Fleiri fréttir

Próflaus ökumaður reyndi að ljúga til nafns

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í gærkvöld og nótt. Þetta voru kona á þrítugsaldri og karl á fertugsaldri, sem hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Annar karl, sömuleiðis á fertugsaldri, var stöðvaður við akstur í Garðabæ en sá hafði líka þegar verið sviptur ökuleyfi. Viðkomandi reyndi að ljúga til nafns en maðurinn hefur áður verið tekinn fyrir að aka sviptur.

Menntamenn handteknir fyrir þjófnað

Tveir tvítugir piltar voru handteknir í miðborg Reykjavíkur fyrir þjófnað á dögunum. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni gengust mennirnir við þjófnaðinum enda voru þeir gripnir glóðvolgir.

Bóluefnið verður rannsakað

"Þetta er svolítið sérstakt og óvenjulegt,“ segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir í samtali við fréttastofu. Við sögðum frá því fyrr í dag að fimm stúlkur í Grunnskóla Húnaþings vestra hefðu sýnt ofnæmisviðbrögð eftir að þær voru bólusettar við HPV-veirunni í gær.

Aftur vélavandræði hjá Airbus A380 - ári eftir að hreyfill sprakk

Airbus A380 risaþota sem var á leið frá Sidney í Ástralíu til London neyddist til að lenda í Dúbaí í dag þegar bilun kom upp í hreyflum vélarinnar. Um er að ræða stærstu farþegaþotu í heimi en um 250 farþegar voru um borð. Fjórir hreyflar eru á vélunum og þurftu flugmennirnir að slökkva á einum þeirra þegar bilunin kom upp. Þeim tókst þó að lenda án vandræða í Dúbaí.

Fimm stúlkur sýndu ofnæmisviðbrögð - ein flutt á sjúkrahús

Kallað var á tvo sjúkrabíla í Grunnskóla Húnaþings vestra í gær eftir að fimm stúlkur í áttunda bekk fengu ofnæmisviðbrögð eftir bólusetningu við HPV-veirunni. Ein stúlkan var flutt til Reykjavíkur á Barnaspítala Hringsins til frekari skoðunar.

Segja kvenmenn, homma og útlendinga niðurlægða í Borgarleikhúsinu

Leikhúskonurnar Eva Björk Kaaber, Eva Rún Snorradóttir og Vilborg Ólafsdóttir, gagnrýna Leikhússtjórann Magnús Geir Eyjólfsson, harðlega fyrir uppsetningu sína á grínleikritinu Nei, ráðherra. Þær skora meðal annars á Magnús að ráða kynjafræðing til þess að aðstoða við uppsetningu leiksýninga í Borgarleikhúsinu, þar sem leikritið er sýnt.

Útvarpsstjóra barst hvítt duft í pósti

"Ég held að það sé betra að hafa vaðið fyrir neðan sig og ekki gefa sér að þetta sé grín eða eitthvað svoleiðis,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri sem fékk torkennilegt bréf frá Marokkó sent á skrifstofu sína í gær. Í bréfinu var miði með arabísku letri og þá var einnig hvítt duft í umslaginu. Nokkur viðbúnaður var í Útvarpshúsinu í gær eftir atvikið.

Jóhanna hittir forseta framkvæmdastjórnar ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fer eftir helgina til funda í Brussel. Þar mun hún eiga fundi með Herman van Rompuy, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins og Jose Manuel Barrosso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Jafnframt mun Johanna funda með Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu.

Flugvöllurinn verði lögfestur í Vatnsmýri

Ellefu þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vilja að staðsetning Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri verði lögfest og að óvissu um framtíð hans verði þannig eytt. Lagafrumvarp þessa efnis var lagt fram á Alþingi í gær en fyrsti flutningsmaður er sjálfstæðismaðurinn Jón Gunnarsson.

Ljósastaurar slógu út - líklega vegna eldinga

„Okkur grunar að kerfið hafi slegið út vegna eldingar,“ segir Gunnlaugur Óskarsson, verkstjóri á rafmagnssviði HS Orku á Suðurnesjum, en stór hluti ljósastaura í Grindavík slógu út í gær.

Húmanistar verðlauna Pál Óskar

Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari fékk í gær Húmanistaviðurkenningu Siðmenntar. Verðlaunin eru árviss viðburður og hafa þau verið veitt samfellt í sjö ár. Í tilkynningu frá Siðmennt segir að Páll Óskar hafi árum saman barist fyrir mannréttindum samkynhneigðra og með jákvæðni sinni, sköpunarkrafti og einlægri framkomu verið landsmönnum öllum kærkomin fyrirmynd.

Þriðji þjófurinn ræktaði kannabis

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu yfirheyrði í gærdag konu, sem grunuð er um að hafa stolið allmiklu af fatnaði úr verslunum. Að auki hafði hún í vörslu sinni nokkrar kannabisplöntur.

Auki tekjur ríkissjóðs um tæpa 10 milljarða

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum, frumvarpi um nýjan fjársýsluskatt og frumvarpi um lokafjárlög ársins 2010.

