Fleiri fréttir

Dæmdur fyrir að stela frá húsfélaginu sínu

Karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt þegar hann sat sem gjaldkeri í fjölbýlishúsi í Breiðholti í Reykjavík. Maðurinn dró sér rúma milljón á tímabilinu 23. mars 2010 til 24. nóvember sama ár.

Saksóknari: Fráleitt að skýla sér á bakvið rit Seðlabankans

Það er fráleitt af Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, að skýla sér á bakvið rit Seðlabankans um fjármálastöðugleika árið 2008. Þetta sagði Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, í málflutningi sínum fyrir Landsdómi í dag. Stjórnmálamenn hafa ítrekað visað í það, bæði fyrir Landsdómi og áður, að Seðlabankinn hafi ekki varað formlega við hættum í aðdraganda hrunsins. Í umræddu riti Seðlabankans hafi komið fram að staða bankanna væru að mestu leyti í lagi.

Býður til viðræðna um þjóðarsátt um nýjan gjaldmiðil

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra býður öllum flokkum á Alþingi að setjast niður til viðræðna um þjóðarsátt um nýjan gjaldmiðil. Þetta kom fram á Alþingi nú laust fyrir hádegi. Ummæli forsætisráðherra á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar um síðustu helgi, um að íslenskan krónan væri ónothæf, urðu framsóknarmönnum tilefni til umræðna en Birkir Jón Jónsson kvaðst fullyrða að hvergi kæmist forsætisráðherra upp með slík ummæli án þess að það hefði einhver eftirmál í för með sér.

Veitir heimildir til að tryggja dreift eignarhald á fjölmiðlum

Með nýju frumvarpi til breytinga á fjölmiðlalögum er Samkeppniseftirlitinu að undangenginni umsögn fjölmiðlanefndar veitt heimild til að breyta skipulagi fjölmiðla til að koma í veg fyrir aðstæður sem hafa skaðleg áhrif á fjölbreytni í fjölmiðlum og til að tryggja dreift eignarhald.

Fangaverðir óttast um öryggi sitt

Fangaverðir hafa miklar áhyggjur af öryggi sínu og annarra í fangelsunum, nú þegar stefnir í að meðlimum íslenskra glæpagengja fjölgi þar til muna.

Hjálpuðu smyrli

Lögreglan kom smyrli til hjálpar fyrr í vikunni en sá fannst skammt frá Elliðavatnsvegi í Garðabæ. Fuglinn gat ekki flogið og því var hann færður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn til aðhlynningar. Ekki er ljóst hvort um karl eða kvenfugl er að ræða enda sést það víst ekki svo glöggt. Óvíst er hvort smyrillinn sé vængbrotinn en reynist það raunin eru batahorfur litlar.

Braut glas á höfði manns og kýldi hann svo í magann

Karlmaður um tvítugt var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Maðurinn játaði að hafa slegið annan mann með bjórglasi þannig það brotnaði og slegið hann svo nokkrum höggum með krepptum hnefa í maga á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í maí árið 2010. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða fórnarlambinu 250 þúsund krónur í miskabætur.

Störfum þurfi að fjölga

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ekkert bendi til þess að störfum sé að fjölga á Íslandi. Hann vísar tölur Hagstofunnar þess efnis og segir að þótt atvinnuleysi hafi minnkað eitthvað skýrist það ekki með nýjum störfum. Birgir spurði forsætisráðherra hvort hún hefði ekki áhyggjur af þessu.

Í hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefni

Þrítugur karlmaður hefur verð dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að hafa verið tekinn með fíkniefni í fórum sínum í janúar í fyrra og í ágúst sama ár. Um óverulegt magn af fíkniefnum var að ræða og játaði sakborningur brot sitt fyrir dómi. Hann á aftur á móti langan afbrotaferli að baki og var á skilorði þegar fíkniefnin fundust í fórum hans.

Tvær hópnauðganir af 18 kærðar í fyrra

Lögreglunni bárust tvær kærur vegna hópnauðgana á síðasta ári. Búið að dæma í öðru málinu. 18 leituðu til Stígamóta vegna hópnauðgana. Ein möguleg ástæða fjölgunar mála hjá Stígamótum er aukin gengjamyndun, segir talskona.

Slökkviliðið kallað út vegna reykbrælu í Hveragerði

Slökkviliðið í Hveragerði var kallað að húsi við Kambahraun þar í bæ um þrjú leitið í nótt, vegna reykjarbrælu í húsinu. Hún reyndist eiga upptök í sambyggðri þvottavél og þurrkara þar sem glóð var í rafbúnaðinum, en eldur hafði þó ekki kviknað. Drepið var í glóðinni og húsið reykræst, og sakaði engan.

Ótrúlegar tilviljanir við lífsbjörg í Laxá

Sigurður S. Garðarsson komst lífs af eftir að bíll hans valt og endaði á hvolfi ofan í Laxá á Ásum. Slökkviliðsmaður sá bílveltuna og kom honum til hjálpar. Faðir hans kom síðar að á sjúkrabíl. Rosalega gott að sjá pabba, segir Sigurður.

