Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líf nútímavæðir Kvennadeild Landspítalans Um 70% kvenna á Íslandi fæða börn sína á Kvennadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss. Líf, styrktarfélag Kvennadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss, stendur fyrir landssöfnun þann 4. mars á Stöð 2. Markmið söfnunarinnar er að nútímavæða deildina sem um langt árabil hefur liðið fyrir bágan húsa- og tækjakost. 14.2.2011 14:39
Sverrir Jakobsson hlaut 1,6 milljón króna styrk Sverrir Jakobsson, aðjunkt í sagnfræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr sjóði Selmu og Kays Langvads. Stjórn sjóðsins afhenti styrkinn á skrifstofu rektors, föstudaginn 4. febrúar. Styrkurinn er veittur til að efla samskipti og rannsóknasamstarf Háskóla Íslands við danskar stofnanir og háskóla. 14.2.2011 14:35
Sól á Suðurlandi krefst svara frá Flóahreppi „Sól á Suðurlandi fer fram á skýr og nákvæm svör frá sveitarstjóra Flóahrepps um hvaða framkvæmdir hafa tafist vegna synjunar umhverfisráðherra á skipulagi. Heimamenn í Flóa sjá ekki annað en að áætlaðar framkvæmdir séu í fullum gangi. Hvað Urriðafossvirkjun sjálfa varðar hefur hún ekki tafist vegna skipulagsmála, heldur fjölmargra annarra atriða, eignarnáms, stjórnsýslukæru vegna vatnsveitu og ekki síst fjárskorts Landsvirkjunar sem enn hefur ekki getað tryggt fjármögnun Búðarhálsvirkunar, þar sem öll leyfi liggja fyrir og enginn ágreiningur er um. “ Þetta kemur fram í tilkynningu sem Sól á Suðurlandi hafa sent frá sér. 14.2.2011 14:12
Hæstiréttur hafnar kröfu um endurupptöku Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Gísla Tryggvasonar, lögmanns og fyrrum frambjóðanda til stjórnlagaþings, um að taka aftur upp kæru vegna kosninganna til stjórnlagaþings. Gísli hefur móttekið bréf þessa efnis frá Hæstarétti. 14.2.2011 14:04
Verða að setja kirkju að veði fyrir gjöldum „Gera verður kröfu til þess að Söfnuður Moskvu-patríarkatsins lúti sömu lóðaskilmálum og allir aðrir,“ segir í umsögn sem borgarráð samþykkti og varðar lóðaleigu til rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. 14.2.2011 13:00
Fundu fíkniefni á Litla Hrauni Fíkniefni fundust hjá fanga á Litla Hrauni á föstudaginn. Um var að ræða efni í neysluskammti. Fanginn hafði fengið heimsókn frá gesti skömmu áður en fíkniefnin fundust. 14.2.2011 12:59
Fundu átta kíló af marijúana í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á rúmlega 6 kíló af marijúana í geymsluhúsnæði í Kópavogi í síðustu viku. 14.2.2011 12:27
Bannar Bylgjunni að spila tónlist sína Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur ákveðið að banna útvarpsstöðinni Bylgjunni að spila tónlist frá og með þriðjudeginum í næstu viku. Jóhann segir að höfundaréttur sé eignaréttur og því geti höfundur tekið ákvörðun um hvort hann leyfi afnot af verkum sínum eða ekki. 14.2.2011 12:17
Kynna undirskriftasöfnun gegn Icesave Fjórtán manns sem standa á bak við undirskriftarsöfnun gegn Icesave-samningunum kynntu málstað í Þjóðmenningarhúsini nú rétt fyrir hádegið. Söfnun undirskrifta fer fram á vefsíðunni Kjósum.is en þar hafa nú safnast á tólfta þúsund undirskrifta. 14.2.2011 11:43
Á þriðja hundrað ökumenn stöðvaðir í átaki Tvö hundruð og fimmtíu ökumenn voru stöðvaðir í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar um helgina. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og sex til viðbótar var gert að hætta akstri en þeir höfðu sömuleiðis neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum. Lögreglan segir jafnframt að ljósabúnaði allmargra ökutækja hafi verið áfátt en lögreglan hvetur ökumenn til að hafa hann alltaf í lagi. 14.2.2011 11:42
