Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríksstjórnin heldur velli Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna heldur velli samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 27.9.2010 09:46
Klámvæðing hefur alvarlegar afleiðingar fyrir karlmenn Katrín Anna Guðmundsdóttir, jafnréttishönnuður og stundakennari í kynjafræði, segir fjölmiðla fjalla um klám á mun jákvæðari hátt en áður og klámi jafnvel hampað í fjölmiðlum. Henni finnst þetta alvarleg þróun þar sem klám sé nátengt ofbeldi og fólk þar hlutgert kynferðislega. 27.9.2010 09:34
N-Kórea: Nýr leiðtogi væntanlega kynntur til sögunnar Búist er við því að á morgun verði tilkynnt um arftaka Kim Jong-ils á forsetastóli í Norður Kóreu. Verkamannaflokkur Norður Kóreu kemur saman til fundar á morgun og búast menn við því að þar tilkynni leiðtoginn Kim Jong IL að arftakin hans á leiðtogastóli verði enginn annar en sour hans. Mikil leynd hefur hvílt yfir málinu eins og yfir flestu öðru í landinu og lítið er vitað um soninn. 27.9.2010 08:39
Unnið fram á nótt undir Eyjafjöllum Stórvirkar vinnuvélar unnu langt fram á nótt við að dýpka farveg Svaðbælisár undir Eyjafjöllum en þar fór að flæða yfir veginn í gærkvöldi og sömuleiðis við brúnna yfir Holtsá. 27.9.2010 07:31
Rætt um ákærur á Alþingi Þingfundur hefst klukkan hálf ellefu þar sem skýrsla þingmannanefndar um ákærur á fyrrverandi ráðherra verður á dagskrá. Samkvæmt könnun Capacent Gallups fyrir Ríkisútvarpið vilja 64 prósent aðspurðra að Árni Matthiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra verði ákærður, 61 prósent að Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra verði það, 55 prósent að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra verði ákærð og 45 prósent að Bjrögvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðhera verði það. Stefnt er að því að leiða málið til lykta eigi síðar en á fimmtudag. 27.9.2010 07:29
Fréttatíminn hefur göngu sína Nýtt helgarblað, sem á að heita Fréttatíminn, hefur göngu sína í næsta mánuði og á að koma út á föstudögum. Í tilkynningu segir að það eigi að flytja nýjustu fréttir, ítarlegar fréttaskýringar um málefni líðandi stundar og leggja rækt við viðtöl við áhugavert fólk af öllu tagi. Eigendur eru starfsmenn blaðsins. Ritstjóri er Jón Kalddal, Óskar Hrafn Þorvaldsson er frétastjóri og framkvæmdastjóri er Teitur Jónasson. Blaðið verður prentað í 82 þúsund eintökum og dreift frítt. 27.9.2010 07:27
Vanhugsað að loka bílastæðunum „Fatlaðir foreldrar komust ekki að dagheimilum og leikskólum vegna þess að það var búið að loka fyrir bílastæðin,“ segir Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ). „Við fengum töluvert mikið af kvörtunum.“ 27.9.2010 06:00
Telur moskuna eyða fordómum Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi, segir andstöðu við byggingu mosku í Reykjavík ekki koma sér á óvart. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins eru tæp 42 prósent landsmanna andvíg byggingunni. Tæp 37 prósent sögðust styðja byggingu mosku. 27.9.2010 06:00
Gerðu grein fyrir sínum þætti í júní Ólíklegt er að fleiri fyrrverandi ráðherrar skili af sér sérstakri greinargerð um störf sín í aðdraganda bankahrunsins eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, gerði fyrir helgi. 27.9.2010 06:00
Efaðist aldrei um orð svikahrappsins Þriggja daga réttarhöldum yfir Michael Craig Sundet, 29 ára Norðmanni, lauk á föstudag. Sundet var handsamaður eftir að íslensk kona kærði hann í vor fyrir að hafa svikið út úr sér fé. Eftir handtökuna kom í ljós að að svik hans voru umfangsmeiri en í fyrstu var talið. 27.9.2010 05:00
