Fleiri fréttir

Týnda vitnið fundið

Aðalvitnið í skotárásarmálinu svokallaða mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun og bar vitni. Hann mætti ekki í dómsal þegar hann var boðaður til þess að bera vitni og varð það til þess að aðalmeðferðinni var frestað.

Ingimundur mættur í dóminn

Vitnaleiðslur í landsdómsmálinu hófust að nýju nú strax klukkan níu. Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri, er mættur í vitnastúku. Hann sat í bankastjórn með Davíð Oddssyni og Eiríki Guðnasyni heitnum. Ingimundur býr í Osló en er kominn í Þjóðmenningarhúsið til að bera vitni. Upphaflega var þó gert ráð fyrir að hann myndi gefa dómnum skýrslu í gegnum síma.

Gjöld á vatnsréttindi styggja Landsvirkjun

Innanríkisráðuneytið staðfestir að vatnsréttindi Jökulsár á Dal eigi að taka til fasteignamats. Fljótsdalshérað vill að matinu sé hraðað svo hægt verði að leggja fasteignagjöld á vatnsréttindin. Úrskurðurinn hefur fordæmisgildi um allt land.

Baldur Guðlaugsson og Bolli Þór fyrir Landsdóm í dag

Réttarhöldum verður haldið áfram fyrir Landsdómi í dag og munu þá Baldur Guðlaugsson og Bolli Þór Bollason fyrrverandi ráðuneytastjórar, Jón Sigurðsson fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins og Jón Þ. Sigurgeirsson framkvæmdastjóri skrifstofu bankastjórnar Seðlabankans, bera vitni meðal annarra. Um það bil 50 manns hafa verið boðaðir í skýrslutöku fyrir dómnum.

Fá skip á sjó vegna óveðurs

Sára fá fiskiskip eru á sjó vegna óveðurs á miðunum nema hvað hópur loðnuskipa er út af norðanverðu Snæfellsnesi.

Lykilvitni mætti ekki fyrir dóm

Fresta varð til dagsins í dag aðalmeðferð í máli þriggja manna sem ákærðir eru fyrir manndrápstilraun í Bryggjuhverfinu í Reykjavík síðasta haust þegar lykilvitni í málinu mætti ekki fyrir dóm í gær. Málið er flutt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Tvær bílveltur á Reykjanesbraut

Tveir bílar fóru út af Reykjanesbrautinni á áttunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum slasaðist enginn en bílarnir eru mikið skemmdir. Fljúgandi hálka er nú á Brautinni en starfsmenn Vegagerðarinnar eru að salta. Ökumenn eru hvattir til að aka varlega en mikil hálka er víðast hvar á höfuðborgarsvæðinu.

Viðtalið við Davíð Oddsson í heild sinni

"Það var kannski þægilegra að gera það, það var í samræmi við óskhyggjuna. Við erum þannig gerð að við viljum heyra góðar fréttir frekar en slæmar,“ sagði Davíð Oddsson, fyrrum formaður bankastjórna Seðlabankans, eftir að hann hafði gefið skýrslu fyrir Landsdómi í dag. Hann var spurður að því afhverju forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hefðu trúað bankamönnum um stöðu bankanna fyrir hrun frekar en aðvörunarorðum.

Allur ágóði af Eldhafi rennur til UNwoman

Eldhaf í Borgarleikhúsinu hefur verið sýnd fyrir fullu húsi um nokkurt skeið. Í tilefni af alþjóðabaráttudegi kvenna 8.mars næstkomandi hefur verið ákveðið að styrkja UNwoman með sýningu á morgun 7.mars og allur ágóði hennar rennur til hjálparsamtakanna.

Dýrfiskur hleypir fjöri í Flateyri

Dýrfiskur er að tífalda eldi regnbogasilungs í Dýrafirði, sem kallar á fleiri störf á Vestfjörðum, mest við fiskvinnslu á Flateyri. Eftir langvarandi erfiðleika í atvinnumálum á Flateyri sjást nú merki um að farið sé að rofa til.

Alltaf rólegur nema þegar hann talar um lögmenn

Maðurinn sem réðist inn á lögmannsstofuna Lagastoð í gær og veitti framkvæmdastjóra stofunnar lífshættulega áverka var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag. Hann er sagður hafa óbeit á lögmönnum.

Dýrmætar heimildir að myndast í Landsdómsmálinu

Hafi einhvern tímann verið ástæða til að nýta undanþágur til að senda beint úr dómssal þá er það í Landsdómsmálinu. Þetta segir sagnfræðingur en dýrmætar heimildir eru að myndast sem öruggara er að geta stuðst við milliliðalaust.

