Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldur í gaskút í Hafnarfirði Eldur kviknaði gaskút við íbúðarhús í Hafnarfirði í kvöld. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til aðstoðar en ekki reyndist um mikinn eld að ræða. Þá var slökkviliðið kallað út vegna olíuleka eftir árekstur á Hringbraut um eittleytið í dag. Ekki var um mikinn leka að ræða. 17.9.2010 22:01
Ómar opnaði sýningu á vistvænum fyrirtækjum Ómar Ragnarsson, sem átti sjötugs afmæli í gær, opnaði í dag sýningu á vistvænum farartækjum Vetrargarðinum í Smáralind í tilefni af Evrópskri samgönguviku. Á sýningunni gefst almenningi möguleiki á að kynna sér kosti hinna ýmsu farartækja sem nota vistvæna orkugjafa, svo sem metan, vetni og rafmagns. 17.9.2010 22:12
Laug að hún bæri barn undir belti Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu á þrítugsaldri í skilorðsbundið fangelsi fyrir ærumeiðandi aðdróttanir. Konan sendi bréf á fyrrum samnemanda sinn í flugumferðarstjórnarnámi og sagðist vera ófrísk eftir eiginmann hennar. Konan sem fékk bréfið var þá í miðjum próflestri. 17.9.2010 20:33
Frjálsíþróttafólk slegið óhug Fréttir af árásum á heimili kúbversku feðgana Alberto og Ramon Borges hafa vakið óhug á meðal íþróttafólks sem þekkir þá vel af góðu starfi þeirra innan frjálsíþróttahreyfingarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Frjálsíþróttasambands Íslands. 17.9.2010 19:51
Vilja álit EFTA dómstólsins á hæstaréttardómnum Stjórnarfundur Hagmunasamtaka heimila samþykkti einróma sídegis að leita til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, vegna niðurstöðu Hæstaréttar frá því í gær. Jafnframt að leita leiða til að fá álit EFTA dómstólsins. Á annað hundrað manns staðfestu í dag þátttöku sína í hópmálsóknum Samtaka lánþega gegn fjármálafyrirtækjum. Talsmaður samtakanna segir viðskiptaráðherra ekki geta sett lög sem berji niður betri rétt lánþega. 17.9.2010 18:51
Lengsta ferðasumarið á Vestfjörðum Ferðaþjónustan á Vestfjörðum er að upplifa lengsta ferðamannasumarið til þessa. Erlendir ferðahópar eru enn að mæta í Hornstrandasiglingar, sem venjulega hafa hætt um miðjan ágústmánuð. 17.9.2010 18:45
Vélstjórar hjá Hafró samþykktu kjarasamning Kosningu um kjarasamning VM, vegna vélstjóra á skipum Hafrannsóknastofnunar, lauk klukkan þrjú í dag og var samningurinn samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. Í fréttatilkynningu frá VM kemur fram að megininntak samningsins sé að kjarasamningur og launakerfi vélstjóranna verði endurskoðað. Stefnt er á að ljúka þeirri vinnu í febrúar á næsta ári. 17.9.2010 17:55
Upprætti tvær fíkniefnaverksmiðjur Lögreglan upprætti nýlega tvær kannabisverksmiðjur. Annars vegar í húsi i Árbæ. Þar fundust tæplega 400 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við rannsókn málsins. 17.9.2010 17:28
Hafa eftirlit með farsímanotkun ökumanna Lögreglan hefur síðastliðna tíu daga lagt áherslu á eftirlit með farsímanotkun ökumanna án handfrjálss búnaðar og notkun stefnuljósa. 17.9.2010 17:17
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar á morgun Herjólfur mun sigla samkvæmt áætlun til Landeyjahafnar í fyrramálið. Þetta var ákveðið eftir dýptarmælingar í höfninni síðdegis. Fyrsta brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan níu og frá Landeyjarhöfn klukkan hálfellefu. 17.9.2010 16:48
Forseti Íslands tekur á móti forseta Slóvakíu Forseti Slóvakíu Ivan Gašparovič kemur í heimsókn til Íslands síðdegis á sunnudaginn og á fundi með forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni, Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra auk þess sem hann heimsækir Alþingi. 17.9.2010 16:28
