Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ók á brugghús undir áhrifum fíkniefna Karlmaður ók á brugghús Víkings á Akureyri seint í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri var maðurinn að taka fram úr annarri bifreið þegar hann missti stjórn á bílnum. 21.9.2011 14:24
Kristni í lagi meðan fólk fer ekki í kirkju "Staðreyndin er sú að málflutningur á borð við þann sem Friðrik stendur fyrir veldur því að samkynhneigð ungmenni jafnt á Íslandi sem um heim allan líða miklar kvalir og í versta falli fremja sjálfsmorð því einhver prestur segir þeim að tilfinningarnar sem þau eru að upplifa séu ekki Guði þóknanlegar. Það eru þung og erfið skilaboð fyrir óharðnaða unglinga,“ skrifar Guðmundur Helgason, formaður samtaka 78´, og svarar grein sem Friðrik Schram, prestur Kristskirkjunnar í Reykjavík, ritað og birti í Fréttablaðinu og á Vísi í gær. 21.9.2011 13:45
Veiða ólöglega og vonast til að lenda fyrir dómi Tugum smábáta verður siglt á næstu vikum og munu þeir veiða án kvóta í mótmælaskyni. Formælandi sjómannana segist vonast til þess að bátarnir verði sviptir veiðileyfi sínu svo hægt sé að höfða mál til að breyta framkvæmd laga um stjórn fiskveiða. 21.9.2011 12:24
Kannast þú við tölurnar 2-9-16-17-38-42? "Við höfum áhyggjur af því að sá sem vann hafi hent miðanum sínum og því hvet ég alla til að skoða miðana sína," segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar Getspá. 21.9.2011 11:03
Ísland vinsælt í hinsegin ritum Öll helstu alþjóðlegu tímarit samkynhneigðra beina sjónum að Íslandi um þessar mundir. Landinu er lýst sem ákjósanlegum áfangastað fyrir hinsegin fólk og athygli vakin á náttúru og fjölbreyttri afþreyingu. 21.9.2011 11:00
Jón Ásgeir búinn að stefna Birni og vill um miljón í miskabætur Birni Bjarnasyni hefur verið afhent stefna vegna meintra meiðyrða í garð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem birtust í bók Björns, Rosabaugur. 21.9.2011 10:59
Gröfumaður lokaði óvart metan-afgreiðslustöðum Gröfumaður sleit í sundur raflögn í gærdag sem varð til þess að viðskiptavinir bensínstöðvarinnar gátu ekki dælt metan eldsneyti á bíla sína. Í kjölfarið þurfti fyrirtækið að leggjast í lagfæringar til þess að opna metanstöðvarnar á ný. 21.9.2011 10:02
Umferðarljós tengd - en sjóndaprir ökumenn óku full hratt Betur gekk en áætlað var að endurnýja og tengja umferðarljós á gatnamótum Stekkjarbakka, Skógarsels og Breiðholtsbrautar, en þeirri vinnu lauk í gærkvöldi samkvæmt tilkynningu frá borginni. 21.9.2011 09:38
Reyndu að flýja undan lögreglunni - óku á 130 kílómetra hraða Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti tveimur mönnum eftirför í nótt. Komið var að mönnunum þar sem þeir voru að reyna að brjótast inn í fjölbýlishú í Breiðholti um klukkan þrjú. Mennirnir forðuðu sér á bíl og elti lögreglan. 21.9.2011 07:05
Gögnum um þrotabú safnað ESA, eftirlitsstofnun EFTA, féllst á þá röksemd íslenskra stjórnvalda að bíða eftir gögnum, sem varða þrotabú Landsbankans, áður en ákvörðun yrði tekin í Icesave-málinu. 21.9.2011 07:00
Hrefnuveiðiskip verði útilokuð frá Faxaflóa „Það er ekki hlustað á okkur og hrefnuveiðarnar í Faxaflóa stöðvaðar þó að við séum grenjandi af áhyggjum,“ segir Vignir Sigursveinsson, forsvarsmaður hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar í Reykjavík. 21.9.2011 06:00
Strandveiðimenn læri rétta meðferð á afla „Við skynjuðum það á bryggjunni þegar við vorum að gera þessar mælingar að vilji er til að gera rétt, en oft skortir þekkinguna. Menn átta sig kannski ekki á því en margir hafa gott af smá kennslu í réttri aflameðferð og örverufræði,“ segir Jónas R. Viðarsson, fagstjóri Matís. 21.9.2011 04:00
