Fleiri fréttir Kynnir skýrsluna fyrir ráðuneyti Nettósparnaður vegna niðurskurðar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða yrði um 28 milljónir króna, samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir hönd grasrótarsamtakanna Heimavarnarliðsins. Skýrslan var unnin af Dóru Hlín Gísladóttur, verkfræðingi og talskonu Heimavarnarliðsins, og Kristni Hermannssyni hagfræðingi. 2.11.2010 06:00 Verður kynnt á næstu dögum Stefnt er að því að kynna niðurstöður sérfræðingahóps stjórnvalda sem reiknar nú út kostnað við mögulegar aðgerðir stjórnvalda fyrir skuldug heimili í þessari viku. 2.11.2010 06:00 Landsdómur þarf að velja á milli hjóna Ákveðið hefur verið innan Háskóla Íslands að Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti, muni taka sæti í landsdómi. Það veldur því að annað hvort hún eða Markús Sigurbjörnsson, hæstaréttardómari og eiginmaður Bjargar, verður að víkja úr sæti dómara þegar landsdómur kemur saman, þar sem hjón mega ekki sitja í dóminum. 2.11.2010 06:00 Vilja hótel í Hafnarstræti á ný Fosshótel hafa áhuga á því að starfrækja hótel á ný í Hafnarstræti 98 á Akureyri, gamla Hótel Akureyri. Fyrirtækið hefur skoðað málið með byggingafyrirtæki og eigendum hússins, Saga fjárfestingabanka og KEA, að undanförnu. 2.11.2010 05:30 Jarðvarmageiri þarf umgjörð til að dafna „Tími er kominn til að ræða um framtíðina og láta af umræðu um orsakir kreppunnar,“ sagði prófessor Michael Porter á Iceland Geothermal jarðvarmaráðstefnunni sem fram fór í Háskólabíói í gær. Á henni var fjallað um klasamyndun í jarðvarmageira og hvernig hún gæti orðið grundvöllur aukins hagvaxtar. 2.11.2010 05:00 Deilur um þrotabú banka streyma til dómstólanna Holskefla ágreiningsmála vegna föllnu bankanna hellist nú yfir héraðsdómstóla. Fyrstu níu mánuði ársins voru höfðuð 561 ágreiningsmál vegna gjaldþrotaskipta. Þetta eru um 25 sinnum fleiri mál en í meðalári, þegar þau fylla gjarnan annan tuginn. 2.11.2010 04:00 Hver listnemi kostar allt að þremur milljónum króna Verja á samtals 9,4 milljörðum króna til kennslu í háskólum landsins á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Fjárframlög til hvers skóla um sig eru ákveðin út frá reiknilíkani þar sem tekið er tillit til kostnaðar við kennsluna. 2.11.2010 04:00 Þriðjungur landsmanna styður stjórnina „Þau stjórnvöld sem fara af hjörunum yfir því að mælast lágt í miðjum erfiðleikum eru ekki vandanum vaxin,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna. 2.11.2010 04:00 Brýnt að bæta stöðu aldraðra hér á landi Þing Norðurlandaráðs verður sett í dag klukkan 14.30 á Grand Hóteli í Reykjavík. Alls eru 35 erlendir ráðherrar nú staddir hér á landi til þess að sitja þingið ásamt um 600 fjölmörgum embættismönnum og almennum starfsmönnum. 2.11.2010 03:15 Upphaf Paradísar lofar góðu Einn og hálfur mánuður er liðinn síðan Bíó Paradís tók til starfa í gamla Regnboganum. Þessum nýju heimkynnum listrænna bíómynda, klassískra mynda og kvikmyndahátíða hefur verið vel tekið að mati Lovísu Óladóttur framkvæmdastjóra. 2.11.2010 00:01 Þrir til skoðunar eftir umferðaróhapp á Fróðarheiði Þrír voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar þegar að bifreið valt á Fróðarheiði í nágrenni við Ólafsvík í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Snæfellsnesi var um tvo karlmenn og konu að ræða. 1.11.2010 22:10 Ellefu vilja í Turninn á Lækjartorgi Ellefu aðilar gerðu tilboð í leigu á Turninum á Lækjartorgi. Tilboðin voru opnuð í morgun hjá Innkaupaskrifstofu. Eins og fram hefur komið var turninn fluttur á Lækjartorg í sumar eftir að hafa verið geymdur annarsstaðar um skeið. 1.11.2010 20:59 Halldór 02.11.2010 1.11.2010 20:19
