Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríkisstyrkur fór víst í einkavæddar námsbrautir Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Hjálmars Árnasonar, framkvæmdastjóra Keilis ehf. Þar kemur meðal annars fram að Keilir hafi víst nýtt opinbert fé í aðrar námsbrautir en þær sem ríkið styrkti. Meðal þess sem féð fór í var flugnám skólans sem er algjörlega einkavætt. 1.9.2010 11:25
Varnarmálastofnun 190 milljónum undir áætlun Rekstrarafkoma Varnarmálastofnunar er um 190 milljónum undir áætlun samkvæmt tilkynningu frá Varnamálastofnun. Rekstaráætlun tímabilsins gerði ráð fyrir kostnaði upp á 683 milljónir, en þann 1. september voru bókfærð gjöld um 487 milljónir. 1.9.2010 11:01
Börn 12 ára og yngri mega bara vera úti til átta Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag. Nú mega börn 12 ára og yngri aðeins vera úti til klukkan átta á kvöldin. Unglingar á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan tíu. 1.9.2010 10:31
Kynferðisbrotakærur teknar upp á ný Nauðgunarkærur gegn Julian Assange, sem er forsprakki Wikileaks, hafa verið teknar upp á ný eftir að þær voru látnar niður falla í síðustu viku. 1.9.2010 10:31
Slökkt á NMT kerfinu Síminn hætti rekstri NMT símakerfisins á miðnætti og á 3-G farsíamkerfið að leysa það af hólmi. Það nær hinsvegar ekki enn alveg tryggilega til einhverra svæða, sem notið hafa NMT kerfisins. 1.9.2010 10:28
Ellisif hætt hjá Varnarmálastofnun Ellisif Tinna Víðisdóttir lét af forstjórastarfi Varnarmálastofnunar í gær, samkvæmt áætlun stjórnvalda um að leggja þessa yngstu stofnun lýðveldisins niður. 1.9.2010 09:53
Aldrei jafn margir kennarar með kennsluréttindi Aldrei hafa fleiri kennarar verið með kennsluréttindi samkvæmt upplýsingum sem finna má á heimasíðu Hagstofunnar. Þar kemur fram að alls höfðu 82,2% starfsmanna við kennslu í nóvember 2009 kennsluréttindi og hefur fjölgað úr 78,0% árið áður. 1.9.2010 09:44
Veiðigjaldið tvöfallt hærra Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið gerið ráð fyrir að veiðigjald til ríkisins á nýju fiskveiðiári, sem hófst á miðnætti, verði umþaðbil tvöfalt hærra en á nýliðnu fiskveilðiári. Þá var það 14 hundruð milljónir króna en nú er áætlað að það verði 2,7 til 2,9 milljarðar. 1.9.2010 09:43
Haraldur Flosi furðar sig á myndbandi um eldhús OR Myndband af glæsilegu eldhúsi Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls vekur mikla athygli orkunotenda og fólk gagnrýnir að Orkuveitan hafi í góðærinu látið setja upp hjá sér eldhús sem gæti vel sómað sér á fínustu hótelum erlendis. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, var gestur Bylgunnar í morgun þar sem hann var spurður hvort hann hefði einhverju sinni rekið í rogastans yfir fjárfestingum orkuveitunnar. 1.9.2010 09:35
Þingflokkarnir funda Þingflokksfundir hafa verið boðaðir hjá stjórnarflokkunum í tengslum við uppstokkun í ríkisstjórninni. Þingmenn VG hittast klukkan níu og Samfylkingarmenn klukkutíma síðar. 1.9.2010 08:21
Boeing Dreamliner á Keflavíkurflugvelli Boeing 787 Dreamliner,nýjasta þotan frá Boeing verksmiðjunum, kom til Keflavíkur í nótt til að æfa lendingar á Keflavíkurflugvelli, einkum í hliðarvindi. 1.9.2010 07:24
