Fleiri
Bjartari tímar fram undan 3.9.2010 03:15 Leggst gegn frekari framlögum í Framtakssjóðinn Stjórn Félags vélstjóra og málmtæknimanna lýsir yfir furðu sinni á fjárfestingum Framtakssjóðs Íslands og telur þær fara langt fram úr samþykktum sjóðsins. Fyrr í vikunni gagnrýndi miðstjórn Bandalag háskólamanna fjárfestingar sjóðsins og lagðist alfarið gegn frekari framlögum lífeyrissjóða félagsmanna sinna til sjóðsins. 2.9.2010 20:25 Ögmundur hefur ekki ákveðið hvort hann afþakkar ráðherralaun Ögmundur Jónasson hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann ætli að afsala sér launum ráðherra líkt og hann gerði þegar hann gegndi embætti heilbrigðisráðherra. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun í því efni," segir Ögmundur sem tók í dag við sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra. 2.9.2010 22:07 Telur að Ingvi Örn fylgi Árna í nýtt ráðuneyti Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Ingvi Örn Kristinsson verði á næstunni skipaður ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu verði Ingvi á annað borð ekki skipaður forstjóri Íbúðalánasjóðs. 2.9.2010 20:14 Óæskilegt að skipta ráðherrum ört út Það tekur eitt til tvö ár að læra að verða ráðherra og ekki æskilegt að skipta ört út ráðherrum, segir Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur. Ráðherrakapallinn nú snúist hins vegar um að treysta samstarf stjórnarflokkanna með því að hleypa fulltrúa órólegu deildarinnar að ríkisstjórnarborðinu. 2.9.2010 19:17 Aðstoðarmaður Jóhönnu vill Rögnu á Bessastaði Hrannar Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, vill að Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra, bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Hann segir að Rögnu og Gylfa Magnússonar verði sárt saknað. 2.9.2010 18:55 Herþotur Bandaríkjahers lentu á Keflavíkurflugvelli í dag Tíu herþotur Bandaríkjahers, sem til stendur að sinni loftrýmisgæslu hér á næstunni, lentu á Keflavíkurflugvelli í dag. Vélarnar lentu á flugvellinum uppúr hádegi. Þetta eru F-15 þotur, tíu talsins. Þeim fylgir 175 manna lið, hermenn úr Bandaríkjaher, og líka eldsneytisbirgðalið. Þá hafa herflutningavélar einnig komið hingað með búnað. 2.9.2010 18:51 Heilu stöðuvötnin gufuð upp á hálendinu Ein stærstu stöðuvötn á miðhálendi Íslands, Kjalvötn, eru horfin. Vatnamælingamaður, sem mælt hefur fjallavötn um áratugaskeið, segist aldrei hafa séð hálendið jafn þurrt og nú, - grunnvatn sé í sögulegu lágmarki. 2.9.2010 18:49 Skúrarnir við Vesturbæjarskóla fluttir Ákveðið hefur verið að flytja tvo skúra af lóð Vesturbæjarskóla í Reykjavík og að frístundastarf yngstu bekkja fari fram inni í húsnæði skólans í vetur. Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að þetta hafi verið ákveðið í samráði við foreldra, skólastjóra og stjórnendur frístundaheimilis. 2.9.2010 18:49 Þriðjungur landsmanna býr í sveitarfélögum sem fengu bréf Um þriðjungur landsmanna býr í þeim sveitarfélögum sem fengu bréf frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaganna vegna slæmrar fjárhagsstöðu. 2.9.2010 18:47 Hyggja ekki á frama í pólitík Hvorki Ragna Árnadóttir né Gylfi Magnússon sem létu af ráðherraembætti dag hyggja á frama í pólitík. Gylfi og Ragna settust í ráðherrastól þegar minnihlutastjórn Vinstri grænna og samfylkingarinnar var mynduð í byrjun síðasta árs. Þau gegndu því ráðherraembætti í tæpa 19 mánuði. 2.9.2010 18:39 Íslenskir strætóbílstjórar í öðru sæti Norðurlandamót strætisvagnabílstjóra í ökuleikni fór fram um síðustu helgi og hrepptu íslenskir strætisvagnabílstjórar annað sætið í keppninni í ár. Sex keppendur eru í hverju liði og ekur hver keppandi brautina tvisvar. 2.9.2010 18:10 Nýir ráðherrar komnir með lyklavöld Lyklaskipti fóru fram í fjórum ráðuneytum seinnipartinn í dag í kjölfar uppstokkunar á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem greint var frá í í morgun. 2.9.2010 18:00 Sjá næstu 50 fréttir