Sjá næstu 50 fréttir
Kynnir skýrsluna fyrir ráðuneyti Nettósparnaður vegna niðurskurðar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða yrði um 28 milljónir króna, samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir hönd grasrótarsamtakanna Heimavarnarliðsins. Skýrslan var unnin af Dóru Hlín Gísladóttur, verkfræðingi og talskonu Heimavarnarliðsins, og Kristni Hermannssyni hagfræðingi. 2.11.2010 06:00
Verður kynnt á næstu dögum Stefnt er að því að kynna niðurstöður sérfræðingahóps stjórnvalda sem reiknar nú út kostnað við mögulegar aðgerðir stjórnvalda fyrir skuldug heimili í þessari viku. 2.11.2010 06:00
Landsdómur þarf að velja á milli hjóna Ákveðið hefur verið innan Háskóla Íslands að Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti, muni taka sæti í landsdómi. Það veldur því að annað hvort hún eða Markús Sigurbjörnsson, hæstaréttardómari og eiginmaður Bjargar, verður að víkja úr sæti dómara þegar landsdómur kemur saman, þar sem hjón mega ekki sitja í dóminum. 2.11.2010 06:00
Vilja hótel í Hafnarstræti á ný Fosshótel hafa áhuga á því að starfrækja hótel á ný í Hafnarstræti 98 á Akureyri, gamla Hótel Akureyri. Fyrirtækið hefur skoðað málið með byggingafyrirtæki og eigendum hússins, Saga fjárfestingabanka og KEA, að undanförnu. 2.11.2010 05:30
Jarðvarmageiri þarf umgjörð til að dafna „Tími er kominn til að ræða um framtíðina og láta af umræðu um orsakir kreppunnar,“ sagði prófessor Michael Porter á Iceland Geothermal jarðvarmaráðstefnunni sem fram fór í Háskólabíói í gær. Á henni var fjallað um klasamyndun í jarðvarmageira og hvernig hún gæti orðið grundvöllur aukins hagvaxtar. 2.11.2010 05:00
Deilur um þrotabú banka streyma til dómstólanna Holskefla ágreiningsmála vegna föllnu bankanna hellist nú yfir héraðsdómstóla. Fyrstu níu mánuði ársins voru höfðuð 561 ágreiningsmál vegna gjaldþrotaskipta. Þetta eru um 25 sinnum fleiri mál en í meðalári, þegar þau fylla gjarnan annan tuginn. 2.11.2010 04:00
Hver listnemi kostar allt að þremur milljónum króna Verja á samtals 9,4 milljörðum króna til kennslu í háskólum landsins á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Fjárframlög til hvers skóla um sig eru ákveðin út frá reiknilíkani þar sem tekið er tillit til kostnaðar við kennsluna. 2.11.2010 04:00
Þriðjungur landsmanna styður stjórnina „Þau stjórnvöld sem fara af hjörunum yfir því að mælast lágt í miðjum erfiðleikum eru ekki vandanum vaxin,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna. 2.11.2010 04:00
Brýnt að bæta stöðu aldraðra hér á landi Þing Norðurlandaráðs verður sett í dag klukkan 14.30 á Grand Hóteli í Reykjavík. Alls eru 35 erlendir ráðherrar nú staddir hér á landi til þess að sitja þingið ásamt um 600 fjölmörgum embættismönnum og almennum starfsmönnum. 2.11.2010 03:15
