Fleiri fréttir Ógerlegt að minnka bankana "Það hefði enginn vandi verið að setja á blað að bankarnir hefðu á tt að minnka efnahagsreikning sinn,“ sagði Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi í morgun. Hann sagði að þetta hefði verið eitt þeirra atriða sem menn vissu að þurfti að gera en var einfaldlega ekki hægt. Hann sagði að það hefðu verið fjölmörg atriði sem hefði þurft að vinna en menn hefðu einfadlega ekki getað gert. 5.3.2012 10:03 Fullt út úr dyrum í Landsdómi - myndskeið Geir H. Haarde og fjölskylda mættu í Þjóðmenningarhúsið rétt fyrir klukkan níu í morgu þar sem aðalmeðferð fer fram í Landsdómsmálinu svokallaða. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari Alþingis mætti einnig ásamt aðstoðarmönnum sínum. Geir vildi lítið ræða við fjölmiðlamenn. 5.3.2012 10:00 Ellefu milljarðar í styrki umfram útgjöld Frá gildistöku samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) árið 1994 til og með síðasta ári, hafa íslenskir aðilar fengið úthlutað meira en 157 milljónum evra í styrki í gegnum rammaáætlanir ESB um menntun, rannsóknir og tækniþróun. Heildargreiðslur úr ríkissjóði vegna þessara áætlana hafa á sama tíma numið ríflega 87 milljónum evra. Mismunurinn er um 70 milljónir evra, eða rúmir ellefu milljarðar króna á núverandi gengi. 5.3.2012 10:00 Maðurinn látinn Maðurinn sem slasaðist alvarlega í eldsvoðanum í Tunguseli aðfaranótt föstudags er látinn. Slökkviliðsmenn björguðu manninum meðvitundarlausum út úr brennandi íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Tungusel í Reykjavík aðfaranótt föstudags. 5.3.2012 09:59 Þekktir gegn forsetanum - "Hvernig skráir maður sig út úr þessari vitleysu?“ Stofnað hefur verið til hóps á Facebook þar sem ýmsir einstaklingar ræða "betri valkosti í næsta forsetakjöri“ eins og það er orðað í yfirlýsingu hópsins. Þeir sem standa að síðunni eru ekkert sérstaklega hrifnir af ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, sem hefur ákveðið að bjóða sig fram til fimmta kjörtímabilsins sem forseti. 5.3.2012 09:53 Breytingar á dómaraskipan í Landsdómsmáli Gunnlaugur Claessen er horfinn úr hópi dómara í Landsdómsmálinu en til stóð að hann yrði þar á meðal. Í hans stað er kominn Eiríkur Tómasson kollegi Gunnlaugs í Hæstarétti. Þá hefur Helgi Jónsson, sem var dómstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur vikið sæti en í hans stað kemur Eggert Óskarsson sem gegnir dómstjórastöðunni á meðan Helgi situr í Hæstarétti tímabundið. 5.3.2012 09:36 Samráðshópurinn vann drög að neyðarlögunum Samráðshópur um fármálastöðugleika, undir stjórn Bolla Þórs Bollasonar, lét vinna viðbúnaðaráætlun sem varð til þess að unnin voru drög að frumvarpi til neyðarlaga. Geir Haarde hafnaði því með öllu fyrir Landsdómi í morgun að vinna hópsins hafi verið ómarkviss. Einn liður í ákæru gegn Geir snýr að starfi hópsins. 5.3.2012 09:35 "Á brattann að sækja fyrir ákæruvaldið“ - myndskeið Vísir var með beina útsendingu frá klukkan 8:40 þar sem Þorbjörn Þórðarson fréttamaður ræddi meðal annars við þau Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing og Kristínu Edwald formann Lögfræðingafélags Íslands. 