Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Náði að forða sér út í tæka tíð Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um eld í fólksbíl á Salavegi í Kópavogi um hádegisbilið í dag. Bíllinn brann til kaldra kola en eldurinn kom upp þegar bílstjórinn var að keyra í rólegheitum á götunni. Hann náði að forða sér út í tæka tíð og varð því ekki meint af. Eldsupptök eru óljós. 28.1.2012 13:39
Íslenskir húðdropar slá í gegn í Frakklandi Fjallað var íslensku húðdropana frá Sif Cosmetics á frönsku stöðinni France 2 í morgun. Þáttastjórnandinn lofaði vöruna í hástert og sagðist hafa séð greinileg áhrif hjá sér og vinum sínum. Umfjöllunin í morgun olli því að varan seldist strax upp í tískuvöruversluninni Colette í París og vefsíða dreifiaðilans í Frakklandi hrundi vegna álags. Í innslagi stöðvarinnar má sjá viðtal við forstjóra fyrirtækisins og forsetafrúnna, Dorrit Moussaieff. 28.1.2012 13:09
Jóhanna: Þurfum ekki að kvíða kosningum á næsta ári Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í morgun að Samfylkingin gæti óhrædd lagt verk sín í dóm kjósenda í næstu kosningum takist ríkisstjórninni að klára stór mál sem nú eru í farvatninu en níu flokksfélagar hennar krefjast þess að landsfundi verði flýtt og að kosið verði að nýju um forystu flokksins. 28.1.2012 12:08
Hellisheiðin opin Búið er að opna Hellisheiðina og Þrengslin, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Í uppsveitum á Suðurlandi er þó töluverð hálka en þungfært er á örfáum sveitavegum. 28.1.2012 11:19
Mynd af snjóflóði í Skutulsfirði Engan sakaði þegar snjófljóð féll í Skutulsfirði austan megin í Engidal við Kirkjubæ í nótt. Flóðið fór yfir veginn og er hann ófær. Þá hefur Höfði í Hnífsdal verið rýmdur vegna snjóflóðahættu. Töluverður snjór er í fjöllunum en hann er nú farinn að blotna með hlýnandi veðri. Þá hefur óvisstustigi verið lýst yfir á öllum norðanverðum Vestfjörðum. 28.1.2012 11:01
Um sex þúsund tonn af sælgæti Í dag er laugardagur og þá bjóða margar verslanir upp á helmingsafslátt af nammi í sjálfsafgreiðslu. Almennt borðar hver íbúi að meðaltali um fjögur hundruð grömm af nammi á viku sem er mikið meira en önnur Norðurlönd samkvæmt upplýsingum frá landlækni. Heildarframboð sælgætis á ári hverju hér á landi er um 6000 tonn. 28.1.2012 10:54
"Þetta er valdníðsla og einelti" "Ég er búinn að borga um 10 milljónir í lögfræðikostnað á þremur árum til þess að halda uppi mannréttindum - og ég er ekki hættur," segir Margeir Margeirsson, eigandi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó á Laugavegi. Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ætli ekki að endurnýja rekstrarleyfi staðanna eftir að borgarráð lagðist gegn veitingu leyfanna. 28.1.2012 10:19
Flokkstjórn fundar um landsfund í vor Flokksstjórn Samfylkingarinnar fundar í dag kl. 10 á Hótel Nordica en fyrir fundinum liggur tillaga frá nokkrum flokksmönnum flokkurinn haldi að nýju landsfund í vor, en aðeins örfáir mánuðir eru frá síðasta landsfundi. 28.1.2012 09:43
Farþegar eiga rétt á þjónustu Flugfarþegar eiga rétt á ákveðinni þjónustu af hálfu flugfélaga ef flugi þeirra seinkar eða því er aflýst vegna veðurs. 28.1.2012 10:00
Hellisheiðin lokuð Hellisheiði er enn lokuð eins og hún hefur verið frá því klukkan sjö í gærmorgun og ekki er vitað hvenær hægt verður að opna hana á ný. Þoka og ágætis veður er á svæðinu en ástæða lokunarinnar er að ekki hefur tekist að ryðja veginn eftir óveðrið í gær vegna bíla sem voru yfirgefnir á heiðinni. 28.1.2012 09:39
Monte Carlo og Mónakó lokað Lögregustjóri höfuðborgarsvæðisins hafnar því að endurnýja rekstrarleyfi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó sem báðir eru við Laugaveg í Reykjavík. Borgarráð lagðist gegn veitingu leyfanna og vísar lögreglustjórinn til þess að hann geti ekki gengið gegn neikvæðri niðurstöðu borgarinnar sem umsagnaraðila. 28.1.2012 09:15