Upphaf Paradísar lofar góðu Einn og hálfur mánuður er liðinn síðan Bíó Paradís tók til starfa í gamla Regnboganum. Þessum nýju heimkynnum listrænna bíómynda, klassískra mynda og kvikmyndahátíða hefur verið vel tekið að mati Lovísu Óladóttur framkvæmdastjóra. 2.11.2010 00:01
Þrir til skoðunar eftir umferðaróhapp á Fróðarheiði Þrír voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar þegar að bifreið valt á Fróðarheiði í nágrenni við Ólafsvík í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Snæfellsnesi var um tvo karlmenn og konu að ræða. 1.11.2010 22:10
Ellefu vilja í Turninn á Lækjartorgi Ellefu aðilar gerðu tilboð í leigu á Turninum á Lækjartorgi. Tilboðin voru opnuð í morgun hjá Innkaupaskrifstofu. Eins og fram hefur komið var turninn fluttur á Lækjartorg í sumar eftir að hafa verið geymdur annarsstaðar um skeið. 1.11.2010 20:59
Læknum hefur fækkað um 100 Læknum á Íslandi hefur fækkað um 100 síðustu tvö árin, segir Þorbjörn Jónsson, formaður læknaráðs Landspítalans. Þorbjörn sagði í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag að þetta væru um 10% allra starfandi lækna á Íslandi. 1.11.2010 19:07
Sárvantar fólk til starfa Hugbúnaðargeirann sárvantar fólk til starfa, segir forstjóri Marorku, og segir að niðurskurður á kennslu í tæknigreinum muni hamla eðlilegum vexti greinarinnar, sem skapað gæti mörg þúsund ný störf á næstu árum. 1.11.2010 18:55
Bjarni Ben vill þjóðstjórn Formaður Sjálfstæðisflokksins vill mynda þjóðstjórn þvert á flokka í nokkra mánuði og boða svo til kosninga en flokkurinn kynnti í dag tillögur í atvinnumálum sem eiga að skapa 22 þúsund ný störf. 1.11.2010 18:45
Yfir 100 þjóðir taka þátt í Alþjóðlegri athafnaviku Yfir 100 þjóðir munu taka þátt í Alþjóðlegri athafnaviku sem haldin verður í þriðja sinn dagana 15. - 21. nóvember næstkomandi. Í fréttatilkynningu frá nýsköpunar og frumkvöðlasetrinu Innovit kemur fram að aldrei áður hafi jafn 1.11.2010 17:18
Almannavarnir lýsa yfir lægsta háskastigi Almannavarnir lýsa yfir lægsta háskastigi vegna jökulhlaups og jarðhræringa í Grímsvötnum. Fundur var haldinn í vísindamannaráði í dag vegna nýjustu atburða í náttúru Íslands. 1.11.2010 16:50
Þorleifur: Víst niðurskurður í velferðarmálunum Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í velferðarráði segir ekki rétt sem fram kom í máli S. Björns Blöndals, aðstoðarmanns borgarstjóra á Vísi fyrr í dag, að ekki standi til að skera niður í velferðarmálum hjá borginni umfram verðlagsbreytingar. Þorleifur segir að á fundi velferðarráðs í dag hafi verið rætt um að skera niður félagsstarf aldraðra, ferðir aldraðra í sund og í strætó, svo dæmi séu tekin. Þá eigi að skerða greiðslur til skammtímavistunar unglinga og til unglingasmiðja. 1.11.2010 16:38
Holtavörðuheiðin opnuð á ný Búið er að opna fyrir umferð á Holtavörðuheiði en hún lokaði í dag eftir að flutningabíll ók aftan á aðra bifreið. 1.11.2010 16:36
Ísjaki sleit háspennulínu Ísjaki úr hlaupinu úr Grímsvötnum rakst í háspennumastur sem er við árfarveginn og slitnaði rafmangslína í kjölfarið. Því er rafmagnslaust á Kirkjubæjarklaustri en varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli segir starfsmenn Landsnets vinna að lagfæringum. 1.11.2010 16:17
