Nýr forsetaframbjóðandi: Ég hef kjark og þor Erla Hlynsdóttir skrifar 29. mars 2012 11:46 Skagfirðingurinn Hannes Bjarnason hefur tilkynnt framboð sitt til embættis forseta Íslands. Hann er búsettur í Noregi en vill snúa heim til að taka þátt í að byggja upp nýtt Ísland. samsett mynd
Skagfirðingurinn Hannes Bjarnason hefur tilkynnt framboð sitt til embættis forseta Íslands. Hann er búsettur í Noregi en vill snúa heim til að taka þátt í að byggja upp nýtt Ísland. Hannes hefur búið í Noregi í fjórtán ár, þar sem hann starfar sem breytingastjóri hjá stóru fyrirtæki í Osló. Hann er fertugur, kvæntur, þriggja barna faðir, og er með háskólagráðu í landafræði. „Ég er búinn að vera hugsa mitt ráð í þónokkurn tíma, og þetta er tilkynning um framboð," segir Hannes í samtali við fréttastofu. Hann segist þó löngu tilbúinn til að flytja aftur heim. „Það hefur náttúrulega alltaf verið á áætluninni að flytja aftur heim til Íslands. Á meðan margir hafa viljað flytja frá Íslandi eftir hrunið, þá heur eiginlega verið sterkara í mér að flytja til Íslands og taka þátt í uppbyggingunni á Íslandi." Hannes er fjórði til að tilkynna um framboð til forseta, en auk hans gefa kost á sér þeir Ástþór Magnússon og Jón Lárusson, sem og Ólafur Ragnar Grímsson, sitjandi forseti.Afhverju ert þú rétti maðurinn til að verða forseti Íslands? „Hvort ég sé sé rétti maðurinn, það kemur líklega í ljós 30. júní. En ég hef kjark og þor til að taka á þeim verkefnum sem forsetinn þarf að taka við. Ég tel mig vera einn af fólkinu. Ég er óþekkt persóna í fjölmiðlum þannig að ég veit að það er á brattann að sækja, en það verður mjög gaman að fylgjast með því hvernig fólkið tekur því," segir hann. Hannes er væntanlegur til Íslands í april, og hefur þá hringferð sína um landið. Hann hefur opnað vefsíðu vegna framboðsins, jáforseti.is.
Mest lesið Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Innlent „Alvarlegasta árásin gegn dönskum innviðum til þessa“ Erlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Innlent Óttaslegnir eldri borgarar eftir endurtekna eldsvoða Innlent Opna í Kaupmannahöfn en loka loftrýminu yfir Osló einnig vegna dróna Erlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu Erlent Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Innlent Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn Innlent Hertogaynjan fær reisupassann vegna tölvupósts til Epstein Erlent Fleiri fréttir Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Aðeins helmingur telur sig við góða heilsu Rannsaka húsbrot og eldsvoða á Sauðárkróki Krefur Reykjavíkurborg um frekari svör vegna fundargerðar Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Rannsaka mál sex grímuklæddra manna sem réðust á einn Óttaslegnir eldri borgarar eftir endurtekna eldsvoða Vill frekar fjölga lögreglumönnum heldur en lögreglustöðvum Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Sjá meira