Fleiri
Óraunhæfir lífeyrissjóðir 10.12.2010 19:44 Umsvifamiklir kókaínsmyglarar gripnir Tveir karlar voru handteknir nú í vikunni í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innflutningi á kókaíni til landsins. Annar karlmaðurinn var handtekinn í gær en hinn í byrjun vikunnar, en þeir voru báðir teknir á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt lagði lögreglan hald á um 400 grömm af kókaíni sem reynt var senda til Íslands í tvennu lagi frá Suður-Ameríku. 10.12.2010 17:25 Meiri trú á viðskiptalífinu en stjórnmálaflokkum Um 53% Íslendinga telja spillingu hafa aukist á síðustu þremur árum, 32% telja hana hafa staðið í stað og að mati 15% hefur dregið úr spillingu. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Capacent gerði fyrir hönd Transparency International. 10.12.2010 16:47 Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla umhverfisgjaldi Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla harðlega útfærslu umhverfisgjalds í frumvarpi fjármálaráðherra um farþega- og gistináttagjald sem lagt hefur verið fram. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að fyrirtæki í ferðaþjónustu þoli illa auknar álögur og að þarna sé verið að leggja til flókið og illframkvæmanlegt kerfi sem leggur of þungar byrðar á fyrirtækin. 10.12.2010 16:37 Hollendingar áhugasamir um Icesave og greiðslugetu Íslendinga Hollendingar sýna Icesave málinu mikinn áhuga sem eðlilegt er enda virðist sem Hollendingar fái loks greitt frá Íslendingum vegna Icesave eftir langdregnar viðræður. Sigríður Mogensen fréttakona Stöðvar 2 svaraði nokkrum spurningum varðandi málið á hollensku stöðinni RTL í morgun. 10.12.2010 16:04 Ný vefsíða heimsminjanefndar opnuð Heimsminjanefnd Íslands hefur opnað heimasíðu um heimsminjasamning UNESCO og framkvæmd hans hér á landi. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnuðu síðuna formlega í gær. Heimsminjasamningurinn miðar að því að vernda bæði menningarminjar og náttúruminjar sem eru einstakar í heiminum. Á heimasíðunni má finna fréttir af samningnum, upplýsingar um aðild Íslands að honum og um Þingvelli og Surtsey, en það eru þeir staðir á Íslandi sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. 10.12.2010 15:57 Lögregla varar fólk við að skilja verðmæti eftir í bílum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum. Í tilkynningu segir að nokkuð sé um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu en þjófum er ekkert heilagt og þeir stela jafnvel jólagjöfum ef því er að skipta. 10.12.2010 15:22 Neytendastofa setur sölubann á Latabæjarhjálma Neytendastofa hefur lagt bann á sölu hlífðarhjálma sem seldir eru undir vöruheiti Latabæjar. Hjálmarnir eru af gerðinni ATLAS og eru þeir framleiddir í bláum lit með mynd af íþróttaálfinum og bleikum lit með mynd af Sollu stirðu. Innflytjandi hjálmanna er Safalinn ehf. 10.12.2010 14:53 EFTA-dómstóllinn staðfestir ábyrgð vinnuveitenda Einungis í undantekningartilvikum getur það samræmst tilskipunum ESB um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum að gera starfsmann ábyrgan fyrir öllu eða meginhluta tjóns sem hann verður fyrir vegna vinnuslyss, þegar fyrir liggur að vinnuveitandi hefur ekki farið að reglum um öryggi og heilsu á vinnustað. Þetta er staðfest í dómi EFTA-dómstólsins frá í morgun. 10.12.2010 14:33 Vann flatskjá í vinaleik Vísis: „Alveg í skýjunum" Guðrún Ósk Hansen, þriggja barna móðir í Vogum á Vatnsleysustönd, sat við tölvuna í gærkvöldi og var að tala við manninn sinn í Noregi á Skype þegar hún ákvað að gerast Facebook-vinur Vísis. Eiginmaður Guðrúnar starfar í Noregi þar sem hann fékk vinnu eftir atvinnuleysi hér á Íslandi. Guðrún Ósk er sjálf öryrki eftir alvarlegt bílslys og hafa þau hjónin því ekki haft mikið á milli handanna að undanförnu. Það kom henni því skemmtilega á óvart þegar hún fékk símtal þar sem henni var tilkynnt að hún hefði verið dregin út í Vinaleik Vísis og hreppt þar veglegan vinning. 10.12.2010 14:33 Sjá næstu 50 fréttir