Talin hafa beitt konuna afar grófu ofbeldi

Fjórir einstaklingar tengdir Hells Angels voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Á meðal þeirra er Einar Marteinsson, foringi samtakanna á Íslandi. Gæsluvarðhald var framlengt í fjórar vikur. Mikill viðbúnaður var í Héraðsdómi þegar úrskurðurinn var kveðinn upp.

Sést hefur til álfta og anda

Fjölmargar álftir eru nú komnar til landsins og hefur sést til lítilla hópa víðs vegar um landið. Á vefsíðunni Fuglar.is er greint frá því að sést hafi til 25 dugganda á Þveit í Nesjum, þar sem þær voru ásamt lómapari á vatninu sem er orðið íslaust.

Vakt við brunarústirnar á Selfossi í nótt

Lögregla og björgunarsveitarmenn stóðu vakt við brunarústirnar á Selfossi í nótt, eftir stórbrunann í plaströraverksmiðjunni Seti í gær. Slökkvistarfi lauk á áttunda tímanum í gærkvöldi og var ekkert til tíðinda í nótt. Rannsókn lögreglu og tryggingamanna hefst með birtingu, en eldsupptök eru enn óþekkt.

Jarðskjálftahrina við Geirfuglasker

Jarðskjálftahrina varð þrjá til fimm kílómetra norðvestur af Geirfuglaskeri í gærkvöldi og mældust fimm skjálftar yfir 2 stig á Richter og sá snarpasti 2,7 stig.

Lögreglan krefst gæsluvarðhalds yfir fjórum mönnum

Lögreglan ætlar að krefjast gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir fjórum karlmönnum, sem hún handtók í gærmorgun vegna rannsóknar, sem snýr að skipulagðri glæpastarfssemi, líkamsmeiðingum, hótunum, innbortum, peningaþvætti og þjófnuðum.

Átak vegna sumarstarfa ungra

Ráðist verður í sérstakt átak vegna sumarstarfa ungmenna í ár. Álíka verkefni var í gangi í fyrra þar sem velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun auglýstu 900 sumarstörf um allt land. Átakið á að fjölga störfum á vegum ríkisins og sveitarfélaga ætluðum námsmönnum og atvinnuleitendum. Vinnumálastofnun hefur nú þegar lagt inn umsókn til velferðarráðuneytisins vegna verkefnisins.

Fæðingum fækkar milli ára

Í fyrra fæddust 4.496 börn með lögheimili á Íslandi, að því er segir í frétt á vef Hagstofunnar.

Algjör eyðilegging á Selfossi

800 Bar á Selfossi brann til kaldra kola í gær. Tjónið hleypur á hundruðum milljóna króna. Eldurinn kom upp í röraverksmiðjunni Seti og barst í nærliggjandi byggingar. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni.

Atvinnulausum fjölgaði lítillega

Alls 11.621 einstaklingur var atvinnulaus í febrúar að meðtali. Jafngildir það 7,3% fólks á vinnumarkaði. Þetta kemur fram í tölum Vinnumálastofnunar um ástand á vinnumarkaði í febrúar.

698 eignir Íbúðalánasjóðs auðar

Íbúðalánasjóður átti þann 20. febrúar síðastliðinn alls 1.751 íbúð. Af þeim voru 804 íbúðir áður í eigu einstaklinga en 947 áður í eigu lögaðila. Alls eru 707 af íbúðunum í útleigu en 698 standa auðar. Þá eru 255 eignir óíbúðarhæfar og 91 eign nýkomin í eigu sjóðsins og því enn flokkuð sem í vinnslu.

Úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald

Fjórir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 21. mars næstkomandi vegna rannsóknar, sem snýr að skipulagðri glæpastarfssemi, líkamsmeiðingum, hótunum, innbrotum, peningaþvætti og þjófnuðum.

Gæti hlotið dauðadóm fyrir fjöldamorð í Afganistan

Bandaríski hermaðurinn sem myrti 16 manns í suðurhluta Afganistan fyrr í vikunni var fluttur úr landinu í dag. Mikil reiði er í Afganistan vegna atviksins og krefjast margir þess að réttað verði yfir manninum þar í landi.

Saksóknari flytur mál sitt á morgun

Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, mun flytja mál sitt gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, klukkan eitt eftir hádegi á morgun. Ráðgert er að málflutningurinn taki um þrjár klukkustundir.

Hundsa úrskurð ráðuneytisins

Meirihluti bæjarstjórnar Seltjarnarness ákvað í dag að aðhafast ekkert vegna úrskurðar innanríkisráðuneytisins varðandi uppsögn Ólafs Melsted, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Seltjarnarnesbæ, úr starfi.

Er hægt að sigrast á flughræðslu?

Þrátt fyrir að flug sé einn öruggasti ferðamáti sem völ er á er fjöldi fólks logandi flughræddur. En er hægt að yfirvinna þennan ótta og fljúga sæll og glaður í fríið? Ísland í dag fór á stúfana og kynnti sér flughræðslu.

