Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Styttist í atkvæðagreiðslu um ákærur Meirihluti Atlanefndarinnar leggur enn til að þrír til fjórir fyrrverandi ráðherrar verði ákærðir til Landsdóms. Minnihluti Sjálfstæðismanna í nefndinni telur engar efnislegar forsendur vera til ákæru á hendur ráðherrunum. Atkvæðagreiðsla um málið fer í fyrsta lagi fram á morgun. 27.9.2010 18:44
Gríðarleg fjölgun á opinberum starfsmönnum í kreppu Opinberum starfsmönnum hefur fjölgað um þrjú þúsund og fimm hundruð frá hruni meðan um tuttugu þúsund störf hafa tapast á einkamarkaði segir framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann telur stjórnvöld ekki sníða sér stakk eftir vexti. Atvinnuleysi verði ekki leyst með því að ráða fleiri til hins opinbera. 27.9.2010 18:41
Eldur í bíl og ekið á vélhjólamann Mikill erill hefur verið hjá slökkviliði og sjúkraflutningamönnum í dag. Slökkviliðið var meðal annars kallað upp í Grafarvog í dag vegna elds í vélarhúddi bíls. Um minniháttar atvik var að ræða. 27.9.2010 17:22
Sextán ára fangelsi fyrir manndráp í Reykjanesbæ Ellert Sævarsson var í dag dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Reykjanesbæ í maí síðastliðinn. Við réttarhöldin játaði hann að hafa sparkað í höfuð og líkama mannsins og kastað kantstreini í höfuð hans. Banamein hins látna voru miklir höfuðáverkar. Engin ástæða þótti til að draga sakhæfi Ellerts í efa en hann gat ekki með viðhlýtandi hætti skýrt af hverju hann veittist að manninum og bar hann við minnisleysi um aðdraganda árásarinnar. 27.9.2010 16:24
Eldur slökktur í ruslageymslu í Hátúni Eldur kom upp í ruslageymslu í Hátúni 6 rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Allt tilltækt slökkvilið var kallað á staðinn og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Í fyrstu var óttast um að eldurinn væri í þaki hússins enda tilkynntu sjónarvottar um reyk frá þakinu. Líklega hefur hann komið út um lofttúðu frá sorpgeymslunni. 27.9.2010 16:12
Lægstu laun duga ekki fyrir framfærslu Lægstu laun kauptaxta eru svo lág að þau duga ekki fyrir framfærslu. Þetta kemur fram í ályktun frá Afli starfsgreinafélagi. 27.9.2010 17:03
Slökkviliðið kallað í Hátún Allt tiltækt slökkvilið hefur verið kallað að Hátúni 6 í Reykjavík en tilkynnt var um reyk á þaki hússins sem er fjölbýlishús. Nánari upplýsingar er ekki að hafa frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í augnablikinu. 27.9.2010 15:59
Samkomulag milli Haga og kjötbirgja í gildi áratugum saman Stjórn Haga segir að það vinnufyrirkomulag sem verið hefur í gildi milli smásala og kjötbirgja, og fyrirtækið hefur nú samþykkt að greiða 270 milljóna króna sekt vegna, hafi verið viðhaft áratugum saman. 27.9.2010 15:37
Gústav Axel er Matreiðslumaður ársins Gústav Axel Gunnlaugsson matreiðslumaður á Fiskfélaginu vann í gær titilinn Matreiðslumaður ársins 2010 en sigurvegarinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Vetrargarðinum í Smáralind í gær þegar Matardögunum 2010 lauk. „Annað sætið hreppti Ólafur Ágústsson og það þriðja Sigurður Kristinn Haraldsson en þeir starfa báðir á VOX,“ segir í tilkynningu en það er Klúbbur Matreiðslumeistara sem hefur haft veg og vanda af skipulagningu Matardaga 2010. 27.9.2010 13:02
Stálu útivistarfatnaði við Geysi Þjófar brutust inn í ferðamannaverslunina við Geysi í Haukadal á þriðja tímanum aðfaranótt laugardags. Þjófarnir voru þrír og huldu andlit sín að því er fram kemur í tilkynningu. Þeir létu greipar sópa og höfðu á brott með sér talsvert magn af verðmætum útvistarfatnaði. „Þjófarnir létu ekki þar við sitja heldur komu aftur tæpri klukkustund síðar og tóku meira af fatnaði sem að megninu til er frá 66° Norður,“ segir ennfremur. 27.9.2010 11:40
„Þetta er ekki loðmulla, háttvirtur þingmaður“ Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, er ekki hrifinn af skýrslu þingmannanefndar um rannsóknarskýrsluna. Pétur kallaði niðurstöðu nefndarinnar loðmullu og lét þannig í ljós að honum fyndist nefndin sýna linkind í afstöðu sinni. 27.9.2010 11:13
