Fleiri fréttir

Björguðu manni úr jökulá

Litlu mátti muna að illa færi þegar að björgunarsveitir Slysvarnafélagsins Landsbjargar björguðu manni úr jökulá fyrir norðan Jökulheima vestan við Vatnajökul á átjánda tímanum í kvöld.

Má selja eignir til að standa undir lögfræðikostnaði

Slitastjórn Glitnis hefur veitt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni leyfi til að selja þær eignir sem hann þarf til að standa undir lögfræðikostnaði vegna málaferla og daglegum útgjöldum. Jón Ásgeir segist ekki sjá hvaða kröfuhafar Glitnis eigi að græða á aðgerðum slitastjórnar gegn honum.

Keyrt á tólf ára stelpu á tjaldstæði á Flúðum

Keyrt var á tólf ára gamla stelpu á Flúðum í dag. Meiðsli hennar eru talin minniháttar en hún var flutt í Laugarás til aðhlynningar. Slysið varð á tjaldstæði í bænum en stelpan hljóp fyrir bíl sem var á keyrslu á svæðinu.

Sextán ára dópaður undir stýri

Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði sextán ára gamlan ungling nú undir kvöld fyrir fíkniefnaakstur. Að sögn varðstjóra var pilturinn undir áhrifum kannabis, extacy og annarra sterkra fíkniefna.

Tveir með allar tölur réttar í lottóinu

Það voru tveir heppnir spilarar sem voru með allar tölur réttar í lottói kvöldsins og fær hvort þeirra 26,3 milljónir að launum. Annar miðinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni en hinn í áskrift.

Flogið til Eyja

Flogið verður til Vestmannaeyja nú seinni partinn og í kvöld. Flug til eyjarinnar hefur legið niðri frá því morgun vegna mikillar þoku við Eyjuna.

Ökumanninum sleppt - fullur iðrunar og eftirsjár

Yfirheyrslum yfir ökumanninum, sem lögreglan og Landhelgisgæslan mældu í gær á yfir 200 kílómetra hraða, er lokið. Honum hefur verið sleppt og er bifhjólið í geymslu lögreglunnar. Maðurinn er á þrítugsaldri. Hann var í haldi lögreglu í nótt en búist er við því að hann verði ákærður fyrir að stofna lífum í hættu.

Röð niður á höfn í ríkinu í Vestmannaeyjum

„Það er bara biðröð niður á höfn, allt alveg troðið,“ segir Ásta Reynisdóttir, aðstoðarverslunarstjóri Vínbúðarinnar í Vestmannaeyjum. Verslunin var opnuð klukkan ellefu og segir Ásta að upp úr eitt hafi fólk byrjað að koma í búðina og nú er svo komið að röðin nær niður á höfn.

Bílastæðavandi við Landeyjahöfn

„Bílastæðin eru orðin full hjá okkur, menn eru byrjaðir að leggja aðeins út í vegkantana," segir Sigmar Jónsson hafnarstjóri Landeyjahafnar. Öll bílastæði við höfnina eru orðin full og hafa menn tekið upp á því að leggja í vegaköntum. Búið er að gera nýtt bílastæði skammt frá höfninni og mun rúta ganga á milli hafnarinnar og bílastæðisins.

Fylgi Vinstri grænna hríðfellur

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn bæta við sig fylgi en fylgi Vinstri grænna lækkar samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Stuðningur við ríkisstjórnina hefur ekki mælst minni frá því Samfylking og Vinstri græn tóku við stjórnartaumunum.

Með 44 grömm af amfetamíni á leið í Herjólfsdal

Karlmaður um tvítugt var handtekinn Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í nótt með um 44 grömm af amfetamíni. Efnin eru talin ætluð til sölu og var hann yfirheyrður í kjölfarið. Annars gekk nóttin ágætlega að sögn lögreglu miðað við þann fjölda sem staddur er í Vestmannaeyjum, en hátt í 16 þúsund manns eru þegar komnir á Þjóðhátíð.