Spyr um lagagrundvöll orkunefndar Umboðsmaður Alþingis setur spurningar við lögmæti nefndar um orku- og auðlindamál sem fjallaði um kaup Magma Energy Sweden á hlut Geysis Green Energy í HS Orku. Forsvarsmenn Geysis Green kvörtuðu til umboðsmanns vegna inngripa ríkisstjórnar og yfirlýsinga hennar í málinu. 27.9.2010 04:30
Áætlun helst ef veður leyfir Tvær ferðir voru farnar í gærmorgun á áætlun milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. Eftir það féllu allar ferðir niður vegna veðurs. 27.9.2010 04:00
Semja við breskt stórfyrirtæki Íslenska fyrirtækið Iceland Beverage Company stefnir að því að hefja framleiðslu á vodka í Reykjavík innan hálfs árs og selja hann í Norður-Ameríku, á meginlandi Evrópu og í Kína. 27.9.2010 03:30
Aðeins tíu börn á biðlistum Aldrei fyrr hafa jafn margir sótt um frístundaheimilisvist fyrir grunnskólabörn hjá Íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkur (ÍTR). Í lok september voru tæplega 3.200 börn skráð miðað við 2.850 á sama tíma í fyrra. 27.9.2010 03:15
Enn umtalsverð óánægja með hefðbundna flokka Aðeins rétt ríflega helmingur þeirra 800 Íslendinga sem tóku þátt í nýlegri skoðanakönnun Fréttablaðsins tóku afstöðu þegar spurt var hvaða flokk viðkomandi myndi kjósa yrði efnt til alþingis- kosninga nú. Alls tóku 51,2 prósent þátttakenda í könnuninni, sem gerð var fimmtudaginn 23. 27.9.2010 00:01
Ferð Herjólfs fellur niður Ferð Herjólfs sem áætlað var að færi frá Vestmannaeyjum klukkan níu í kvöld hefur verið felld niður vegna veðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. 26.9.2010 19:58
Flæðir yfir beggja megin Steinafjalls Vatn flæddi yfir veginn vestan við Holtsá var að bresta síðdegis og flæðir yfir á um 200 metra kafla, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Það flæðir því yfir beggja megin Steinafjalls því að fyrr í dag flæddi úr Svaðbælisá. Vatnsflaumurinn fer vaxandi en veginum hefur ekki enn verið lokað. Lögreglan segir að hægt sé að fara yfir ef menn fari mjög varlega. 26.9.2010 18:14
Byrjað að laga veginn Jarðýta er byrjuð að vinna að því að ryðja í veginn sem fór í sundur við bæinn Mörtungu, austan við Kirkjubæjarklaustur, fyrr í dag. 26.9.2010 16:36
Auglýst eftir stolinni bifreið Aðfaranótt laugardags var bifreiðinni PY-F26 af gerðinni Dodge Ram stolið frá Bílasölunni Planinu við Breiðhöfða í Reykjavík. Bifreiðin er svört að lit og er meðfylgjandi mynd af henni. Eigandi bifreiðarinnar biður þá sem hafa orðið varir við hana að hafa samband við lögregluna. 26.9.2010 17:12
Um 250 milljónir söfnuðust í átaki Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur Rösklega 250 milljónir króna hafa safnast í átaki Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur til byggingar Alþjóðlegrar tungumálamiðstöðvar sem einnig mun hýsa kennslu erlendra tungumála við Háskóla Íslands. 26.9.2010 15:33
Vonskuveður á Snæfellsnesi Mikið rok er nú á norðanverðu Snæfellsnesi og hafa vindhviður farið upp í 40 m/s á Gufuskálum. Í hádeginu bárust björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellbæ nokkrar hjálparbeiðnir. 26.9.2010 14:50
Um 120 manns fastir í Þórsmörk Um 120 manns eru fastir í Þórsmörk vegna mikilla vatnavaxta í ánum þar. Að sögn Klemenzar Klemenzsonar, skálavarðar í Húsadal, er ekkert útlit fyrir að það fari að sjatna í ánum fyrr en seinnipartinn á morgun eins og veðurspáin er núna. 26.9.2010 14:27
Fjöldi fólks hljóp á Alþjóða hjartadaginn Tæplega 200 manns luku Hjartadagshlaupinu sem Hjartavernd hélt í fjórða sinn við Kópavogsvöll í dag, á Alþjóða hjartadaginn. 26.9.2010 13:55
Herjólfur fer í fyrsta lagi klukkan níu Ferð Herjólfs sem átti að fara frá Vestmannaeyjum klukkan þrjú í dag var felld niður. Áætlað er að Herjólfur muni sigla frá Vestmannaeyjum klukkan níu í kvöld en lokaákvörðun um það verður tekin klukkan hálfátta eða átta. Fólk er hvatt til þess að hafa samband við afgreiðslu Herjólfs í síma 4812800 ef spurningar vakna. 26.9.2010 13:22