Þessi eiga eftir að bera vitni í Landsdómi

Nú eru tveir dagar liðnir af réttarhöldum yfir Geir H. Haarde fyrir Landsdómi. Málið hófst á skýrslutöku yfir Geir sjálfum í gær en í dag mættu þeir Björgvin G. Sigurðsson, Arnór Hannibalsson og Davíð Oddsson.

Nýrnasjúklingar þurfa að flytja

Fjórir nýrnasjúklingar hafa flutt búferlum því engin blóðskilunarvél er á landsbyggðinni. Aðrir eru langdvölum fjarri ástvinum sínum vegna blóðskilunar.

Vitnaleiðslum lokið í dag

Vitnaleiðslum er lokið í dag í Landsdómi sem fram fer í Þjóðmenningarhúsinu . Það hefst aftur klukkan níu í fyrramálið. Þá mun Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri bera vitni.

Landsdómur: Annar dagur - Sjötta samantekt

Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu og hvernig málin hafa gengið fyrir sig í Þjóðmenningarhúsinu í dag.

Taldi Fjármálaeftirlitið allt of veikt

Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segist ekki hafa komið áhyggjum sínum af því hve veikt Fjármálaeftirlitið á Íslandi var fyrir hrun formlega á framfæri við stjórnvöld. En hann hafi samt ekki legið á þessari skoðun sinni. Hann hafi óhikað gert Fjármálaeftirlitinu sjálfu grein fyrir þessari skoðun sinni.

Tekinn tvisvar fyrir fíkniefnaakstur

Karl um þrítugt var tekinn í tvígang fyrir fíkniefnaakstur á innan við sólarhring í Reykjavík um helgina. Ellefu aðrir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu á sama tímabili en þetta voru tíu karlar á aldrinum 17-50 ára og ein kona, 28 ára. Tveir þessara ökumanna voru á stolnum bíl, tveir höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.

Almannavarnir: Varað við stormi á Suðausturlandi

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vill vekja athygli á því að Veðurstofan varar við stormi (meðalvindi yfir 20 m/s) á Suðausturlandi, Austfjörðum og á Miðhálendinu í kvöld og nótt. Einnig er spáð verulegri samfelldri úrkomu í kvöld og fram á nóttina.

Á annað hundrað manns gáfu blóð í dag

Blóðbankinn þakkar öllum þeim sem hafa gefið blóð síðan í gær. Rúmlega 200 manns hafa leitað til Blóðbankans og boðist til að gefa blóð eftir að Blóðbankinn lýsti yfir neyðarástandi vegna blóðskorts í Blóðbankanum í gær.

"Þú talar ekki svona við mig drengur"

Davíð Oddsson segir að í ljós hafi komið við bankahrunið að Fjármálaeftirlitið væri mjög veikt. Þá hafi komið í ljós daginn eftir Glitnir var þjóðnýttur að viðmið Fjármálaeftirlitsins um það hvað var talið tengdir aðilar var orðið mjög frjálslegt

Segja eignir Orkuveitunnar seldar án auglýsinga

Málefni Orkuveitu Reykjavíkur voru rædd á borgarstjórnarfundi í dag. Tilefni umræðunnar eru upplýsingar um að OR hafa selt eignarhluta sinn í Enex Kína og Envent Holding án auglýsingar.

Segir Ingibjörgu hafa viljað 40 milljarða evra lán fyrir bankana

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra lagði til að bönkunum yrði bjargað með því að útvega 30 til 40 milljarða evra. Þetta sagði Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, fyrir landsdómi á fjórða tímanum í dag. Hann sagði að það hefði verið dauði fyrir ríkið að fara þá leið.

Björn ætlar að áfrýja meiðyrðadómi

Björn Bjarnason ætlar að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Tvenn ummæli Björns, sem finna mátti í bók hans, Rosabaugur yfir Íslandi, voru dæmd dauð og ómerk í morgun. Héraðsdómur dæmdi Björn að auki til þess að greiða Jóni Ásgeir Jóhannessyni alls fjögur hundruð þúsund krónur vegna ummælanna. Annars vegar tvöhundruð þúsund krónur í miskabætur og svo 200 þúsund krónur til þess að standa straum af birtingu dómsins í opinberum fjölmiðli.

Davíð segist hafa fengið áhyggjur löngu fyrir fall bankanna

Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segist hafa haft áhyggjur af stöðu bankanna löngu áður en komið var fram á árið 2008. Ekki hafi allir verið sammála honum í fyrstu. Hann sagði að það sem hefði meðal annars valdið áhyggjum hans hafi verið hvernig fyrirtæki hafi verið keypt upp á ógnarhraða, fyrirtæki rekin ár eftir ár án þess að nokkur sýnilegur hagnaður væri af starfsemi þeirra og of mikið gert úr viðskiptavild þegar eignarstaða fyrirtækja var bókfærð.