5.3.2012 09:34 Hafnar því að starfið hafi verið ómarkvisst "Þetta er í fyrsta inn við rekstur alls þessa máls sem ég fæ tækifæri til að svara spurningum um það,“ sagði Geir Haarde. Hann vakti athygli á því að hann hefði ekki fengið tækifæri til að svara spurningum áður en ákæra var gefin út. 5.3.2012 09:16 EES-ríkin fljót að innleiða tilskipanir EES-ríkin þrjú, Ísland, Liechtenstein og Noregur, eru í hópi þeirra ríkja sem fljótust eru að lögfesta reglur um innri markað Evrópusambandsins (ESB). Eru ríkin hluti af markaðnum samkvæmt EES-samningnum. 5.3.2012 09:00 Fjöldi fólks fylgist með máli Geirs Gríðarlegur fjöldi fólks er kominn saman í Þjóðmenningarhúsinu á Hverfisgötu til þess að fylgjast með málaferlum gegn Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. 5.3.2012 08:57 SUS vill afnema bann við fíkniefnum Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) telur að refsistefna sú sem rekin hefur verið í fíkniefnamálum hérlendis hafi beðið algert skipbrot og því eigi að afnema eigi bann við fíkniefnum. 5.3.2012 08:31 Segir marga telja hættuspil að hann hverfi úr embætti 5.3.2012 08:15 „
Sjá næstu 50 fréttir
Ógerlegt að minnka bankana "Það hefði enginn vandi verið að setja á blað að bankarnir hefðu á tt að minnka efnahagsreikning sinn,“ sagði Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi í morgun. Hann sagði að þetta hefði verið eitt þeirra atriða sem menn vissu að þurfti að gera en var einfaldlega ekki hægt. Hann sagði að það hefðu verið fjölmörg atriði sem hefði þurft að vinna en menn hefðu einfadlega ekki getað gert. 5.3.2012 10:03
Fullt út úr dyrum í Landsdómi - myndskeið Geir H. Haarde og fjölskylda mættu í Þjóðmenningarhúsið rétt fyrir klukkan níu í morgu þar sem aðalmeðferð fer fram í Landsdómsmálinu svokallaða. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari Alþingis mætti einnig ásamt aðstoðarmönnum sínum. Geir vildi lítið ræða við fjölmiðlamenn. 5.3.2012 10:00
Ellefu milljarðar í styrki umfram útgjöld Frá gildistöku samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) árið 1994 til og með síðasta ári, hafa íslenskir aðilar fengið úthlutað meira en 157 milljónum evra í styrki í gegnum rammaáætlanir ESB um menntun, rannsóknir og tækniþróun. Heildargreiðslur úr ríkissjóði vegna þessara áætlana hafa á sama tíma numið ríflega 87 milljónum evra. Mismunurinn er um 70 milljónir evra, eða rúmir ellefu milljarðar króna á núverandi gengi. 5.3.2012 10:00
Maðurinn látinn Maðurinn sem slasaðist alvarlega í eldsvoðanum í Tunguseli aðfaranótt föstudags er látinn. Slökkviliðsmenn björguðu manninum meðvitundarlausum út úr brennandi íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Tungusel í Reykjavík aðfaranótt föstudags. 5.3.2012 09:59
Þekktir gegn forsetanum - "Hvernig skráir maður sig út úr þessari vitleysu?“ Stofnað hefur verið til hóps á Facebook þar sem ýmsir einstaklingar ræða "betri valkosti í næsta forsetakjöri“ eins og það er orðað í yfirlýsingu hópsins. Þeir sem standa að síðunni eru ekkert sérstaklega hrifnir af ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, sem hefur ákveðið að bjóða sig fram til fimmta kjörtímabilsins sem forseti. 5.3.2012 09:53