Óveður hindrar viðræður um öryggi Íslands Árlegum viðræðum íslenskra og bandarískra stjórnvalda um öryggismál, sem hefjast áttu í Reykjavík í dag, hefur verið frestað vegna óveðurs í Bandaríkjunum. Bandaríska sendinefndin átti að koma til Íslands í morgun en samkvæmt upplýsingum úr utanríkisráðuneytinu komst hún ekki frá Washington til New York vegna veðurs og missti því af fluginu til Íslands. 13.12.2010 11:02
Þórður Hjaltested tekur við af Eiríki Þórður Á. Hjaltested verður næsti formaður Kennarasambands Íslands. Þórður hafði betur gegn Elnu Katrínu Jónsdóttur og vann með 80 atkvæða mun. Hann tekur við formennsku Kennarasambandsins á þingi þess þann 8. apríl næstkomandi. 13.12.2010 11:00
Einelti gegn kennurum tilkynnt til barnaverndar „Einelti er meðal alvarlegustu samskiptavandamála sem upp koma á vinnustöðum og innlendar sem erlendar rannsóknir benda til þess að allt að 8 til 10% starfsmanna verði fyrir einelti í vinnu." Þetta kemur fram í bréfi sem vinnuumhverfisnefnd Kennarasambands Íslands sendi skólastjörnendum og trúnaðarmönnum KÍ í vor. 13.12.2010 10:37
Fræðslustjóri útilokar ekki uppsagnir Það stefnir í 400 milljóna króna halla á rekstri Menntasviðs Reykjavíkurborgar á þessu ári. Níu mánaða uppgjör var kynnt í menntaráði á fundi í síðustu viku. Ragnar Þorsteinsson segir að hallinn sé tilkominn vegna launaliðar annars vegar og hins vegar vegna annars kostnaðar sem erfitt hafi reynst að skera niður undanfarin tvö ár. 13.12.2010 10:18
Dæmd í 2ja ára fangelsi fyrir fjárdrátt frá sendiráðinu í Vín Tuttugu og níu ára gömul kona var í morgun dæmd í 2ja ára fangelsi fyrir að draga sér fé frá íslenska sendiráðinu í Vínarborg. 22 mánuðir dómsins eru skilorðsbundnir. Konan starfaði sem bókari hjá sendiráðinu og játaði að hafa dregið sér og notað heimildarlaust í eigin þágu 335 þúsund evrur, eða um 51 milljón íslenskra króna. 13.12.2010 09:25
Sluppu ómeidd úr logandi bíl Fjögur ungmenni sluppu ómeidd, þegar bíll sem þau voru í, fór út af veginum skammt frá Höfðabóli í Vestmannaeyjum í nótt. Mikið högg kom á bílinn og kviknaði í honum. Fólkið, sem allt var í bílbeltum, slapp út í tæka tíð og náði lögregla að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom á vettvang. Bíllinn er mikið skemmdur, en ekki liggur fyrir af hverju hann hafnaði utan vegar. 13.12.2010 09:00
Tekst á við eftirhermu Umdeild regnhlíf hönnuðarins Sruli Recht hefur dúkkað upp í sölu sem hönnun annars manns. Sruli segir að verið sé að stela hönnun hans. 13.12.2010 09:00
Eldur í jólaskreytingu í Breiðholti Eldur kviknaði í jólaskreytingu á heimili ií Breiðholti í Reykjavík í morgun. 13.12.2010 07:54
Hafísröndin er 20 sjómílur norður af Horni Nokkur skip tilkynntu um hafísrönd um 20 sjómílur norður af Horni nyrst á Vestfjarðakjálkanum í nótt, þegar þau áttu leið þar um. 13.12.2010 07:23
Dómari tók sér frest til að úrskurða um gæsluvarðhald Dómari tók sér í gærkvöldi frest til að úrskurða um kröfu lögreglunnar í Árnessýslu um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þremur mönnum, sem réðust með ofbeldi inn í heimahús á Selfossi í fyrrakvöld og rændu þar ýmsum verðmætum. 13.12.2010 06:56
Lögreglan í borginni sinnti 400 útköllum um helgina Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átti í miklu annríki um helgina og sinnti um 400 útköllum frá klukkan tíu á föstudagskvöldið og þar til snemma í morgun. 13.12.2010 06:53