Glansmyndir og afneitun á Alþingi Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin dragi upp ótrúlega glansmynd af stöðu efnahagsmála en forsætisráðherra segir að stjórnarandstaðan vilji ekki sjá ljósið. 3.9.2010 12:01
Hreyfingin segir fjórflokkinn ekkert hafa lært af hruninu Þingmenn Hreyfingarinnar telja hina stjórnmálaflokkana ekki hafa lært af hruninu. Til marks um það segja þeir hvernig frumvarp um breytingar á lögum um fjárframlög til stjórnmálaflokka sé keyrt í gegn um þingið. 3.9.2010 12:01
Gálga stolið af sprengjulistamanni „Það virðist hafa verið tekinn í sundur og fjarlægt,“ segir listamaðurinn Þórarinn Jónsson en fjögurra metra hár gálgi sem stóð á Daníelslippi er horfinn. Gálginn var listaverk og tilheyrði sýningunni „Slipp my mind“. Sjö aðrir listamenn sýndu einnig verk sín á sýningunni. Þau verk fengu að standa í friði. 3.9.2010 11:45
Eygló spyr um fjárfestingar lífeyrissjóða Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn til fjármálaráðherra um fjárfestingar lífeyrissjóða. Hún spyr hvernig fjárfesting sextán lífeyrissjóða í Framtakssjóði Íslands samræmist lögum um fjárfestingar lífeyrissjóða og óskar eftir skriflegu svari frá Steingrími J. Sigfússyni. Fyrirspurnina lagði hún fram á Alþingi í gær. 3.9.2010 11:33
Nýr bæjarstjóri tekinn við á Ísafirði Að loknum fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í gærkvöldi afhenti fráfarandi bæjarstjóri, Halldór Halldórsson, eftirmanni sínum, Daníel Jakobssyni, lykla að skrifstofu bæjarstjóra. Gengið hafði verið frá ráðningu Daníels á fundi bæjarstjórnar skömmu áður og hefur hann nú formlega tekið við störfum. 3.9.2010 11:06
Morðrannsókn: Niðurstöður úr DNA rannsókn komnar Fyrstu bráðabirgðaniðurstöður úr DNA rannsókn á morðinu í Háabergi þann 15. ágúst síðastliðinn eru komnar til landsins frá Svíþjóð. 3.9.2010 10:40
ECA lítur svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt Forsvarsmenn fyrirtækisins ECA Program Limited líta svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt fyrir starfsemi sinni á Íslandi. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins. Þar birtist í gær frétt með fyrirsögninni: „Icelandic government grants ECA final operating license" sem á íslensku útleggst sem: „Íslensk stjórnvöld veita ECA endanlegt starfsleyfi. 3.9.2010 10:39
Álit á umsækjendum um dómarastöðu kynnt eftir helgi Nýr hæstaréttardómari hefur enn ekki verið skipaður þótt málflutningur hafi byrjað í Hæstarétti á miðvikudaginn. 3.9.2010 10:28
Lögreglan braut hugsanlega á mannréttindum í þvagleggsmálinu Umboðsmaður Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu í frumkvæðisathugun sinni að lögreglan á Selfossi hafi brotið á mannréttindum konu sem var neydd til þess að gefa þvagsýni í gegnum þvaglegg. 3.9.2010 10:24
Tveir fluttir á gjörgæsludeild Tvö af ungmennunum fimm sem flutt voru á slysadeild eftir alvarlegt umferðaslys á Hafnarfjarðavegi í nótt eru komin á gjörgæsludeild Landspítalans. Þau eru bæði alvarlega slösuð og er öðru þeirra haldið sofandi í öndunarvél. Hin þrjú eru enn á slysadeild en verða að öllum líkindum útskrifuð þaðan í dag, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á deildinni. 3.9.2010 09:31
