Fleiri fréttir

Veikindi Gabríellu og Aniku - niðurstöðu að vænta frá ráðuneyti

„Stelpurnar höfðu það gott í dag. Gabríella byrjaði reyndar daginn á höfuðverk og uppköstum en varð í lagi þegar á leið. Anika lék hjúkrunarkonu fyrir systur sína," segir móðir stúlknanna Gabríellu Kamí og Aniku Rósar í vefdagbók sem hún heldur úti um baráttu dætra sinna við hið sjaldgæfa Goldenhar-heilkenni. Móðirin, Hildur Arnardóttir, hefur dvalist með stúlkunum í Boston síðustu mánuði þar sem þær hafa gengist undir læknismeðferð.

Þingflokksfundur með Ingibjörg Sólrúnu hafinn

Fundur þingflokks Samfylkingarinnar með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, er hafinn. Fundurin er haldinn á skrifstofu Samfylkingarinnar á Hallveigarstígnum og hófst klukkan átta.

Níðþungur dómur yfir kannabisræktanda

Dómur yfir karlmanni var þyngdur verulega í Hæstarétti í dag en hann var sakfelldur fyrir vörslur á 322 kannabisplöntum ætluðum til söludreifingar og fyrir að hafa um nokkuð skeið staðið að ræktun þeirra.

Húsnæðislánum breytt með löggjöf

Efnahags- og viðskiptaráðherra mun setja lög sem tryggir að dómur Hæstaréttar í dag um vexti af lánum nái til allra lána vegna bíla- og húsnæðiskaupa sem tengd eru gengi erlendra gjaldmiðla. Mun lagasetningin taka til þeirra flokka lána sem talið er að hafi byggt á ólögmætri gengisbindingu. Samkvæmt útreikningum sérfræðinga Seðlabanka Íslands munu eftirstöðvar þessara lána lækka verulega við breytinguna, t.d. um 25% til 47% fyrir 25 ára lán.

Dæmdur fyrir kannabisræktun og lásboga

Karlmaður var dæmdur í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti í dag fyrir að hafa haft í vörslum sínum samtals 414,3 g af kannabislaufum, 204 kannabisplöntur og 53,03 g af kannabisstönglum og hafa um nokkurt skeið ræktað kannabisplöntur.

Miðað við lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabankans

Hæstiréttur Íslands féllst í dag á kröfu Lýsingar sem stefndi manni sem hafði tekið bílalán hjá fyrirtækinu. Ágreiningur var um það við hvaða lánsvexti ætti að miða eftir að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í júní að gengistrygging lána væri ólögleg

Helgi í Góu ósáttur við bæjarstjórn Akureyrar vegna KFC

„Það er óeðlilegt að á þeim 10 árum sem liðin eru síðan KFC sótti fyrst um byggingarleyfi fyrir veitingastað á Akureyri skuli leyfið enn ekki fást, sé undanskilin ein lóð sem fyrirtækinu var boðin í jaðri bæjarfélagsins þar sem enginn býr og fáir vinna," segir Helgi Vilhjálmsson, betur þekktur sem Helgi í Góu, í opnu bréfi sem hann hefur sent bæjarstjórn Akureyrar. Helgi er einn eigenda KFC.

Kvennaskólinn í Miðbæjarskólann

Húsnæði Miðbæjarskólans verður nýtt undir starfsemi Kvennaskólans í Reykjavík, samkvæmt samningi um samstarf ríkis og borgar í húsnæðismálum reykvískra framhaldsskóla til ársins 2014. Borgarráð samþykkti samstarfið í dag.

Orkuveitan þarf ekki að greiða arð til borgarinnar

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að falla frá kröfu sinni um arðgreiðslur Orkuveitu Reykjavíkur tímabundið. Þetta var samþykkt í borgarráði í dag að tillögu Besta flokksins og Samfylkingarinnar. Miðað er við að fallið verði frá arðgreiðslukröfunni þar til unnið hafi verið úr bráðavanda fyrirtækisins.