Sæstrengur verði metinn næstu 2-3 ár

Forstjóri Landsvirkjunar hvetur til þess að þjóðin noti næstu tvö til þrjú ár til að meta kosti og galla sæstrengs áður en ákvörðun verður tekin. Hann telur að raforkusala til útlanda um streng myndi að mjög takmörkuðu leyti skerða möguleika til iðnaðaruppbyggingar hérlendis.

Leikstjóri Svartur á leik snýr sér að Ég man þig

Óskar Axelsson, leikstjóri Svartur á leik, hefur verið ráðinn til að leikstýra hrollvekju sem byggð verður á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur "Ég man þig". Sjálfur var hann skíthræddur við lestur bókarinnar og missti svefn.

Baldur fær enga sérmeðferð

Fangelsismálastjóri segir Baldur Guðlaugsson ekki fá neina sérmeðferð. Að jafnaði óska um tíu prósent þeirra sem fá óskilorðsbundna dóma, eftir að fá að afplána dóm sinn sem allra fyrst.

Ekkert bólar á endurútreikningu gengislána

Talið er að enn þurfi að koma fjórtán gengislánamálum í gegnum dómstóla áður en hægt verður að reka smiðshöggið á endurútreikninga gengislána. Ekkert bólar á endurútreikningi láns hjóna sem Hæstiréttur dæmdi fyrir mánuði að mætti ekki setja á afturvirka vexti.

Kraumur úthlutað í dag

Tónlistarsjóðurinn Kraumur hefur kynnt úthlutun sína fyrir árið 2012. Alls styður sjóðurinn 15 verkefni í ár, þar af tíu verkefni listamanna af margvíslegum toga á erlendum og innlendum vettvangi.

Dyngja hlaut samfélagsverðlaun Fréttablaðsins

Áfangaheimilið Dyngjan hefur hlotið samfélagsverðlaun Fréttablaðsins. Markmið verðlaunanna, sem nú eru veitt í sjöunda sinn, er að beina sjónum að þeim góðu verkum sem unnin eru í samfélaginu.

"Hamborgarinn okkar er gæðavara"

"Þetta er ekkert slor þessir hamborgarar," sagði Ásgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdarstjóri Metró. Hún var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag.

Hundruð milljóna króna tjón

Tjónið vegna eldsins á Selfossi nemur hundruðum milljóna króna, segir Árni Steinarsson í samtali við Vísi. Árni rekur 800 bar ásamt félaga sínum Eiði Birgissyni. Eldurinn kom upp í plaströraverksmiðjunni Set og breiddist svo út í húsnæði 800 bars. Árni segir að hann og Eiður eigi húsnæði veitingastaðarins sjáflir en auk þess hafi verið þarna inni dýrir munir sem fylgi rekstri sem slíkum. "Þetta eru hljóðkerfi og sjónvörp og bara það sem fylgir þessu," segir Árni.

Mikill viðbúnaður vegna Vítisengla

Lögreglan var með mikinn viðbúnað í Héraðsdómi Reykjaness í dag þegar fólk sem tengist Vítisenglum var fært fyrir dómara og krafist var framlengingar á gæsluvarðhaldi yfir þeim. Fólkið var handtekið snemma í janúar síðastliðnum, grunað um að hafa gengið í skrokk á konu skömmu fyrir jól. Rannsókn lögreglunnar á árásinni stendur enn yfir.

Telja að búið sé að ná tökum á eldinum

Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu segist telja að búið sé að ná tökum á eldinum sem logað hefur í dag. Geymsluhúsnæði hjá SET röraverksmiðjunni brann, sem og skemmtistaðurinn 800 bar. Bæði húsin eru brunninn til kaldra kola en Kristján segir að komið hafi verið í veg fyrir að eldurinn næði að læsa sig í sjálfa röraverksmiðjuna, eins og leit út fyrir um tíma.

Verksmiðjan alelda þegar starfsmenn komu úr hádegismat

Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Set röraverksmiðju, segir að eldurinn hafi blossað upp á mjög stuttum tíma. Starfsfólkið hafi verið í hádegismat í mötuneytinu sem er í öðru húsi og um hálftíma síðar hafi verksmiðjan verið alelda.

800 bar brunninn til kaldra kola

800 bar á Selfossi er brunninn til grunna. Slökkviliðsmenn reyna að verjast því að eldurinn breiðist enn frekar út og segir slökkviliðsstjórinn á Selfossi að útlitið sé betra en það var fyrir tíu mínútum síðan. Nú sé ítil hætta sé nú á að eldurinn breiðist út í húsnæði TRS.

Segir að neyðarlán frá Seðlabanka hafi enn verið í Kaupþingi við fall

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings banka, fullyrðir að 500 milljóna evra neyðarlán sem Seðlabanki Íslands veitti Kaupþingi 6. október 2008, sama dag og neyðarlögin voru sett, hafi verið í bankanum við fall hans tveimur dögum síðar. Hann vill ekki tjá sig um 170 milljóna evra lán til félagsins Lindsor Holdings sem veitt var á sama tíma, en það er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.

Sjá næstu 50 fréttir