Vafasöm ummæli Þórunnar á bolla og boli Ummæli þingflokksformannsins, Þórunnar Sveinbjarnardóttur, hafa heldur betur slegið í gegn en á dögunum sagði hún frænda fréttamannsins Ægis Þórs Eysteinssonar, „að hoppa upp í rassgatið á sér.“ 3.9.2010 09:06
Frjálshyggjumaður býður sig fram til formanns Heimdallar Aðalfundur Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna, verður haldinn í september. Hlynur Jónsson gefur kost á sér sem formaður Heimdallar og Magnús Júlíusson sem varaformaður. Þeir segja í sameiginlegri tilkynningu að þeir vilji með framboði sínu opna og efla til muna starfið í þessu stærsta stjórnmálafélagi landsins með hugsjónir um frelsi einstaklingsins að leiðarljósi. 3.9.2010 08:56
Barist um bitana hjá Vegagerðinni Verktakar heyja óvenju harða baráttu um þau fáu verk, sem Vegagerðin býður út og nýjasta dæmi um það er að verktaki bauðst til að vinna tiltekið verk fyrir rétt liðlega helming af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. 3.9.2010 08:40
Óvenju mikið drykkjulæti í nótt Óvenju mikið var um drykkjulæti og óspektir á höfuðborgarsvæðinu í nótt og þurfti lögregla að taka sex menn úr umferð og vista þá í fangageymslum. Hvað eftir annað var lögregla kölluð út vegna hávaða í heimahúsum og sumstaðar voru einhverjir pústrar, en þó hvergi alvarlegir. 3.9.2010 08:36
Nýtt hringtorg opnað í Reykjanesbæ Í tilefni af Ljósanótt í Reykjanesbæ verður nýtt hringtorg á Reykjanesbraut við Grænás opnað í dag klukkan tíu 3.9.2010 08:36
Mótmæla hækkunum Orkuveitunnar Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla áhrifum af hækkunum Orkuveitu Reykjavíkur um rúm 28 prósent nýverið. 3.9.2010 07:10
Handtekin við hassreykingar á Akureyri Lögreglan á Akureyri handtók fjögur ungmenni, sem voru að reykja hass í bíl í nótt. Lítilsháttar af hassi fannst í bílnum og var fólkinu sleppt að yfirheyrslum loknum. Ökumaður var einnig tekinn úr umferð á Akureyri í nótt, grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. 3.9.2010 07:08
Fimm ungmenni slösuðust í bílslysi Fimm ungmenni slösuðust, þar af tvö alvarlega, á mótum Hafnarfjarðarvegar og Nýbýlavegar í Kópavogi um klukkan eitt í nótt. 3.9.2010 07:02
Gapandi brunarúst kvelur fjölskylduna „Ósk mín er að gengið sé til þess að rífa þetta hús sem fyrst,“ segir frænka manns sem fórst í eldsvoða á Hverfisgötu í ákalli til Jóns Gnarr borgarstjóra. 3.9.2010 06:15
Hálfur milljarður í fráveitu Bláa lónsins HS Orka þarf að fara út í um fimm hundruð milljóna króna framkvæmdir á næstu árum til að veita umframvökva úr Bláa lóninu til sjávar. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu er yfirborð lónsins orðið of hátt þar sem niðurfallsholur eru stíflaðar og flæðir jafnvel upp á veg á köflum. 3.9.2010 06:00
Söluskáli hjá Leifsstöð skapi tekjur fyrir Keili Keilir - miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs hefur óskað eft því við sveitarfélagið Garð að fá allt að fimm þúsund fermetra lóð undir „fjölnota orkustöð" hjá síðasta hringtorginu áður en beygt er inn að Leifsstöð. Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, segist sjá fyrir sér þjónustumiðstöð á borð við Staðarskála þar sem leiðirnar í Leifsstöð, Keflavík og Sandgerði mætast. 3.9.2010 05:45
Ætlaði aldrei að koma aftur heim Kristján Jóhannsson óperusöngvari ætlaði sér aldrei aftur að koma til Íslands, eftir fjaðrafokið sem varð út af umdeildum styrktartónleikum í Hallgrímskirkju og umtöluðu Kastljósviðtali í framhaldi af því. Þetta er meðal þess sem kemur fram í væntanlegri ævisögu Kristjáns, Il grande tenore, sem Þórunn Sigurðardóttir skráir. 3.9.2010 05:30