Tvöfalt fleiri greinast með lystarstol Fjöldi þeirra sem leggjast inn á geðdeildir vegna lystarstols hefur tvöfaldast hér á landi á 26 árum. Eru það niðurstöður nýrrar rannsóknar: Lystarstol 1983-2008: innlagnir, sjúkdómsmynd og lifun, sem birt er í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. 13.12.2010 06:15
Greiða jafnan lægri gjöld en nágrannarnir Þrátt fyrir fyrirhugaðar hækkanir á gjaldskrá Reykjavíkurborgar segja fulltrúar meirihlutans að borgarbúar greiði jafnan mun lægri skatta og gjöld en gengur og gerist í nágrannasveitarfélögunum. 13.12.2010 06:00
Með íslenskan búfénað á bandarísku bóndabýli „Viðskiptavinum okkar finnst mjög skemmtilegt að heimsækja bóndabýlið og fylgjast með hvernig dýrin eru ræktuð,“ segir bóndakonan Lisa Richards. 13.12.2010 06:00
Lausnin tímabundin eftir árs undirbúning Ráðstöfun verkefna Varnarmálastofnunar liggur fyrir til bráðabirgða. Óvissu rúmlega fimmtíu starfsmanna er eytt með niðurstöðunni, segir formaður verkefnastjórnar. Stjórnsýslan við framkvæmd þess að leggja stofnunina niður er hins vegar harðlega gagnrýnd. 13.12.2010 05:45
Stjórnlagaþingmenn hittust í Neskirkju: Óánægja með fundarstaðinn Stjórnlagaþingmenn hittust til skrafs og ráðagerða í kjallara Neskirkju seinni partinn í gær. 13.12.2010 05:30
Félag múslima mun eitt fá moskulóðina Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, segir að Félag múslima muni fá lóð undir mosku frá borginni en ekki Menningarsetur múslima sem einnig sækir um lóð. 13.12.2010 05:30
Eftirlitið framvegis hjá ríkinu Matvælastofnun, MAST, mun ekki fela faggildum aðilum framkvæmd eftirlits með sjávarútvegsfyrirtækjum frá og með 1. mars 2011. Eftirlitið verður eftir þann tíma ríkisrekið. Þetta gengur þvert á vilja Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samtaka fiskvinnslufyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins og gegn tilmælum sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. 13.12.2010 05:00
Andvígir kvótasölu ríkisins Farmanna- og fiskimannasambandið, Sjómannasambandið og Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa tekið höndum saman við Landssamband íslenskra útvegsmanna og mótmæla hugmyndum um sölu ríkisins á aflaheimildum. 13.12.2010 02:00
Lánveiting í Búðarháls yrði jólagjöfin Vonir eru bundnar við að Fjárfestingarbanki Evrópu muni í vikunni samþykkja að afgreiða lán til Landsvirkjunar vegna Búðarhálsvirkjunar í ljósi nýrrar stöðu í Icesave-málinu. Verkstjóri Ístaks á virkjunarsvæðinu segir að það yrði jólagjöfin í ár. 12.12.2010 21:21
Bjarni Ben undir feldi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er að fara yfir öll gögn sem tengjast nýjum Icesave-samningum. Hann mun ekki tjá sig fyrr en hann hefur kynnt sér málið til hlítar, segir Friðjón R. Friðjónsson, aðstoðarmaður hans. 12.12.2010 09:52
Erill hjá lögreglunni í nótt Lögreglan í Reykjavík hafði í nógu að snúast í nótt, en einkum var um útköll vegna hávaða og drykkjuláta að ræða. 11.12.2010 12:06
Um 20 prósent á Suðunesjum á atvinnuleysis- og örorkubótum Um 20 prósent íbúa á Suðurnesjum lifa á atvinnuleysis- og örorkubótum. 11.12.2010 09:28
Samninganefnd bjartsýnni á endurheimtur úr þrotabúi Samninganefnd Íslands í Icesave-deilunni er bjartsýnni á endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans en skilanefnd bankans. 11.12.2010 09:26
Ósátt við svör um Varnarmálastofnun Mikill ágreiningur er innan verkefnastjórnar sem vinnu að því að leggja niður Varnarmálastofnun. 11.12.2010 16:37