Kvótalaus skip lönduðu í gær Nokkrir smábátar útgerða sem eru í Samtökum íslenskra fiskimanna héldu til veiða í gær þrátt yfir að hafa ekki útgefnar aflaheimildir. Meðal annars var róið frá Hólmavík, Kópavogi og Sandgerði. Fulltrúar Fiskistofu fylgdust með þegar afla úr einum bátanna var landað í Kópavogi. 21.9.2011 04:00
Rafrænt eftirlit talið spara 10 til 15 pláss Gera má ráð fyrir að um tíu til fimmtán fangelsisrými sparist á ári hverju með rýmkun samfélagsþjónustu og upptöku rafræns eftirlits með föngum í afplánun. Þetta segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar. 21.9.2011 03:30
Ísland vinsælt í hinsegin ritum Helstu alþjóðlegu tímarit samkynhneigðra beina nú sjónum að Íslandi. Landinu er lýst sem ákjósanlegum áfangastað meðal annars sökum þess hversu langt á veg réttindabaráttan er komin og höfuðborgin og náttúran hafin upp til skýjanna. 21.9.2011 05:00
Óvíst hverjir bjóða sig fram fyrir Besta flokkinn Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Besta flokksins, hefur fyrir hönd flokksins unnið að stofnun nýs framboðs til Alþingis með Guðmundi Steingrímssyni þingmanni. Hún segir ekki liggja fyrir nein nöfn á fólki sem mun bjóða sig fram fyrir hönd flokksins. 20.9.2011 22:25
Guðmundur Steingrímsson og Besti flokkurinn undirbúa þingframboð Guðmundur Steingrímsson og Besti flokkurinn ætla að bjóða fram saman í næstu þingkosningum. Guðmundur Steingrímsson staðfesti þetta í samtali við RÚV í kvöld. Hann segir að menn hafi verið að hittast að undanförnu og tala saman. 20.9.2011 22:06
Vísað af veitingastöðum fyrir að gefa brjóst Viðhorf gagnvart brjóstagjöf á almannafæri hér á landi virðist hafa versnað síðustu ár segir einn skipuleggjandi brjóstagjafarviku. Dæmi eru um að konum hafi verið vísað út af veitingastöðum fyrir það eitt að gefa brjóst. 20.9.2011 21:08
Samkynhneigðir bjóða Friðriki í heimsókn Prestur íslensku krists-kirkjunnar í Reykjavík segir kynlíf einstaklinga af sama kyni vera rangt. Formaður Samtakanna 78 segir prestinn breiða út fordóma og skorar á hann að kíkja í heimsókn og fræðast. 20.9.2011 20:54
Vilja ekki fjölga borgarfulltrúum Sjálfstæðismenn í borgarstjórn telja óþarft að fjölga borgarfulltrúum líkt og gert er ráð fyrir í lagafrumvarpi sem samþykkt voru á Alþingi þann 17. september. Borgarfulltrúar sjálfstæðisflokksins óskuðu í dag eftir sérstakri umræðu um frumvarpið. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að borgarfulltrúum verði fjölgað úr 15 í 23-31. 20.9.2011 20:26
Synti með selunum í Húsdýragarðinum Selirnir í Húsdýragarðinum fengu óvænta heimsókn í dag þegar róðrarkappinn Fiann Paul gerði sér lítið fyrir og fékk sér sundsprett í tjörninni þeirra. Uppátækinu var meðal annars ætlað að undirbúa hann fyrir samveru með mun hættulegri dýrum. 20.9.2011 19:09
Vilja Torfajökulssvæðið á minjaskrá UNESCO Torfajökulssvæðinu verður bætt á yfirlitsskrá Íslands með tilnefningu til heimsminjaskrár UNESCO í huga, samkvæmt tillögu sem samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í morgun. 20.9.2011 18:03
Þjóðskrá fær alþjóðlega viðurkenningu Alþjóðasamtök sérfræðinga á sviði fasteignamats (The International Association of Assessing Officers - IAAO) veittu Þjóðskrá Íslands í dag æðstu viðurkenningu sína fyrir aðferðir og tæknilega vinnu við nýtt fasteignamat á Íslandi. Þetta var tilkynnt á ársþingi samtakanna, sem stendur yfir í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum. Þjóðskrá deildi viðurkenningunni með matsstofnun í Seattle í Bandaríkjunum. 20.9.2011 16:59
Álfheiður og Siv kjörnar formenn í Norðulandaráði Álfheiður Ingadóttir og Siv Friðleifsdóttir voru í dag kjörnar formenn í norrænum flokkahópum sínum í Norðurlandaráði í Osló. 20.9.2011 16:40
Karlmaður um sjötugt stunginn í miðborginni Karl um sjötugt var stunginn með hnífi í húsi miðborginni síðdegis í gær. Árásarmaðurinn, sem er nokkru yngri, var handtekinn af lögreglunni á staðnum og vísaði sá á hnífinn, sem var haldlagður. Sá sem var stunginn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en meiðsli hans voru ekki talin ekki alvarleg. 20.9.2011 16:36
