Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Árs fangelsi fyrir brennu Karlmaður var dæmdur í eins árs óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að kveikja í íbúðarhúsi á Leifsgötu i Reykjavík í júlí árið 2010. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að kveikja í öðru húsi á Tryggvagötu í janúar 2009. 28.3.2012 12:07
Pétur Kr. Hafstein hættir sem forseti kirkjuþings Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, hefur af heilsufarsástæðum sagt af sér embætti forseta og jafnframt þingfulltrúastarfi fyrir Suðurprófastsdæmi, 9. kjördæmi kirkjuþings. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni. Pétur lætur jafnframt af öðrum trúnaðarstörfum í þágu þjóðkirkjunnar. 28.3.2012 11:44
Tveggja ára fangelsi fyrir að verða barni sínu að bana Agné Krataviciuté, var dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa orðið nýfæddu sveinbarni sínu að bana í júlí á síðasta ári, veita því skurðáverka í andliti og koma líkama þess fyrir í ruslageymslu Hótel Frón, þar sem Agné starfaði við þrif. Dómari kvað upp úrskurð nú fyrir stundu. 28.3.2012 11:36
Eygló hraunaði yfir Ragnheiði Elínu úr ræðustól á Alþingi Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins hraunaði yfir framgöngu Ragnheiðar Elínar Árnadóttur þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins í nótt. Í ræðustól á Alþingi rétt áðan sagði Eygló að framkoma þingflokksformannsins hafi verið mikill dónaskapur og henni til skammar. 28.3.2012 11:05
Gengistryggð lán milljónum lægri en verðtryggðu lánin Kostnaður við að færa verðtryggð lán Íbúðalánasjóðs, frá árunum 2002 fram að hruni, niður að stöðunni eins og hún væri hefðu verðbólgumarkmið Seðlabankans staðið nemur 67,2 milljörðum króna. Þetta kemur fram í útreikningum sem KPMG hefur unnið fyrir Helga Hjörvar, formann efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. 28.3.2012 11:00
Lokað hjá Mæðrastyrksnefnd Lokað verður hjá Mæðrastyrksnefnd í dag samkvæmt tilkynningu frá stjórn nefndarinnar. Úthlutun er að öllu jöfnu á miðvikudögum en verður semsagt ekki í dag. Aftur á móti er stefnt að úthlutun eftir viku. 28.3.2012 10:47
Hungurleikarnir og sálmabókin seljast vel Íslendingar eru hrifnir af norrænum krimmum þessa dagana samkvæmt sölutölum Eymundsson vikuna 21. til 27. mars. Þá seldust bækurnar Englasmiðurinn og Snjókarlinn best í bókabúðum Eymundsson. Þá er einnig ljóst að Hungurleikarnir eftir Suzanne Collins fer vel í ungmenni þjóðarinnar. Hún er þriðja mest selda bókin og trónir einnig á toppnum í flokki unglinga- og barnabókmennta. 28.3.2012 10:20
Skógarkerfill sækir í sig veðrið Skógarkerfill hefur lagt undir sig lúpínubreiður í Hrísey á undanörnum árum. Gróska kerfilsbreiða hefur nú verið rannsökuð í fyrsta sinn og því er hægt að fá vísbendingar um hvers er að vænta í landi sem skógarkerfill leggur undir sig. Að sögn Borgþórs Magnússonar, plöntuvistfræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sækir kerfillinn helst í frjósamt land og gömul tún sem hætt er að rækta. 28.3.2012 09:00
Smáey seld frá Eyjum, áhöfninni sagt upp störfum Allri 12 manna áhöfn togskipsins Smáeyjar frá Vestmannaeyjum hefur verið sagt upp og skipið selt til Grenivíkur, án kvóta. 28.3.2012 07:40
Mjallgæs sést á Íslandi í fyrsta sinn Meðal þeirra fugla, sem nýttu sér góðan byr til Íslands í hlýindunum á mánudag, var svonefnd Mjallgæs, sem er hvít gæs og hefur aldrei áður komið hingað til lands, svo vitað sé. 28.3.2012 07:26