Bjarni Ben: Trúnaðargögnum haldið frá þingmönnum Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók til máls á Alþingi í dag þar sem hann gagnrýndi málflutning þingmannanefndar um rannsóknarskýrsluna þar sem því er borið við að stór hluti þeirra gagna sem nefndin notaðist við í vinnu sinni sé trúnaðarmál og því ekki hægt að opinbera þau. 27.9.2010 11:00
Þeim fjölgar sem vilja afturkalla veiðiheimildir Markaðsrannsóknafyrirtækið MMR hefur birt niðurstöður könnunar þar sem spurt var um álit fólks á því að afturkalla fiskveiðiheimildir. 70,9% svarenda sögðust vera frekar eða mjög hlynntir því að stjórnvöld afturkalli með einum eða öðrum hætti gildandi fiskveiðiheimildir og úthluti þeim að nýju með breyttum reglum. 18,8% eru andvígir hugmyndunum og 10,3% sögðust hvorki vera hlynnt né andvíg málinu. „Þetta er nokkur breyting frá könnun MMR í febrúar 2009 þegar 61% svarenda sögðust fylgjandi afturköllun og endurúthlutun fiskveiðiheimilda,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 27.9.2010 10:58
Þriðji varaþingmaður tekur sæti á Alþingi Víðir Smári Petersen háskólanemi tók sæti í fyrsta sinn á Alþingi í dag. Víðir er þriðji varamaður Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi. Óli Björn Kárason og Rósa Guðbjartsdóttir eru fyrsti og annar varamaður flokksins í kjördæminu en þau sáu sér ekki fært að taka sæti að þessu sinni. 27.9.2010 10:49
Kínverjar reyndu að stöðva sýningu Tíbet-myndar Kínverska sendiráðið á Íslandi gerði tilraun til að fá Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) til þess að hætta við sýningar á bandarísku heimildarmyndinni When The Dragon Swallowed The Sun. 27.9.2010 10:21
Safna gömlum símtækjum og styrkja SAFT GSM notendur geta nú skilað gömlum símtækjum í söfnunarkassa í verslunum Vodafone og sýnt þannig í verki ábyrgð gagnvart umhverfinu. Vodafone í samstarfi við Græna framtíð kemur símtækjunum í endurnýtingu hjá viðurkenndum aðilum erlendis, sem lagfæra tækin eða búa til ný með því að sameina íhluti úr nokkrum tækjum í eitt. 27.9.2010 10:12
Mamma Gógó framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían kaus kvikmyndina Mamma Gógó sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2011 í rafrænni kosningu sem fram fór 21. - 24. september. Myndin fékk 43% atkvæða akademíumeðlima. Kosið var á milli átta mynda sem frumsýndar voru á tímabilinu 1. október 2009 - 30. september 2010. 27.9.2010 09:55
Fór yfir Steinsholtsá Fyrsti breytti torfærujeppinn komst yfir Steinsholtsá á Þórsmerkurleið á tíunda tímanum í morgun, en áin verður ófær óbreyttum jeppum eitthvað fram yfir hádegi, að minnsta kosti, að sögn kunnugra. 27.9.2010 09:55
Ríksstjórnin heldur velli Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna heldur velli samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 27.9.2010 09:46
Klámvæðing hefur alvarlegar afleiðingar fyrir karlmenn Katrín Anna Guðmundsdóttir, jafnréttishönnuður og stundakennari í kynjafræði, segir fjölmiðla fjalla um klám á mun jákvæðari hátt en áður og klámi jafnvel hampað í fjölmiðlum. Henni finnst þetta alvarleg þróun þar sem klám sé nátengt ofbeldi og fólk þar hlutgert kynferðislega. 27.9.2010 09:34
N-Kórea: Nýr leiðtogi væntanlega kynntur til sögunnar Búist er við því að á morgun verði tilkynnt um arftaka Kim Jong-ils á forsetastóli í Norður Kóreu. Verkamannaflokkur Norður Kóreu kemur saman til fundar á morgun og búast menn við því að þar tilkynni leiðtoginn Kim Jong IL að arftakin hans á leiðtogastóli verði enginn annar en sour hans. Mikil leynd hefur hvílt yfir málinu eins og yfir flestu öðru í landinu og lítið er vitað um soninn. 27.9.2010 08:39