Tæplega tveggja vikna gæsluvarðhald

Sexmenningarnir sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna stórfellds fjársvikamáls í gær eru meðal annars grunaðir um brot á virðisaukaskattslögum, segir Jón HB. Snorrason, yfirmaður lögfræði- og ákærusviðs hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi.

Níu manns handteknir vegna fjársvikabrota

Níu menn hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umsvifamiklu fjársvikamáli. Sex eru í haldi lögreglu en þremur hefur verið sleppt, samkvæmt heimildum Vísis.

Endurskoðendur gagnrýna Atla og krefjast opinberrar rannsóknar

Stjórn Félags löggiltra endurskoðenda vill að opinberir aðilar rannsaki þátt endurskoðenda í því efnahagshruni sem varð á seinni hluta ársins 2008 ef umræðan á að vera á málefnalegum forsendum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórninni vegna skýrslu þingmannanefndar Atla Gíslasonar sem skilaði Alþingi skýrslu á laugardaginn.

Hæstiréttur kveður upp gengisdóm í dag

Það ræðst í dag hvaða vextir verða á gengistryggðum bílalánum. Hæstiréttur dæmir þá í prófmáli, en hann hafði áður dæmt gengistryggingu ólöglega.

Bættar samgöngur í borgum og bæjum

Samgönguvika hófst í dag en hún er liður í evrópsktu átaki um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Einnig er vikunni ætlað að hvetja stjórnvöld til að stuðla að notkun þessara samgöngumáta og fjárfesta í nauðsynlegum aðbúnaði.

Hlaupari tók við viðurkenningu í kanínubúningi

Uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka var haldin í gær í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á uppskeruhátíðinni voru afhentar viðurkenningar til þeirra hlaupara sem söfnuðu mestum áheitum.

Ingibjörg mætir á þingflokksfund klukkan átta

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, mun mæta á þingflokksfund Samfylkingarinnar klukkan átta í kvöld. Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, í samtali við Vísi.

Ákærur gegn ráðherrum ræddar á morgun

Ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum í ríkisstjórn Íslands verða ræddar á þingfundi sem hefst klukkan hálfellefu á morgun. Tvær þingsályktunartillögur verða ræddar.

Fleiri aka yfir á rauðu ljósi

Færri voru teknir fyrir ölvun við akstur í ágústmánuði en á sama tíma í fyrra og nemur munurinn 29 prósentum. Líkamsárásum fækkaði um 29%, fíkniefnabrotum um 11% og eignaspjöllum um 2%. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra fyrir ágúst 2010. Til samanburðar er þar miðað við breytingu frá sama mánuði árið á undan.

Afrein frá Bústaðarvegi lokuð í korter

Klukkan 10:00 verður lokað í 15 mínútur fyrir umferð af Bústaðarvegi um afrein niður á Kringlumýrarbraut til suðurs. Þarna hafa verið framkvæmdir við gerð undirgangna undanfarið og samkvæmt upplýsingum lögreglu er áætlað að ekki þurfi að loka fyrir umferð í meira en 15 mínútur.

Rændu dekkjum undan jeppa

Bíræfnir þjófar skrúfuðu öll fjögur hjólin undan stórum jeppa í Breiðholti í nótt og hurfu á braut með dekkinn. Vitni að þessu lét lögreglu vita sem stöðvaði mennina á bíl nokkru síðar. Þeir höfðu þá falið dekkin, en gátu vísað á þau. Við nánari athugun kom í ljós að sá sem ók bílnum var undir áhrifum fíkniefna og gista þeir nú báðir fangageymslur, jafnvel grunaðir um fleiri afbrot. Skömmu síðar var annar ökumaður stöðvaður vegna fíkniefnaaksturs, og einn til viðbótar fyrir ölvunarakstur.

Biskupinn vissi ekki um fortíð forvera síns

Pétur Bürcher, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi sendi í gærkvöldi frá sér yfirlýsingu þar sem segir að honum hafi verið ókunnugt um ásakanir á hendur forvera sínum í biskupsembættinu, Jóhannesi Gijsen, þess efnis að hann hafi fyrir 50 árum sýnt piltum kynferðislega áreitni í Hollandi.

