Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Með öllu óboðlegt að aldraðir fari í bað einu sinni í viku ViVe - samtök um virkari velferð segja með öllu óboðlegt að aldraðir á stofnununum séu baðaðir einu sinni í viku eins og greint var frá í Fréttablaðinu í dag. Samtökin lýsa sig reiðubúin að hefja starf með hagsmunaaðilum, stjórnvöldum og öðrum að undirbúningi þess að koma á fót notendastýrðri persónulegri þjónustu við aldraða sem koma megi að miklu leyti í stað þeirrar stofnanavistar sem öldruðum stendur til boða nú. Samtökin segja nóg komið af mannréttindabrotum á öldruðu fólki. 15.2.2011 14:39
Lög Jóhanns G. gætu verið spiluð áfram á Bylgjunni Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur bannað Bylgjunni að spila lögin sín. Hann er ósáttur við tónlistarstefnu stöðvarinnar. Framkvæmdastjóri dagskrársviðs er undrandi á þessu útspili tónlistarmannsins. 15.2.2011 14:30
Telja FME geta verið utan Reykjavíkur „Það er erfitt að finna rök fyrir því að Fjármálaeftirlitinu séu takmörk sett í starfsemi sinni þótt staðsetning þess sé utan tiltekinna póstnúmera í Reykjavík,“ segir bæjarráð Kópavogs, sem lýsti fyrir helgi furðu sinni á auglýsingu eftir húsnæði fyrir Fjármálaeftirlitið. 15.2.2011 14:15
Mörður biður Vigdísi afsökunar á „harðneskjulegri fundarstjórn“ Mörður Árnason, formaður umhverfisnefndar Alþingis, hefur beðið Vigdísi Hauksdóttur, þingmann Framsóknarflokksins sem með honum í umhverfisnefnd, afsökunar. Mörður óskaði eftir orðinu á þingfundi fyrir stundu þar sem hann sagðist vilja ræða um fregnir morgunsins þar sem Vigdís sagðist óska þess að víkja sæti í umhverfisnefnd þar sem hún gæti ekki starfað með Merði. „Ég hef beðið hana afsökunar á harðneskjulegri fundarstjórn í morgun," sagði Mörður í pontu. Hann vildi þó taka fram að hann telur orð Vigdísar um að hann geri upp á milli nefndarmanna vera vanhugsuð, en hún sagði Mörð koma misjafnlega fram við fulltrúa eftir því hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu. Þá sagðist Mörður vonast til að atvik af þessu tagi raski ekki starfi þingsins og vonar að Vigdís endurskoði ákvörðun sína um að víkja úr umhverfisnefnd. 15.2.2011 14:11
Um 12% nauðgunarmála enda með dómi Alls voru 368 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu árið 2008. Þar af voru 68 nauðganir og 33 misneytingar. Flest atvikin, eða 71%, áttu sér stað árið sem brotið var tilkynnt, en 13% árið 2007 og 16% á árunum 1971-2006. 15.2.2011 13:53
Bæjarábyrgð fyrir verktaka ólögleg segir í lögfræðiáliti Mosfellsbær braut sveitarstjórnarlög með því að taka við víxlum sem greiðslu fyrir skuld verktaka og með því að gangast í sjálfskuldarábyrgð fyrir verktakann. Þetta segir í lögfræðiáliti sem unnið var fyrir bæjarráð. Mosfellsbær gerði árið 2006 samstarfssamning við forvera Helgafellsbygginga ehf. um uppbyggingu í Helgafellslandi. Verktakinn átti að greiða bænum 700 þúsund krónur fyrir hverja byggða íbúð og átti að lágmarki að borga fyrir 1.020 íbúðir. Heildargreiðslan átti því að verða minnst 714 milljóir króna. 15.2.2011 13:45
Menntamálaráðherra skrifar fræðigrein um Arnald Indriðason Fræðigrein eftir Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra um bækur Arnaldar Indriðasonar birtist í bókinni European Crime Fictions: Scandinavian Crime Fiction sem kom út rétt fyrir síðustu mánaðamót. Katrín segist bíða spennt eftir að sjá verkið, þegar Vísir innti hana eftir viðbrögðum við ritinu. Það sé mjög hátíðlegt að sjá fræðigrein eftir sjálfa sig. 15.2.2011 13:39