Ferðalangar á þjóðhátíð þurfa enn að bíða

Allt flug frá Reykjavíkurflugvelli stöðvaðist í morgun og var flugvellinum lokað um tíma sökum þoku í borginni. Ein flugvél fór til Ísafjarðar klukkan átta og ein vél til Akureyrar klukkan tíu. Öllu flugi til Vestmannaeyja var frestað sem og flugi til Egilsstaða.

Fimm gistu fangageymslur í Vestmannaeyjum

Nóttin hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum var mjög erilsöm, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra. Fimm gistu fangageymslur og þá komu nokkur fíkniefnamál upp.

Mikið stuð í Eyjum í blíðskapar veðri - Myndir

Mikið stuð var í Vestmannaeyjum í dag. Þoka lá yfir eyjunni allan daginn, en þó byrjaði að birta til seinni partinn. Búist er við því að fleiri komi til eyjarinnar í kvöld og á morgun.

Með kannabis og hvítt duft á Flúðum

Tveir karlmenn um þrítugt voru teknir með smáræði af fíkniefnum á Flúðum, bæði kannabisefnum og hvítu dufti sem grunur leikur á að sé amfetamín.

Ætla að kafa niður að tveimur skipsflökum

Risasnekkjan Octopus, sem er í eigu auðjöfursins Pauls Allen, kom til landsins í gær og lá við akkeri í ytri höfninni í Reykjavík fram á kvöld. Þá stóð til að hún legðist við festar við Miðbakka. Ráðgert er að snekkjan verði hér í sex daga.

Veiði borgarfulltrúa kostaði 641 þúsund

Kostnaður Orkuveitu Reykjavíkur vegna laxveiða borgarfulltrúa í Elliðaánum nam 640.896 krónum sumarið 2009. Þetta kemur fram í síðbúnu svari skrifstofu borgarstjóra við fyrirspurn sem Ólafur F. Magnússon, þáverandi borgarfulltrúi, setti fram í borgarráði 12. nóvember í fyrra.

Oftast innkölluð vegna eiturs

Hættuleg leikföng eru enn á markaði víðs vegar í Evrópu þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir og tilkynningar heilbrigðis­yfirvalda. Neytendastofa sendi frá sér tilkynningu á heimasíðu sinni í gær þar sem varað er við barnaleikföngum sem hafa verið innkölluð í Evrópu. Ekki er vitað til þess að vörurnar séu á markaði hér á landi.

Fundu bæjarstjóra milli auglýsinga

Enginn þeirra 23 sem sóttu um starf bæjarstjóra Vesturbyggðar hefur að sögn Ingimundar Óðins Sverrissonar, forseta bæjarstjórnar, gert athugasemdir við að þeim var öllum hafnað og Ásthildur Sturludóttir,

Átelur stjórnvöld vegna Magma-máls

Viðskiptaráð er mjög óánægt með framgöngu ríkisstjórnarinnar í máli kanadíska fyrirtækisins Magma Energy. Í greinargerð frá Viðskiptaráði um málið segir að hringlandaháttur, stefnuleysi og ákvarðanafælni stjórnvalda í stórum og mikilvægum málum geri mörgum aðilum í atvinnulífinu erfitt um vik.

Setti lögreglumenn í stórhættu

Ökumaður bifhjóls var stöðvaður á Malarhöfða í Reykjavík í kvöld eftir að hafa verið veitt eftirför um Suðurlandsveg og Hellisheiðina. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi veitti lögreglumaður sem var í eftirlitsflugi með þyrlusveit Landhelgisgæslunni eftirtekt.

Segir lækna ekki vera neitt hátekjufólk

Laun lækna sem birtust í tekjublaði Frjálsrar verslunar lýsa engan veginn raunveruleikanum hjá almennum læknum, að mati þeirra sem aðild eiga að Félagi almennra lækna. Vísir sagði frá því í gær að samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar voru 110 læknar með yfir milljón á mánuði í tekjur á síðasta ári.