Stolið frá Leikfélagi Hveragerðis Hljóðmixer og ljósaborði, að andvirði að minnsta kosti hálfrar milljónar króna, var stolið úr húsnæði Leikfélags Hveragerðis. Þjófnaðurinn uppgötvaðist í gærkvöldi, en kann að hafa verið framinn fyrr, og óskar lögreglan í Árnessýslu eftir upplýsingum um mannaferðir við húsið undanfarna tvo sólarhringa. 1.9.2010 07:19
Villtar í þoku á Hengilssvæðinu Tvær ungar konur villtust í blind þoku á Hengilssvæðinu á milli Hveragerðis og Nesjavalla í gærkvöldi. Eftir að þokan skall á snéru konurnar við en villtust og hringdu efir hjálp. 1.9.2010 07:03
Hrókeringar í ríkisstjórn í dag Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, og Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, munu hætta í ríkisstjórninni í vikunni. Allar líkur eru á að Kristján L. Möller samgönguráðherra og Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hverfi einnig á braut. Tilkynnt verður um breytingar á ríkisstjórninni áður en þing kemur saman á morgun. 1.9.2010 06:15
Strætó yfirgefur Hlemm BSÍ tekur við hlutverki Hlemms sem skipti- og endastöð Strætós bs. verði hugmyndir fyrirtækisins að veruleika. Þá verður hætt akstri stórra strætisvagna um miðborg Reykjavíkur og við taka tíðari ferðir minni vagna 1.9.2010 06:00
Eigendur vilja selja borginni Skáldastíg Listamaður og arkitekt sem eiga lóðir undir göngustíg að Unuhúsi vilja að borgin kaupi stíginn. Menningarsögulegt gildi segir Minjasafn. Sagan lifir þótt stígurinn hverfi, segir framkvæmda- og eignasvið og vill ekki eyða fé í málið. 1.9.2010 06:00
Boltinn er núna hjá Expressferðum Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur Neytendasamtakanna, segir samtökin nú bíða viðbragða Expressferða við þeirri niðurstöðu Neytendastofu að ferðaskrifstofan hafi átt að endurgreiða að fullu pakkaferð til Berlínar. 1.9.2010 05:45
Kennurum fækkar um átta á tveimur árum Stöðugildum í Álftanesskóla hefur fækkað um átta á síðustu tveimur árum. Nú eru 39 stöðugildi í skólanum en voru 47 skólaárið 2008 til 2009, sem er 20 prósenta fækkun. Nemendafjöldinn er sá sami, eða um 460 börn. 1.9.2010 05:30
Enn verið að vinna í hljóðritunarmálinu Hljóðritanir eru óheimilar á bæjarstjórnarfundum Mosfellsbæjar. Birta Jóhannesdóttir, þriðji maður á lista Íbúahreyfingarinnar, bað Karl Tómasson, forseta bæjarstjórnar, um leyfi til þess að hafa hljóðnema á bæjarstjórnarfundi 25. ágúst síðastliðinn, en var neitað. 1.9.2010 05:15
Flóahreppur braut lög með brottrekstri Flóahreppur braut ítrekað lög þegar sveitarstjórn hreppsins vék formanni umhverfisnefndar hreppsins frá og skipaði nýjan formann stuttu fyrir aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í vor, samkvæmt úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. 1.9.2010 05:00
Eigum að fylgja fordæmum sem til eru Ísland semur ekki um undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins, heldur verður farið fram á sérlausnir, líkt og fordæmi eru fyrir. Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum ráðherra og sendiherra, í viðtali við Morgunútvarp Rásar 2 í gær. 1.9.2010 05:00
Ályktun BHM kemur mjög á óvart Miðstjórn Bandalags háskólamanna (BHM) kallar eftir því í ályktun að Framtakssjóður Íslands sýni fram á með óyggjandi hætti að fjárfestingar sjóðsins fylgi tilgangi og skilmálum sjóðsins og leggst gegn frekari framlögum í sjóðinn. 1.9.2010 05:00
Galdurinn liggur í frostinu „Það er óvenjulega mikið af reyniberjum í ár eins og af öðrum jarðargróðri. Reyniberin eru stórkostlegt haustskraut en líka góð til átu með réttri meðhöndlun,“ segir Hildur Hákonardóttir, höfundur bókarinnar Ætigarðurinn – handbók grasnytjungsins. 1.9.2010 05:00