Hvattir til að sækja leikskólabörnin fyrr í dag Foreldrar leikskólabarna eru hvattir til að mæta á samstöðufund við Ráðhús Reykjavíkur í dag klukkan fjögur tl að sýna samstöðu gegn frekari niðurskurði í leikskólum borgarinnar. 15.2.2011 13:25
Björn Jörundur kynnir á Eddunni „Ég er að byrja að teikna þetta upp,“ segir tónlistarmaðurinn Björn Jörundur Friðbjörnsson. Björn verður kynnir á Edduverðlaunahátíðinni sem verður haldin í Íslensku óperunni á laugardaginn og í beinni útsendingu á Stöð 2. 15.2.2011 13:00
25 ára afmæli Frostaskjóls fagnað Um 500 manns fögnuðu þegr haldið var upp á 25 ára afmæli Frístundamiðstöðvarinnar Frostaskjóls í gær. Börn í þriðja og fjórða bekk í Vesturbæ voru með leik- og söngatriði og unglingar úr félagsmiðstöðinni Frosta voru með ýmis atriði. 15.2.2011 12:49
BÍ: „Leyndin þjónar hagsmunum þeirra sem hafa eitthvað að fela“ „Leyndin þjónar hagsmunum þeirra sem hafa eitthvað að fela. Svo einfalt er það. Stjórn Blaðamannafélags Íslands skorar á íslenskan almenning að standa vörð um tjáningarfrelsið í landinu og treystir því að íslenskir dómstólar standi vörð um rétt fjölmiðla til að fjalla um það sem fréttnæmt er í íslensku samfélagi." 15.2.2011 12:24
Yfirvinnubann raskaði flugumferð Röskun varð á fjórum áætlunarferðum Flugfélags Íslands vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra sem tók gildi klukkan átta í gærkvöldi. 15.2.2011 12:22
Já Ísland: Fimm Evrópusamtök sameina krafta sína Evrópusamtökin, Evrópuvakt Samfylkingarinnar, Sjálfstæðir Evrópumenn, Sterkara ÍSland og Ungir Evrópusinnar hafa ákveðið að sameina krafta sína undir merkinu JÁ Ísland. Markmiðið er að efla vandaða og yfirvegaða umræðu um Evrópusambandið og aðild Íslands að því. 15.2.2011 12:18
Loðnuskip enn á veiðum Nokkur loðnuskip stunda loðnuveiðar enn af fullum krafti þrátt fyrir boðað verkfall í loðnuverksmiðjum í kvöld, í von um að losna við aflann í þær tvær verksmiðjur, sem verkfallið nær ekki til. Það eru Loðnuskip Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, Samherja á Akureyri og Sídlarvinnslunnar í Neskaupstað sem halda veiðunum ótrauð áfram, en önnnur skip eru hætt. 15.2.2011 12:16
Icesave á endaspretti í þinginu Þriðja umræða á Alþingi um Icesave frumvarpið hefst í dag. Gert er ráð fyrir því að atkvæði verði greidd um málið fyrir helgi. Átján þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun til forseta Íslands um að vísa málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. 15.2.2011 12:09
Ökumenn ekki nógu sleipir á svellinu Allnokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær og fram eftir kvöldi. Flest þeirra má rekja til hálku sem myndaðist í umdæminu, ekki síst í úthverfum. Eftir því sem næst verður komist voru meiðsli á fólki minniháttar en eignatjón talsvert í einhverjum tilvikum. Þótt veðurútlitið sé nú ágætt eru ökumenn hvattir til að aka varlega enda getur hálkan verið lúmsk 15.2.2011 12:05
Vigdís segir sig úr umhverfisnefnd - getur ekki unnið með Merði Vigdís Hauksdóttir þingkona Framsóknarflokksins og fulltrúi í umhverfisnefnd hefur óskað eftir lausn frá störfum í nefndinni. Ástæðuna segir hún vera samstarfsörðugleikar við formann nefndarinnar, Mörð Árnason, Samfylkingunni. 15.2.2011 11:58