Innlyksa eftir að vegur fór í sundur Gríðarleg rigning var í nótt á Suð - Austurlandi með þeim afleiðingum að mikið óx í ám í Vestur -Skaftafellssýslu. Árni Ingvar Bjarnason sendi þessa mynd af Þverá, sem er lítil hliðará sem fellur í Geirlandsá. Samkvæmt upplýsingum frá honum var áin orðin að stórfljóti í morgun eftir 50 millimetra rigningu og rofnaði vegurinn við brú á veginum. 26.9.2010 13:16
Vilja rannsókn á lánveitingum til fasteignakaupa Þingmannanefnd Atla Gíslasonar mælir með því að tillaga um að hefja sjálfstæða og óháða rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs verði flutt á næsta löggjafarþingi. Þetta kemur fram í áliti sem nefndin skilaði frá sér í gær. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fleiri þingmenn, lögðu til í síðustu viku að slík rannsókn færi fram. 26.9.2010 10:53
Fylgjast með framvindu mála á Eyjafjallajökli Veðurstofan fylgist nú grannt með framvindu mála á Eyjafjallajökli vegna hættu á eðjuflóðum af jöklinum í kjölfar mikilla rigninga þar í gær og í nótt. Þar rignir enn. Vísindamenn fylgjast með rennslismælum í nálægum ám og aðstæður eru kannaðar eftir því sem kostur er, en ekki hefur enn þótt tilefni til að gefa út viðvaranir vegna þess. 26.9.2010 10:10
Miklir vatnavextir á Suðurlandi Lögreglan á Hvolsvelli varar ferðamenn í Rangárþingi-eystra og í Vestur- Skaftafellssýslu við miklum vatnavöxtum í ám á svæðinu og að búast megi við að víða flæði upp á vegi. Seint í gærkvöldi var vatnsborðið í Svaðbælisá á þjóðvegi eitt, undir Eyjafjöllum, til dæmis komið upp undir brúargólfið. Vatnavöxtur er líka í ám á hálendinu og varar lögregla ferðamenn á heimleið við þeim og beinir því til ferðamanna, að þeir leggi ekki á hálendið í dag. Mikið ringdi á þessu svæði í gær og í nótt, þannig að ekki er farið að sjatna í ánum. 26.9.2010 09:08
Tveir skjálftar í Vatnajökli Jarðskjálfti að stærð 3,7 á Richter varð við Hamarinn undir norðvestanverðum Vatnajökli um klukkan 24 mínútur í tólf að miðnætti í gær. Fyrr um kvöldið, eða laust eftir klukkan níu, varð jarðskjálfti að stærð 3,4 á sama stað. Um tveir tugir eftirskjálfta hafa fylgt þessum skjálftum, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Hamarinn er megineldstöð suðvestur af Bárðarbungu. Veðurstofan segir að enginn gosórói hafi mælst. 26.9.2010 09:03
Björgunarsveitarmaður synti 40 metra í beljandi straumi Björgunarsveitarmaður frá Kirkjubæjarklaustri vann það afrek í gærkvöldi að synda með líflínu um fjörutíu metra kafla í beljandi straumi Núpsvatna yfir á eyri í miðju fljótinu, til að koma þremur mönnum þar til bjargar, sem sátu þar í sjálfheldu í bíl sínum og komust hvergi vegna vatnavaxta. 26.9.2010 08:51
Potturinn fjórfaldur næst Potturinn verður fjórfaldur þegar dregið verður í Lottó að viku liðinni. Fyrsti vinningur í kvöld var rúmar 16 milljónir, en hann gekk ekki út. 25.9.2010 20:01
Rannsóknarnefnd um Icesave ótímabær Þingmannanefnd Atla Gíslasonar telur ótímabært að samþykkja tillögu þess efnis að fram fari rannsókn á innistæðum í útibúum Landsbanka Íslands á Evrópska efnahagssvæðinu og embættisfærslum og ákvörðunum íslenskra stjórnvalda og samskipti við hollensk og bresk stjórnvöld vegna þeirra. 25.9.2010 20:00
Hestapestin hefur greinst í manni Sóttvarnalæknir hefur nú staðfest að hestapestin svokallaða hafi greinst í manni hérlendis. Hann segir að fjöldi fólks gæti verið sýktur af hestapestinni án þess að gera sér grein fyrir því. 25.9.2010 18:54
Fimmtán þingmenn leggja til rannsókn á einkavæðingu bankanna Fimmtán þingmenn úr Samfylkingunni og VG standa að baki tillögu um að óháð rannsókn fari fram á einkavæðingu og sölu hlutabréfa í Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands og tengdum málefnum. Til verksins verði fengnir sjálfstæðir aðilar sem hafi sömu heimildir til skýrslutöku og 25.9.2010 17:56