Össur fundaði með Wammen

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fundaði í gærkvöldi með Nicolai Wammen, Evrópumálaráðherra Danmerkur. Utanríkisráðherra gerði grein fyrir stöðu aðildarviðræðna Íslands og ESB sem hleypt var af stokkunum um mitt síðasta ár, og lýsti þeim vilja íslenskra stjórnvalda að helstu hagsmunamál Íslands, sjávarútvegur, landbúnaður, byggðamál og myntsamstarf, yrðu tekin fyrir sem fyrst. Evrópumálaráðherrann ítrekaði stuðning Danmerkur við aðild Íslands að ESB

Eins og dauðvona krabbameinssjúklingur

"Þarna var dauðvona krabbameinssjúklingur að fá hjartaáfall" sagði Arnór um fall bankanna þegar hann bar vitni fyrir Landsdómi nú eftir hádegið. Hann sagði að lausafjárvandi banakanna væri eins og hjartaáfall en eiginfjárvandi eins og krabbamein fyrir banka.

Framkvæmdastjóra Lagastoðar haldið sofandi í öndunarvél

Líðan framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem slasaðist lífshættulega í árásinni, er enn óbreytt. Hann gekkst undir umfangsmikla aðgerð í gær og er samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild haldið sofandi í öndunarvél.

Hnökkum stolið á Selfossi

Í nótt var brotist inn í níu hesthús við Norðurtröð á Selfossi. Úr einu húsinu var stolið sex hnökkum. Nánar tiltekið voru það tveir Svarfdælingar, einn Sleipnis, einn Óðins og tveir af óþekktri tegund.

Guðgeiri gert að gangast undir geðrannsókn

Guðgeir Guðmundsson hefur verið úrskurðar í gæsluvarðhald fram á föstudag fyrir að hafa stungið framkvæmdastjóra lögfræðistofunnar Lagastoðar í gærmorgun. Honum er einnig gert að gangast undir geðrannsókn. Hann hefur játað verknaðinn.

Holumyndavél kemur sér vel

Vegfarendur sem fóru um reiðveginn sunnan Helgafells í Vestmannaeyjum á laugardag tóku eftir því að stór hola hafði myndast við veginn. Holan er efst á Heimaey; 200 metrum frá syðsta enda sprungunnar sem opnaðist í gosinu árið 1973.

Viðtal við Davíð Oddsson í kvöldfréttum Stöðvar 2

Skýrslutöku yfir Davíði Oddssyni, fyrrum formanni bankastjórnar Seðlabankans, lauk nú fyrir stundu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um Landsdómsmálið sem hefur staðið yfir síðan klukkan 10 í morgun. Meðal annars verður viðtal við Davíð Oddsson sýnt í kvöldfréttatímanum sem hefst á slaginu klukkan 18:30.

Landsdómur: Annar dagur - Þriðja samantekt - myndskeið

Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu. Í myndskeiðinu má sjá þegar Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, mætir í Þjóðmenningarhúsið. Úr beinni útsendingu á Vísi klukkan 14.

Bankastjórarnir héldu að bankarnir myndu hrynja 2006

Halldór Ásgrímsson, þáverandi forsætisráðherra, hringdi í Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóra, á laugardegi sumarið 2006 vegna áhyggna bankastjóra viðskiptabankanna af því að bankarnir yrðu komnir á hausinn tveimur dögum seinna. Davíð greindi frá þessu í Landsdómi í dag.

Guðmundur skipaður prófessor

Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur hefur verið skipaður í prófessorsstöðu við Háskóla Íslands sem tengd er nafni Jóns Sigurðssonar. Hann segir það mikinn heiður að hljóta þetta embætti og telur að í því felist tækifæri til samstarfs Vestfirðinga og Háskóla Íslands sem geti orðið lyftistöng bæði fyrir rannsóknar- og fræðslustarf á Vestfjörðum og fyrir Háskóla Íslands.

Davíð mættur í Landsdóm

Davíð Oddsson er kominn í hús, en hann mun nú bera vitni fyrir Landsdómi. Davíð var seðlabankastjóri þegar hrunið varð og er ein af lykilpersónunum í sögu hrunsins. Það er því beðið með eftirvæntingu um það hvað Davíð mun segja um málið.

Landsdómur: Annar dagur - Önnur samantekt

Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu og það sem gerðist milli klukkan fyrir hádegi í dag. Þá sat fyrir svörum Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra.

Arnór Sighvatsson ber vitni næst

Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, er kominn til þess að bera vitni í Landsdómsmálinu. Arnór var aðalhagfræðingur Seðlabankans í aðdraganda hrunsins en varð aðstoðarseðlabankastjóri þegar lögum um bankann var breytt og Davíð Oddsson, Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson létu af störfum.

Sjá næstu 50 fréttir