Bæta 200 milljónum við rekstur grunnskóla Til stendur að auka fjárheimildir til rekstur grunnskóla í Reykjavík um allt að 200 milljónir króna frá því sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir þetta ár. Tillaga þessa efnis verður lögð fram í 15.2.2011 11:58
Nær að hafa áhyggjur af fjármögnun Búðarhálsvirkjunar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir fjármögnun Búðarhálsvirkjunar nærtækara áhyggjuefni en virkjanir í neðri Þjórsá. Stjórnarandstöðuþingmaður spyr hvort umhverfisráðherra hafi sama hlutverk og landsliðsmarkmaðurinn í auglýsingunni; að vera fyrir. 15.2.2011 11:52
Bæjarsjóður greiddi fyrir kosningaáróður Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogsbæjar og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir það alvarlegt mál ef fulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur viljandi látið bæjarsjóð greiða fyrir kynningarefni í kosningabaráttunni árið 2006. „Ég þvertek ekki fyrir að reikningurinn hafi óvart farið þangað. Það er þá mjög óheppilegt,“ segir Hafsteinn í samtali við Vísi. „En ef þetta er gert viljandi þá er það alvarlegt mál,“ segir hann. 15.2.2011 11:37
Tollverðir tóku stinningarlyf í Arnarfellinu Á miðvikudagin var fann tollgæslan tæplega 300 lítra af sterku áfengi, 140 karton af sígarettum, talsvert af bjór og um 500 skammta af stinningarlyfinu Kamagra um broð í gámaflutningaskipinu Arnarfelli sem var að koma frá Evrópu. 15.2.2011 10:48
Twitter mál Birgittu tekið fyrir í dag Dómari í Washington tekur í dag fyrir kröfu Birgittu Jónsdóttur þingmanns og tveggja annara stuðningsmanna Wikileaks síðunnar um að dómstólar endurskoði ákvörðun sína um að fyrirskipa Twitter-samskiptasíðunni að láta bandarískum stjórnvöldum í té upplýsingar af síðum Birgittu og félaga hennar. Lögfræðingar Birgittu segja að í tilfelli hennar vakni sérstök álitamál í ljósi þess að hún sé þingmaður á Íslandi sem noti samskiptasíðuna aðallega til þess að ræða íslensk mál. 15.2.2011 10:44
Fengu aðstoð við Meyjarsæti Björgunarsveit var kölluð út seint í gærkvöldi til að aðstoða ökumann og nokkra farþega, sem sátu fastir í Econoline bíl við Meyjarsæti á Uxahryggjaleið, norðan við Þingvelli. 15.2.2011 10:42
800 ábendingar bárust vegna sameininga skóla Um 800 ábendingar bárust frá foreldrum leikskóla- og grunnskólabarna, svo og starfsfólki leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila í borginni, vegna undirbúnings um sameiningu stofnana í lærdómsumhverfi reykvískra barna. Ábendingargátt um verkefnið var opnuð á heimasíðu Reykjavíkurborgar í byrjun desember og er liður í samráðsferli um þetta verkefni. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar. 15.2.2011 10:34
Gera lítið án lagaheimildar Líklega þarf að breyta lögum til að netöryggishópur Póst- og fjarskiptastofnunar sem stofnaður verður á árinu geti sinnt hlutverki sínu. Þetta kom fram í erindi Þorleifs Jónssonar, forstöðumanns tæknideildar Póst- og fjarskiptastofnunar á ráðstefnu um netöryggi í síðustu viku. 15.2.2011 10:30
Fundu kókaín-kafbát í Kólómbíu Kólombíski flotinn fann kafbát á dögunum sem talið er að hafi verið notaður til þess að smygla eiturlyfjum til Mexíkó. 15.2.2011 10:16
