Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Buster fann 600 grömm af grasi Lögreglumenn á Selfossi lögðu hald á 600 grömm af kannabis í húsleit á Selfossi á miðvikudag. Í tilkynningu frá lögreglu segir að grunur hafi verið uppi um að í húsinu væri stunduð kannabisræktun. Því var fíkniefnahundurinn Buster sendur á vettvang og gaf hann vísbendingu um að í húsinu væru fíkniefni. 16.3.2012 11:01
Beint tjón ríkisins á ábyrgð Seðlabankans Eina beina tjónið sem ríkið hlaut af bankahruninu má rekja til Seðlabankans, en ekki til Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Þetta sagði Andri Árnason, verjandi Geirs, fyrir Landsdómi í morgun. 16.3.2012 10:36
Andri: Sönnunarbyrðinni snúið við Rannsóknarnefnd Alþingis kannaði ekkert hvort aðgerðir, eins og selja eignir bankanna hafi verið raunhæfar. Ekki var heldur kannað hvaða áhrif slíkar aðgerðir myndu hafa á orðspor eða eiginfjárstöðu bankanna. Þetta sagði Andri Árnason, verjandi Geirs Haarde, í málflutningi sínum sem hófst fyrir Landsdómi í morgun. 16.3.2012 10:07
Bryndís Schram: Hef ekki búið með barnaníðing í hálfa öld "Að halda því fram fullum fetum, að ég hafi búið í meira en hálfa öld með barnaníðing mér við hlið (líklega án þess að hafa hugmynd um það – eða hvað?) er ekki bara lítilsvirðing við mig. Það er bull og þvaður. Hreint út sagt – uppspuni.“ 16.3.2012 09:32
Andri: Ákæruatriðin falla ekki undir forsætisráðherra Fjármálaeftirlitið, bankarnir og tryggingasjóður innistæðueigenda heyrðu undir viðskiptaráðuneytið en ekki forsætisráðherra, sagði Andri Árnason, verjandi Geirs H. Haarde, fyrir Landsdómi í morgun. Hann hóf málflutning sinn fyrir dómnum klukkan níu í morgun en Sigríður Friðjónsdóttir lauk málflutningi sínum í gær. Andri sagði að það væri því byggt á því af hálfu ákærða, að ákæruatriðin falli alls ekki undir forsætisráðherra. 16.3.2012 09:22
Þór úr viðgerð í byrjun apríl Viðgerðir Rolls Royce á vélum varðskipsins Þórs eru á áætlun, að því er fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar. Skipið er í viðgerð í Noregi. 16.3.2012 08:30
Stefna að opnun fjögurra nýrra kafla Stefnt er að því að opna fjóra nýja samningskafla í aðildarviðræðum Íslands og ESB á ríkjaráðstefnu í lok mánaðarins. Þar verður einnig leitast við að loka sem flestum köflum. Þá munu viðræður í lykilköflum, til dæmis fiskveiðum og landbúnaði, hefjast í ár. Þegar hafa ellefu kaflar af 35 verið opnaðir og átta þeirra hefur þegar verið lokað. 16.3.2012 08:00
Segir rétt staðið að brottvikningu Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, segir að rétt hafi verið staðið að brottvikningu Gunnars Þ. Andersen úr starfi forstjóra FME. Þetta kom fram í viðtali við hann í Kastljósi í gærkvöldi. 16.3.2012 08:00
Stálu fimm stórum tölvuskjám úr verslun í nótt Þjófur, eða þjófar stálu fimm 27 tommu tölvuskjám úr verslun við Síðumúla á þriðja tímanum í nótt og komust undan. 16.3.2012 07:59
Fimm afbrotamenn kærðu gæsluvarðhald til Hæstaréttar Fimm af sex afbrotamönnum, sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær, hafa kært úrskurðina til Hæstaréttar. 16.3.2012 07:56
Skandia byrjað að dæla sandi úr Landeyjahöfn Dæluskipið Skandia byrjaði í gær að dæla sandi frá mynni Landeyjahafnar, eftir viðamiklar viðgerðir á skipinu efitir að það lenti utan í hafnargarði í höfninni fyrir nokkrum vikum og laskaðist. 16.3.2012 07:45