Stærsta seglskip heims Stærsta seglskip heims sótti Reykjavíkurhöfn heim klukkan níu í gærmorgun. Skipið ber nafnið Sedov og kemur frá Rússlandi og mun dvelja í Reykjavík fram til laugardags. Það er 120 metra langt og 15 metra breitt og verður þar með talið það stærsta í hópi seglskipa af eldri gerð. Hæstu masturstoppar skipsins eru 58 metrar. 3.9.2010 05:30
Gera kröfu um að fá að velja sér stéttarfélag Stjórn Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa (FRS) mótmælir kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga, um að félagar FRS verði skyldaðir til að ganga í starfsmannafélög sveitarfélaga. Um áramótin mun málaflokkur fatlaðra færast frá ríki til sveitarfélaga, en starfsfólk svæðisskrifstofa málefna fatlaðra vill engu að síður halda aðild sinni að stéttarfélaginu SFR. 3.9.2010 05:00
Árásin mikið áfall fyrir DV Fréttavefur DV varð fyrir árás tölvuhakkara í fyrradag og þurfti að loka síðunni í kjölfarið. Árásin átti sér stað klukkan 17.40 á miðvikudaginn og var síðunni lokað um hádegi í gær. Forsvarsmenn DV benda þeim notendum síðunnar sem hafa farið þar inn á milli klukkan 17.40 á miðvikudeginum til 11.50 í gær að gæta fyllstu varúðarráðstafana og skanna tölvur sínar fyrir vírusum. 3.9.2010 05:00
Hverri lundapysju tekið fagnandi Útlit er fyrir að mjög fáar lundapysjur komist á legg í Vestmannaeyjum í sumar. Egg hafa ýmist verið afrækt eða pysjurnar drepist fljótlega eftir klak í öllum þeim holum sem Náttúrustofa Suðurlands fylgdist með í sumar. 3.9.2010 05:00
Fjallahjólabraut í Kjarnaskógi Fyrsta sérhannaða fjallahjólabraut landsins verður vígð á laugardag í Kjarnaskógi við Akureyri. Þriggja kílómetra braut var lögð sumarið 2008 og segir í tilkynningu frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga að hún hafi strax orðið vinsæl. Hjólreiðafólk sæki mikið í Kjarnaskóg en umferð gangandi og hjólandi fari ekki alltaf saman. 3.9.2010 05:00
Geðhjálp vill heildarstefnu Stjórn Geðhjálpar segist ánægð með stofnun velferðarráðuneytis enda sé það langþráð baráttumál félagsins. Geðhjálp skorar hins vegar á stjórnvöld að bregðast hratt við ábendingum Ríkisendurskoðunar um heildarstefnu í málefnum fatlaðra. 3.9.2010 04:15
Bifhjól og fólksbíll í árekstri Karlmaður um fimmtugt var fluttur á slysadeild eftir umferðarslys á Vesturlandsvegi á móts við Korpúlfsstaðaveg um áttaleytið í fyrrakvöld. 3.9.2010 04:00
Kynjaskekkjan leiðréttist um áramót Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist eiga von á að töluverður sparnaður hljótist af þeirri sameiningu ráðuneyta sem gert er ráð fyrir að verði að veruleika á næstu dögum. 3.9.2010 04:00
Míla segir samning um sameign vanta Ásakanir Vodafone vegna dráttar á því að fyrirtækið hafið fengið aðgang að svonefndum Nató-ljósleiðara beinast að röngum aðila, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá Mílu. 3.9.2010 03:45
ESB og Icesave ekki fyrirstaða Ögmundur Jónasson kemur á nýjan leik inn í ríkisstjórnina og tekur við embættum dómsmála-, mannréttinda-, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Ég byggi á starfi forvera minna í starfi og alls þess starfsfólks sem vinnur verkin í þessum ráðuneytum,“ segir Ögmundur. 3.9.2010 03:45
Leggst gegn frekari framlögum í Framtakssjóðinn Stjórn Félags vélstjóra og málmtæknimanna lýsir yfir furðu sinni á fjárfestingum Framtakssjóðs Íslands og telur þær fara langt fram úr samþykktum sjóðsins. Fyrr í vikunni gagnrýndi miðstjórn Bandalag háskólamanna fjárfestingar sjóðsins og lagðist alfarið gegn frekari framlögum lífeyrissjóða félagsmanna sinna til sjóðsins. 2.9.2010 20:25