Nær engar breytingar á fylgi flokkanna

Nær engar breytingar hafa orðið á fylgi stjórnmálaflokkanna samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Sem fyrr mælist hátt hlutfall fólks, eða um 15%, sem ætlar sér ekki að kjósa eða skila auðu í næstu kosningum.

Mengun frá farfuglum skaðar viðkomu arnarstofnsins

Mengun, sem farfuglar bera með sér til landsins, hefur að öllum líkindum skaðleg áhrif á viðkomu arnarstofnsins hér á landi, samkvæmt rannsóknum Náttúrustofu Vesturlands og fleiri aðila.

Mikil sýking minnkar síldarkvótann

Mikil sýking mælist enn í íslensku sumargotssíldinni og leggur Hafrannsóknastofnun til að veiðikvótinn á þessari vertíð verði aðeins 40 þúsund tonn og að veiðar verði einungis leyfðar við vestanvert landið.

Fimm daga deildinni lokað

Fimm daga deild líknardeildar Landspítala í Kópavogi var lokað um síðustu mánaðamót vegna læknaskorts og verður deildin lokuð til áramóta að minnsta kosti.

Þurfum að gera betur varðandi flóttafólk

Flóttamannanefnd velferðarráðuneytisins vonast til þess að geta tekið á móti svokölluðu kvótaflóttafólki hingað til lands í byrjun næsta árs. Ekki var tekið á móti neinum árið 2009 eða í ár, en sex kólumbískir flóttamenn fengu hér aðstöðu í fyrra. Hugtakið kvótaflóttamaður vísar til þess ákveðna fjölda sem boðið er til landa samkvæmt mati Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Það tekur alla tíma að aðlagast

Þjóðin hefur staðið sig mjög vel í að bjóða innflytjendur velkomna og mér þykir mikið til koma. Ég finn fyrir miklum samhug þann stutta tíma sem ég hef verið hér og á þeim stöðum sem ég hef heimsótt. En ég er líka viss um að það sé mikill vilji fyrir því að gera hlutina betur en nú þegar hefur verið gert og efla þetta mikilvæga starf.“

Dýraspítali og hesthús á hjólum

Dýraspítali og hesthús, samtals 230 fermetrar að stærð, voru flutt í heilu lagi af fyrrverandi svæði hestamannafélagsins Gusts í Glaðheimum og á Kjóavelli, þar sem Gustsmenn hafa fengið úthlutað nýju svæði.

Snýst um aðferðir en ekki pólitíska stefnu

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, hefur lýst yfir framboði gegn sitjandi formanni flokksins, Bjarna Benediktssyni, á landsfundi sem haldinn verður 17. nóvember. Hanna Birna er fyrsta konan sem sækist eftir formennsku í flokknum í 82 ára sögu hans.

Nærmynd af Óla Tynes

Það var eitt helsta einkennismerki Óla Tynes fréttamanns að gæða fréttir kímni og glettni. Í meðfylgjandi nærmynd er farið yfir feril Óla en þátturinn var sýndur í Íslandi í dag í kvöld.

Með vörur frá Karen Millen fyrir milljónir króna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær konu sem er talin tengjast umfangsmiklum þjófnaði í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Hún er talin tengjast tveimur öðrum konum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi fyrir þjófnað að andvirði tugmilljóna króna.

Offita barna: Fyrirtæki fara offari í markaðssetningu

Næringarfræðingur segir fyrirtæki oft fara offari í markaðssetningu á vörum sínum, það eigi helst við um fæðubótaefni og orkudrykki. Hann segir dæmi um að foreldrar viti oft einfaldlega ekki hvað börnin þeirra eru að innbyrða.

Ætla að henda 150 þúsund skömmtum af svínaflensubóluefni

Hluta af þeim hundrað og fimmtíu þúsund skömmtum af bóluefninu gegn svínaflensu sem til er í landinu verður fargað á næstu vikum. Sóttvarnarlæknir telur enga þörf fyrir bóluefnið lengur en kostnaður efnisins sem fargað verður er tuttugu og fjórar milljónir.

Ólafur Ragnar seldi Neyðarkarlinn

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, hóf formlega sölu Neyðarkalls björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar í verslanamiðstöðinni Kringlunni síðdegis í dag. Fyrsta Neyðarkarlinn keypti Magnús Gunnlaugsson, sem á líf sitt björgunarsveitum að launa, eftir að bátur hans sökk norður af Akurey í mars á þessu ári.

Hanna Birna: Hagsmunum okkar best borgið utan ESB

„Um leið og það finnur kraftinn, vonina og tækifærin sem hér eru kemur fólk aftur,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem tilkynnti það í dag að hún ætlaði að fara í framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins, aðspurð hvort að hún myndi berjast fyrir því að fá þá þúsundir Íslendinga sem hafa flust af landi brott aftur heim.

Hamingja í Reykjavík

Konu á fertugsaldri, sem tók út reiðufé í banka í borginni um miðjan dag í gær, brá illilega þegar hún uppgötvaði að peningarnir voru horfnir. Konan var komin aftur í vinnuna þegar henni varð þetta ljóst en peningana hafði hún látið í umslag, sem nú fannst hvergi.