Breytingar á dómaraskipan í Landsdómsmáli Gunnlaugur Claessen er horfinn úr hópi dómara í Landsdómsmálinu en til stóð að hann yrði þar á meðal. Í hans stað er kominn Eiríkur Tómasson kollegi Gunnlaugs í Hæstarétti. Þá hefur Helgi Jónsson, sem var dómstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur vikið sæti en í hans stað kemur Eggert Óskarsson sem gegnir dómstjórastöðunni á meðan Helgi situr í Hæstarétti tímabundið. 5.3.2012 09:36
Samráðshópurinn vann drög að neyðarlögunum Samráðshópur um fármálastöðugleika, undir stjórn Bolla Þórs Bollasonar, lét vinna viðbúnaðaráætlun sem varð til þess að unnin voru drög að frumvarpi til neyðarlaga. Geir Haarde hafnaði því með öllu fyrir Landsdómi í morgun að vinna hópsins hafi verið ómarkviss. Einn liður í ákæru gegn Geir snýr að starfi hópsins. 5.3.2012 09:35
"Á brattann að sækja fyrir ákæruvaldið“ - myndskeið Vísir var með beina útsendingu frá klukkan 8:40 þar sem Þorbjörn Þórðarson fréttamaður ræddi meðal annars við þau Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing og Kristínu Edwald formann Lögfræðingafélags Íslands. 5.3.2012 09:34
Hafnar því að starfið hafi verið ómarkvisst "Þetta er í fyrsta inn við rekstur alls þessa máls sem ég fæ tækifæri til að svara spurningum um það,“ sagði Geir Haarde. Hann vakti athygli á því að hann hefði ekki fengið tækifæri til að svara spurningum áður en ákæra var gefin út. 5.3.2012 09:16
EES-ríkin fljót að innleiða tilskipanir EES-ríkin þrjú, Ísland, Liechtenstein og Noregur, eru í hópi þeirra ríkja sem fljótust eru að lögfesta reglur um innri markað Evrópusambandsins (ESB). Eru ríkin hluti af markaðnum samkvæmt EES-samningnum. 5.3.2012 09:00
Fjöldi fólks fylgist með máli Geirs Gríðarlegur fjöldi fólks er kominn saman í Þjóðmenningarhúsinu á Hverfisgötu til þess að fylgjast með málaferlum gegn Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. 5.3.2012 08:57
SUS vill afnema bann við fíkniefnum Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) telur að refsistefna sú sem rekin hefur verið í fíkniefnamálum hérlendis hafi beðið algert skipbrot og því eigi að afnema eigi bann við fíkniefnum. 5.3.2012 08:31
„Hörmuleg öfugþróun“ segir fyrrverandi efnahagsráðherra Árni Páll Árnason, alþingismaður Samfylkingar og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, varð undir í átökum við ríkisstjórnarborðið við gerða kjarasamninga í fyrra. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Árna. 5.3.2012 08:00
Exeter-mál sérstaks saksóknara bíður Landsdóms Mál sérstaks saksóknara gegn fyrrverandi stjórnendum Byrs og MP banka, svokallað Exeter-mál, er eitt fjölmargra sem verður ekki tekið fyrir í Hæstarétti fyrr en eftir að dómur fellur í Landsdómi í máli Geirs H. Haarde. 5.3.2012 07:30
Landsdómur settur í dag - beinar útsendingar á Vísi Aðalmeðferð í Landsdómsmálinu gegn Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra hefst í þjóðmenningarhúsinu klukkan níu. 5.3.2012 07:26
Geir fer í vitnastúkuna í dag Aðalmeðferð í máli Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir Landsdómi hefst í dag með vitnaleiðslu. Geir er ákærður fyrir vanrækslu í starfi í aðdraganda bankahrunsins og mun bera vitni fyrstur. Gert er ráð fyrir því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, setjist því næst í vitnastól. 5.3.2012 07:00