Bíða úrskurðar Persónuverndar Lýtalæknar munu ekki senda landlækni persónugreinanlegar upplýsingar um konur sem farið hafa í brjóstastækkunaraðgerðir á meðan þeir eru ekki fullvissir um að það sé heimilt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Læknafélagi Íslands og Félagi íslenskra lýtalækna. 28.1.2012 09:00
Rannsaka hvort kjör birgja standist lög Samkeppniseftirlitið (SE) mun rannsaka hvort tiltekin viðskiptakjör sem birgjar bjóða dagvöruverslunum brjóti í bága við samkeppnislög. Búast má við því að eftirlitið hefji sérstök stjórnsýslumál til að meta hvort kjörin séu lögmæt. Þetta staðfestir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri SE. 28.1.2012 08:30
Borgin hjálpi skátum að kaupa Úlfljótsvatn Skátasamband Reykjavíkur óskar eftir því að Reykjavíkurborg greiði fimm milljónir króna á ári næstu sex árin vegna láns sem sambandið fékk hjá Skógræktarfélagi Íslands til að greiða hlut sambandsins í Úlfljótsvatni. 28.1.2012 08:00
Framsókn skuldar 215 milljónir Framsóknarflokkurinn skuldar 215 milljónir króna, sem er 85 milljónir umfram eignir flokksins. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrir árið 2010 sem flokkurinn skilaði til Ríkisendurskoðunar í síðustu viku, hálfum fjórða mánuði eftir að skilafrestur var liðinn. Flokkurinn tapaði tæpum 1.600 þúsund krónum á síðasta ári, sem er mikill viðsnúningur frá árinu 2009, þegar tapið nam tæpri 41 milljón króna. 28.1.2012 07:45
Blint í fjúkinu þegar vind hreyfði Veginum um Hellisheiði var í gær lokað vegna ófærðar í þriðja sinn í þessum mánuði. Lokunin tók gildi í gærmorgun, en heiðin hafði þá verið opnuð um nóttina eftir að hafa verið lokuð í nær sólarhring. Þar áður var henni lokað 10. janúar. 28.1.2012 07:00
Vilja kjósa um forystu Hávær krafa er innan Samfylkingarinnar um að kosið verði um forystu flokksins á aukalandsfundi. Tillaga liggur fyrir flokksstjórnarfundi um landsfund í vor en reynt er að ná sátt um fund í haust. Landsdómsmálið verður rætt á flokksstjórnarfundi sem hefst í dag. 28.1.2012 07:00
Afar jákvæðar fréttir fyrir þjóðarbúið allt Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra sjávarútvegsmála, hefur undirritað reglugerð þar sem endanlegt útgefið aflamark í loðnu er ákveðið í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar. 28.1.2012 06:45
Fleiri makrílfundir boðaðir Ísland, ESB, Noregur og Færeyjar munu funda á ný um veiðar úr makrílstofninum í Norður-Atlantshafi í Reykjavík um miðjan næsta mánuð. 28.1.2012 05:00
Hæstiréttur vítir lögreglu og dómara Saksóknari í máli gegn grunuðum fíkniefnasmyglara lagði fyrir héraðsdóm upptöku af trúnaðarsamtali sakborningsins við verjanda sinn án þess að dómarar gerðu nokkra athugasemd við það. 28.1.2012 03:30
Forystuhlutverk í skugga efasemda Þróun almenningsviðhorfs í Þýskalandi er með þeim hætti að nánari samvinna og samruni Evrópuríkja þykir þar ekki lengur jafnsjálfsagt mál og verið hefur frá lokum seinna stríðs. Þetta kom fram í fyrirlestri Simons Bulmer, prófessors í Evrópufræðum við Sheffield-háskóla, í erindi hans á fundi Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í gær. 28.1.2012 03:00
Ræða sölu við Borgarbyggð Jóni Gnarr borgarstjóra hefur verið falið af borgarráði að ræða við forsvarsmenn Borgarbyggðar vegna óska þeirra um að selja af hlut sveitarfélagsins í Faxaflóahöfnum. 28.1.2012 02:30
Þrengslin opnuð - Hellisheiðin enn lokuð Þrengslin hafa verið opnuð, en Hellisheiðin er enn lokuð samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 27.1.2012 22:07
Lægir suðvestan- og vestanlands undir kvöld Lægir suðvestan- og vestanlands undir kvöldið og dregur um leið mikið úr úrkomu. Almennt fer hlýnandi og hlánar á láglendi um suðvestan- og vestanvert landið og í kvöld og nótt einnig norðan og norðaustantil. Um leið og blotnar verða vegir víða flughálir. 27.1.2012 19:43