Áskorun um að tryggja öryggi lögreglumanna Lögreglufélag Suðurlands skorar á yfirstjórn lögreglumála að tryggja það að öryggismálum lögreglumanna, þjálfun og búnaði verði án tafa komið í það horf, sem kveðið er á um í reglum ríkislögreglustjóra. 28.3.2012 07:20
Slökkvitæki olli útkalli hjá slökkviliðinu Slökkviliðið á Suðurnesjum var kallað að stúdentagörðum Keilis við Keflavíkurflugvöll þar sem tilkynnt hafði verið um reyk. 28.3.2012 07:15
Hiti komst hæst í 18,2°C Veður Einungis 0,1 gráðu vantaði upp á að hitamet frá árinu 1948 félli á Austurlandi um helgina. Hitinn mældist mestur 18,2°C á Skjaldþingsstöðum en fyrra metið var 18,3 gráður. Frá þessu greinir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á bloggi sínu. Hitinn komst í 17 gráður á nokkrum stöðum á Austfjörðum. Sjá mátti á hitaritum að hitinn hækkaði heldur eftir hádegi en víða var vindur 10-15 m/sek. 28.3.2012 07:00
Stjórnarandstaðan sökuð um fordæmislaus klækjabrögð Stjórnarþingmenn sökuðu þingmenn stjórnarandstöðunnar um fordæmalaus klækjabrögð á Alþingi í nótt, við umræðuna um tillögu meirihluta stjórnskipunarnefndar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrártillögu stjórnlagaráðs. 28.3.2012 06:50
Ljósastúdíó fyrir sigurvegarann Ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins hefst í dag og er þemað „Páskastemning“. Besta myndin mun prýða forsíðu Fréttablaðsins laugardaginn 7. apríl næstkomandi. Verðlaun fyrir fyrsta sætið er heimaljósastúdíó frá Nýherja. Í því eru tveir 150W ljósastandar, regnhlíf og DVD-kennsludiskur. Verðlaun fyrir annað og þriðja sætið eru ferðir í Borgarleikhúsið fyrir tvo. 28.3.2012 06:00
Makrílútgerð svipt umhverfisvottun Útgerðir í Norður-Evrópu sem stunda makrílveiðar verða um mánaðamótin sviptar heimild til að merkja afurðir sínar með umhverfisvottun Marine Stewardship Council. Að sögn breska blaðsins The Guardian er ástæðan ofveiði Íslendinga og Færeyinga sem geri að verkum að makrílstofninn sé ekki lengur sjálfbær. 28.3.2012 06:00
Saga ferðaþjónustunnar í bók Stefnt er að útgáfu sögu ferðaþjónustunnar á Íslandi innan þriggja ára, samkvæmt samkomulagi Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) og iðnaðarráðuneytisins. Árni Gunnarson, formaður SAF, segir að ýmislegt hafi verið gert til að skrásetja einstök sögubrot úr ferðaþjónustunni, svo sem með kostun og vefútgáfu viðtala við ýmsa af frumkvöðlum íslenskrar ferðaþjónustu. Hann segir stjórn SAF hafa ákveðið að verja fimm milljónum króna til að koma af stað ritun sögunnar, en ráðuneytið leggi fram sömu upphæð á móti.- óká 28.3.2012 05:00
Einn dæmdur fyrir að brenna Krýsuvíkurkirkju Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rúmlega tvítugan mann í eins árs fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir að leggja eld að Krýsuvíkurkirkju í janúar 2010 með þeim afleiðingum að hún brann til ösku. Dómurinn féll um miðjan febrúar en hefur ekki verið birtur opinberlega. 28.3.2012 04:00
Búlandsvirkjun hefur mikil áhrif á náttúru og byggð virkjanirÁstæður þess að Búlandsvirkjun er sett í biðflokk í frumvarpi um rammaáætlun eru að veruleg óvissa ríkir um umhverfisáhrifin en á vatnasviði Skaftár og á áhrifasvæði virkjunarinnar eru náttúruverðmæti á heimsvísu. Þetta kemur fram hjá Þóru Ellen Þórhallsdóttur sem var formaður faghóps I og í verkefnisstjórn 2. áfanga rammaáætlunar. 28.3.2012 03:15