Eitt mesta fæðingaár Íslandssögunnar Árið í fyrra var þriðja mesta fæðingaár Íslandssögunnar. Þá fæddust 4.907 börn á Íslandi. Þar af voru 2.523 drengir og 2.384 stúlkur, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Einungis tvisvar áður hafa fleiri börn komið í heiminn á einu ári. Það var árin 2009 og 1960. Árið 2009 fæddust 5.026 börn og 4.916 árið 1960. 15.2.2011 10:01
Hvatti Sigurjón til að senda lagið inn „Ég hafði alltaf trú á þessu lagi, alveg frá því að Sigurjón tók það upp. En svo er þessi keppni svo hverful að maður veit aldrei. Keppendurnir í ár voru náttúrlega frábærir, keppnin því mjög tvísýn og eiginlega ekkert öruggt,“ segir Þórunn Erna Clausen. 15.2.2011 10:00
Vilja hefja upp Evrópuumræðuna Stofnfundur nýrra samtaka sem vilja hvetja til „málefnalegrar og upplýstrar umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu“ verður haldinn í dag í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. 15.2.2011 09:15
Eldri borgarar aðeins í bað einu sinni í viku Á Hrafnistu, stærsta hjúkrunarheimili landsins, annar fámennt starfslið því ekki að baða íbúa nema einu sinni í viku. Þegar verst lét þurftu íbúar að bíða í hálfan mánuð eftir því að komast í bað. 15.2.2011 09:00
Allt stefnir í verkfall í kvöld Fátt virðist geta komið í veg fyrir að verkfall starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum hefjist í kvöld. Samninganefndir bræðslumanna og Samtaka atvinnulífsins fundu ekki lausn á kjaradeilunni á samningafundi hjá Ríkissáttasemjara í gær. 15.2.2011 07:00
Lögreglan fann átta kíló af marijúana Lögreglan lagði hald á átta kíló af marijúana í geymsluhúsnæði í Kópavogi í síðustu viku. Sex kíló fundust við húsleit á staðnum og tvö til viðbótar í fórum manns sem gekk þar í flasið á lögreglunni. 15.2.2011 04:00
Svandís finnur „magnaðan stuðning“ Hart hefur verið sótt að Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, undanfarna daga eftir að hún tapaði fyrir Hæstarétti máli sem snerist um staðfestingu á aðalskipulagi Flóahrepps. Sjálf segist Svandís á samskiptasíðunni Facebook finna „magnaðan stuðning úr ólíklegustu áttum.“ 14.2.2011 23:00
Vilja stytta leiðina norður Sjö þingmenn þriggja stjórnmálaflokka vilja að hafinn verði undirbúningur að gerð nýs vegar sem myndi stytta vegleiðina milli höfuðborgarsvæðisins og Norðausturlands um allt að 14 kílómetra. Fjármögnun framkvæmda á að fara fram með töku veggjalda, en vegurinn myndi liggja um svonefnda Svínavatnsleið sem einnig hefur stundum verið kölluð Húnavallaleið. 14.2.2011 21:45
Eldur í blaðagámi við grunnskóla Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld eftir að tilkynnt var um eld í blaðagámi við Hraunvallaskóla í Vallahverfi í Hafnarfirði. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliði var ekki óttast að eldurinn myndi breiðast í skólabygginguna. Vel gekk að slökkva eldinn. 14.2.2011 22:17
Reykjavíkurborg efli þjónustuna „Ef borgaryfirvöld vilja nú á tímum mikilla breytinga í grunnskólum standa í raun vörð um nám og líðan barna ættu þau að efla náms- og starfsráðgjöf en alls ekki leggja til að dregið sé úr henni," segir í bréfi sem náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum Reykjavíkur hafa sent Jóni Gnarr, borgarstjóra, og öllum fulltrúum menntaráðs vegna hugmynda borgaryfirvalda um að skerða þjónustu ráðgjafanna. 14.2.2011 21:33