Líklega handleggsbrotinn á báðum höndum eftir árekstur Umferðarslys varð á Malarhöfða skömmu fyrir klukkan eitt í dag. Tvær bifreiðar skullu saman. Alls voru fimm einstaklingar í báðum bílunum. Einn farþegi slasaðist nokkuð, líklega er hann brotinn á báðum höndum. 27.1.2012 17:46
Harður árekstur á Öxnadalsheiði Tveir bílar rákust saman á Öxnadalsheiði um þrjúleytið í dag. Fimm manns voru í öðrum bílnum, sem er pallbill, en fjórir í hinum bílnum. Það er fólksbíll. Fólkið í fólksbílnum var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar, en lögreglan telur að meiðsli séu ekki alvarleg. Þeir sem voru í pallbílnum sluppu ómeiddir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er fólksbíllinn mikið skemmdur. 27.1.2012 16:34
Þrengslin opnuð en Hellisheiðin enn lokuð Þrengslin hafa nú verið opnuð en Hellisheiði er enn lokuð og mjög slæmt veður er á svæðinu. Að sögn Vegagerðarinnar er ekki gert ráð fyrir að veður taki að lagast fyrr en undir kvöld. Flestar aðrar leiðir á Suðurlandi eru færar en þæfingsfærð er þó á Mosfellsheiði og skafrenningur og sumsstaðar er þungfært á fáfarnari sveitavegum. 27.1.2012 15:26
Krúttlegir krakkar úr Hofsstaðaskóla ræddu um réttindi sín Barnaheill - Save the Children á íslandi fékk krúttlega krakka úr Hofsstaðaskóla í Garðabæ til að tala um réttindi sín samkvæmt 2. grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og var afraksturinn sýndur í Íslandi í dag í gær. 27.1.2012 16:32
Vara við þungum snjó og grýlukertum Reykjavikurborg varar við því að hætta geti verið á ferðum þegar blautur og þungur snjór rennur af þökum húsa. Einnig er hætta af grýlukertum sem hanga í þakbrúnum. Falli snjór og grýlukerti á fólk getur það valdið slysum einkum ef fallhæðin er mikil. Húseigendur eru beðnir um að gæta að þessum málum og gera ráðstafanir til að vara vegfarendur við ef aðstæður kalla á slíkt. Einnig eru húsráðendur hvattir til að huga niðurföllum og gera ráðstafanir til að forða sér frá mögulegu vatnstjóni. Hlýnað hefur í borginni og er spáð áframhaldandi hlýindum um helgina. 27.1.2012 15:01
Fundu fíkniefni og stærðar slöngu við húsleit Slanga fannst við húsleit í Reykjavík í gærkvöldi. Á sama stað var einnig lagt hald á fíkniefni að sögn lögreglu. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, viðurkenndi aðild sína að málinu. Eins og tíðkast í tilfellum sem þessum var slangan flutt að Keldum þar sem gerðar voru "viðeigandi ráðstafanir“ eins og lögregla orðar það. 27.1.2012 14:46
Nemendur Listaháskólans að baki H&M gjörningnum Það voru annars árs nemendur í Listaháskóla Íslands sem settu auglýsingar á rúður í húsum á Laugaveginum þar sem tekið var fram að H&M og fleiri verslanir myndu opna innan skamms á Íslandi. Hjálmar Ragnarsson, rektor skólans, staðfestir þetta í samtali við Vísi. 27.1.2012 14:34
Barnalán á Alþingi Birkir J. Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, á von á tvíburum. Aðspurður staðfesti hann þetta í samtali við Vísi en vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um málið. Vísir hefur ekki fengið upplýsingar um það hvaða kona það er sem gengur með börn Birkis. 27.1.2012 13:55
Enn lokað á heiðinni Hellisheiðin og Þrengslin eru enn lokuð og ekki útlit fyrir að veður taki að lagast þar að ráði fyrr en vindur gengur niður undir kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 27.1.2012 13:52
Rafmagn komið á Verið er að vinna bug á biluninni sem varð í dreifikerfi Orkuveitunnar um eittleytið í dag. Rafmagn fór af í Hlíðahverfinu og féllu útsendingar útvarpsstöðva 365 miðla niður um stund. Nú er búið að setja rafmagn aftur á hverfið. Útvarpsstöðvar 365 miðla eru komnar aftur í loftið. 27.1.2012 13:30