Fjórðungur kvenna á Skagaströnd í heilsuátaki Mikill fjöldi kvenna á Skagaströnd tekur nú þátt í sérstöku heilsuátaki sem þar stendur yfir. Ríflega fimm hundruð manns búa í sveitarfélaginu, þar af helmingurinn konur, en 63 konur taka þátt í heilsuátakinu. Yngsta konan er í kring um tvítugsaldurinn en sú elsta um sjötugt. Það er því fjórðungur þeirra kvenna sem býr á svæðinu sem mætir í þolfimi, jóga og zuma í því skyni að bæta heilsu og auka lífsgæði. 14.2.2011 11:24
Íbúar í Dölum mótmæla skertri löggæslu Fulltrúar íbúa í Dölunum afhentu Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra undirskriftalista með 14 hundruð nöfnum heimamanna á ellefta tímanum í morogun, þar sem þeir mótmæla skertri löggæslu í héraðinu. Nú stendur til að leggja niður eina stöðugildi lögreglumanns í Búðardal, en þá verða 80 kílómetarr i næstu lögreglu, sem er í Borgarnesi. Þessu mótmæla heimamenn með þessum hætti. 14.2.2011 11:07
Þörf á varanlegri lausnum Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, hefur staðið í ströngu síðustu vikur og mánuði þar sem hugmyndir meirihlutans um endurskipulagningu í skóla- og frístundamálum borgarinnar hafa mætt nokkurri mótstöðu í hópi starfsfólks skólanna og foreldra skólabarna. Meðal þess sem er gagnrýnt er upplýsingaflæði um þær hugmyndir sem eru í gangi, sem og hvernig megi standa vörð um að breytingarnar komi ekki niður á faglegu starfi. 14.2.2011 11:00
Dró sér fé úr Hraðkaupum Tæplega þrítugur karl hefur verið ákærður fyrir að draga sér fé í verslun 10-11, Hraðkaupum í Leifsstöð, þegar hann var þar starfandi. 14.2.2011 11:00
Innanríkisráðuneytið leiðréttir Saving Iceland Innanríkisráðuneytið segir að í nýbirtri skýrslu náttúruverndarsamtakanna Saving Iceland sé að finna ranga staðhæfingu um samskipti innanríkisráðherra og embættis ríkislögreglustjóra. 14.2.2011 10:39
Lýtaaðgerðum fjölgar en fegrunaraðgerðum fækkar Nær tvöfalt fleiri leituðu til lýtalækna hér á landi á árinu 2009 en árið 2006. Árið 2006 voru skráðar komur til lýtalækna 6.612 og árið 2009 voru þær orðnar 11.647. 14.2.2011 10:00
Hreindýr valda hættu - kort Hreindýr hafa valdið hættu á vegum undanfarið. Náttúrustofa Austurlands og Vegagerðin vilja því vara vegfarendur sérstaklega við þremur svæðum þar sem hættuástand hefur verið viðvarandi: Á Hárekssstaðaleið, á Fagradal og í Lóni. Mikilvægt er að vegfarendur geri sér grein fyrir að hreindýrin geta þvælst víðar um vegi Austurlands. Ástandið er verst þegar hálka er á vegum í myrkasta skammdeginu. Á vef Vegagerðarinnar er hægt að skoða kort þar sem sést betur hvar er búist við að hreindýr séu á ferli við vegi. Smellið hér til að skoða. http://www.na.is/index.php?option=com_content&view=article&id=253&Itemid=149 14.2.2011 09:19
Olíuleki: Hreinsun lauk á miðnætti Slökkviliðsmenn og starfsmenn Olíudreifingar luku hreinsunarstarfi við Olíubryggjuna í Örfyrisey í Reykjavík um miðnætti, en talið er að umþaðbil tvö þúsund lítar af svartolíu hafi lekið þar í sjóinn þegar verið var að dæla olíu um borð í togarann Eldborgu. 14.2.2011 09:19
Hálka og éljagangur - Færð á vegum Á Suðurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja nokkuð víða. Meðal annars er hálka og éljagangur á Hellisheiði og í Þrengslum. Flughált er austan við þjónustumiðstöðina á Þingvöllum og ofan við Flúðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni um færð og ástand vega. 14.2.2011 09:06
Óvenjurólegt hjá löggunni Óvenju rólegt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt og úköll teljandi á fingrum annarar handar, sem er afar fátítt, að sögn lögreglunnar. Fangageymslurnar eru líka tómar. Eina undantekningin var að ökumaður var tekinn úr umferð eftir akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis. 14.2.2011 08:36