Einungis munaði níu atkvæðum Kjarasamningur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og launanefndar sveitarfélaga (LN) var samþykktur í almennri atvæðagreiðslu í fyrradag. Einungis munaði níu atvæðum, en 100 manns voru ósamþykkir samningum og 109 samþykkir. Talningu lauk laust fyrir hádegi í gær. 1.9.2010 04:30
Útspil stjórnvalda varðandi áfengisauglýsingar fagnaðarefni „Þetta er mikið fagnaðarefni og sérstaklega gaman af því að fólk skuli taka og setja velferðarsjónarmið barna og unglinga í öndvegi,“ segir Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum. 31.8.2010 22:32
Flokksstjórn í startholunum Búist er við að flokksstjórn Samfylkingarinnar verði kölluð saman með skömmu fyrirvara í tengslum við fyrirhugaða uppstokkun á ríkisstjórninni. Til stendur að fækka ráðherrum um tvo. 31.8.2010 21:29
Oddný: Veit ekki hvort ég verð ráðherra „Það hef ég ekki hugmynd um,“ segir Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, aðspurð hvort hún taki senn sæti í ríkisstjórn. „Ég heyrði þetta bara í féttunum.“ 31.8.2010 20:10
Samningaviðræðunum verið slitið Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á ríkisstjórnina að slíta nú þegar öllum samningaviðræðum við hollenska hernaðarfyrirtækið ECA um að það fái leyfi til að halda uppi starfsemi á Íslandi. 31.8.2010 21:56
Hélt að Össur væri að tala um tollhliðið á Seltjarnarnesi „Fékk nett sjokk, hélt hann væri að tala um mig og tollahlið á Seltjarnarnes. Fjúkkitt,“ segir Jón Gnarr, borgarstjóri, í dagbókarfærslu á samskiptasíðunni Facebook í kvöld. Þar vísar Jón til fréttar á Vísir.is þar sem Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, gagnrýnir harðlega Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, vegna tollmúrs á innfluttar landbúnaðarvörur. „Össur: Tollmúrar Jóns algert brjálæði,“ er fyrirsögn umræddrar fréttar. 31.8.2010 20:47
Lögregla skoðar myndasafn í tengslum við morðið Fáeinum dögum eftir morðið á Hannesi Þór Helgasyni fékk lögregla afrit af myndasafni Víkurfrétta frá fjölskylduhátíð í Vogum sem fór fram kvöldið fyrir morðið. Á einni myndanna sést Hannes Þór standa einn fyrir aftan unnustu sína. Víkurfréttir greina frá þessu í dag. Þar segir ennfremur að lögregla hafi fengið aðgang að myndunum „með það fyrir augum að finna hugsanlegan morðingja á myndunum." 31.8.2010 19:56
„Ætli við þurfum ekki að drepast til að hætta“ Þjóðin getur tekið gleði sína á ný því í dag var gengið frá því að gömlu, góðu heimilisvinirnir Ragnar Reykás, Kristján „heiti ég" Ólafsson og Geir og Grani verði áfram í sjónvarpi, en nú á Stöð 2. 31.8.2010 19:48
Össur þögull „Þú hefur alltaf haft betri heimildir en ég. Ég rengi það ekki,“ sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, við fréttamann þegar hann kom út af fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur í forsætisráðuneytinu í kvöld. 31.8.2010 19:40
Beinagrind steypireyðarinnar á Skaga bjargað Umhverfis- og menntamálaráðherra fengu samþykkta tveggja milljóna króna fjárveitingu á ríkisstjórnarfundi í morgun til að bjarga beinagrind steypireyðarinnar sem rak á land á Skaga fyrir norðan á dögunum. 31.8.2010 19:07
