Fleiri fréttir

Rannsóknarnefnd um Icesave ótímabær

Þingmannanefnd Atla Gíslasonar telur ótímabært að samþykkja tillögu þess efnis að fram fari rannsókn á innistæðum í útibúum Landsbanka Íslands á Evrópska efnahagssvæðinu og embættisfærslum og ákvörðunum íslenskra stjórnvalda og samskipti við hollensk og bresk stjórnvöld vegna þeirra.

Hestapestin hefur greinst í manni

Sóttvarnalæknir hefur nú staðfest að hestapestin svokallaða hafi greinst í manni hérlendis. Hann segir að fjöldi fólks gæti verið sýktur af hestapestinni án þess að gera sér grein fyrir því.

Fimmtán þingmenn leggja til rannsókn á einkavæðingu bankanna

Fimmtán þingmenn úr Samfylkingunni og VG standa að baki tillögu um að óháð rannsókn fari fram á einkavæðingu og sölu hlutabréfa í Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands og tengdum málefnum. Til verksins verði fengnir sjálfstæðir aðilar sem hafi sömu heimildir til skýrslutöku og

Bílskúr brann á Hvammstanga

Mikil mildi var að ekki fór verr þegar að bílskúr brann á Hvammstanga um eittleytið í dag. Mikill eldsmatur var í skúrnum og eru skemmdir töluverðar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi. Litlu munaði að eldurinn læsti sig í nærliggjandi íbúðarhús en það gerðist sem betur fer ekki. Íbúar hússins voru ekki heimavið þegar að eldurinn kom upp og ekki er vitað um eldsupptök.

Kláraði fjóra hamborgara á rúmum tveimur mínútum

Búast má við að fjöldi manns leggi leið sína í Smáralindina um helgina þar sem Matardagar 2010 fara fram. Í gær fóru meðal annars fram Íslandsmót matreiðslu- og framleiðslunema, keppni um besta sjónvarpskokkinn og

Segir Möltu hafa fengið ýmsar sérlausnir við inngöngu í ESB

Malta fékk ýmsar sérlausnir við inngöngu landsins í Evrópusambandið, sagði Joe Borg, fyrrverandi utanríkisráðherra Möltu og fyrrverandi sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, í ræðu sem hann hélt í Háskólanum í Reykjavik í dag.

Málsvörn Hreiðars: Bréfið í heild

Eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær fullyrðir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, í bréfi til forsætisráðherra að breska fjármálaeftirlitið hafi komist að því að hvorki hann né aðrir

Engar breytingar gerðar á ákærunum

Engar efnislegar breytingar voru gerðar á þingsályktunartillögum um ákærur gegn ráðherrum í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar þegar þingmannanefnd Atla Gíslasonar. Atli segir í samtali við Vísi að nefndin hafi lokið umfjöllun um málið laust fyrir klukkan eitt í dag.

Tjónið hefði orðið miklu meira ef Sjóvá hefði farið í þrot

Ef Sjóvá hefði farið í þrot hefði það valdið ríkinu mun meira tjóni en sem nemur þeirri upphæð sem ríkið lagði tryggingafélaginu til fyrr á árinu, segir fjármálaráðherra. Með ákvörðun stjórnvalda hafi tekist að koma í veg fyrir stórslys. Alls eru 25 mál er varða ríkisaðstoð til skoðunar hjá eftirlitsstofnun EFTA.

Katrín ræðir við Abdullah

Dr. Farooq Abdullah, orkumálaráðherra á Indlandi, mun dvelja hér á landi næstu þrjá daga í boði Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Katrín mun ræða við Abdullah á mánudaginn um aukið samstarf landanna á sviði endurnýjanlegrar orku.

Foreldrar safna fyrir börnin sín

Flestir sveitarstjórnamenn á landinu hafa þurft að halda að sér höndum eftir að bankahrunið varð með öllum þeim erfiðleikum sem það hefur í för með sér fyrir rekstur sveitarfélaganna. Þetta hefur meðal annars haft í för með sér að skólastjórnendur hafa haft minni tækifæri en ella til að fjárfesta í nýjum tækjakosti fyrir skólana.

Telja ráðherrana fjóra ekki hafa fengið réttláta málsmeðferð

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í allsherjarnefnd Alþingis telja að ýmsar reglur laga ráðherraábyrgð og landsdóm standist ákvæði stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu. Þetta eigi meðal annars við um reglurnar um ákæruvald Alþingis, pólitíska skipun hluta dómenda við landsdóm og það

Bolungarvíkurgöng opnuð

Bolungarvíkurgöng verða opnuð fyrir almennri umferð í dag en athöfnin fer fram við gangamunnann Bolungarvíkurmegin klukkan hálf tvö. Göngin eru rúmir fimm kílómetrar að lengd en framkvæmdir hófust sumarið 2008.

