Fleiri fréttir

Hjón smygluðu kókaíni frá Kaupmannahöfn

Hjón á fertugsaldri sem aldrei hafa komið við sögu lögreglunnar voru handtekin í Leifsstöð á mánudagskvöld með þrjú hundruð gömm af kókaíni í fórum sínum. Konunni hefur verið sleppt en maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 13.desember.

Umboðsmaður skuldara flytur í Kringluna

Umboðsmaður skuldara lokar í dag, föstudaginn 10. desember, klukkan 16.00 á Hverfisgötu 6, og opnar mánudaginn 13. desember kl. 9.00 á nýjum stað í Kringlunni 1, 2. hæð. Þar var áður til húsa Morgunblaðið og síðar Háskólinn í Reykjavík.

VR gefur 5 milljónir til hjálparsamtaka

Stjórn VR hefur samþykkt að styrkja hjálparsamtök um rúmlega fimm milljónir króna þessi jól og vill félagið þannig leggja sitt af mörkum til að hjálpa þeim sem minna mega sín á þessum tímum.

Nemendur beita kennara ofbeldi - alvarlegt vandamál

„Þetta ofbeldi varði þar til mér var ofboðið þannig að ég varð að leita læknis og var síðan frá kennslu meðan ég var að ná heilsu á ný. Það þarf ansi mikið til að kennurum ofbjóði. Þeir eru flestir með langlundargeð, annars væru þeir ekki í þessu starfi," segir kennari sem varð fyrir ofbeldi af hálfu ungs grunnskólanema. Kennarinn segir ofbeldið kannski ekki hafa getað kallast líkamlegt en allt að því. Viðkomandi nemandi hafi oftar en ekki slegið til sín og haft í frammi alls konar ögranir án þess þó að líkamleg meiðsl hlytust af.

Steingrímur segir ósanngjarnt að bera samningana saman

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra er mjög ánægður með nýjan samning í Icesave-deilunni og segir hann vera risaáfanga í endurreisn Íslands. Hann bendir á að allt aðrar aðstæður séu nú en þegar fyrri samningur var gerður í fyrrasumar og því sé ekki sanngjarnt að bera samningana saman. Steingrímur var gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun þar sem hann ræddi um Icesave-samninginn.

Varað við hafís norður af Horni

Hafís er um 10 sjómílur norður af Horni. Veðurstofan segir að víðast sé ísinn gisinn eða mjög gisinn, en með mjög þéttum spöngum og íshellum inn á milli. Næsta sólarhringinn er búist við vestlægri átt á þessu svæði og má því gera ráð fyrir að ísinn þokist í austurátt og nær landi og geti þá verið varasamur fyrir sjófarendur. Þá segir að á sunnudag sé búist við suðvestlægri vindátt og þá má gera ráð fyrir að ísinn berist lengra í austurátt.

Enginn eldur - bara viðvörunarljós

Guðmundur Óskarsson forstöðumaður hjá Icelandair, segir að enginn eldur hafi komið upp í hreyfli vélarinnar sem snúið var við skömmu eftir flugtak og lenti á Keflavíkurflugvelli við mikinn viðbúnað. Að hans sögn kviknaði viðvörunarljós í flugstjórnarklefanum sem benti til að eldur væri laus. Því var ákveðið að snúa vélinni við og lenda á ný. Ekkert kom hinsvegar fram við skoðun á vélinni að eldur hefði kviknað og líklegast er að um bilun hafi verið að ræða.

Eldur í hreyfli Icelandairvélar

Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli í morgun þegar eldur kom upp í hreyfli Icelandair-þotu sem var á leið til Frankfurt. Vélinni var snúið við og lenti hún á Keflavíkurflugvelli klukkan 12 mínútur yfir níu. Eldurinn hafði verið slökktur áður en vélin lenti og sakaði engan um borð. 140 farþegar voru í vélinni.

Flug tryggt til Sauðárkróks, Gjögurs og Bíldudals

Flugfélagið Ernir og Vegagerðin hafa náð samkomulagi um að tryggja áframhaldandi áætlunarflug milli Reykjavíkur annars vegar og hins vegar Sauðárkróks, Gjögurs og Bíldudals. Flugfélagið fær aukinn styrk til Vestfjarðaflugsins en styrkur til Sauðárkróksflugs fellur niður. Þetta kemur fram á vef samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytisins.