Unnið fram á nótt undir Eyjafjöllum Stórvirkar vinnuvélar unnu langt fram á nótt við að dýpka farveg Svaðbælisár undir Eyjafjöllum en þar fór að flæða yfir veginn í gærkvöldi og sömuleiðis við brúnna yfir Holtsá. 27.9.2010 07:31
Rætt um ákærur á Alþingi Þingfundur hefst klukkan hálf ellefu þar sem skýrsla þingmannanefndar um ákærur á fyrrverandi ráðherra verður á dagskrá. Samkvæmt könnun Capacent Gallups fyrir Ríkisútvarpið vilja 64 prósent aðspurðra að Árni Matthiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra verði ákærður, 61 prósent að Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra verði það, 55 prósent að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra verði ákærð og 45 prósent að Bjrögvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðhera verði það. Stefnt er að því að leiða málið til lykta eigi síðar en á fimmtudag. 27.9.2010 07:29
Fréttatíminn hefur göngu sína Nýtt helgarblað, sem á að heita Fréttatíminn, hefur göngu sína í næsta mánuði og á að koma út á föstudögum. Í tilkynningu segir að það eigi að flytja nýjustu fréttir, ítarlegar fréttaskýringar um málefni líðandi stundar og leggja rækt við viðtöl við áhugavert fólk af öllu tagi. Eigendur eru starfsmenn blaðsins. Ritstjóri er Jón Kalddal, Óskar Hrafn Þorvaldsson er frétastjóri og framkvæmdastjóri er Teitur Jónasson. Blaðið verður prentað í 82 þúsund eintökum og dreift frítt. 27.9.2010 07:27
Vanhugsað að loka bílastæðunum „Fatlaðir foreldrar komust ekki að dagheimilum og leikskólum vegna þess að það var búið að loka fyrir bílastæðin,“ segir Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ). „Við fengum töluvert mikið af kvörtunum.“ 27.9.2010 06:00
Telur moskuna eyða fordómum Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi, segir andstöðu við byggingu mosku í Reykjavík ekki koma sér á óvart. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins eru tæp 42 prósent landsmanna andvíg byggingunni. Tæp 37 prósent sögðust styðja byggingu mosku. 27.9.2010 06:00
Gerðu grein fyrir sínum þætti í júní Ólíklegt er að fleiri fyrrverandi ráðherrar skili af sér sérstakri greinargerð um störf sín í aðdraganda bankahrunsins eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, gerði fyrir helgi. 27.9.2010 06:00
Efaðist aldrei um orð svikahrappsins Þriggja daga réttarhöldum yfir Michael Craig Sundet, 29 ára Norðmanni, lauk á föstudag. Sundet var handsamaður eftir að íslensk kona kærði hann í vor fyrir að hafa svikið út úr sér fé. Eftir handtökuna kom í ljós að að svik hans voru umfangsmeiri en í fyrstu var talið. 27.9.2010 05:00
Spyr um lagagrundvöll orkunefndar Umboðsmaður Alþingis setur spurningar við lögmæti nefndar um orku- og auðlindamál sem fjallaði um kaup Magma Energy Sweden á hlut Geysis Green Energy í HS Orku. Forsvarsmenn Geysis Green kvörtuðu til umboðsmanns vegna inngripa ríkisstjórnar og yfirlýsinga hennar í málinu. 27.9.2010 04:30
Áætlun helst ef veður leyfir Tvær ferðir voru farnar í gærmorgun á áætlun milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. Eftir það féllu allar ferðir niður vegna veðurs. 27.9.2010 04:00
Semja við breskt stórfyrirtæki Íslenska fyrirtækið Iceland Beverage Company stefnir að því að hefja framleiðslu á vodka í Reykjavík innan hálfs árs og selja hann í Norður-Ameríku, á meginlandi Evrópu og í Kína. 27.9.2010 03:30
Aðeins tíu börn á biðlistum Aldrei fyrr hafa jafn margir sótt um frístundaheimilisvist fyrir grunnskólabörn hjá Íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkur (ÍTR). Í lok september voru tæplega 3.200 börn skráð miðað við 2.850 á sama tíma í fyrra. 27.9.2010 03:15
Enn umtalsverð óánægja með hefðbundna flokka Aðeins rétt ríflega helmingur þeirra 800 Íslendinga sem tóku þátt í nýlegri skoðanakönnun Fréttablaðsins tóku afstöðu þegar spurt var hvaða flokk viðkomandi myndi kjósa yrði efnt til alþingis- kosninga nú. Alls tóku 51,2 prósent þátttakenda í könnuninni, sem gerð var fimmtudaginn 23. 27.9.2010 00:01
