Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líknardeild lokað á LSH Líknardeild öldrunardeildar Landspítalans á Landakoti verður lokað og starfsemi hennar færð til líknardeildarinnar í Kópavogi. Talið er að breytingin muni spara 50 milljónir króna og er hún liður í niðurskurðarferli Landspítalans vegna fjárlaga næsta árs. Framlög til spítalans eru í fjárlagafrumvarpi skorin niður um 630 milljónir króna og talið er að það muni hafa áhrif á um 90 störf innan spítalans. 13.10.2011 06:15
Um 90 manns missa vinnuna Talið er að niðurskurðarkrafa á Landspítalann um 630 milljónir geri það að verkum að um 90 manns missi vinnuna innan spítalans. Sparnaður á síðasta ári var rúmar 600 milljónir króna og þurfti því að fækka 85 stöðugildum innan spítalans. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að ef rýnt sé í tölur síðasta árs sé hægt að sjá hvað er í vændum varðandi uppsagnir. 13.10.2011 06:00
Tölvan segir nei við móður í fjárhagsklípu „Ég er auðvitað ekki sátt við þetta. Það er farið að líða á mánuðinn og mínir peningar farnir að minnka verulega. Mig nauðsynlega vantar þennan pening sem þau höfðu engan rétt til að taka af mér,“ segir Lilja Rós Sigurðardóttir, 23 ára gömul einstæð móðir sem segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. 13.10.2011 06:00
Hæstaréttardómari tjáir sig ekki um kæru „Hann veitir ekki viðtal,“ voru skilaboðin sem starfsmaður Hæstaréttar bar Fréttablaðinu eftir að það hafði ítrekað falast eftir viðtali við Árna Kolbeinsson hæstaréttardómara. 13.10.2011 06:00
Kallar eftir rökstuðningi Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir mjög óheppilegt ef ekki ríkir traust og friður um ráðningar í lykilembætti í stjórnsýslunni. Þetta kom fram á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gærmorgun, þar sem Steingrímur var spurður um afstöðu sína til ráðningar Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslu ríkisins. 13.10.2011 06:00
Hélt ræðu um norðurslóðir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti ræðu á ráðstefnu um framtíð norðurslóða í Brussel í gær. 13.10.2011 05:30
Olíuslys kveikja að kvenfatalínu Hörmulegar afleiðingar olíumengunarslysa urðu kveikjan að nýrri fatalínu Kolbrúnar Ýrar Gunnarsdóttur. Útkoman er svartir kjólar sem minna á olíublauta fugla. 13.10.2011 05:15
Æskudýrkun úthýst og gömlu gildin tóku við Æskudýrkun í íslensku atvinnulífi á árunum fyrir hrun var mikil og einsleitni stjórnendahópa var að margra mati orðin til vansa. Eftir hrun má hins vegar segja að afturhvarf hafi orðið þar sem eldri og reyndari stjórnendur tóku á ný við stjórn fyrirtækja. 13.10.2011 05:00
Ferðamönnum fjölgar vegna Hörpu Tilkoma tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu mun fjölga ferðamönnum sem koma til Íslands á hverju ári. 13.10.2011 05:00
Lögmenn Eimskips fara yfir stefnuna Fulltrúar Eimskips eru nú að skoða stefnu frá Samskipum, sem er löng og mikil, og fara yfir stöðu mála, að sögn Ólafs Williams Hand, upplýsingafulltrúa Eimskips. Samskip krefjast 3,7 milljarða króna auk vaxta í skaðabætur vegna samkeppnisbrota Eimskipafélags Íslands á árunum 1999 til 2002. 13.10.2011 04:45
Erlingur Halldórsson látinn Erlingur E. Halldórsson rithöfundur er látinn, 81 árs að aldri. Erlingur fæddist 26. mars 1930 á Arngerðareyri við Ísafjarðardjúp. Foreldrar hans voru Halldór Jónsson, bóndi þar, og eiginkona hans, Steinunn Jónsdóttir. 13.10.2011 04:00
Jákvæð þróun í stuttum skrefum milli ára Önnur framvinduskýrsla framkvæmdastjórnar ESB um aðildarferli Íslands var gefin var út í gær. Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, kynnti skýrsluna og sagði við það tilefni að ferlið gengi vel fyrir sig og skýrslan undirstrikaði jákvæða þróun mála. Ekki kemur á óvart að Ísland er talið uppfylla mörg aðildarskilyrði, þá sérstaklega þau sem lúta að málum sem heyra undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og Schengen-samstarfið. 13.10.2011 03:45