Játaði rán í 10/11 Annar mannanna tveggja sem handteknir voru í morgun, grunaðir um að hafa framið rán í verslun 10/11 við Mýrarveg á Akureyri, játaði við yfirheyrslur hjá lögreglu í dag. Hann er talinn hafa staðið einn að ráninu. Þáttur hins mannsins, sem handtekinn var, var lítill eftir því sem lögreglan fullyrðir. 27.3.2012 20:59
Stærsta verk í vegagerð eftir hrun Ingileifur Jónsson verktaki átti lægsta tilboð í þverun tveggja fjarða á Vestfjörðum, upp á rúma tvo milljarða króna. Þetta er stærsta verk sem Vegagerðin ræðst í eftir hrun. 27.3.2012 19:13
Íslensk olíuleitarfélög sækja um Drekann með erlendum félögum Tveir aðskildir hópar Íslendinga undirbúa í samvinnu við erlend olíuleitarfélög að senda inn umsókn í Drekasvæðið, en frestur rennur út á mánudag. Báðir hóparnir leggja nú lokahönd á stofnun íslensks olíuleitarfélags, hvor í sínu lagi. 27.3.2012 18:54
Eldri borgari varð 30 milljónum ríkari Sjötug kona varð 30 milljónum króna ríkar þegar dregið var út í Milljónaveltu Happadrættis Háskólans í dag. Potturinn hafði safnast upp í 30 milljónir í mars eða um 10 milljónir fyrir hvern mánuð ársins sem liðinn er. Konan sem fékk vinninginn hafði átt miðann um árabil. Konan var að vonum himinlifandi þegar hún fékk fréttirnar. Milljónaveltan gekk einnig út í mars mánuði fyrir ári síðan, þá 30 milljónir eins og nú - og vinningurinn þá féll einnig í skaut sjötugrar konu frá Reykjavík. 27.3.2012 17:55
Þingmenn vilja fara að sjá siðareglur fyrir forsetann Sex þingmenn úr Samfylkingunni og VG ásamt Atla Gíslasyni hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar þar sem Alþingi álykti að fela forsætisráðherra að undirbúa í samvinnu við embætti forseta Íslands setningu siðareglna fyrir forsetaembættið. 27.3.2012 17:09
Ekki vera eins og Þrándur Nú styttist í að rafrænar kosningar fari fram í Reykjavík. Að því tilefni hefur samráðsvefurinn Betri Reykjavík birt myndband þar sem borgarstjórinn ræðir um kosti slíkra kosninga. 27.3.2012 16:43
Dómur Landsdóms líklega kveðinn upp eftir páska Landsdómur mun að öllum líkindum ekki kveða upp dóm í sakamáli gegn Geir H. Haarde fyrr en eftir páska samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini A. Jónssyni, skrifstofustjóra Hæstaréttar Íslands. 27.3.2012 15:56
Keyptu yfir tíu þúsund miða í Herjólf - lögmætið óljóst Þjóðhátíðarnefndin í Vestmannaeyjum keypti rúmlega tíu þúsund miða í Herjólf yfir Verslunarmannahelgina. Þannig er nær uppselt í ferðir til Vestmannaeyja fimmtudag og föstudag fyrir helgina. Og svo á mánudegi og þriðjudegi eftir helgi. Þjóðhátíðarnefndin selur svo miðana áfram, á sama verið og þeir voru keyptir, eða á 1150 krónur. 27.3.2012 16:57
Tilboð í Vestfjarðarveg opnuð - lægsta boð 2,1 milljarður Tilboð í gerð Vestfjarðarvegar um Kjálkafjörð og Kerlingafjörð voru opnuð í dag hjá Vegagerðinni. Hæsta boð átti Ingileifur Jónsson og hljóðar það upp á 83 prósent af áætlaðri kostnaðaráætlun. Hún hljóðar upp á 2.580 milljónir króna og var lægsta boð því 2.154 milljónir. Suðurverk átti næstlægsta boð, 2.487 milljónir. 27.3.2012 15:39
Þriggja vikna biðlisti hjá Stígamótum Þrátt fyrir sex ráðgjafa þá er þriggja vikna bið í viðtöl hjá Stígamótum. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur, framkvæmdastýru Stígamóta þá geta fulltrúarnir tekið fimm til sex einstaklinga í viðtöl á hverjum degi. 27.3.2012 15:28
Bústaður brennur í Hvassahrauni Eldur logar nú í sumarhúsi í Hvassahrauni, sem er sunnan við álverið í Straumsvík. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór a staðinn og að sögn vaktstjóra er bústaðurinn alelda. Hann er því að öllum líkindum ónýtur. Óljóst er um eldsupptök. 27.3.2012 15:22