Eyjafjallajökull heltók heimsbyggðina Gosið í Eyjafjallajökli síðasta vor er einn af fimm stærstu atburðum ársins á heimsvísu. Þetta kemur fram í árlegri úttekt leitarvélarinnar Google, en auk gossins voru talin til jarðskjálftinn á Haítí, Vetrarólympíuleikarnir í Vancouver, olíuslysið í Mexíkóflóa og Heimsmeistaramótið í knattspyrnu. 11.12.2010 08:30
Eiginmaðurinn talinn vera burðardýr Lögreglan á Suðurnesjum handtók karlmann á þrítugsaldri í fyrrakvöld í tengslum við rannsókn á fíkniefnamáli sem upp kom í Leifsstöð á mánudagskvöld. Þá voru hjón á fertugsaldri tekin með tæplega þrjú hundruð grömm af kókaíni við komuna til landsins frá Kaupmannahöfn. 11.12.2010 08:00
Gjöld Íslendinga hækka ekki Íslenskir háskólanemar á Englandi þurfa ekki að óttast hækkanir á skólagjöldum með tilkomu nýrra laga þar í landi. Mikill styr hefur staðið um breytingar á lögum um hámarksskólagjöld í enska háskóla, frá haustinu 2012 verða gjöldin færð úr 3.290 sterlingspundum á ári upp í 9.000, sem er sama upphæð og nemar utan Evrópusambandsins, þar á meðal Íslendingar, hafa þurft að greiða hingað til. 11.12.2010 07:00
Frístundahús ekki dæmd til niðurrifs dómsmál Hæstiréttur segir að eigendur tveggja frístundahúsa í Kiðjabergi í Grímsnesi þurfi ekki að rífa húsin eins og einn nágranni þeirra krafðist. 11.12.2010 07:00
Snúrur geta skaðað börn Tvö til þrjú tilvik koma upp árlega hér á landi þar sem börn eru hætt komin eftir að hafa vafið snúrum af rimlagardínum um hálsinn á sér. Síðasta sumar mátti ekki miklu muna þegar barn féll niður á gólf í verslun eftir að hafa vafið slíkri snúru um hálsinn á sér. 11.12.2010 06:00
Hafa góð áhrif á nærsamfélagið Pan American Silver Peru hefur fengið Premio Desarrollo Sostenible 2010 verðlaunin (eða Verðlaun fyrir sjálfbæra þróun 2010) í flokki stuðnings við staðbundin verkefni tengd námuvinnslu. Í tilkynningu fyrirtækisins kemur fram að verðlaunin séu veitt fyrir fordæmisgefandi starf á vettvangi félags- og umhverfismála og jákvæð áhrif sem fyrirtækið hafi haft á nærsamfélög á athafnasvæðum sínum í Perú. 11.12.2010 05:00
Krefst frávísunar með sömu rökum og áður Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, krefst þess að máli á hendur honum vegna 192 milljóna króna innherjasvika verði vísað frá dómi. Rökin fyrir því eru þau sömu og lágu til grundvallar kröfu um að rannsókn málsins yrði hætt fyrir réttu ári. Þeirri kröfu hafnaði Hæstiréttur 11.12.2010 05:00
Íslenskir jeppar á methraða á pólinn Hlynur Sigurðsson, starfsmaður frá íslenska fyrirtækinu Arctic Trucks, er á heimleið eftir jeppaferð á suðurpólinn. Talið er að hraðamet hafi fallið í ferðinni þar sem 2.300 kílómetrar voru lagðir að baki á fjórum og hálfum sólarhring. 11.12.2010 04:00
Ríkið býður út lán í stað þess að semja Samningaviðræður ríkisins og lífeyrissjóðanna um fjármögnun sjóðanna á tugmilljarða vegaframkvæmdum runnu út í sandinn á fimmtudag. Of mikið bar í milli þess sem ríkið var tilbúið til að greiða og þess sem sjóðirnir vildu fá. 11.12.2010 04:00
Icesave-málið verður ekki klárað fyrir jól „Ég fagna því mjög að þessi niðurstaða hafi náðst og ekki síst að það hafi náðst sátt í samninganefndinni, sem var meðal annars skipuð fulltrúa frá stjórnarandstöðunni,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra um Icesave-samninginn sem nú liggur á borðinu. „Þetta er gríðarlegur áfangi í endurreisninni.“ 11.12.2010 03:15
Umsvifamiklir kókaínsmyglarar gripnir Tveir karlar voru handteknir nú í vikunni í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innflutningi á kókaíni til landsins. Annar karlmaðurinn var handtekinn í gær en hinn í byrjun vikunnar, en þeir voru báðir teknir á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt lagði lögreglan hald á um 400 grömm af kókaíni sem reynt var senda til Íslands í tvennu lagi frá Suður-Ameríku. 10.12.2010 17:25