Skákeinvígi aldarinnar fagnað í Reykjavík Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag með öllum greiddum atkvæðum tillögu að þess verði minnst á næsta ári að þá verða fjörutíu ár liðin frá heimsmeistaraeinvíginu í skák milli Bobby Ficher og Boris Spassky, sem hefur verið nefnt mesta skákeinvígi síðustu aldar. Einvígið fór fram 1. júlí til 3. september 1972 í Reykjavík. Samþykkt var að efnt verði til sérstakrar afmælisdagskrár og sýningarhalds af þessu tilefni. Í greinargerð tillögunnar segir a það sé vel við hæfi að halda minningunni á lofti og stuðla að því að það geti orðið íþróttinni hérlendis lyftistöng. 20.9.2011 16:27
Gert að greiða ríkisstarfsmanni milljónir vegna starfslokasamnings Íslenska ríkinu er gert að greiða fyrrverandi varðstjóra öryggisdeildar á Keflavíkurflugvelli 2,6 milljónir króna samkvæmt starfslokasamningi sem varðstjórinn gerði við þáverandi stjórnanda öryggisdeildarinnar árið 2008. 20.9.2011 16:13
Rauf skilorð Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa í júlí á síðasta ári haft í vörslum sínum þrjátíu og sjö kannabisplöntur. Maðurinn var í febrúar 2009 dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir hótanir, brot gegn valdstjórninni og vopnalagabrot. Hann rauf því skilorð og verður því skilorðsdómurinn tekinn upp. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómara. 20.9.2011 15:55
Sigmundur Ernir vill ekki styrkja Kristskirkju: „Heyr á endemi“ Þingmaður Samfylkingarinnar, Sigmundur Ernir Rúnarsson, telur það vera rétta ákvörðun hjá Reykjavíkurborg að styrkja ekki Kristskirkjuna í Reykjavík, vegna viðhorfa söfnuðarins til samkynhneigðar. 20.9.2011 15:21
Við höfum aldrei verið veikari - samkvæmt Gallup Mikið var um að fólk fyndi fyrir veikindum á Íslandi í síðustu viku samkvæmt samfélagsmælingum Capacent. 20.9.2011 14:01
Fundarmenn gengu á dyr á Patreksfirði Stærstur hluti þeirra tvö til þrjúhundruð manna sem mættu til fundar við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Patreksfirði í dag gengu á dyr þegar um hálftími var liðinn. Á fundinum var fjallað um þá ákvörðun Ögmundar að láta Vestfjarðarveg fara yfir tvo ása, fremur en í gegnum Teigsskóg. 20.9.2011 13:03
Um 75 prósent vilja þjóðaratkvæði Þrír af hverjum fjórum vilja að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarp Stjórnlagaráðs til stjórnarskrár og flestir vilja að þjóðaratkvæðagreiðslan verði látin ráða úrslitum um afgreiðslu frumvarpsins. Þetta er niðurstaða könnunnar MMR. 20.9.2011 10:47
Friðrik Schram: Þeir sem eru á móti samkynhneigð mæta fordómum Friðrik Schram, prestur Kristskirkjunnar í Reykjavík, segist vera hafður fyrir rangri sök þegar honum voru gefnar upp þær skoðanir að honum þætti samkynhneigð synd og glæpsamleg. 20.9.2011 10:44
Sást þú mótórhjól keyra aftan á rauðan gamlan bíl? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á Hjallabraut í Hafnarfirði, þriðjudaginn 13. september síðastliðinn. Óhappið varð til móts við innkeyrslu að húsum 7 til 25. 20.9.2011 10:35
Dópuð móðir með barnið í bílnum Kona um þrítugt var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gær en hún var undir áhrifum fíkniefna. Með henni í för var barnið hennar og gerði lögregla viðeigandi ráðstafanir og upplýstu barnaverndaryfirvöld um málið. Móðirin var handtekin og flutt á lögreglustöð. 20.9.2011 10:21
Hasar á Akranesi: Aðkomumaður með barefli Lögreglan var kölluð til í fyrirtæki á Akranesi í síðustu viku eftir að maður kom þangað til að innheimta skuld fyrir þriðja aðila. Svo virðist sem maðurinn hafi talið að fjórði maðurinn ætti vöru inni hjá fyrirtækinu sem hann hafði með einhverjum hætti afsalað til þess sem innheimta átti fyrir. 20.9.2011 10:08