Össur bað íranskri konu griða

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra skoraði í gærkvöldi í ræðu sinni á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á Ahmedinejad forseta Írans að þyrma lífi Sakineh Ashtiani, konunnar sem írönsk stjórnvöld dæmdu til að verða grýtt til dauða.

Bjarni Ben bendir á fáránleika málsins

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, varar við því að matsákvæði séu notuð í málum ráðherranna fyrrverandi sem meirihluti þingmannanefndar leggur til að verði ákærðir fyrir landsdómi. Þingið sé komið í algerar ógöngur verði farið að tillögunum.

Lánakerfinu verði breytt

Hagsmunasamtök heimilanna vilja að húsnæðislánakerfinu á Íslandi verði breytt verulega og varanlega, að því er fram kemur í fréttatilkynningu samtakanna.

Miðlaði upplýsingum áfram

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra neitar að hafa haldið upplýsingum frá Björgvin G. Sigurðssyni þáverandi viðskiptaráðherra um bága stöðu bankanna í aðdraganda bankahrunsins. Jafnframt var aldrei rætt um bankaáhlaup á Landsbankann í Bretlandi á fundi sem hún sat með formanni bankaráðs Seðlabankans í forsætisráðuneytinu í apríl 2008.

Leitað að verkefnum sem hægt er að flýta

Borgarráð hefur samþykkt að fela framkvæmda- og eignasviði að undirbúa tillögur um að flýta brýnum endurbyggingar- og endurbótaverkefnum mannvirkja sem annars hefðu komið til framkvæmda 2013-2015.

Ætla að ná í ellefu milljarða

Lagt er til í skattatillögum starfshóps á vegum fjármálaráðuneytis að erfðafjárskattur verði hækkaður um fimmtíu prósent, fjármagnstekjuskattur um ellefu prósent, undanþágur fríhafnarinnar frá vörugjaldi og virðisaukaskatti á áfengi og tóbaki verði felldar niður og tekinn verði upp sérstakur bankaskattur líkt og í Svíþjóð og Bretlandi.

Þriðjungur Íslendinga mjög andvígur mosku

Skiptar skoðanir eru á því meðal landsmanna hvort byggja eigi mosku í Reykjavík. Samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins eru 41,8 prósent andvígir byggingu mosku en 36,6 prósent eru hlynntir því að moskan rísi.

Einn var fluttur á sjúkrahús

Liðlega tvítugur maður var handtekinn á heimavist Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri um klukkan þrjú aðfaranótt föstudags vegna ógnandi tilburða við samnemendur sína.

Sundlaugin sögð vera óráðsía

Fulltrúar minnihluta S-lista Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Blönduóss segja meirihluta L-listans leggja „blessun sína yfir stórfellda eyðslu umfram fjárheimildir“ með endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010.

Jón Gnarr ætlar ekki á Októberfest

„Hann tók bara við þessu bandi, hann er ekki að fara mæta,“ segir Heiða Kristín Helgadóttir, aðstoðarmaður borgarstjóra. Stefán Þór Helgason, stúdentaráðsliði í Háskóla Íslands, hitti Jón Gnarr í dag. Tilgangur fundar þeirra var að alþjóðlega athafnaviku sem mun fara fram í nóvember.

Leyndi Björgvin ekki upplýsingum

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir í greinagerð sem hún sendi öllum þingmönnum í dag, að hún hafi ekki leynt Björgvin G. Sigurðsson upplýsingum í aðdraganda hrunsins.

Reykur í lyftugöngum í fjölbýlishúsi

Mikinn reyk lagði frá rafmagnsspenni í blokk í Lönguhlíðinni um klukkan sex í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins virðist einhver bilun hafa komið upp í rafmagnsspenninum.

Eldur í ruslatunnu

Eldur kom upp í ruslatunnu við hús í Bolholti nú fyrir stundu. Slökkviliðsmenn eru búnir að slökkva eldinn. Þeir fóru einnig yfir klæðningu í þaki til að ganga úr skugga um að enginn eldur væri þar.

FLE: Ekki verið bent á mistök endurskoðenda

Formaður Félags löggiltra endurskoðenda segir stéttina draga þann lærdóm af hruninu að menn þurfi að vara sig á efnahagsástandinu við reikningsskil. Erfitt sé hins vegar að benda á mistök endurskoðenda.