Tannlæknir hefur kært ákvörðun Sjúkratrygginga

Tannlæknir á Suðurnesjum hefur kært ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands þess efnis að stöðva þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar hans frá og með 1. október síðastliðnum. Þetta staðfestir Gestur Jónsson hrl., lögmaður tannlæknisins, við Fréttablaðið.

Neita að reisa mosku með nýja trúfélaginu

„Þetta er alveg eins og að segja þjóðkirkjunni að vera með Vottum Jehóva,“ segir Salmann Tamimi, forstöðumaður Félags múslima, sem kveður það ekki koma til greina að félagið byggi mosku sameiginlega með Menningarsetri múslima eins og borgaryfirvöld vilja.

Steingrímur íhugi stöðu sína

„Það er greinilegt að það borgar sig að hafa fagmenn í vinnu,“ segir Þór Saari, Hreyfingunni, um nýjan Icesave-samning. „Þeir hafa náð umtalsverðum árangri miðað við það sem áður var uppi á borðum.

Núna þarf að vega og meta kosti þess að semja um málið

„Þegar þessi niðurstaða samninga­nefndarninar er kynnt er manni auðvitað efst í huga hversu miklu máli það skipti að hnekkja fyrri samningum og að það skuli hafa verið gert með jafnafgerandi hætti og samstöðu meðal þjóðarinnar,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. „Það sendi skýr skilaboð um að menn ætluðu ekki að sæta neinum afarkostum í þessu máli og ólíkt því sem forysta ríkisstjórnarinnar hélt þá fram, um að þjóðar­atkvæðagreiðslan væri tilgangslaus tímasóun, hefur komið í ljós að hún skipti öllu.“

Gefa salernisrúllur

„Taktu þátt í að gefa gjöf“ heitir styrktarherferð íslenska hreinlætispappírsframleiðandans Papco nú fyrir jólin. „Ein rúlla af hverri seldri pakkningu af hreinlætispappír í jóla­umbúðum frá Papco rennur til góðgerðamála,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins, en það styrkir Hjálparstofnun kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Rauða krossinn og Fjölskylduhjálpina.

Vill þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn

„Fljótt á litið er þetta mun hagstæðara tilboð en fyrri samningurinn,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „En hafi Íslendingar lært af reynslunni í þessu máli þá verðum við að kynna okkur þetta mál í þaula áður en mikið er hægt að segja.“

Verklag til reiðu í næstu viku

Verklagsreglur fyrir ný úrræði vegna skuldavanda heimilanna verða væntanlega tilbúnar hinn 15. þessa mánaðar. Eftir þann tíma ætti almenningur að geta borið sig eftir öllum þeim lausnum sem í boði eru.

Endurvinna í auknum mæli

Akureyrarbær mun verja um 189 milljónum króna á næsta ári til að breyta fyrirkomulagi við sorphirðu og förgun.

Án byssuleyfa með vopnasafn

Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega fimmtugan karlmann fyrir að brjótast inn í bifreið sem stóð í fjöru í landi Hafnar í Hvalfjarðarsveit. Úr bílnum stal maðurinn haglabyssu og riffli, ásamt skotum í bæði skotvopnin.

Öllum í hag að klára málið

„Þessi niðurstaða er í takt við það sem okkur hafði verið kynnt áður og eftir kynningunni að dæma er þessi niðurstaða mun hagstæðari en þeir samningar sem áður voru á borðinu, þannig að ég tel að það sé öllum í hag að klára málið,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann kveðst vonast til að það geti orðið fljótlega.

Lagalegu fyrirvararnir skipta miklu máli

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins segist vilja vera spar á yfirlýsingar um nýja Icesave samninginn þangað til hann sé búinn að kynna mér samninginn í þaula. En miðað við það sem kynnt hafi verið fyrir honum virðist samningurinn vera sanngjarnari á margan hátt.