Stórútkall vegna elds í öskubakka Allt slökkvilið höfuðborgarsvæðins var sent áleiðis að húsi við Fiskislóð í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi vegna tilkynningar um eld. Brátt kom í ljós að upptök eldsins voru í öskubakka og voru slökkvibílarnir kallaðir til baka. 5.3.2012 06:54
Gríðarstór borgarísjaki fastur við Horn á Hornströndum Gríðarstór borgarísjaki er nú við Horn á Hornströndum, og virðist hann vera fastur á grynningum. 5.3.2012 06:52
Langt í frá augljóst að Ólafur nái kjöri „Þetta kemur mér ekki mikið á óvart og hann hefði getað eytt óvissunni fyrir löngu,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar að gefa áfram kost á sér til embætti forseta Íslands. 5.3.2012 05:00
"Hann hafði ofsalega mikla hæfileika" Dóttir Sævars Ciesielskis segir föður sinn hafa skilið eftir sig gríðarstórt safn mynda sem hann málaði sjálfur. Hann hafi verið mjög hæfileikaríkur á því sviði en þær séu ekki til sölu. 4.3.2012 20:15
Lyklafrumvarp lagt fram í þriðja sinn Lyklafrumvarpið svokallaða kennt við Lilju Mósesdóttur hefur nú verið lagt fram í þriðja sinn og er stjórnarþingmaður á meðal flutningsmanna. Lilja segir að frumvarpið sé ekki síst hugsað fyrir þá sem fóru í gegnum 110 prósenta leiðina en eru enn í vandræðum. 4.3.2012 19:36
Fiskroð breytist í lækningavörur á Ísafirði Fyrirtæki sem þróar og framleiðir hátækni lækningavörur úr fiskafurðum er að byggjast upp á Ísafirði. Roð og lýsi breytast þar í sáravörur fyrir sjúkrahús .Fyrrum fiskvinnslusalur er nú sótthreinsuð rannsóknastofa á vegum Kerecis þar sem hvítklæddir sérfræðingar bogra yfir tilraunaglösum. 4.3.2012 18:49
Íslensku stelpurnar gerðu það gott Íslensku stelpurnar gerðu það gott á Arnold Sports Festival mótinu sem fram fór í Bandaríkjunum um helgina. Tvær þeirra tóku fyrsta og annað sætið í sínum flokki í módelfitness. 4.3.2012 18:40
Guðni fagnar ákvörðun Ólafs Ragnars Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, fagnar ákvörðun Ólafs Ragnars og telur einsýnt að hann nái góðu kjöri í forsetakosningunum í sumar. 4.3.2012 18:30
Segir menn hafa höfðað til skyldu sinnar Ólafur Ragnar Grímsson ætlar að gefa áfram kost á sér í embætti forseta Íslands. Ólafur tilkynnti þessa ákvörðun í dag en hann útilokar ekki að hann láti af embætti á miðju kjörtímabili þegar stöðugleiki hefur skapast í stjórnskipan og stjórnarfari landsins. 4.3.2012 18:30
Pútín kosinn forseti Rússlands Samkvæmt fyrstu útgönguspám mun Vladimír Pútín verða næsti forseti Rússlands. Pútín mun því á ný sitja í stóli forseta Rússlands en hann gegndi embættinu frá árinu 2000 til 2008. 4.3.2012 18:05
Telpa fannst yfirgefin á akri eftir skýstrókana Björgunarmenn í Indiana í Bandaríkjunum fundu tíu ára gamla stúlku yfirgefna á akri, rúmum 16 kílómetrum frá heimili sínu sem eyðilagðist þegar skýstrókar gengur yfir ríkið. 4.3.2012 17:34
Önnur hringrás - verðlaunamyndskeið Baldurs Hrafnkels Baldur Hrafnkell Jónsson, kvikmyndatökumaður Stöðvar 2, hlaut verðlaun fyrir myndskeiðið "Önnur Hringrás“ á blaðamannaverðlaununum sem afhent voru í gær. 4.3.2012 17:26
"Augljóst að ákvörðunin var tekin fyrir löngu" Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðingur, segir að það sé augljóst að Ólafur Ragnar Grímsson hafi fyrir löngu tekið ákvörðun um að gefa kost á sér að gegna embætti áfram. 4.3.2012 16:15