Ekki stætt á að láta pólitík ráða för í Grímsstaðamálinu Innanríkisráðherra er ekki stætt á því að láta pólitík ráða ferðinni þegar hann tekur ákvarðanir um það hvort veitt yrði leyfi til að víkja frá skilyrðum um íslenskan ríkisborgararétt eða lögheimili hér á landi við kaup á fasteign. Hann verður að láta lögfræðileg sjónarmið ráða för. 20.9.2011 09:52
Lögreglumenn: Lítilsvirðandi framkoma ríkisvaldsins Lögreglumenn á Suðurlandi mótmæla harðlega því sem þeir kalla lítilsvirðandi framkomu ríkisvaldsins í garð lögreglumanna. Á félagsfundi sem haldinn var í gær er bent á þá staðreynd að lögreglumenn hafi nú verið samningslausir í tæpa 300 daga. Á fundinum var gerð sú krafa að laun lögreglumanna verði tafarlaust leiðrétt í samræmi við kröfur samninganefndar Landssambands Lögreglumanna. 20.9.2011 09:50
Skora á Össur að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki Félagið Ísland-Palestína skorar á Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra að lýsa þegar í stað yfir viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi Palestínu. Palestínumenn áforma að sækja um fulla aðild að Sameinuðu þjóðunum í New York á föstudaginn kemur en félagið segir enga ástæðu til að bíða eftir því, enda alls óvíst hvort eða hvernig málið verði flutt þar. 20.9.2011 08:50
Hvað ef Lakagígar myndu gjósa í dag? Vísindamenn við háskólann í Leeds hafa reiknað út áhrifin af eldgosinu í Lakagígum árið 1783 ef sambærilegar hamfarir myndu skella á í dag. Vísindamennirnir, með loftslagsfræðinginn Önnu Schmidt í broddi fylkingar bjuggu til tölvuforrit sem reiknar út áhrifin af því ef brennisteinsský líkt og það sem kom upp úr Laka myndi leggjast yfir Evrópu nútímans. 20.9.2011 07:06
Óþverralegt athæfi sem verður rannsakað „Þetta er óþverralegt athæfi og lögreglan mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að upplýsa það,“ segir Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, um níðingsverk sem unnin hafa verið á hryssum í Kjós. Lögreglan mun kalla eftir gögnum frá dýralækni í kjölfar athæfisins. Þá hafa lögreglumenn verið í sambandi við eigendur hryssanna til frekari upplýsingaöflunar. Unnið er að því að reyna að áætla hvenær atvikin áttu sér stað og hverjir voru að verki. 20.9.2011 06:30
Landið þolir hesta verr en fjórhjól Hestar eru ekki lengur notaðir við leitir og smölun í Skaftárhreppi. „Menn voru sammála um að fara ekki með hesta á fjall, meðal annars vegna þess að við höfum ekki lengur hesthús við afréttarkofann. Slíkt þótti ekki gott áður fyrr og ekki heldur í dag. Auk þess erum við búin að taka tæknina í þjónustu okkar,“ segir Gísli Halldór Magnússon, fjallkóngur til 25 ára og bóndi að Ytri-Ásum í Skaftárhreppi, um þá hefð sem skapast hefur við smölunina. Hann segir fjórhjól hafa verið notuð með hestum til smölunar í aldarfjórðung. „Undanfarin þrjú til fjögur ár höfum við þó eingöngu verið á fjórhjólum.“ 20.9.2011 06:00
Segja alla geta notið góðs af aðild Íslands Tveir fulltrúar í sendinefnd Evrópuþingsins sem kom hingað til lands á dögunum rituðu greinar á vef Public Service Europe skömmu eftir heimsókn sína þar sem þeir hvetja Íslendinga til að kynna sér kosti aðildar að Evrópusambandinu (ESB) og telja að það geti orðið bæði sambandinu og Íslandi til góðs. 20.9.2011 05:00
Svínakjöt hækkaði í verði um 42 prósent „Það er staðreynd að viðvarandi kjötskortur er að hafa áhrif á verðlagið,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. „Þær aðgerðir stjórnvalda sem koma í veg fyrir innflutning birtast nú í því.“ 20.9.2011 04:00
Stálbrú frá 1899 fær andlitslyftingu "Það kemur eitt og eitt svona verkefni þar sem verið er að halda við minjum áður en þær fara í vaskinn,“ segir Guðmundur Sigurðsson brúarsmiður, sem nú annast endursmíði nítjándu aldar stálbrúar í Borgarfirði. 20.9.2011 04:00