Mikil rigning á Eyjafjallajökli - búist við miklu í ám

Veðurstofa Íslands spáir talsverði úrkomu á Suðurlandi á morgun, þá sérstaklega á svæðinu á Eyjafjallajökli. Búist er við því að mikið verði í ám á svæðinu vegna hlýinda sem eru sögð fylgja í kjölfarið.

Gæsluvarðhald framlengt yfir starfsmanni Ríkisskattstjóra

Gæsluvarðhald yfir starfsmanni hjá embætti Ríkisskattstjóra var framlengt um tvær vikur í dag. Maðurinn er grunaður um að hafa aðstoðað við fjársvikin, með því að hafa svikið rúmar 270 milljónir króna í formi endurgreiðslu á virðisaukaskatti.

Manninum líklega sleppt að loknum yfirheyrslum

Maðurinn sem var handtekinn á Hvanneyri í nótt grunaður um að hafa haldið fjórum samnemendum sínum við Landbúnaðarskólann á Hvanneyri í gíslingu er í enn í yfirheyrslum hjá lögreglunni í Borgarnesi. Að sögn yfirlögregluþjóns verður honum væntanlega sleppt innan tíðar. Vefmiðillinn Pressan segir að maðurnn sé á skilorði, hann hafi verið dæmdur fyrir líkamsárás á Akureyri í fyrra. Þetta fæst hinsvegar ekki staðfest hjá lögreglunni í Borgarnesi.

Opna vínbúð í stað lögreglustöðvar

Vínbúð hefur verið opnuð í húsnæðinu sem áður hýsti lögreglustöðina á Seyðisfirði. Fangaklefarnir voru brotnir niður til að gera rýmið hentugra til áfengissölu. Lögreglan hefur nú enga aðstöðu á Seyðisfirði og þurfa bæjarbúar að óska eftir þjónustu lögreglu frá Egilsstöðum.

Slökkti í strætóskýli með garðslöngunni

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Sogavegi rétt eftir klukkan tvö í dag en þar höfðu einhverjir óprúttnir aðilar lagt eld að strætóskýli. Áður en slökkvilið bar að garði hafði íbúi við götuna slökkt í skýlinu með garðslöngu sinni.

Bræður seldu fíkniefni á Akureyri

Maður um tvítugt hefur játað fíkniefnasölu á Akureyri. Hann segir bróður sinn hafa aðstoðað sig við söluna en bróðirinn vill lítið tjá sig.

Ekið á hjólreiðamann

Ekið var á hjólreiðamann á Brynjólfsgötu við Háskólabíó fyrir stundu. Lögregla hefur lokað götunni og er sjúkrabíll á staðnum. Ekki fást upplýsingar um ástand hjolreiðamannsins.

Rektorinn á Hvanneyri: Þetta verður ekki liðið

Nemendur og starfsfólk við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri er miður sín eftir að nemandi við skólann tók fjóra samnemendur sína í gíslingu í nótt og hótaði þeim með hnífi.

Gíslataka á Hvanneyri - maðurinn enn í haldi

Maður vopnaður hnífi hélt fjórum nemendum við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í gíslingu í nótt. Lögregla fékk tilkynningu um málið um klukkan hálfþrjú og fór strax á vettvang.

Sólstafir starfa áfram - vonast eftir fjármagni

„Það er rétt er að við höfum ekki fengið neitt fjármagn og sáralítið er eftir af því sem við eigum í okkar sjóði en við höfum þó tekið þá ákvörðun að gefast ekki upp og reyna að halda rekstrinum gangandi áfram," segir í tilkynningu frá Sólstöfum, systursamtökum Stígamóta á Vestfjörðum.

Gunnar Rúnar áfram í gæsluvarðhaldi

Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. október að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna.

Sex mánaða skilorð fyrir árás með skiptilykli

Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að berja vinnufélaga sinn með skiptilykli. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi og í ljósi þess að hann er með hreint sakavottorð að öðru leyti fannst dómara hæfilegt að skilorðsbinda dóminn. Árásin átti sér stað í maí í húsnæði fiskverkunnar í Reykjavík.

Hjartastuðtæki í flutningabílum eykur öryggi

Í tilefni alþjóðlega Hjartadagsins, sem haldinn er í tíunda sinn á heimsvísu á sunnudaginn, hafa Landflutningar-Samskip ákveðið að koma fyrir alsjálfvirkum hjartastuðtækjum í flutningabílum á öllum helstu akstursleiðum félagsins. Þetta er gert til að auka almennt öryggi vegfarenda en hver mínúta getur skipt máli ef einstaklingur fær hjartastopp og þá er mikilvægt að hafa réttan búnað við höndina.

Sjá næstu 50 fréttir