Ögmundur hefur ekki ákveðið hvort hann afþakkar ráðherralaun Ögmundur Jónasson hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann ætli að afsala sér launum ráðherra líkt og hann gerði þegar hann gegndi embætti heilbrigðisráðherra. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun í því efni," segir Ögmundur sem tók í dag við sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra. 2.9.2010 22:07
Telur að Ingvi Örn fylgi Árna í nýtt ráðuneyti Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Ingvi Örn Kristinsson verði á næstunni skipaður ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu verði Ingvi á annað borð ekki skipaður forstjóri Íbúðalánasjóðs. 2.9.2010 20:14
Óæskilegt að skipta ráðherrum ört út Það tekur eitt til tvö ár að læra að verða ráðherra og ekki æskilegt að skipta ört út ráðherrum, segir Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur. Ráðherrakapallinn nú snúist hins vegar um að treysta samstarf stjórnarflokkanna með því að hleypa fulltrúa órólegu deildarinnar að ríkisstjórnarborðinu. 2.9.2010 19:17
Aðstoðarmaður Jóhönnu vill Rögnu á Bessastaði Hrannar Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, vill að Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra, bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Hann segir að Rögnu og Gylfa Magnússonar verði sárt saknað. 2.9.2010 18:55
Herþotur Bandaríkjahers lentu á Keflavíkurflugvelli í dag Tíu herþotur Bandaríkjahers, sem til stendur að sinni loftrýmisgæslu hér á næstunni, lentu á Keflavíkurflugvelli í dag. Vélarnar lentu á flugvellinum uppúr hádegi. Þetta eru F-15 þotur, tíu talsins. Þeim fylgir 175 manna lið, hermenn úr Bandaríkjaher, og líka eldsneytisbirgðalið. Þá hafa herflutningavélar einnig komið hingað með búnað. 2.9.2010 18:51
Heilu stöðuvötnin gufuð upp á hálendinu Ein stærstu stöðuvötn á miðhálendi Íslands, Kjalvötn, eru horfin. Vatnamælingamaður, sem mælt hefur fjallavötn um áratugaskeið, segist aldrei hafa séð hálendið jafn þurrt og nú, - grunnvatn sé í sögulegu lágmarki. 2.9.2010 18:49
Skúrarnir við Vesturbæjarskóla fluttir Ákveðið hefur verið að flytja tvo skúra af lóð Vesturbæjarskóla í Reykjavík og að frístundastarf yngstu bekkja fari fram inni í húsnæði skólans í vetur. Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að þetta hafi verið ákveðið í samráði við foreldra, skólastjóra og stjórnendur frístundaheimilis. 2.9.2010 18:49
Þriðjungur landsmanna býr í sveitarfélögum sem fengu bréf Um þriðjungur landsmanna býr í þeim sveitarfélögum sem fengu bréf frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaganna vegna slæmrar fjárhagsstöðu. 2.9.2010 18:47
Hyggja ekki á frama í pólitík Hvorki Ragna Árnadóttir né Gylfi Magnússon sem létu af ráðherraembætti dag hyggja á frama í pólitík. Gylfi og Ragna settust í ráðherrastól þegar minnihlutastjórn Vinstri grænna og samfylkingarinnar var mynduð í byrjun síðasta árs. Þau gegndu því ráðherraembætti í tæpa 19 mánuði. 2.9.2010 18:39
Íslenskir strætóbílstjórar í öðru sæti Norðurlandamót strætisvagnabílstjóra í ökuleikni fór fram um síðustu helgi og hrepptu íslenskir strætisvagnabílstjórar annað sætið í keppninni í ár. Sex keppendur eru í hverju liði og ekur hver keppandi brautina tvisvar. 2.9.2010 18:10
Nýir ráðherrar komnir með lyklavöld Lyklaskipti fóru fram í fjórum ráðuneytum seinnipartinn í dag í kjölfar uppstokkunar á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem greint var frá í í morgun. 2.9.2010 18:00