Holtavörðuheiði lokuð - flutningabíll þversum á veginum Holtavörðuheiðin er lokuð að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni vegna umferðaróhapps. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi sem er á vettvangi var um aftanákeyrslu að ræða. Einn ökumaður kvartaði undan eymslum en mun ekki vera alvarlega slasaður. Flutningabíll rann til við óhappið og er nú þversum á veginum og óljóst er hvenær hægt verður að opna hann á ný. 1.11.2010 15:39
Langveik börn komast í utanlandsferðir Iceland Express og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum, hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára. Með samningnum verður Iceland Express einn af styrktaraðilum Umhyggju. 1.11.2010 15:11
Ný lög um lögskráningu sjómanna taka gildi í dag Í dag taka gildi ný lög um lögskráningu sjómanna. Nýju lögunum fylgja þær breytingar helstar að lögskráning færist til útgerða og skipstjóra og framvegis verður skylt að lögskrá alla í áhöfn á öllum skipum sem notuð eru í atvinnuskyni. Siglingastofnun Íslands heldur utan um nýja kerfið og sér um lögskráningar þeirra sem þess óska. 1.11.2010 14:32
Vilja draga skattahækkanir til baka og skapa 22 þúsund störf Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti hugmyndir þingflokks Sjálfstæðisflokksins í dag, sem þeir kalla „að gefa heimilunum von". 1.11.2010 14:24
Datt úr rólu og féll niður um fjóra metra Kona slasaðist á Laugarvatni þegar að róla sem hún var í slitnaði niður. Fallið var um fjórir metrar. Konan vankaðist við fallið og var flutt með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans. Ekki liggur fyrir um meiðsl konunnar en hún mun vera óbrotin. Lögreglan rannsakar orsök slyssins og útbúnað rólunnar. 1.11.2010 14:06
Allt skorið niður utan lögbundinnar þjónustu Gríðarlegur niðurskurður blasir við á félagsmálasviði Reykjanesbæjar á komandi ári. Félagsmálastjóri bæjarfélagsins kynnti í morgun frumhugmyndir að niðurskurði á sviðinu og hafa þær verið sendar til fjármálastjóra bæjarins. 1.11.2010 13:52
Þúsundir mótmæla hugsanlegri lokun Sólheima Á sjötta þúsund manns mótmæla því á Facebook að Sólheimum í Grímsnesi, samfélagi þroskahamlaðra, verði lokað. Það er fyrrverandi starfsmaður Sólheima sem stofnaði til síðunnar sem ber yfirskriftina: 1.11.2010 13:46
Hálka á Holtavörðuheiði Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheðii og Bröttubrekku. Hálkublettir eru sömueiðis á Vatnaleið og í Borgarfirði. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. 1.11.2010 13:26
Fimm sagt upp hjá Nónvörðu Fimm einstaklingum hefur verið sagt upp hjá útgerðafélaginu Nónvörðu á Hellissandi. 1.11.2010 13:22
Síhækkandi vatnsyfirborð í Gígjukvísl Vatnsrennsli hélt áfram að aukast í Gígjukvísl í nótt og hefur vatnsyfirborð hækkað um allt að einn metra. Eldfjallafræðingar bíða spenntir eftir því hvort Grímsvötn fari að gjósa. 1.11.2010 12:16
Krafist 3% hagræðingar á leikskólasviði Leikskólasvið Reykjavíkurborgar þarf að hagræða um 3 prósent samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar. Gert er ráð fyrir talsverðri aukningu barna á leikskólum og fær sviðið því viðbótarframlag að upphæð tæplega 660 milljónir króna. 1.11.2010 11:23
Stórbruni á Eirhöfða Ekkert liggur enn fyrir um það hvað olli stórbruna í iðnaðarhúsi við Eirhöfða í Reykjavík í nótt, sem hófst með því að það kviknaði í bíl innanhúss og allt fór úr böndunum. Myndatökumaður Stöðvar 2 var á vettvangi og tók meðfylgjandi myndir. 1.11.2010 11:12