Meiri trú á viðskiptalífinu en stjórnmálaflokkum Um 53% Íslendinga telja spillingu hafa aukist á síðustu þremur árum, 32% telja hana hafa staðið í stað og að mati 15% hefur dregið úr spillingu. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Capacent gerði fyrir hönd Transparency International. 10.12.2010 16:47
Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla umhverfisgjaldi Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla harðlega útfærslu umhverfisgjalds í frumvarpi fjármálaráðherra um farþega- og gistináttagjald sem lagt hefur verið fram. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að fyrirtæki í ferðaþjónustu þoli illa auknar álögur og að þarna sé verið að leggja til flókið og illframkvæmanlegt kerfi sem leggur of þungar byrðar á fyrirtækin. 10.12.2010 16:37
Hollendingar áhugasamir um Icesave og greiðslugetu Íslendinga Hollendingar sýna Icesave málinu mikinn áhuga sem eðlilegt er enda virðist sem Hollendingar fái loks greitt frá Íslendingum vegna Icesave eftir langdregnar viðræður. Sigríður Mogensen fréttakona Stöðvar 2 svaraði nokkrum spurningum varðandi málið á hollensku stöðinni RTL í morgun. 10.12.2010 16:04
Ný vefsíða heimsminjanefndar opnuð Heimsminjanefnd Íslands hefur opnað heimasíðu um heimsminjasamning UNESCO og framkvæmd hans hér á landi. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnuðu síðuna formlega í gær. Heimsminjasamningurinn miðar að því að vernda bæði menningarminjar og náttúruminjar sem eru einstakar í heiminum. Á heimasíðunni má finna fréttir af samningnum, upplýsingar um aðild Íslands að honum og um Þingvelli og Surtsey, en það eru þeir staðir á Íslandi sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. 10.12.2010 15:57
Lögregla varar fólk við að skilja verðmæti eftir í bílum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum. Í tilkynningu segir að nokkuð sé um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu en þjófum er ekkert heilagt og þeir stela jafnvel jólagjöfum ef því er að skipta. 10.12.2010 15:22
Neytendastofa setur sölubann á Latabæjarhjálma Neytendastofa hefur lagt bann á sölu hlífðarhjálma sem seldir eru undir vöruheiti Latabæjar. Hjálmarnir eru af gerðinni ATLAS og eru þeir framleiddir í bláum lit með mynd af íþróttaálfinum og bleikum lit með mynd af Sollu stirðu. Innflytjandi hjálmanna er Safalinn ehf. 10.12.2010 14:53
EFTA-dómstóllinn staðfestir ábyrgð vinnuveitenda Einungis í undantekningartilvikum getur það samræmst tilskipunum ESB um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum að gera starfsmann ábyrgan fyrir öllu eða meginhluta tjóns sem hann verður fyrir vegna vinnuslyss, þegar fyrir liggur að vinnuveitandi hefur ekki farið að reglum um öryggi og heilsu á vinnustað. Þetta er staðfest í dómi EFTA-dómstólsins frá í morgun. 10.12.2010 14:33
Vann flatskjá í vinaleik Vísis: „Alveg í skýjunum" Guðrún Ósk Hansen, þriggja barna móðir í Vogum á Vatnsleysustönd, sat við tölvuna í gærkvöldi og var að tala við manninn sinn í Noregi á Skype þegar hún ákvað að gerast Facebook-vinur Vísis. Eiginmaður Guðrúnar starfar í Noregi þar sem hann fékk vinnu eftir atvinnuleysi hér á Íslandi. Guðrún Ósk er sjálf öryrki eftir alvarlegt bílslys og hafa þau hjónin því ekki haft mikið á milli handanna að undanförnu. Það kom henni því skemmtilega á óvart þegar hún fékk símtal þar sem henni var tilkynnt að hún hefði verið dregin út í Vinaleik Vísis og hreppt þar veglegan vinning. 10.12.2010 14:33