Áfram siglt til Þorlákshafnar Herjólfur heldur áfram að sigla til Þorlákshafnar að minnsta kosti fram í næstu viku. Tekin verður ákvörðun um breytingar á siglingaleiðinni næsta mánudag. Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta. 13.10.2011 03:00
Deilt um forsendur fjárlaga Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sat fyrir svörum á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær. Þar var farið yfir forsendur tekjuhliðar fjárlaga. Stjórnarandstaðan gagnrýndi þær og einnig ýmsar aðgerðir sem grípa á til, svo sem hækkun skattþrepa. 13.10.2011 02:30
130 kannabisplöntur teknar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborginni í fyrradag. Við húsleit var lagt hald á rúmlega 130 kannabisplöntur, á ýmsum stigum ræktunar. 13.10.2011 02:00
Segir málverk á uppboði falsað Forvörðurinn Ólafur Ingi Jónsson telur að listaverk sem var boðið upp í Kaupmannahöfn í síðustu viku, og er sagt vera eftir Svavar Guðjónsson, sé falsað. Þetta kom fram í kvöldréttum RÚV. 12.10.2011 20:17
Sogn var upphaflega barnaheimili Réttargeðdeildinni á Sogni verður lokað og starfsemi hennar flutt í stærra húsnæði á Kleppi. Tvöföld öryggisgirðing er meðal þess sem reisa þarf við Klepp áður en nýja deildin opnar. 12.10.2011 19:15
Útilokuðu almenna niðurfellingu skulda Efnahags- og viðskiptaráðherra útilokaði almenna niðurfellingu skulda á Alþingi í dag. Hann sagði skuldir aldrei verða fluttar af þeim sem stofnuðu til þeirra á eignalaust fólk sem á ekkert nema lífeyrisréttindi sín. Tekist var á um afskriftir bankanna í þingsal. 12.10.2011 18:45
Lést í umferðarslysi Stúlkan sem lést í umferðaslysi í Fagradal í morgun hét Þorbjörg Henný Eiríksdóttir. Hún var sautján ára gömul og búsett á Eskifirði. 12.10.2011 18:27
Segir sveitarfélögin eins og mismunandi konungsdæmi „Í dag virkar þetta eins og konungsdæmi sem verður ekki hróflað við nema á fjögurra ára fresti,“ sagði Gestur Ólafsson, skipulagsfræðingur og arkitekt í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag þegar skipulagsmál voru rædd. 12.10.2011 17:40
Ekki mikið slösuð Stúlka sem flutt var á slysadeild Landspítalans í Reykjavík eftir bílslys í Fagradal í morgun er ekki mikið slösuð, samkvæmt vakthafandi lækni á deildinni. Hún verður undir eftirliti á spítalanum í einhvern tíma. 12.10.2011 17:02
Elti stúlku til að neyða hana upp í bíl Foreldrar barna í Álftamýrarskóla voru varaðir við þremur ungum karlmönnum sem reyndu að lokka til sín börn í dag. Í tilkynningu frá skólastjóra kom fram að mennirnir hefðu reynt að lokka stúlku upp í silfurlitaðan bíl. Þegar hún neitaði að fara í bílinn elti einn mannanna hana á hlaupum. Hún komst þó undan. 12.10.2011 16:56
Banaslys þegar krani féll á Djúpavogi Alvarlegt vinnuslys varð við höfnina á Djúpavogi laust fyrir klukkan þrjú í dag þegar verið var að losa salt úr skipi. Krani úr landi sem notaður var við verkið brotnaði og féll niður á mann sem þarna var við vinnu sína, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Maðurinn, sem var rúmlega fertugur, lést við slysið. Lögreglan á Eskifirði fer með rannsókn málsins ásamt Vinnueftirliti ríkisins. 12.10.2011 16:44
Össur tekur undir gagnrýni á dóminn yfir Tímósjenkó Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lýsir yfir miklum vonbrigðum með dóminn yfir Júlíu Tímósjenkó, fyrrum forsætisráðherra Úkraínu, sem var dæmd til sjö ára fangavistar í gær fyrir misbeitingu valds. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að ráðherra taki undir yfirlýsingu Evrópusambandsins þar sem framkvæmd réttarhaldanna yfir Tímósjenkó er gagnrýnd harðlega og mun Össur styðja samhljóða ályktun sem lögð verður fyrir hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu,ÖSE, í vikunni. 12.10.2011 16:32