Rjúpnaskytta látin á Vestfjörðum Rjúpnaskytta sem saknað var á Vestfjörðum á föstudag fannst látinn sama dag. Maðurinn var við veiðar á hálendinu, ofan Gufudals, í Austur-Barðastrandarsýslu. 1.11.2010 11:06
Nálin komin í pásu: Fiktað í útsendingarbúnaði Útvarpsstöðin Nálin sem fór í loftið í sumar hefur verið lögð niður tímabundið. Einar Karl Gunnarsson, dagskrárstjóri Nálarinnar, segir að fiktað hafi verið í útsendingarbúnaði útvarpsstöðvarinnar með þeim afleiðingum að útsendingar trufluðust. Spurður hvort þetta hafi verið skemmdarverk segir Einar Karl: „Ég myndi ekki nota það orð. Ætli þetta hafi ekki bara verið slys,“ segir hann. 1.11.2010 10:33
Fermingarbörn safna fyrir vatnsverkefnum í Afríku Í dag hefst söfnun um allt land þegar fermingarbörn úr 65 sóknum ganga í hús á tímabilinu á milli klukkan 17:30 og 21 og safna peningum til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í þrem löndum Afríku: Malaví, Úganda og Eþíópíu. Söfnunin stendur til 9. nóvember. 1.11.2010 10:24
Fyrsta íbúðin fyrir blinda og sjónskerta vígð Fyrsta hæfingar- og endurhæfingaríbúð sem ætluð er blindum og sjónskertum einstaklingum á Íslandi verður vígð á morgun. Íbúðin er í húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17 í Reykjavík. Undirbúningur hefur staðið yfir í nokkura mánuði og mun fyrsti íbúinn flytja inn fimmtudaginn 4. nóvember. 1.11.2010 08:57
Varað við lúmskri hálku Þótt það sé rigning víða á láglendi líkt og á höfuðborgarsvæðinu þá er hitastig það lágt að það þarf ekki að fara upp í mikla hæð til að hitinn sé kominn niður við frostmark. Umferðarstofa vill af þeim sökum vara við því að víða getur verið lúmsk hálka. 1.11.2010 08:10
Bandbrjálaður maður réðist á leigubíl Lögreglan handsamaði í nótt bandbrjálaðan mann, sem meðal annars hafði ráðist á leigubíl og sparkað ítrekað í hann, þannig að skemmdir hlutust af. 1.11.2010 07:39
Vatnsrennsli heldur áfram að aukast í Gígjukvísl Vatnsrennsli hélt áfram að aukast í Gígjukvísl í nótt í kjölfar jarðhræringa í Grímsvötnum í Vatnajökli í gær. Búist er við að rennslið aukist jafnt og þétt næstu dagana og nái hámarki síðar í vikunni. 1.11.2010 07:37
Lögreglan stöðvaði 15 ára pilt á bíl foreldra sinna Lögreglan stöðvaði í nótt fimmtán ára pilt, sem hafði stolið bíl foreldra sinna og boðið vini sínum og jafnaldra í bíltúr. 1.11.2010 07:27
Dregur úr skjálftavirkni undir Blöndulóni Mun minni skjálftavirkni var undir Blöndulóni í nótt en fyrrinótt. Snarpasti skjálftinn í nótt mældist 2,4 á Richter, en í fyrrinótt mældist stærsti skjálftinn yfir fjóra á Richter. 1.11.2010 07:25
Austan hvassviðri með morgninum Það gengur í austan hvassviðri með morgninum, 10 til 15 metar á sekúndu á höfuðborgarsvæðinu með rigningu, en 13 til 20 metar á sekúndu norðvestanlands. 1.11.2010 07:21
Tveir á slysadeild eftir harðan árekstur Ökumenn tveggja bíla voru flulttir á slysadeild í gærkvöldi eftir harðann árekstur bíla þeirra á mótum Breiðholtsbrautar og Seljaskóga í gærkvöldi. 1.11.2010 07:03
Leituðu rjúpnaskyttu við óvenjuerfiðar aðstæður Björgunarsveitarmenn frá Landsbjörgu fundu rjúpnaskyttu við Heklu rætur laust fyrir klukkan ellelfu í gærkvöldi eftir nokkra leit við óvenju erfiðar aðstæður í myrkri, slyddu, havssviðri og öskufoki. 1.11.2010 06:59