Tveir fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í íbúð Eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi í Hraunbæ 107 b í kvöld.. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og er reykræsting í gangi. Talið er að kviknað hafi í sófa, en eldurinn var minniháttar samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðnu. Tveir úr íbúðinni voru fluttir á slysadeild til skoðunar vegna gruns um að þeir hefðu fengið snert af reykeitrun. 26.9.2010 22:02
Ferð Herjólfs fellur niður Ferð Herjólfs sem áætlað var að færi frá Vestmannaeyjum klukkan níu í kvöld hefur verið felld niður vegna veðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. 26.9.2010 19:58
Flæðir yfir beggja megin Steinafjalls Vatn flæddi yfir veginn vestan við Holtsá var að bresta síðdegis og flæðir yfir á um 200 metra kafla, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Það flæðir því yfir beggja megin Steinafjalls því að fyrr í dag flæddi úr Svaðbælisá. Vatnsflaumurinn fer vaxandi en veginum hefur ekki enn verið lokað. Lögreglan segir að hægt sé að fara yfir ef menn fari mjög varlega. 26.9.2010 18:14
Byrjað að laga veginn Jarðýta er byrjuð að vinna að því að ryðja í veginn sem fór í sundur við bæinn Mörtungu, austan við Kirkjubæjarklaustur, fyrr í dag. 26.9.2010 16:36
Auglýst eftir stolinni bifreið Aðfaranótt laugardags var bifreiðinni PY-F26 af gerðinni Dodge Ram stolið frá Bílasölunni Planinu við Breiðhöfða í Reykjavík. Bifreiðin er svört að lit og er meðfylgjandi mynd af henni. Eigandi bifreiðarinnar biður þá sem hafa orðið varir við hana að hafa samband við lögregluna. 26.9.2010 17:12
Um 250 milljónir söfnuðust í átaki Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur Rösklega 250 milljónir króna hafa safnast í átaki Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur til byggingar Alþjóðlegrar tungumálamiðstöðvar sem einnig mun hýsa kennslu erlendra tungumála við Háskóla Íslands. 26.9.2010 15:33
Vonskuveður á Snæfellsnesi Mikið rok er nú á norðanverðu Snæfellsnesi og hafa vindhviður farið upp í 40 m/s á Gufuskálum. Í hádeginu bárust björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellbæ nokkrar hjálparbeiðnir. 26.9.2010 14:50
Um 120 manns fastir í Þórsmörk Um 120 manns eru fastir í Þórsmörk vegna mikilla vatnavaxta í ánum þar. Að sögn Klemenzar Klemenzsonar, skálavarðar í Húsadal, er ekkert útlit fyrir að það fari að sjatna í ánum fyrr en seinnipartinn á morgun eins og veðurspáin er núna. 26.9.2010 14:27
Fjöldi fólks hljóp á Alþjóða hjartadaginn Tæplega 200 manns luku Hjartadagshlaupinu sem Hjartavernd hélt í fjórða sinn við Kópavogsvöll í dag, á Alþjóða hjartadaginn. 26.9.2010 13:55
Herjólfur fer í fyrsta lagi klukkan níu Ferð Herjólfs sem átti að fara frá Vestmannaeyjum klukkan þrjú í dag var felld niður. Áætlað er að Herjólfur muni sigla frá Vestmannaeyjum klukkan níu í kvöld en lokaákvörðun um það verður tekin klukkan hálfátta eða átta. Fólk er hvatt til þess að hafa samband við afgreiðslu Herjólfs í síma 4812800 ef spurningar vakna. 26.9.2010 13:22
Innlyksa eftir að vegur fór í sundur Gríðarleg rigning var í nótt á Suð - Austurlandi með þeim afleiðingum að mikið óx í ám í Vestur -Skaftafellssýslu. Árni Ingvar Bjarnason sendi þessa mynd af Þverá, sem er lítil hliðará sem fellur í Geirlandsá. Samkvæmt upplýsingum frá honum var áin orðin að stórfljóti í morgun eftir 50 millimetra rigningu og rofnaði vegurinn við brú á veginum. 26.9.2010 13:16
Vilja rannsókn á lánveitingum til fasteignakaupa Þingmannanefnd Atla Gíslasonar mælir með því að tillaga um að hefja sjálfstæða og óháða rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs verði flutt á næsta löggjafarþingi. Þetta kemur fram í áliti sem nefndin skilaði frá sér í gær. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fleiri þingmenn, lögðu til í síðustu viku að slík rannsókn færi fram. 26.9.2010 10:53