Leggja skatt á ferðamenn

Fjármálaráðherra lagði í dag fram frumvarp á Alþingi um farþegagjald og gistináttagjald sem innheimt verður af ferðamönnum á Íslandi, bæði innlendum og erlendum.

Alveg óvíst hver endanleg upphæð verður

„Grundvallarspurningin sem við stóðum frammi fyrir var þessi. Hvernig semur maður um greiðsluskilmála af skuld sem maður veit ekki hver er og mun ekki vita um nokkur ár?“ Þetta sagði Lee Buchheit, aðalsamningamaður Íslendinga í Icesave deilunni, á blaðamannafundi sem hófst laust fyrir klukkan sjö í kvöld.

Dreifa 5000 smokkum á næsta ári

Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands og HIV Ísland dreifa 5000 smokkum til almennings á Íslandi á næsta ári. Þá munu Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands og HIV Íslands hefja forvarnarátak sem er liður í samstarfi félaganna. Smokkadreifingin skipar stóran sess í því samstarfi og rík áhersla verður lögð á að efla vitund ungs fólks um HIV og ná til áhættuhópa varðandi HIV smit. Það er Pasante sem leggur til smokkana en Pasante er einn stærsti smokkaframleiðandi á Bretlandi.

Umtalsvert lægri vextir

Vextirnir sem samið hefur verið um að Íslendingar greiði af Icesave láninu eru umtalsvert lægri en áður hafði verið komist að samkomulagi um.

Skúli Tyson sýknaður í Hæstarétti

Hæstiréttur Íslands sýknaði í dag Skúla Stein Vilbergsson, sem oft er kallaður Skúli Tyson, af ákæru um að hafa slegið kærustu sína með glasi í andlitið á veitingastaðnum Yello í Reykjanesbæ. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður fundið Skúla sekan um brotið og dæmt hann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Fluttu inn löglegt fíkniefni og voru sýknaðir

Tveir einstaklingar voru sýknaðir í dag af innfluttningi á tæplega fjórum kílóum af efninu 4-flúoróamfetamín í desember á síðasta ári. Efnið er náskylt amfetamíni en Rannsóknarstofa Háskóla Íslands telur efnið mega flokka sem ávana- og fíkniefni.

Greiða Hollendingum 3% vexti

Íslendingar munu greiða 3% fasta vexti af Icesave láninu til Hollendinga en 3,3% vexti af láninu til Breta, samkvæmt tilkynningu sem hollenska fjármálaráðuneytið hefur frá sér.

Bónusinn skipti engu máli - Ríkharður fær 21 milljón

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á að launakrafa Ríkharðs Daðasonar, hjá Kaupþingi, væri forgangskrafa. Ríkharður krafðist þess að honum yrðu greiddar tæplega 27 milljónir króna vegna vangoldinna launa og launa á uppsagnafresti.

Bandarískum ferðamönnum fjölgar - Bretum fækkar

Alls fóru 21.240 erlendir gestir úr landi um Leifsstöð í nýliðnum nóvembermánuði en um er að ræða svipaðan fjölda gesta og í nóvembermánuði á síðasta ári að því er fram kemur í tilkynningu frá ferðamálastofu. Veruleg aukning hefur verið í fjölda gesta frá N-Ameríku eða um 20%. „Gestum frá Mið- og Suður Evrópu fjölgar um tæp 7%, Norðurlandabúar standa í stað og lítilsháttar fjölgun (3,2%) er frá löndum sem talin eru sameiginlega og flokkast undir "Annað",“ segir ennfremur um leið og þess er getið að Bretum fækkar um um tæp 16%.

Icesave-samninganefndin komin til landsins

Formaður Icesave-samninganefndarinnar, Lee Buchheit og Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður, sem á sæti í nefndinni, lentu á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir klukkan tvö í dag.

Sigmundur um Icesave: Spurning að gefa út spunaviðvörun

„Jæja, hvaða sýningu á að setja á svið núna? Blaðamannafundur í Iðnó kl.18 til að kynna ,,niðurstöðu viðræðna" boðaður án samráðs við nokkurn úr stjórnarandstöðu,“ skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á Facebook, en hann er staddur erlendis.