Íslenskir togarar mokveiða við Noreg Fjórir íslenskir frystitogarar eru nú að mokveiða þorsk við Norður Noreg, samkvæmt samningum um gagnkvæmar fiskveiðiheimildir við Norðmenn. 14.2.2011 08:08
Enn stefnir í verkfall Allt virðist stefna í verkfall starfsmanna fiskimjölsverksmiðja eftir einn og hálfan sólarhring og komu síðustu skipin inn til löndunar í Eyjum í gærkvöldi. 14.2.2011 08:07
Átta sluppu vel í bílveltum Ökumaður og þrír farþegar sluppu nær ómeiddir þegar bíll valt í mikilli hálku út af Vesturlandsvegi norðan við Akrafjall í gærkvöldi og valt þrjár veltur. 14.2.2011 07:02
Skjálftahrina í Langjökli Enn er skjálftavirkni suðaustur af Húsafelli, eða suðvestur undir Langjökli. þar mældist skjálfti á bilinu 2 til 3 á Richter í nótt, en fjórir skjálftar á því styrkleikabili hafa mælst síðastliðnar 48 klukkustundir. Auk þess hafa mælst þar vægari skjálftar. Engar augljósrar skýringar eru á þessari hrynu, sem hófst fyrir helgi. 14.2.2011 07:01
Ráðuneyti skortir yfirsýn Tíð ráðherraskipti og stefnubreytingar valda því að innsæi og yfirsýn skortir varðandi þjónustu heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu starfsmanna Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. 14.2.2011 07:00
Stal öllu sem hönd á festi Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir fjölmarga þjófnaði, gripdeildir og fjársvik. 14.2.2011 06:00
Nemar spái í stjörnur Allir grunn- og framhaldsskólar á Austurlandi fengu nýverið afhenta stjörnusjónauka að gjöf. Að verkefninu komu Stjarnvísindafélag Íslands, Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og landsnefnd um ár stjörnufræðinnar 2009. 14.2.2011 06:00
Hafa slegið verulega af kröfum sínum „Við höfum reiknað með því að mennirnir muni ana út í þetta verkfall og valda starfsfélögum sínum, fyrirtækjum og samfélaginu stórkostlegu tjóni. Við höfum ekki fundið fyrir neinni ábyrgðartilfinningu hjá þeim,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um fyrirhugað verkfall um áttatíu bræðslumanna sem hefst á morgun. 14.2.2011 05:00
Var með fíkniefni innvortis Kona á þrítugsaldri hefur verið dæmd í fjögurra mánaða fangelsi fyrir smygl á rúmlega 145 grömmum af amfetamíni. 14.2.2011 05:00
Fá brot gegn börnum fara til lögreglu Árið 2006 bárust barnaverndaryfirvöldum 417 tilkynningar vegna gruns um ofbeldi gegn börnum. Af þeim voru 189 tilvik þar sem grunur lék á að ofbeldið væri af hendi foreldris eða annars umönnunaraðila. Um 156 börn er þar að ræða. Mál fimm þessara barna rötuðu inn á borð lögreglu. Kemur þetta fram í nýrri rannsókn Barnaverndarstofu (BVS). 14.2.2011 04:00
Alþingi með umboð þjóðarinnar Samþykki rúmur meirihluti Alþingis Icesave-samninginn eru skilaboðin skýr og hann síður lagður í þjóðaratkvæðagreiðslu. Eftir því sem dregur úr stuðningi á Alþingi aukast líkur á þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er mat Sigurðar Líndal lagaprófessors. 14.2.2011 03:15
Stjórn Frjálshyggjufélagsins kosin - formaður endurkjörinn Ný stjórn var kjörin á fjölsóttum aðalfundi Frjálshyggjufélagsins laugardaginn 12. febrúar 2011. Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og laganemi, var endurkjörinn formaður, en aðrir í stjórn eru Haraldur Pálsson hagfræðinemi, Vignir Már Lýðsson hagfræðinemi, Stefán Gunnar Sveinsson, doktorsnemi við LSE, Ásgeir Jóhannesson, heimspekingur og lögfræðingur, Valþór Druzin Halldórsson forritari og Björg Brynjarsdóttir viðskiptafræðinemi. 13.2.2011 17:57