Össur: Tollmúrar Jóns algert brjálæði Tollmúrar Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra á innfluttar landbúnaðarvörur eru algert brjálæði, segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, og hvetur hann til að endurskoða ákvörðun sína. 31.8.2010 19:01
Katrín Júlíusdóttir: Ekki með von í brjósti „Það hefur blasað við að breytingar yrðu gerðar á kjörtímabilinu í tengslum við hugsanlegar breytingar á Stjórnarráðinu. Vonandi erum við að sjá í land með þær og það felur auðvitað í sér breytingar,“ sagði Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, áður en hún gekk í Stjórnarráðshúsið á sjöunda tímanum í kvöld. 31.8.2010 18:58
Afli Samherja hjá ESB Dótturfélög Samherja eru með þúsundir eða tugi þúsunda tonna veiðiheimilda innan Evrópusambandsins. Aflaheimildir dótturfélaganna í útlöndum eru margfalt meiri en móðurfélagið hefur á Íslandi. 31.8.2010 18:40
Ragna og Gylfi hætta Stokkað verður upp í ríkisstjórninni á næstu dögum, jafnvel strax á morgun eða þegar þing kemur saman á fimmtudag. Ráðherrum verður fækkað um tvo. 31.8.2010 18:31
Segir tímann vinna með Íslendingum í Icesave-deilunni Tíminn vinnur með Íslendingum í Icesave-málinu, segir fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá EFTA. Málsmeðferð fyrir EFTA-dómstólnum er sjaldan meiri en 6 til 7 mánuðir, samkvæmt athugun á vef dómstólsins, eða minna en helmingurinn af þeim tíma sem liðinn er síðan fyrst var samið um Icesave. 31.8.2010 18:30
Umfangsmikil leit að neyðarsendi sem fannst í ruslinu Landhelgisgæslan og samstarfsaðilar stóðu fyrir mikilli leit að neyðarsendi frá sunnudegi og fram á mánudag eftir eftir að neyðarskeyti hófu að berast frá sendi sem ekki var lengur í notkun. Við eftirgrennslan kom í ljós að honum hafði verið skilað inn til þjónustuaðila sem ekki fór með hann strax til förgunar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Gæslunni. 31.8.2010 17:38
Barnaspítalasjóður Hringsins fær ekki arfinn Hæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í júlí í deilu um arf til Barnaspítalans. Landspítalinn fær arfinn samkvæmt erfðaskrá. 31.8.2010 17:25
21 karlmaður og ein kona sækja um starf fiskistofustjóra Þann 27. ágúst 2010 rann út frestur til að skila umsókn um embætti fiskistofustjóra. Alls sóttu 22 um starfið. 31.8.2010 16:15
Íslendingar ánægðir með nágrannana, veðrið og borgarstjórann Mikil ánægja ríkir meðal Íslendinga samkvæmt könnun MMR á ánægju almennings. 31.8.2010 16:11
Leggja til að áfengisauglýsingar verði algjörlega bannaðar Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra um að áfengislögum verði breytt þannig að bann við áfengisauglýsingum verði virt. 31.8.2010 15:36
„Ríkisendurskoðun fór óvarlega í fyrirsagnirnar“ „Við urðum strax vör við það að nemendur og starfsfólk höfðu samband og óttuðust að hér væri allt á hausnum. Að sjálfsögðu er ekki svo og mér finnst Ríkisendurskoðun hafa farið óvarlega í fyrirsagnirnar sem höfðu ekki alltaf innistæðu,“ segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, en honum finnst framsetning skýrslu Ríkisendurskoðunar heldur hörð og ekki lýsa starfi skólans rétt. 31.8.2010 15:10
Fiskverð hagstætt - mjölverð enn hagstæðara Verð á íslenskum sjávarafurðum, meðaltal allra afurðaflokka, mælt í erlendri mynt, hækkaði um 1,5 prósent í júlí síðastliðnum. Þetta byggir á útreikningi IFS miðað við tölur um framleiðsluverð í júlí sem Hagstofan birti fyrir helgi. 31.8.2010 14:31