Jólaboð Ásdísar Ránar: Piparkökur, Playboy og vændi

„Ég kem ekki nálægt þessu. Ég get ekkert tjáð mig um þetta. Ég er bara ráðin þarna og mér er borgað fyrir að vera þarna," segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir. Í kvöld verður haldið „Jólaboð Ásdísar Ránar á Re-Play" þar sem hún kynnir nýju snyrtivörulínuna sína og býður upp á piparkökur.

Engin árás verið gerð á Visa á Íslandi

Engin árás hefur verið gerð á tölvukerfi Vísa á Íslandi sem fyrirtækið Valitor sér um. Að sögn forstjóra Valitor hafa einhverjar fyrirspurnir borist frá viðskiptavinum um ákvörðun Vísa erlendis að loka á viðskipti við Wikileaks, en viðskiptavinir hafi verið upplýstir um að Valitor á Íslandi sé ekki aðili að þeirri ákvörðun.

Ásmundur sammála Lilju - fjárlögin rædd áfram í dag

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, hefur áhyggjur af þeim mikla niðurskurði sem boðaður er í fjárlagafrumvarpinu. Hann tekur því undir með Lilju Mósesdóttur, þingmanni Vinstri grænna og formanni viðskiptanefndar, um að niðurskurðarhugmyndir séu mögulega of miklar miðað við spár um dræman hagvöxt.

Íslendingar gætu verið að einangrast í makrílmálinu

Fulltrúar Norðmanna, Evrópusambandsins og Færeyinga eru að hefja viðræður í Kaupmannahöfn um skiptingu makrílkvóta í norðurhöfum á næsta ári, án þáttöku Íslendinga. Nái þessir þrír samkomulagi, einangrast Ísland í vissum skilningi.

Stjórnarþingmaður styður ekki fjárlagafrumvarpið

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður viðskiptanefndar Alþingis, ætlar að sitja hjá þegar þingmenn greiða atkvæði um fjárlagafrumvarpið. „Ég er núna búin að velta fyrir mér í margar vikur hvort ég geti sannfæringar minnar vegna samþykkt þessi fjárlög sem núna eru til umfjöllunar í þinginu," segir Lilja.

Grunaður um að landa framhjá vigt

Lögreglumenn úr Borgarnesi stöðvuðu í morgun bíl, að beiðni Fiskistofu, þar sem grunur leikur á að hann hafi verið að flytja fisk, sem landað hafi verið framhjá vigt á Arnarstapa snemma í morgun.

Eyðum minna í félagsvernd en nágrannalöndin

Útgjöld til félagsverndar á Íslandi árið 2008 námu 325,6 milljörðum króna eða 21,8% af landsframleiðslu. Þetta er hlutfallslega minna en hjá nágrannalöndum okkar. Í Danmörku er þetta hlutfall 28,9%, í Svíþjóð 28,8%, í Noregi 24% og í Færeyjum og Finnlandi 25,6%. Um 40% útgjaldanna á Íslandi árið 2008 voru vegna heilbrigðismála, en það samsvarar 8,8% af landsframleiðslu.

Neytendasamtökin fordæma slæma meðferð á dýrum

„Neytendasamtökin telja með öllu óeðlilegt að svín séu gelt án deyfingar og kýr látnar vera inni allan sólarhringinn allan ársins hring svo dæmi séu tekin. Jafnframt er ástæða til að minna á að við státum okkur af því að hér á landi sé stundaður landbúnaður sem sé til fyrirmyndar og sem við getum verið stolt af. Þau dæmi sem fram hafa komið í fjölmiðlum benda þó síður en svo til þess.“

Líf á öðrum hnöttum þykir sífellt líklegra

Nýverið hefur verið upplýst að lífvænlegar plánetur eru mun fleiri en áður var talið. Þá hefur verið sýnt fram að að líf finnst í umhverfi sem talið var baneitrað. Vísindamenn telja því öll rök hníga í þá átt að líklegra sé að jörðin sé ekki eina plánetan þar sem líf hafi orðið til.

Sjá næstu 50 fréttir