Tjaldurinn kominn til Vestmannaeyja Tjaldurinn er kominn til Vestmannaeyja, aðeins seinna en vant er. Jóhann Guðjónsson fyrrverandi starfsmaður hafnarinnar, sem fylgst hefur með fulgalífinu í Eyjum í áratugi, staðhæfir vð Eyjafréttir að þetta séu fuglar, sem ekki hafi vetursetu hér, og þeir séu því ótvíræðir vorboðar. 16.3.2012 07:38
Sagði Geir sekan um alvarlega vanrækslu Brot Geirs H. Haarde á ráðherraábyrgð í aðdraganda hrunsins telst alvarlegt og viðurlög allt að tveggja ára fangelsi, sagði saksóknari í málflutningi sínum í gær. Hún sagði Geir hafa sýnt alvarlega vanrækslu á skyldum sínum sem forsætisráðherra. Málflutningur heldur áfram í dag þegar verjandi Geirs á sviðið. 16.3.2012 07:30
Á slysadeild eftir fólskulega líkamsárás Karlmaður var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild eftir fólskulega líkamsárás fyrir utan veitingahús við Smiðjustíg um klukkan eitt í nótt. 16.3.2012 07:08
Kona í fyrsta skipti formaður Svana Helen Björnsdóttir var í gær kjörin formaður Samtaka iðnaðarins. Hún tekur við af Helga Magnússyni, sem hefur verið formaður síðan árið 2006. 16.3.2012 07:00
Kæru MP Banka vísað frá Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftirlitsins um að heimila samruna Íslandsbanka og Byrs. MP banki kærði á sínum tíma ákvörðunina og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi. 16.3.2012 07:00
Klúbbar kæra nýjan golfvöll í Grímsnesi Golfklúbbar kæra Grímsnes- og Grafningshrepp til innanríkisráðuneytisins vegna byggingar sveitarfélagsins á golfvelli við Minni-Borg. Oddvitinn segir engan hafa einkarétt á golfvöllum. Sveitarfélagið muni ekki sjálft reka völlinn. 16.3.2012 06:30
Innrita nemendur án samþykkis ráðuneytis Byrjað er að innrita nýja nemendur í Menntaskólann Hraðbraut þrátt fyrir að námið sé ekki samþykkt af menntamálaráðuneyti. Óvíst er um upphæð námsgjalda og jöfnunarstyrki. Ráðuneytinu hafa borist fyrirspurnir frá foreldrum. 16.3.2012 06:00
Hætt við niðurskurð á fé Hætt hefur verið við að skera niður allt sauðfé á bænum Merki á Jökuldal. Riða greindist í einu heilasýni úr kind þaðan sem slátrað var á Vopnafirði í haust. 16.3.2012 06:00
Greiðir út rúma 100 milljarða Slitastjórn Glitnis greiðir í dag forgangskröfuhöfum jafngildi 105,6 milljarða króna. Greiðslurnar verða í myntkörfu sem styðst við gengi krónunnar hinn 22. apríl 2009. 16.3.2012 06:00
Gengisdómur kostaði Arion 13,8 milljarða Arion banki birti fyrstur allra áætlað tap sitt vegna gengislánadóms. Tapið byggir á einum af fjórum sviðsmyndum FME. Útlán bankans jukust mikið vegna kaupa á lánasafni þrotabús Kaupþings. Farinn að huga að lánshæfiseinkunn. 16.3.2012 05:45
Ekki má fara of geyst í lánveitingar Húsnæðisverð á Íslandi er líklegt til að hækka um samanlagt 16% á næstu tveimur árum. Að teknu tilliti til verðbólguspár jafngildir það um 8,5% hækkun að raunvirði. Þetta er mat greiningar Íslandsbanka sem birt hefur spá um þróun íbúðaverðs. 16.3.2012 05:30
Fjórir kostir í boði í gjaldmiðilsmálum Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra segir ekkert standa í vegi fyrir því að Ísland uppfylli Maastricht-skilyrði evrusamstarfsins á næsta kjörtímabili. Lang farsælast sé fyrir Ísland að stefna að inngöngu í ESB og upptöku evru. Oddný var meðal ræðumanna á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins í gær. 16.3.2012 05:30