Slökkviliðið kallað út vegna straujárns Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út upp úr klukkan hálf tvö í dag vegna elds í fjölbýlishúsi í Kópavogi. 27.3.2012 14:48
Lýst eftir Sindra Frey Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sindra Frey Jenssyni 16 ára, til heimilis að Túngötu 20, Grindavík. Síðast er vitað um ferðir Sindra Freys í Mosfellsbæ í gærdag. Hann var þá klæddur í gráa hettupeysu með rennilás, grænum/gráum Adidas jogging-buxum og í svörtum skóm. 27.3.2012 14:23
Bæjarlögmaðurinn segir ásakanir fráleitar Þórður Clausen Þórðarson, bæjarlögfræðingur Kópavogs, segir það af og frá að hann hafi reynt að hafa áhrif á vitni á fundi sem Morgunblaðið greinir frá í dag. Orðrétt segir Þórður í yfirlýsingu sem hann sendi á fjölmiðla: 27.3.2012 14:18
Fær miskabætur vegna rannsóknar á nauðgun - eiginkonan skildi við hann Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gert Íslenska ríkinu að greiða karlmanni hálfa milljón króna í miskabætur eftir að lögreglan handtók hann í maí árið 2009 þar sem hann var grunaður um að hafa nauðgað gesti skemmtistaðar í Reykjavík. Lögreglan fór því næst fram á að maðurinn sætti gæsluvarðhaldi og samþykkti Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu lögreglustjórans um vikulangt varðhald. 27.3.2012 14:08
Fjórir Vítisenglar handteknir og húsleitir á sex stöðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan á Suðurnesjum handtóku fyrir helgina fjóra meðlimi Hells Angels og framkvæmdu í kjölfarið húsleit á samtals sex stöðum í báðum umdæmunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Mönnunum var öllum sleppt skömmu síðar en handtökurnar eru liður í rannsókn lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi. 27.3.2012 13:30
Kynjaskipt svefnpokapláss á Þjóðhátíð Þjóðhátíðarnefnd Vestmannaeyja keypti í morgun hluta af miðunum sem seldir verða með Herjólfi í kring um hátíðina. Ekki fæst uppgefið hversu stóran hluta nefndin keypti. Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á vaktað kynjaskipt svefnrými innahúss á Þjóðhátíð. Byrjað var í morgun að selja miðana. "Við keyptum hluta af miðunum til að setja í sölu með miðum í Herjólfsdal," segir Páll Scheving Ingvarsson, formaður þjóðhátíðarnefndar. Hann vill ekki gefa upp um hversu stórt hlutfall mðanna er að ræða. "Við viljum nú kannski ekki gefa það upp. Ég held að það sé misjafnt eftir ferðum," segir Páll. Miðarnir sem nefndin keypti eru í ferðir á fimmtudag og föstudag fyrir þjóðhátíðarhelgina, og svo á mánudag og þriðjudag. Þetta er í fyrsta skipti sem nefndin kaupir miða með Herjólfi. Páll segir að aðrir hafi þó áður selt saman miða í Herjólf og í Herjólfsdal. Ástæðuna fyrir kaupunum segir Páll vera til að fá betri yfirsýn yfir gestafjölda, og til að nýta ferðir Herjólfs til fulls. Páll segir nefndina hafa keypt miðana til að fá betri yfirsýn yfir gestafjölda, og nýta ferðir Herjólfs til fulls. Oft hafi miðar með Herjólfi hreinlega selst upp á tveimur dögum þegar byrjað er að selja miðana í marsmánuði. "En síðan er fólk ekki alltaf að nýta farmiðana og er þá um leið í raun að "blokkera" aðgang annarra á sama tíma," segir Páll. Hann tekur fram að nefndinn hafi keypt miðana fullu verði, og þeir verði seldir áfram fyrir sömu upphæð, jafnvel í pakka þar sem einnig er boðið upp á gistingu. "Við ætlum að bjóða upp á nýja gistimöguleika. Við ætlum að tjalda inni í nýja knattspyrnuhúsinu og leigja þar gistingu, undir þaki, í skjóli, í vöktuðu húsnæði. Við munum líka bjóða upp á kynjaskipta gistingu í íþróttasölum þar sem verður vöktun líka, þar sem stelpur verða sér og strákar verða sér." Eftir síðustu Þjóðhátið var mikil umræða um þær nauðganir sem áttu sér stað á hátíðinni. Er þess aukna gæsla og kynjaskipting viðbrögð við þeim? "Kannski ekki bein viðbrögð. Við teljum þetta bara vera vinkil á því að geta betur tryggt öryggi," segir Páll. 27.3.2012 12:18