Ólafur Ragnar ræddi um Norðurslóðir í Brussel Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flutti í morgun ræðu á ráðstefnu um framtíð Norðurslóða sem haldin er í Brussel. Ráðstefnuna sækja forystumenn og fulltrúar aðildarríkja Norðurskautsráðsins sem og sérfræðingar og vísindamenn en hún er haldin af International Polar Foundation í Brussel. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að meðal ræðumanna í morgun hafi verið Maria Damanaki, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins í málefnum sjávarútvegs og sjávarauðlinda. „Fjallaði hún um áherslur Evrópusambandsins í málefnum Norðurslóða.“ 12.10.2011 15:56
Þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnakláms Fimmtugur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa barnaklám undir höndum. Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi en á tölvu hans fundust 174 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Myndirnar fundust við húsleit lögreglu. 12.10.2011 15:50
Þingmenn gagnrýna harðlega breytingar á réttargeðdeildinni Það er óviðunandi og ámælisvert að ákvörðun um að leggja niður réttargeðdeildina að Sogni sé tekin einhliða af framkvæmdastjórum Landspítalans, segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar. 12.10.2011 15:32
Siv braut þrjá fingur Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknaflokksins, braut þrjá fingur á hægri hendi sinni með því að klemma sig á stálhurð í bílastæðakjallara Alþingis í gær. Hún var á leið á fund í allsherjar- og menntamálanefnd í forföllum Eyglóar Harðardóttur þegar óhappið varð, eftir því sem hún greinir frá á vefsíðu sinni. 12.10.2011 15:19
Krefjast þess að hætt verði við lokun St. Jósefsspítala Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mótmælir harðlega ákvörðun um lokun St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og krefst þess að hún verði endurskoðuð og sameining við LSH gangi til baka. Í tilkynningu frá bæjarstjórninni segir að ákvörðunin gangi þvert á þá sátt sem lofað hafi verið og þau fyrirheit sem gefin voru, um að St. Jósefsspítali gegndi áfram mikilvægu hlutverki í nærþjónustu við íbúa í Hafnarfirði. 12.10.2011 15:05
Ráðherrar geti vikið sæti á Alþingi Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi nema Sjálfstæðisflokknum hafa lagt frumvarp þess efnis að ráðherra geti tekið ákvörðun uma að sitja ekki á Alþingi á meðan þeir gegna embætti. Tillagan hefur áður verið flutt en ekki verið samþykkt. Nýti ráðherra sér þennan möguleika yrði honum heimilt að taka þátt í umræðum á Alþingi en ætti ekki atkvæðisrétt. 12.10.2011 15:04
Ferðir Herjólfs falla niður Ekkert verður af frekari ferðum Herjólfs á milli lands og Eyja eins og áætlað hafði verið. Mjög slæmt veður er á svæðinu og er skipið nú á siglingu til Vestmannaeyja og er búist við því til hafnar klukkan fimm. Herjólfur siglir á 6 mílna hraða sökum sjólagsins en vindur fer í 30 metra á sekúndu í verstu kviðunum. 12.10.2011 14:25
Opið hús í Höfða Dagana 13. - 15. október verður opið hús í Höfða í tilefni af því að 25 ár eru liðin frá leiðtogafundi Ronald Reagans, forseta Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbatsjevs, leiðtoga Sovétríkjanna, í húsinu árið 1986. 12.10.2011 14:06
Bænastund vegna umferðarslyssins Bænastund verður í Eskifjarðarkirkju klukkan í átta í kvöld vegna umferðarslyssins sem varð á Fagradal snemma í morgun. Stúlka á átjánda aldursári lést í slysinu og önnur flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíll stúlknanna rakst á vörubifreið sem var að koma úr gagnstæðri átt. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á heilsugæslu á Egilsstöðum minna slasaður. 12.10.2011 14:03
Ég hata þig ekki "Ég hata þig ekki. Ég vil miklu frekar elska þig.“ sagði Sigurður Guðmundsson, 88 ára, við þýska kafbátahermanninn Horst Koske þegar þeir hittust í sýningarskála Íslands á bókamessunni í Frankfurt í dag. Koske, sem er 84 ára, er eini eftirlifandi meðlimur áhafnar þýska U300 kafbáts nasista sem skaut á og sökkti Goðafossi út af Garðskaga hinn 10. nóvember 1944. Sigurður er einn af þeim fjórum úr áhöfn Goðafoss sem enn er á lífi. 12.10.2011 13:05