Rýnt í vinsældir Of Monsters and Men Íslenskur námsmaður í Chicago í Bandaríkjunum hefur birt afar áhugaverða glærukynningu um hljómsveitina Of Monsters and Men. Í kynningunni fjallar hann um þær ástæður sem liggja að baki vinsældum hljómsveitarinnar og varpar hún ljósi á mikilvægt samspil internetsins og lukku. 15.3.2012 21:15
"Skipulögð glæpastarfssemi er ekkert náttúrulögmál" "Þessi þróun er grafalvarleg,“ sagði Jóhann Benediktsson, fyrrverandi lögreglustjóri. Jóhann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag. Hann gaf álit sitt á þróun skipulagðrar glæpastarfsemi hér á landi. 15.3.2012 20:45
Pressustríðinu lokið - fréttin fjarlægð Fréttavefurinn Pressan hefur fjarlægt frétt sína um ritstjóra DV. Á Pressunni kemur fram að fréttin hafi verið fjarlægð að ósk lögmanns DV. 15.3.2012 20:30
Lögreglan í Noregi biðst afsökunar Talsmaður lögreglunnar í Noregi sagði í dag að viðbrögð lögregluyfirvalda hefðu verið silaleg þegar upp komst um skotárás Anders Behring Breivik í Útey. 15.3.2012 20:10
Norsk herflugvél hvarf af ratsjá Björgunarmenn leita nú að norskri Herkúlesar-herflugvél sem hvarf yfir Norður-Svíþjóð fyrr í dag. Fimm menn voru um borð í flugvélinni en hún tók þátt í heræfingu. 15.3.2012 19:43
Rannsókn hafin á brunanum á Selfossi Lögreglurannsókn er hafin á stórbrunanum á Selfossi í gær. Eldurinn fór þar í gegn um eldvegg sem settur var upp samkvæmt ráðleggingum Brunavarna Árnessýslu. Eigandi röraverksmiðjunnar Sets segist aldrei hafa verið óttasleginn. 15.3.2012 19:15
Hægt að afnema höftin á þremur mánuðum Gjaldeyrishöftin á að afnema á þremur mánuðum, eða eins fljótt og unnt er, þar sem kostnaður vegna þeirra eykst dag frá degi. Þetta sagði Jón Daníelsson prófessor á Iðnþingi í dag. 15.3.2012 19:00
Fangelsismálastofnun skoðar viðbrögð við gengjamyndum í fangelsum Fangelsismálastofnun skoðar nú hvernig hægt er að bregðast við gengjamyndun innan veggja fangelsanna. Fangaverðir óttast margir um öryggi sitt en forsprakkar bæði vélhjólasamtakanna Outlaws og Hells Angels eru í fangelsi. 15.3.2012 18:30
Komu allir að alvarlegum líkamsárásum vegna handrukkuna Sex karlmenn voru úrskurðaðir í dag í vikulangt gæsluvarðhald vegna umfangsmikilar rannsóknar lögreglunnar á skipulagðri brotastarfsemi. Mennirnir koma að alvarlegum líkamsárásum vegna handrukkuna en eitt fórnarlambanna var fótbrotið á báðum fótum. 15.3.2012 18:30
Lífsýni gegna lykilhlutverki í rannsókn sakamála "Fleiri og fleiri sakamál leysast eingöngu á lífsýnum,“ sagði Björgvin Sigurðsson, sérfræðingur hjá tæknideild lögreglunnar, í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 15.3.2012 18:02
Ríkissjóður og Seðlabanki endurgreiða 116 milljarða af lánum AGS Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands endurgreiða 116 milljarða króna af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndum í þessum mánuði. 15.3.2012 17:14
Sektaður fyrir brot gegn hvíldartíma ökumanna Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness um að ökumaður vöruflutningabifreiðar hefði í þrígang brotið gegn reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Ökumaðurinn bar fyrir sig að í öllum tilvikum hefði verið um að ræða akstur með fiskúrgang, sem honum hefði verið refsilaus. 15.3.2012 16:39
Málflutningi Sigríðar lokið Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, segir augljóst að á ríkisstjórnarfundum hafi ekkert verið fjallað um stöðu bankanna eða þann vanda sem steðjaði að í aðdraganda bankahrunsins. Hún gagnrýndi þetta harðlega í málflutningi fyrir Landsdómi í dag. 15.3.2012 16:04
