslys í álverinu í Straumsvík

Vinnuslys varð í álverinu í Straumsvík á öðrum tímanum í dag. Meðal annars var slökkviliðsbíll kallaður út en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var það vegna þess að sá slasaði klemmdi fótinn sinn og þurfti að losa hann með hjálp tækjabúnaðar slökkviliðsins.

Sjá næstu 50 fréttir