Fékk nýtt hjarta í Svíþjóð Pálfríður Sigurðardóttir greindist með veiru í hjarta fyrir tíu árum, þá aðeins 29 ára gömul. Hún fékk nýtt hjarta á sjúkrahúsi í Svíþjóð fyrir örfáum vikum eftir að hafa glímt við erfið veikindi á undanförnum mánuðum. „Ég er aðeins byrjuð að labba aftur. Þetta er allt í rétta átt. Það koma samt dagar þar sem heilsan er upp og niður," segir hún. 17.9.2010 15:56
Bændur vilja sömu kjör og einstaklingar í gengislánum Nauðsynlegt er að staða bænda sem tóku gengisbundin lán sé skýrð hið fyrsta. Eðlilegt sé að skuldamál bænda séu meðhöndluð á sama hátt og skuldamál einstaklinga. Þetta er mat Bændasamtaka Íslands í kjölfar dóms Hæstaréttar frá því í gær þar sem kveðið er á um vaxtakjör á ólöglegum gengisbundnum lánum. 17.9.2010 15:38
Þrettán ára drengur gekk berserksgang Þrettán ára drengur gekk berserksgang í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi í morgun og var lögregla kölluð til. Drengurinn réðist bæði að samnemendum sínum og starfsfólki skólans. Hann braut einnig innanstokksmuni og rúðu en engin slys urðu á fólki. 17.9.2010 15:05
Lögreglan leitar að þessu fólki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf að ná tali að fólkinu á meðfylgjandi mynd. Ef einhver kann deili á fólkinu er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1553. 17.9.2010 14:54
Þingfundi óvænt frestað Þingfundi á Alþingi var óvænt frestað eftir hádegi í dag og hefur ekki verið ákveðið hvenær þingfundur hefst að nýju. Heimildir Vísis herma þó að það verði ekki fyrr en á mánudaginn kemur. Atli Gíslason formaður Atlanefndarinnar svokölluðu mælti í morgun fyrir þingsályktunartillögu þess efnis að fjóra fyrrverandi ráðherra skyldi draga fyrir landsdóm. 17.9.2010 14:04
Meirihluti almennings vill að ráðherrar verði sóttir til saka Meirihluti almennings er fylgjandi því að sakamál verði höfðað á hendur þeim sem gegndu ráðherraembætti í bankahruninu. Áberandi munur er á viðhorfi til málshöfðunar eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar sem Markaðs- og miðlarannsóknir ehf. gerði. 17.9.2010 13:47
Synjun ráðuneytis á lambakjötsinnflutningi ólögmæt Umboðsmaður Alþingis segir að synjanir landbúnaðarráðherra á umsókn um að hefja innflutning á lambakjöti frá Nýja-Sjálandi hafi ekki verið í samræmi við lög. 17.9.2010 13:34
Opið fyrir almenning á ráðstefnu um vistvænar samgöngur Ákveðið hefur verið að fella niður aðgangseyri að alþjóðlegu Driving Sustainability ráðstefnunni um vistvænar samgöngur, sem hófst á Hilton hótelinu í Reykjavík í gær. Í tilkynningu segir að frá og með hádeginu í dag verði hún því opnuð öllum áhugamönnum um þróun vistvænna samgangna. 17.9.2010 13:20
Kringluþjófur gómaður á kjúklingastað Lögreglan handtók mann á Kjúklingastaðnum í Suðurveri nú um hádegisbilið. Maðurinn hafði hlaupið undan öryggisvörðum Kringlunnar, yfir Kringlumýrarbrautina og inn á kjúklingastaðinn. 17.9.2010 12:50
Réttað að nýju yfir meintum fíkniefnasmyglurum Hæstiréttur hefur úrskurðað að rétta þurfi að nýju yfir fimm mönnum sem ákærðir voru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Ástæðan er sú að héraðsdómari tók sér of langan tíma í að dæma málið. 17.9.2010 12:30
Þingmenn vilja öll gögn upp á borðið Þingmenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks gera athugasemdir við að fá ekki að sjá öll þau gögn sem þingmannanefndin um ráðherraábyrgð hafði undir höndum. Þeir segjast ekki geta tekið ákvörðun um hvort ákæra skuli fyrrverandi ráðherra fyrr en trúnaði verði aflétt. Umræður um ákærur á hendur ráðherrunum hófust á Alþingi í morgun. 17.9.2010 12:17