Sex í vikulangt gæsluvarðhald - grunaðir um alvarlegt ofbeldisbrot Tveir karlmenn til viðbótar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í dag í tengslum við rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi, en mennirnir voru handteknir í gær. 15.3.2012 16:02
Óskað eftir vitnum að slysi í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Kársnesbrautar og Hábrautar í Kópavogi um hálf sjö leytið í gærkvöld. Þar rákust saman Nissan Micra og Daihatsu Move en bæði ökutækin eru rauð að lit. Að sögn lögreglu var annar ökumannanna fluttur á slysadeild til aðhlynningar og hinn leitaði þangað síðar. Miklar skemmdir urðu á bílunum eins og sést á meðfylgjandi mynd. 15.3.2012 15:57
Vilja sameina menningastofnanir á Akureyri - Magnús Geir kallaður til Leikfélag Akureyrar hefur leitað til Magnúsar Geirs Þórðarsonar, leikhússtjóra Borgarleikhússins, í viðleitni við að sameina tímabundið samvinnu milli LA, Borgarleikhússins og Menningarfélagsins Hofs. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Akureyrarstofu. 15.3.2012 15:47
Stefnir í að skuldastaðan fari undir Maastricht skilyrðin Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra segir ekkert standa í vegi fyrir því að skuldastaða hins opinbera verði komin undir Maastricht skilyrðin á næsta kjörtímabili, en skilyrðin segja til um hvort ríki geti tekið upp evru sem gjaldeyri. Þetta kom fram í ræðu ráðherrans á Iðnþingi í dag. 15.3.2012 15:44
Bjóða upp á ókeypis aðstoð við skattframtalið "Við erum bara rosalega spennt fyrir þessum degi og vonumst til að sjá sem flesta," segir Sigríður Marta Harðardóttir, framkvæmdastjóri Lögfræðiþjónustunnar Lögréttu í Háskólanum í Reykjavík. 15.3.2012 15:04
Sigríður: Möguleiki á að selja eignir Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, hafnar þeim skýringum að forsætisráðherra hafi ekki getað gert neitt til þess að beita sér fyrir því að bankarnir færu úr landi eða myndu minnka efnahagsreikning sinn á árinu 2008. 15.3.2012 14:57
Landsdómsmálið: Álíka margir ánægðir og óánægðir Álíka margir sögðust ánægðir og óánægðir með niðurstöðu Alþingis að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar um að landsdómsákæra á hendur Geir H. Haarde yrði afturkölluð, í könnun sem Capacent Gallup gerði í byrjun mars. 15.3.2012 14:53
Könnun Capacent: Flestir vilja Sigríði á biskupsstól Flestir nefna séra Sigríði Guðmarsdóttur, frambjóðanda til embættis biskups, í könnun sem Capacent stóð fyrir og segir frá á heimasíðu sinni. 23 prósent þeirra sem þátt tóku nefndu Sigríði en skammt á eftir kemur Þórhallur Heimisson með 21 prósent atkvæða. Þar á eftir koma síðan Agnes M. Sigurðardóttir og Örn Bárður Jónsson en nær 12% nefndu hvort þeirra. 15.3.2012 14:45
Pressustríðið heldur áfram: Kannast ekki við kröfu um afsökunarbeiðni Steingrímur Sævarr Ólafsson segist ekki kannast við að nokkur hafi haft samband við Pressuna vegna fréttar um ritstjóra DV en Reynir Traustason sagði í viðtali við Vísi að lögmaður hans hefði farið fram á afsökunarbeiðni vegna málsins. Um er að ræða fyrirsögn sem birtist á Pressunni þar sem segir meðal annars að ritstjórarnir séu flæktir inn í meint kynferðisbrotamál. Fyrirsögnin sem um ræðir er eftirfarandi: 15.3.2012 14:44