Fjölmiðlum meinað að fylgjast með hreinsunaraðgerðum Einn slökkviliðsbíll og allnokkrir starfsmenn slökkviliðsins vinna að því að koma upp flotgirðingum í sjónum við Örfirisey, en á bilinu fimmhundruð til þrjúþúsund lítrar af svartolíu láku ofan í sjóinn úr skipinu um klukkan þrjú í dag. Ekki er ljóst með hvaða hætti slysið varð. 13.2.2011 16:22
Mengunarslys við Örfirisey Svartolía lak ofan í Reykjavíkurhöfn við Örfirisey fyrir um klukkustund síðan. Varðstjóri slökkviliðsins segir allt að þrjú þúsund lítra af olíu geta hafa lekið ofan í sjóinn, en ekki er vitað um nákvæmt magn. 13.2.2011 15:38
Ólafur Ragnar: Þurfum að treysta fólkinu í landinu „Stjórnskipunin er ekki þannig vaxin að forsetinn velti fyrir sér hvort hann eigi að vísa málum til þjóðaratkvðagreiðslu,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í fyrsta ítarlega viðtalinu sem hann gefur fjölmiðlum í þrettán mánuði. 13.2.2011 14:02
Tveir keppa á hundasleða-HM Tveir Íslendingar eru meðal keppenda á heimsmeistaramótinu í hundasleðaakstri sem fer fram um þessar mundir í Noregi. 13.2.2011 13:00
Svifrykið geislavirkt þrjá daga í röð Geislavirk efni mældust í svifryki á Höfuðborgarsvæðinu nýlega. Það voru mælitæki í loftsíum við eftirlitsstöðina við Veðurstofu Íslands sem mældu geislvirknina, þrjá daga í röð. 13.2.2011 12:08
Kærleikarnir haldnir hátíðlegir í dag Kærleikarnir, sem slá botninn í vetrarhátíð Reykjavíkurborgar, verða haldnir hátíðlegir í dag klukkan 17:30 á Austurvelli. 13.2.2011 10:35
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæði víða um land eru opin í dag eftir ofankomu undanfarinna daga. Í Hlíðarfjalli á Norðurlandi er opið frá klukkan tíu til fjögur síðdegis, en þar er tveggja gráðu hiti og logn. 13.2.2011 10:33
Íslendingur gerir það gott í snjóbrettakeppni í Þýskalandi Eyfirski snjóbrettakappinn Halldór Helgason hafnaði í þriðja sæti í alþjóðlegu snjóbrettakeppninni Nike air and style í Munchen í Þýskalandi í gær en keppnin er ein sú virtasta í Evrópu. 13.2.2011 10:06
Reyndi að brjótast inn á heimavist - fólkið heima og þekkti hann ekkert Einn karlmaður var handtekinn í nótt á Selfossi eftir að hann reyndi að brjótast inn á heimili námsmanna í bænum. Íbúarnir voru heima og hringdu á lögregluna sem kom á vettvang. 13.2.2011 10:01
Á sjötta þúsund gegn Icesave- Einn kærður fyrir kennitölufals Hátt í sex þúsund manns hafa skráð sig á vefinn kjósum.is þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er hvattur til þess að synja Icesavefrumvarpinu staðfestingar, verði það samþykkt á Alþingi, og vísa því þannig til þjóðaratkvæðagreiðslu. 13.2.2011 09:51
Gríðarlega mikið um sjúkraflutninga síðasta sólarhringinn Talsverður erill var hjá slökkviliðinu í sjúkraflutningum í nótt en alls voru þrjátíu færðir á spítala vegna veikinda eða minniháttar slysa að sögn varðstjóra slökkviliðsins. 13.2.2011 09:48
Lagið hans Sjonna sigraði í undankeppni Eurovision Lagið Aftur heim verður framlag Íslands í Eurovision keppninni sem fram fer í Dusseldorf í Þýskalandi í vor. Lagið er eftir Sigurjón Brink og textinn eftir Þórunni Clausen eiginkonu hans. Sjö lög tóku þátt í úrslitakeppninni sem fram fór í kvöld og varð lagið Ég trúi á betra líf í flutningi Magna Ásgeirssonar í öðru sæti. 12.2.2011 22:00
Kom illa út úr kvótaskerðingu Skipstjóra og tveimur stýrimönnum á ístogaranum Smáey VE 144, sem útgerðafélagið Bergur/Huginn í Vestmannaeyjum gerir út, hefur verið sagt upp störfum. Þeir eru allir með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Tólf til sextán eru í áhöfn Smáeyjar og hefur þeim sem eftir eru verið tilkynnt að frekari uppsagnir séu fyrirhugaðar. 12.2.2011 15:00