Rafmagnslaust á stóru svæði í Reykjavík Rafmagnslaust er á stóru svæði í Reykjavík, frá Bólstaðarhlíð upp að Veðurstofu Íslands. Verið er að vinna að viðgerð sem getur tekið allt að 45 mínútur, samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjvíkur. 27.1.2012 13:10
Harður árekstur á Kársnesbraut Harður árekstur varð á Kársnesbraut í Kópavogi rétt fyrir klukkan átta í morgun. Sjúkrabíll var kallaður á staðinn og voru farþegar fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Meiðsli þeirra voru þó lítilsháttar að sögn vaktstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 27.1.2012 11:33
Bænastundir í Grafarvogi og í Njarðvík síðdegis Tvær bænastundir vegna sjóslyssins við Noregsstrendur verða haldnar í dag. Bænastundirnar verða í Grafarvogskirkju og Ytri-Njarðvíkurkirkju og hefjast þær á sama tíma, kl. 18:00. "Viðstöddum verður gefinn kostur á að tendra bænaljós og sameina hugi í fyrirbænum fyrir fjölskyldunum sem urðu fyrir áfallinu,“ segir Lena Rós Matthíasdóttir prestur í Grafarvogskirkju. Hún bætir því við að allir séu velkomnir. 27.1.2012 11:17
Herjólfur siglir samkvæmt áætlun Vestmannaeyjaferjan Herjólfur siglir samkvæmt áætlun í dag og leggur úr höfn í Þorlákshöfn klukkan kortér fyrir tólf. Ferjan fer þrátt fyrir að ófært sé til Þorlákshafnar um Hellisheiði og og Þrengsli. 27.1.2012 11:12
Öngþveiti við Litlu Kaffistofuna Búið er að loka Þrengslunum og Hellisheiðinni var jafnframt lokað í morgun. Ófært er um Suðurlandsveg við Litlu Kaffistofuna. Samkvæmt upplýsingum Vísis situr fjöldi fólks fastur í bílum á Hellisheiði, en um er að ræða fólk sem reyndi að fara yfir Heiðina í morgun og hafa sumir þeirra setið fastir frá því klukkan níu í morgun. Í ráði er að fara með snjóruðningstæki sem getur fylgt bíl til að selflytja fólkið sem situr fast á Hellisheiðinni og við Kaffistofuna. 27.1.2012 11:08
Frelsi fjölmiðla minnkar á Íslandi Frelsi fjölmiðla á Íslandi minnkaði nokkuð í fyrra miðað við árið á undan. Þetta kemur fram á listanum World Press Freedom Index sem gefinn er út árlega yfir frelsi fjölmiðla í tæplega 180 löndum um allan heiminn. 27.1.2012 10:38
Hellisheiðin aftur lokuð um óákveðinn tíma Búið er að loka Hellisheiðinni um óákveðinn tíma. Á Hellisheiði og í Þrengslum er nú fyrir hádegi búist við vaxandi hríðarkófi með lélegu skyggni og talsverður skafrenningur verður á Reykjanesbraut fram undir hádegi. 27.1.2012 09:59
Nemendum fjölgar Skráðum nemendum á framhalds- og viðbótarstigi fjölgaði um tæp 5% síðasta haust miðað við sama tímabil árið á undan og eru 29.389. Þá fjölgaði skráðum nemendum á háskóla- og doktorssttigi um 1% frá fyrra ári. Þeir voru 19.334 í haust. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Konur eru 55,9% nemenda á öllum skólastigum ofan grunnskóla en hlutur karla er 44,1%. 27.1.2012 09:13
Gekk berserksgang og barði þrjá menn með kylfu Óður maður gekk berserksgang úti á götu í Keflavík í nótt og barði þrjá menn með einhverskonar kylfu. 27.1.2012 07:26
Jafnt hjá barnameistaranum Skákdagur Íslands var haldinn í fyrsta sinn í gær. Stórmeistarinn Friðrik Ólafsson var heiðraður í tilefni dagsins, en Friðrik átti einmitt 77 ára afmæli. Margs konar uppákomur tengdar skák voru um allt land í tilefni dagsins, en meðal annars var athöfn á Bessastöðum þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fór í ávarpi yfir afrek Friðriks og áhrif hans á skákíþróttina og þjóðina alla. Að lokinni ræðu forseta tefldi Friðrik við Nancy Davíðsdóttur Íslandsmeistara barna. Skákinni lyktaði með jafntefli. 27.1.2012 07:00
Sannað að Eiríkur rauði gat bruggað öl á Grænlandi Fornleifafræðingum frá danska þjóðminjasafninu hefur loksins tekist að sanna að Eiríkur rauði og hans fólk gat bruggað öl á Grænlandi á sinni tíð. 27.1.2012 06:39