Svæfingalæknir í skilorðsbundið fangelsi

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Retykjavíkur yfir Árna Þór Björnssyni, svæfingalækni sem ákærður var fyrir að hafa blekkt Tryggingastofnun Ríkisins, til að greiða sér rúmar 4 milljónir króna með því að framvísa 265 röngum reikningum.

Lekandi hjá 23 einstaklingum

Á fyrstu níu mánuðum ársins greindust 23 ný tilfelli af lekanda, samkvæmt upplýsingum frá sýklafræðideild Landspítala. Þar af eru sextán karlar og sjö konur frá tvítugu til 66 ára.

Óli Tynes borinn til grafar

Útför Óla Tynes fréttamanns var gerð frá Fossvogskirkju í dag, að viðstöddu fjölmenni. Séra Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða safnaðarins, jarðsöng. Samstarfsmenn Óla af fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis báru kistuna úr kirkju, þau Telma Tómasson, Edda Andrésdóttir, Heimir Már Pétursson, Gissur Sigurðsson, Freyr Einarsson, Haukur Holm, Gunnar Reynir Valþórssson og Kristján Már Unnarsson.

Brýnasta verkefnið að lækka skatta - Yfirlýsing Hönnu Birnu

„Ég trúi því að framboð mitt styrki stöðu Sjálfstæðisflokksins í næstu kosningum. Formannskjörið snýst einfaldlega um það, hver sé líklegastur til að leiða okkur sjálfstæðismenn til sigurs í næstu kosningum. Með sigri getum við rofið kyrrstöðuna sem hvílir eins og mara á þjóðinni," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér rétt í þessu vegna framboðs síns til formanns Sjálfstæðisflokksins.

Hanna Birna býður sig fram

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, ætlar að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi hans sem hefst eftir tvær vikur. Hann Birna mun tilkynna þetta síðar í dag, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Í skoðanakönnunum sem hafa verið gerðar á fylgi Hönnu Birnu mælist hún með umtalsvert meira fylgi en aðrir mögulegir frambjóðendur. Þeirra á meðal er Bjarni Benediktsson, núverandi formaður flokksins.

Davíð Þór biður Maríu afsökunar

Guðfræðingurinn og pistlahöfundurinn Davíð Þór Jónsson, hefur beðið Maríu Lilju Þrastardóttur afsökunar á að hafa hótað að stefna henni fyrir meiðyrði. María Lilja svaraði pistli Davíðs, sem var birtur í Fréttablaðinu um helgina, og þótti Davíð illa að sér vegið. Hann gaf henni því þrjá sólarhringa til þess að biðja sig afsökunar á ummælum eins og að hann hefði brenglað viðhorf til kynlífs og hefði ritstýrt klámbækling.

Lögreglan minnir á endurskinsmerki

Nú þegar svartasta skammdegið fer að skella á þykir rétt að minna aftur á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni.

Leita að Yaris

Leitað er að gráum þriggja dyra Toyota Yaris, bílnúmer er UO 265, sem var hvarf eiganda sínum fyrir nokkru. Þeir sem hafa upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn vinsamlega hafi samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu 444 1000.

BSRB varar við neyslusköttum

Betra væri að lækka gjöld á hollari mat en að hækka gjöld á óhollan mat. Þetta segir Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB.

Verkfallsboðun Sinfó dæmd lögmæt

Boðað verkfall Sinfóníuhljómsveitar Íslands var í dag dæmt lögmætt fyrir Félagsdómi. Íslenska ríkið stefndi hljómsveitinni fyrir Félagsdóm með þeim rökum að ekki væri um verkfall að ræða heldur verkföll, en hljómsveitin hafði boðað til verkfalla nánar tilgreinda daga í nóvember. Á þessi málfræðilegu rök ríkisins var ekki fallist fyrir Félagsdómi og verkfallsboðunin talin lögmæt.

Icelandair vann markaðsverðlaun fyrirtækja

Íslensku markaðsverðlaunin 2011 voru afhent í dag á hótel Nordica. Þrjú fyrirtæki voru tilnefnd til markaðsverðlauna fyrirtækja, en þau voru veitt í 21. sinn í dag. Fyrirtækin voru Icelandair, Nova og Össur. Verðlaunin í ár hlaut Icelandair. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, tók við verðlaununum. Hann þakkaði Íslensku auglýsingastofunni gott samstarf og tilkynnti að fyrirtækið myndi á næsta ári enn auka við markaðsstarf sitt og leggja í það tvo milljarða króna.

Tillögur að orkustefnu

Stýrihópur um mótun heildstæðrar orkustefnu fyrir Ísland skilaði í dag tillögum sínum til Katrínar Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra. Orkustefnan er byggð svoleiðis upp að fyrst er sett fram leiðarljós; þá eru meginmarkmið ákveðin í samræmi við leiðarljósið; loks eru afmarkaðari leiðir ákvarðaðar út frá þeim meginmarkmiðum. Leiðarljós orkustefnunnar er „Að orkubúskap Íslands verði hagað með sjálfbærum hætti, samfélaginu og almenningi til hagsbóta."

Sjá næstu 50 fréttir