Þrisvar sinnum sterkara en stál og fíngert eins og silki Tækifæri gætu falist í að vinna efni til steypustyrkingar úr íslensku basalti. Þetta segja sérfræðingar við Háskólann í Reykjavík. Efnið sem þar er notað er þrisvar sinnum sterkara en stál en getur þó verið létt og fíngert eins og silki þegar það er ofið í mottu til að vefja utan um burðarbita og þegar það er steypt í steypustyrktarteina eru þeir léttir eins og veiðistangir. 14.2.2011 19:53
Sló heimsmet í kappróðri undir íslenskum fána Siglingakappinn og listamaðurinn Fiann Paul setti nýverið tvö heimsmet í kappróðri þegar hann reri undir íslenskum fána yfir Atlantshafið. 14.2.2011 19:45
Óttast um öryggi barna sinna vegna ofsaaksturs í Grindavík Tvær mæður við Austurveg í Grindavík óttast um öryggi barna sinna vegna hraðaksturs í götunni. Þær segja aðeins tímaspursmál hvenær alvarlegt slys muni eiga sér stað. 14.2.2011 19:45
Árekstrar á höfuðborgarsvæðinu - varað við hálku í hliðargötum Gríðarleg hálka er í hliðargötum á höfuðborgarsvæðinu en ekki er eins mikil hálka á aðalleiðum. Skýringin á því er að þær leiðir eru hálkuvarðar og því má reikna með því að ástandið versni þegar líður á kvöldið, að sögn Unnars Más Ástþórssonar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan biður vegfarendum um að fara varlega svo ekki verði slys. Haga þurfi akstri eftir aðstæðum. 14.2.2011 19:42
Vilja þingvíti á Steingrím fyrir mútubrigsl Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hafnaði kröfu á Alþingi í dag um að Svandís Svavarsdóttir segði af sér en kvaðst þvert á móti fagna því að loksins væri kominn umhverfisráðherra sem stæði vörð um náttúruna. Forystumenn stjórnarandstöðunnar kröfðust þess að Steingrímur yrði víttur fyrir að ýja að því að Landsvirkjun hefði mútað Flóahreppi. 14.2.2011 19:03
Varar foreldra við að taka ungbörn með sér á mannamót Barnalæknir biður foreldra ungbarna að bíða með að fara með þau á mannamót enda sé RS-vírusinn sem helst herjar á smábörn óvenju skæður í ár. Hann segir börnum oft gefið sýklalyf og astmalyf vegna vírusins en rannsóknir sýni að þau meðul virki mjög skammt eða alls ekki. 14.2.2011 18:43
Lögreglumenn fái auknar heimildir Níu þingmenn þriggja stjórnmálaflokka vilja að lögreglan fái auknar heimildir sem eru sambærilegar við þær heimildir sem lögregla í öðrum norrænum ríkjum hefur til að rannsaka og grípa til gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Um svokallaðar forvirkar rannsóknarheimildir er að ræða. 14.2.2011 17:39
Hreyfingin leggur fram tillögu um þjóðaratkvæði Fulltrúi Hreyfingarinnar í fjárlaganefnd hyggst leggja fram á fundi nefndarinnar síðar dag tillögu um að verði Icesavefrumvarpið samþykkt á Alþingi öðlist lögin ekki gildi fyrr en að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. „Þingmenn Hreyfingarinnar munu aldrei samþykkja að skuldir einkabanka verði ríkisvæddar líkt og fyrirliggjandi frumvarp um Icesave samninganna felur í sér,“ segir í tilkynningu frá þingmönnunum. 14.2.2011 17:13
Bílprófsaldur verði átján ár Ungmenni munu þurfa að ná átján ára aldri þegar þau fá bílpróf, verði nýtt frumvarp til innanríkisráðherra til umferðarlaga að lögum. Frumvarpinu var dreift á Alþingi í dag. 14.2.2011 16:17