Nýr bæjarstjóri tekinn við í Fjarðabyggð Páll Björgvin Guðmundsson hefur tekið við embætti bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Helga Jónsdóttir, sem áður gegndi embættinu, afhenti honum lyklavöldin í lok bæjarstjórnarfundar í gær. 17.9.2010 11:40
Skýrsla Magmanefndar fyrst kynnt þingflokkum Skýrsla nefndarinnar sem falið var að meta lögmæti kaupa Magma Energy á HS Orku var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður niðurstaðan kynnt þingflokkunum áður en hún verður gerð opinber, en ekki liggur fyrir hvort það verður í dag eða síðar. 17.9.2010 11:32
Sólskinsdrengurinn tilnefndur til Voice-verðlaunanna Sólskinsdrengurinn, heimildarmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar um einhverfa drenginn Kela, hefur verið tilnefnd til Voice-verðlaunanna. Þau verða afhent í Paramount studios, Hollywood, þann 13. október, en margar stjörnur koma að þessari verðlaunahátíð. Má nefna að Richard Dreyfuss var kynnir hátíðarinnar í fyrra og Glenn Close kom fram. 17.9.2010 10:55
Laus við kynþáttafordóma og reyndi að stilla til friðar Jón Hilmar Hallgrímsson, sem var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna meints kynþáttahaturs og hótana gagnvart kúberskum feðgum var ekki viðstaddur þegar eignaspjöll voru framin á heimili feðganna og hann er blessunarlega laus við kynþáttafordóma. Þetta segir lögmaður Jóns, Sveinn Andri Sveinsson, í yfirlýsingu sem hann hefur sent fjölmiðlum. 17.9.2010 10:31
Stúdentar mótmæla svæsnu klámi Hópur háskólanemenda sem berst gegn klámvæðingu hefur hengt upp veggspjöld víða um Reykjavík þar sem vakin er athygli á því að klámefni með vísunum í barnaklám er fáanlegt í kynlífsverslunun í borginni. „Á sumum hulstrum er tekið fram að leikkonurnar séu orðnar 18 ára, en það er augljóslega viljandi verið að leika sér á gráa svæðinu eins og við sýnum vel á veggspjöldunum okkar. Eitt myndbandið gerir meira að segja út á sifjaspell!," segir einn meðlimur hópsins í samtali við Student.is 17.9.2010 10:00
Presturinn játaði kynferðisbrot sín Presturinn sem kallaður var fyrir fagráð um kynferðisbrot innan kirkjunnar játaði brot sín. Hann var sakaður um að hafa brotið kynferðislega gegn þremur einstaklingum en málin eru fyrnd. Þau rata því aldrei fyrir dómstóla. 17.9.2010 08:34
Hrapaði til jarðar í hlíðum Mosfells Svifdrekaflugmaður, sem var að svífa dreka sínum við vesturhlíðar Mosfells í gærkvöldi, missti stjórn á honum með þeim afleiðingum að hann hrapaði til jarðar. Hann kom hart niður og var kallað á sjúkrabíl. 17.9.2010 08:11
Hjólhýsi fuðraði upp á Ártúnshöfða Hjólhýsi gjöreyðilagðist í eldi þar sem það stóð á stæði skammt frá bensínstöð N-1 á Ártúnshöfða. 17.9.2010 08:04
Tillögur um málshöfðanir ræddar í dag Þingsályktanir um málshöfðun gegn fjórum fyrrverandi ráðherrum verða ræddar á Alþingi í dag. Verði þær samþykktar verður landsdómur kallaður saman í fyrsta sinn. Niðurstaða þar um mun að líkindum fást í næstu viku. 17.9.2010 06:00
Allir setjist niður og klári mál fyrirtækja „Það er gott að fá þessa niðurstöðu og stórt skref í að eyða óvissu," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 17.9.2010 06:00
Mikið hass fannst í skattsvikarannsókn Á tólfta kíló af hassi fannst í einni þeirra húsleita sem gerðar voru í vikunni vegna umfangsmikils skattsvikamáls sem lögreglan í höfuðborginni hefur nú til rannsóknar. 17.9.2010 05:45