Tveir kæra misnotkun presta

Fyrrum biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, Johannes Gijsen, hefur verið sakaður um kynferðislega misnotkun. Fjölmiðlar erlendis fjölluðu um málið í gær og eiga atburðirnir að hafa átt sér stað þegar Gijsen var kennari í Rolduc, kaþólskum skóla í Hollandi, á 6. og 7. áratugnum.

Frekari hagræðing náist ekki

Minni bjartsýni ríkir á meðal forstöðumanna ríkisstofnana í ár heldur en í fyrra og telur helmingur ólíklegt að frekari hagræðing náist í rekstri stofnana á næsta ári. Kemur þetta fram í niðurstöðum könnunar Capacent á viðhorfum og viðbrögðum forstöðumanna við niðurskurði í rekstri.

Magma rætt í ríkisstjórn

Starfshópur sem stjórnvöld skipuðu til að meta lögmæti kaupa sænsks dótturfyrirtækis kanadíska fyrirtækisins Magma Energy á HS orku hefur skilað niðurstöðu sinni.

Með kjöthamar og kökukefli

Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á þrítugsaldri fyrir Héraðsdómi Vestfjarða. Manninum er gefið að sök að hafa aðfaranótt sunnudagsins 6. júní síðastliðins gerst brotlegur við vopnalög með því að bera kjöthamar og kökukefli sem vopn á almannafæri.

Misstu tök á uppsveiflunni

Hefðu bankarnir verið einkavæddir á lengri tíma, hægar farið í fjárfestingar í stóriðju á Kárahnjúkum og Grundartanga og vöxtur bankanna haminn, svo sem með bindisskyldu, hefði peningastefna Seðlabankans átt meiri möguleika á að ráða við þensluna á árunum fyrir efnahagshrunið.

Maður misnotaði stúlkur í Reykjahlíð

Flest bendir til þess að gestkomandi maður hafi beitt stúlkur á vistheimilinu í Reykjahlíð kynferðislegu ofbeldi í upphafi sjöunda áratugar. Þetta kemur fram í annarri áfangaskýrslu vistheimilanefndar, sem kynnt var í gær.

Nefndin vill heyra frá öllum

Vinna er hafin við lokaskýrslu vistheimilanefndar, sem tekur til starfsemi Upptökuheimilis ríkisins, sem síðar hét Unglingaheimili ríkisins og starfaði frá 1945 til 1978. Einnig mun skýrslan, sem er væntanleg í apríl, fjalla um aðrar stofnanir, en nefndin gat ekki tiltekið hverjar þar sé um að ræða.

Samhæfa þarf viðbrögð við áföllum

Eldgosið í Eyjafjallajökli snemmsumars ýtir á að hrundið verði í framkvæmd áætlunum um samhæfðari reglusetningu og flugumferðarstjórn í Evrópu, að sögn Daniels Calleja, sem fer með málefni flugumferðar hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Calleja, ásamt fjölda sérfræðinga á sviði flugmála víðs vegar að úr heiminum, er gestur á yfirstandandi ráðstefnu Keilis um hvaða lærdóm megi draga af eldgosinu í Eyjafjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur.

Veður og vatnsvernd ráða úrslitum

„Það þarf meðal annars að skoða betur hvort það eru veðurfarsleg skilyrði fyrir snjóframleiðslu áður en hægt er að taka afstöðu í málinu,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, formaður bæjarráðs í Hafnarfirði, um þá hugmynd að styrkja rekstur skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli með snjóframleiðslu.

Vilja hitta alla ráðherrana

Fundi þingflokks Samfylkingarinnar með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrum formanni flokksins, sem vera átti í gærkvöldi var frestað. Skúli Helgason, varaformaður þingflokksins, segir að fundurinn verði haldinn í kvöld.

Bretar skera herinn niður

Bresk stjórnvöld undirbúa nú stórfelldan niðurskurð í útgjöldum til hernaðarmála.

Sjá næstu 50 fréttir