Brotist inn á flatbökustað Brotist var inn í Flatbökugerð Friðborgar á Þorlákshöfn aðfaranótt mánudags síðastliðins. Þaðan var stolið öllum bjór sem var í kössum, en bjórinn sem var í kæli var skilinn eftir. Þá var skiptimynt tekin úr sjóðsvél og 50" flatskjár var einnig tekinn. Innbrotsþjófarnir hafa ekki verið teknir, samkvæmt upplýsingum Vísis. 12.10.2011 13:03
Nubo fær enga forgangsmeðferð hjá Ögmundi Innanríkisráðherra segir það ekki óeðlilegt að ráðuneytið hafi beðið í fimm vikur með að óska eftir frekar upplýsingum um kínverska fjárfestinn Huang Nubo. Önnur mikilvægari verkefni hafi verið í forgangi í ráðuneytinu. 12.10.2011 12:23
1200 milljóna sparnaður vegna breytinga á fæðingarorlofi Gert er ráð fyrir að framlög ríkisins í Fæðingarorlofssjóð vegna fæðingarorlofs foreldra á vinnumarkaði verði rúmum 1200 milljónum krónum lægri en gert var ráð fyrir í fjárlögum fyrir árið. 12.10.2011 11:56
Banaslys á Fagradal Banaslys varð á níunda tímanum í morgun á Fagradal skammt ofan við Grænafell þegar vörubifreið og fólksbifreið, sem voru að koma úr gagnstæðum áttum skullu saman. 12.10.2011 11:47
Bæjarstjórnin segir ólíðandi að OR framkalli jarðskjálfta Bæjarstjórn tekur undir áhyggjur íbúa vegna síendurtekinna jarðskjálftahrina sem orsakast af niðurdælingu affallsvatns frá Hellisheiðarvirkjun. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 um helgina og í gær ályktaði bæjarstjórnin að það væri með öllu ólíðandi að framkallaðir séu jarðskjálftar af mannavöldum, allt að 3,5 á Richter skala, með fyrrgreindum áhrifum á nærumhverfið. 12.10.2011 11:37
Fangaverðir mótmæla einsmanns vöktum Norrænir fangaverðir gagnrýna harðlega þann hátt sem víða er hafður á í fangelsum á Norðurlöndum að hafa fangaverði eina á vakt. Samtök Norrænna fangavarða halda í dag ráðstefnu í Stokkhólmi og þar voru þessi mál rædd en málið hefur komist í hámæli eftir að kvenfangavörður í Svíþjóð var barin til dauða af fanga. Konan, sem var 25 ára gömul, var alein á vaktinni þegar árásin átti sér stað. 12.10.2011 11:29
Réttargeðdeildinni að Sogni lokað Réttargeðdeildinni að Sogni verður lokað og starfsemi hennar færð á Kleppspítala í Reykjavík. Starfsmönnum var tilkynnt þetta í morgun. 12.10.2011 11:27
Margeir Pétursson sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Margeir Pétursson ehf,, eignarhaldsfélag Margeirs Péturssonar athafnamanns, af kröfu Arion banka um að félagið skyldi greiða bankanum 60 milljónir króna vegna yfirdráttarheimildar sem tekin var hjá Búnaðarbankanum, sem nú heitir Arion, árið 1995. Jafnframt var Margeir sjálfur sýknaður af kröfu um að hann skyldi greiða 50 milljónir króna vegna sjálfsskuldaábyrgð í tengslum við lánin. 12.10.2011 11:12
Búið að opna í Fagradal Vegurinn um Fagradal hefur verið opnaður fyrir umferð en þar varð í morgun alvarlegt umferðarslys þegar fólksbíll og vörubíll skullu saman. Í tilkynningu frá lögerglu segir að nokkrar tafi geti orðið á umferðinni enn um sinn þar sem lögregla er enn við vinnu á staðnum. Nánar verður greint frá tildrögum slyssins síðar. 12.10.2011 11:09
Vilhjálmur hársnyrtir látinn Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, hársnyrtir, er látinn 58 ára að aldri. Vilhjálmur fæddist í Reykjavík 6. janúar 1953. Foreldrar hans voru Valgerður Oddný Ágústsdóttir og Vilhjálmur Pálsson. 12.10.2011 10:45
Fólksbíll og vörubíll rákust saman Vegurinn um Fagradal er enn lokaður vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð á veginum á níunda tímanum í morgun. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíll og vörubíll sem voru að koma úr gagnstæðri átt rákust saman. Mjög mikil hálka var á veginum þar sem slysið varð en ekki snjór. Lögregla og viðbragðsaðilar eru enn á vettvangi og ekki hafa fengist upplýsingar um hve margir voru í bílunum eða hve margir eu slasaðir. 12.10.2011 10:17