Ólafur ætlar að gefa kost á sér Ólafur Ragnar Grímsson hefur ákveðið að gefa kost á sér að gegna embætti forseta Íslands áfram. 4.3.2012 14:10
Eldsvoði í Borgarfirði Tilkynnt var um eldsvoða á bænum Svarfhóli, í Stafholtstungum í Borgarfirðir um hádegisbil í dag. 4.3.2012 13:34
Vopnað rán framið í verslun 10-11 Vopnað rán var framið í verslun 10-111 í Grímsbæ við Bústaðaveg um sexleitið í morgun. Maður ógnaði starfsfólki með hnífi og hafði á brott með sér einhverja fjármuni. 4.3.2012 12:22
Segir Alþingi vera orkulaust "Það sjá það allir að Alþingi, eins og það er samsett í dag, getur ekki boðið fólki upp á meirihlutastjórn í þessu landi," sagði Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Kristján var gestur í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. 4.3.2012 11:18
Skíðavæði opin í dag Skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli eru opin í dag. Þá eru skíðasvæðin á Dalvík og í Oddskarði einnig opin. 4.3.2012 10:45
Kornungur heimsmeistari teflir á Skákhátíð Hou Yifan heimsmeistari kvenna verður í aðalhlutverki þegar Skákhátíð Reykjavíkur 2012 hefst í Sjóminjasafninu við Grandagarð í dag klukkan 15. 4.3.2012 10:30
Óvanalegt andrúmsloft á Selfossi í nótt Lögreglan á Selfossi hafði í nógu að snúast í nótt. Lögreglumenn voru þrisvar kallaðaðir til þegar til handalögmála kom á skemmtistöðum bæjarins. 4.3.2012 10:30
Piltur gekk í svefni - fannst í næsta herbergi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði í nótt að 12 ára dreng sem tilkynnt var um að væri horfinn af herbergi sínu á hóteli í Mjölnisholti í Reykjavík. 4.3.2012 09:45
Bílvelta og akstur undir áhrifum lyfja í nótt Lögreglu barst tilkynning um bílveltu rétt eftir miðnætti í nótt. Slysið átti sér stað á Reykjanesbraut við Áslandsbrú. Fimm einstaklingar sem voru jepplingur sem valt voru fluttir á slysadeild. Tveir voru lagðir inn á gjörgæsludeild með umtalsverða áverka. 4.3.2012 09:30
Stórhýsi rís í Bolungarvík Fjögurra hæða íbúðablokk er nú í smíðum í Bolungarvík sem er stærsta hús sem þar hefur risið í á þriðja áratug. 3.3.2012 20:00
Enginn með allar tölur réttar Enginn var með allar tölur réttar í Lottóinu í kvöld. Vinningstölurnar voru 3, 12, 29, 36, 40 og bónustalan var 7. 3.3.2012 19:37
Lundaveiðibann er afglöp segir Vigurbóndi Bóndinn í eynni Vigur segir að friðun lunda séu afglöp enda hafi fuglinum fjölgað í Ísafjarðardjúpi, og segir að umhverfisráðuneytið hljóti að greiða bætur, verði menn sviptir hlunnindunum. 3.3.2012 19:16
Nýtt húsnæði á Kleppi tekið í gagnið Sjúklingar réttargeðdeildarinnar fluttust í dag í nýtt húsnæði á Kleppi í Reykjavík. Á deildinni eru þeir vistaðir sem dæmdir eru ósakhæfir og úrskurðaðir í öryggisgæslu. 3.3.2012 19:28
Fjölskylduhjálp Íslands selur föt í Kolaportinu Fjölskylduhjálp Íslands hefur neyðst til að fækka matarúthlutunum í vetur vegna fjárskorts. Samtökin ætla næstu þrjár helgar að selja föt í Kolaportinu til að stækka matarsjóðinn en hátt í þrjátíu sjálfboðaliðar á öllum aldri koma að verkefninu. 3.3.2012 19:00
Samtök iðnaðarins vilja kanna upptöku kanadadollars Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins telur rétt að Íslendingar kanni upptöku Kanadollars með tvíhliðasamningu við þarlend stjórnvöld standi slíkur samningur til boða. 3.3.2012 18:43