Kaupin á HS Orku líklega lögleg Kaup Magma Energy Sweden á HS Orku eru í samræmi við lög samkvæmt þremur af fjórum mögulegum lagatúlkunum sem fjallað er um í skýrslu nefndar um orku og auðlindamál sem fjalla átti um kaupin. 17.9.2010 05:30
Vinnubrögð ekki í samræmi við verklagsreglur „Samkvæmt forsendum dóms héraðsdóms var um að ræða verklag sem samræmist ekki þeim faglegu kröfum sem Barnaverndarstofa gerir í málum af þessu tagi.“ 17.9.2010 05:15
Allir skuldarar verði jafnsettir með lögum Setja á lög til að tryggja það að niðurstaða Hæstaréttar í máli Lýsingar frá því í gær gildi um öll gengistryggð húsnæðis- og bílalán einstaklinga. Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra kynnti þessa ákvörðun stjórnvalda á blaðamannafundi í gær, ásamt Má Guðmundssyni seðlabankastjóra og Gunnari Þ. Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Frumvarp að lögunum verður lagt fram í upphafi næsta þings í október. 17.9.2010 05:00
Mikilvægt að eyða óvissunni um lánin „Það er ánægjulegt að búið er að eyða þeirri óvissu sem verið hefur um þessi mál. Þetta hefur tafið mjög fyrir því að hægt væri að fara í eðlilega tiltekt á skuldastöðu heimilanna. Löggjöfin hefur verið þannig að fólk ber skuldir fram yfir gröf og dauða,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Hann segir niðurstöðuna hins vegar hafa komið á óvart. 17.9.2010 04:45
Krefur fólk um kennitölu þrátt fyrir lagabann Persónuvernd segir Landsbankann ekki hafa mátt heimta kennitölu af manni sem ætlaði að borga tvo gíróseðla fyrir systur sína. 17.9.2010 04:30
Óvissu létt en mörg flókin mál óútkljáð „Ég mun fylgjast mjög vel með framhaldi þessa máls. Það má segja að nú hafi aðeins verið stigið eitt skref af mörgum þar sem mörgum spurningum er enn ósvarað,“ segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. 17.9.2010 03:30
Ásakanir kalla á hreinsanir Biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, Pétur Bürcher, segist ekki hafa vitað af ásökunum á hendur forvera hans í biskupsstóli, Jóhannesi Gijsen. Gijsen hefur verið ásakaður um kynferðislega misnotkun gegn börnum í hollenskum skóla á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. 17.9.2010 03:00
Þriðjungur hefur boðað sig Rúmlega þrjú hundruð hafa boðað komu sína á Þjóðfund um stjórnarskrá sem fram fer í Laugardalshöll 6. nóvember. 17.9.2010 02:30
Vilja nýta virðisaukaskattkerfið Verkefnisstjórn Grænu orkunnar skilar tillögum sínum um aðgerðir hins opinbera til að auka hlut innlendra orkugjafa í samgöngum í kringum mánaðamótin næstu, segir Hólmfríður Sveinsdóttir, formaður verkefnisstjórnarinnar. 17.9.2010 02:00
Þörf fyrir nýjan hugsunarhátt „Konur eru mikið að ræða málin,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir, formaður Jafnréttisráðs og fyrrum þingkona Kvennalistans, aðspurð hvort nýtt kvennaframboð sé í uppsiglingu. 17.9.2010 02:00
Kallar á frekari málaferli lántaka „Ég er mjög hissa á niðurstöðu Hæstaréttar og þeim rökum sem sett eru fram. Hæstiréttur fer aðeins í lagaleg rök og hunsar í raun málflutning beggja aðila fyrir dómnum. Hann viðurkennir að vextirnir séu óaðskiljanlegir frá gengistryggingunni. En eftir það hugsar hann ekki neitt um málflutning aðila,“ segir Marinó G. Njálsson hjá Hagsmunasamtökum heimilanna. 17.9.2010 02:00
Aðeins helmingur hlýddi á varnarræðu Ingibjargar Um helmingur þingmanna Samfylkingarinnar mættu á óformlegan þingflokksfund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í kvöld samkvæmt kvöldfréttum RÚV. Fundurinn var haldinn í höfuðstöðvum Samfylkingarinnar á Hallveigarstígnum í miðborg Reykjavíkur. 16.9.2010 22:08