Grétar Mar: Nýtt kvótafrumvarp verra en núgildandi lög Kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar er verra en núverandi lög og nær hvorki að tryggja nýliðun innan greinarinnar né jafnræði. Þetta segir fyrrverandi þingmaður. Með frumvarpinu sé verið að afhenda útgerðarmönnum fiskiauðlinda á silfurfati. 27.3.2012 12:08
Straumsvíkurmálinu frestað - vitni neitar að koma til landsins Réttarhöldunum í Straumsvíkurmálinu svokallað var frestað í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgunn þar sem lykilvitni ákæruvaldsins vill ekki mæta fyrir dómstól og bera vitni. Ástæðan er sú að vitnið á að hafa pakkað og sent fíkniefnin frá Hollandi til Íslands, en maðurinn er búsettur í Hollandi. Hann er talinn geta varpað ljósi á það hver skipulagði innflutninginn. 27.3.2012 11:58
Sprengjumaður áfram í gæsluvarðhaldi Dómari Héraðsdóms Reykjaness féllst á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni í gær, sem var handtekinn í lok febrúar, eftir að lögreglu á Suðurnesjum bárust ábendingar um sérkennilega Facebook síðu mannsins. Þar mátti finna myndir af manninum, sem er 29 ára gamall, handleika skotvopn auk þess sem þar mátti finna myndir af sprengju og sprengjuefni. Þá hafði maðurinn myndað það þegar hann sprengdi fiskikar í loft upp. 27.3.2012 10:50
Húsleitir hjá Samherja í Reykjavík og á Akureyri Fulltrúar frá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans og sérstökum saksóknara eru nú í húsleitum á skrifstofum Samherja í Reykjavík og á Akureyri. 27.3.2012 09:56
Bæjarlögmaður sakaður um að reyna að hafa áhrif á vitni Bæjarlögmaður Kópavogs, Þórður Clausen Þórðarson, á að hafa lagt til við Sigrúnu Ágústu Bragadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Kópavogs, um að hún hagaði skýrslugjöf sinni fyrir dómi með þeim hætti að Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogsbæjar, hefði beitt hræðslustjórnun þegar hann fór með völdin í bænum - og þannig stjórnað öllu ferli sjóðsins. 27.3.2012 09:48
LÍÚ segir kvótafrumvarpið skerða aflaheimildir verulega Aflaheimildir í þorski verða skertar um 9,5%, um 6,5% í ýsu, rúm 7% í ufsa og tæp 10% í steinbít, samkvæmt frumvarpi ríkisstjórnarinnar um fiskveiðistjórnun, segir á heimasíðu Landssambands íslenskra útvegsmanna. 27.3.2012 07:17
Innanlandsflugið aftur á áætlun Innanlandsflug Flugfélags Íslands frá Reykjavík virðist vera á áætlun nú í morgunsárið, en hætta varð innanlandsflugi í gærkvöldi vegna hvassviðris á Reykjavíkurflugvelli. 27.3.2012 07:13
Vopnað rán framið á Akureyri í nótt Vopnað rán var framið á Akureyri í nótt þegar grímuklæddur maður, vopnaður rörbút, kom inn í sólarhringsverslun 10-11 í kaupangi um hálf þrjú leitið og ógnaði afgreiðslumanni. 27.3.2012 07:10
Dögun mótmælir kvótafrumvarpinu harðlega Félagsfundur Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði, mótmælir harðlega frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og krefst þess að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðarskipan kerfisins. 27.3.2012 07:06