Bílskúr brann á Hvammstanga Mikil mildi var að ekki fór verr þegar að bílskúr brann á Hvammstanga um eittleytið í dag. Mikill eldsmatur var í skúrnum og eru skemmdir töluverðar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi. Litlu munaði að eldurinn læsti sig í nærliggjandi íbúðarhús en það gerðist sem betur fer ekki. Íbúar hússins voru ekki heimavið þegar að eldurinn kom upp og ekki er vitað um eldsupptök. 25.9.2010 17:01
Kláraði fjóra hamborgara á rúmum tveimur mínútum Búast má við að fjöldi manns leggi leið sína í Smáralindina um helgina þar sem Matardagar 2010 fara fram. Í gær fóru meðal annars fram Íslandsmót matreiðslu- og framleiðslunema, keppni um besta sjónvarpskokkinn og 25.9.2010 16:40
Segir Möltu hafa fengið ýmsar sérlausnir við inngöngu í ESB Malta fékk ýmsar sérlausnir við inngöngu landsins í Evrópusambandið, sagði Joe Borg, fyrrverandi utanríkisráðherra Möltu og fyrrverandi sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, í ræðu sem hann hélt í Háskólanum í Reykjavik í dag. 25.9.2010 15:52
Málsvörn Hreiðars: Bréfið í heild Eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær fullyrðir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, í bréfi til forsætisráðherra að breska fjármálaeftirlitið hafi komist að því að hvorki hann né aðrir 25.9.2010 15:24
Engar breytingar gerðar á ákærunum Engar efnislegar breytingar voru gerðar á þingsályktunartillögum um ákærur gegn ráðherrum í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar þegar þingmannanefnd Atla Gíslasonar. Atli segir í samtali við Vísi að nefndin hafi lokið umfjöllun um málið laust fyrir klukkan eitt í dag. 25.9.2010 13:36
Hnífamaður á Hvanneyri var látinn laus að loknum yfirheyrslum Maðurinn sem hélt samnemendum sínum í gíslingu í herbergi á nemendabústöðunum á Hvanneyri í fyrrinótt var látinn laus eftir yfirheyrslur hjá lögreglu í gær. Maðurinn ógnaði fólkinu með hnífi eins og Vísir greindi frá í gær. 25.9.2010 12:58
Tjónið hefði orðið miklu meira ef Sjóvá hefði farið í þrot Ef Sjóvá hefði farið í þrot hefði það valdið ríkinu mun meira tjóni en sem nemur þeirri upphæð sem ríkið lagði tryggingafélaginu til fyrr á árinu, segir fjármálaráðherra. Með ákvörðun stjórnvalda hafi tekist að koma í veg fyrir stórslys. Alls eru 25 mál er varða ríkisaðstoð til skoðunar hjá eftirlitsstofnun EFTA. 25.9.2010 12:41
Katrín ræðir við Abdullah Dr. Farooq Abdullah, orkumálaráðherra á Indlandi, mun dvelja hér á landi næstu þrjá daga í boði Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Katrín mun ræða við Abdullah á mánudaginn um aukið samstarf landanna á sviði endurnýjanlegrar orku. 25.9.2010 12:33
Foreldrar safna fyrir börnin sín Flestir sveitarstjórnamenn á landinu hafa þurft að halda að sér höndum eftir að bankahrunið varð með öllum þeim erfiðleikum sem það hefur í för með sér fyrir rekstur sveitarfélaganna. Þetta hefur meðal annars haft í för með sér að skólastjórnendur hafa haft minni tækifæri en ella til að fjárfesta í nýjum tækjakosti fyrir skólana. 25.9.2010 12:08
Telja ráðherrana fjóra ekki hafa fengið réttláta málsmeðferð Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í allsherjarnefnd Alþingis telja að ýmsar reglur laga ráðherraábyrgð og landsdóm standist ákvæði stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu. Þetta eigi meðal annars við um reglurnar um ákæruvald Alþingis, pólitíska skipun hluta dómenda við landsdóm og það 25.9.2010 11:28
Bolungarvíkurgöng opnuð Bolungarvíkurgöng verða opnuð fyrir almennri umferð í dag en athöfnin fer fram við gangamunnann Bolungarvíkurmegin klukkan hálf tvö. Göngin eru rúmir fimm kílómetrar að lengd en framkvæmdir hófust sumarið 2008. 25.9.2010 10:33