Þúsundir samankomnar á Unglingalandsmóti

„Þetta er alveg glymrandi. Það hefur allt verið á áætlun og allir voða kátir og glaðir, bæði þjálfarar, keppendiur, foreldrar og aðrir gestir," segir Helga Guðrún Guðjónsdóttir. 13. Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands fer nú fram í Borgarnesi. Helga Guðrún segir að allt gangi gangi vel. „Þannig að við brosum bara í hring. Öll sem eitt," segir Helga

Örfáir stöðvaðir fyrir hraðakstur

Lögreglan fylgdist með umferðarhraða á Suðurlandsvegi við Bláfjallaveg eftir hádegi í dag. Á einni klukkustund óku 773 ökutæki þessa leið í suðurátt. Af þeim óku 16 ökumenn of hratt eða einungis um 2% allra ökumanna sem óku þessa leið. Meðalhraði hinna brotlegu var 101 km/klst en þarna er 90 kílómetra hámarkshraði. Sá sem ók hraðast var á 107 km/klst.

Viðrar vel til útileguferða

Veðurútlit fyrir helgina er mjög gott og hefur farið batnandi eftir því sem nær hefur dregið helginni, segir Elísabet Margeirsdóttir, veðurfréttamaður á 365 miðlum. Hún segir að veðurútlit á mánudag sé jafnframt mun betra en það var. „Það verður minni úrkoma en gert hafði verið ráð fyrir og vindur verður alveg í lágmarki framyfir verslunarmannahelgina. Það verður hæg breytileg átt og sumsstaðar hafgola,“ segir Elísabet.

35 þúsund skoða tekjur Íslendinga

Tekjusíður Vísis, þar sem hægt er að skoða tekjur um þúsund Íslendinga, hafa slegið í gegn síðan þær komu á vefinn á miðvikudagskvöld. Nú hafa 35 þúsund manns skoðað þær og er ekkert lát á vinsældunum.

Fimmtán þúsund manns í Vestmannaeyjum

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra Lögreglunnar í Vestmannaeyjum er áætlað að fimm þúsund manns komi til eyjarinnar í dag. Sjö þúsund komu í gær og „svo er eithvað af heimamönnum,“ segir hann. Hann áætlar að 14 til 15 þúsund manns séu á eyjunni.

Stöð 2 braut ekki gegn útvarpslögum

Fyrirkomulag kosningasjónvarps Stöðvar 2 daginn fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar fól ekki í sér mismunun samkvæmt útvarpslögum. Þetta er niðurstaða útvarpsréttarnefndar sem hefur fjallað um kæru þess efnis.

Á leið til Haítí

Tveir heilbrigðismenntaðir starfsmenn á vegum Rauða krossins halda til Haítí á mánudaginn.

Herjólfur á áætlun

Ferjan Herjólfur siglir samkvæmt ætlun í dag, samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun. Verið er að ljúka við að hreinsa upp svæðið við bryggjuna.

Biðröð eftir því að komast að áfenginu

Gert er ráð fyrir að um 40 þúsund manns komi í Vínbúðirnar í dag, segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, í samtali við Vísi. Hún segir að starfsemi Vínbúðanna hafi gengið vel í dag. „Ég sé á Heiðrúnu að þar hefur verið þétt traffík," segir Sigrún Ósk.

Herjólfur strandaði um stund

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur strandaði um stund, þegar skipið var að leggja af stað með 500 farþega frá Landeyjahöfn áleiðis til Vestmannaeyja á miðnætti í gærkvöldi. Siglingastofnun hefur þegar gripið til aðgerða til að tryggja siglingu skipsins um höfnina.

Hádegisferð Herjólfs hefur verið flýtt

Vegna óhagstæðra sjávarfalla þarf að flýta ferð Herjólfs frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja sem fara átti klukan 12:00. Ferðin verður nú farin klukkan 11:30., að því er segir í tilkynningu frá Eimskip.

Tvö hjól undir bílnum en áfram skröltir hann þó

Ölvaður ökumaður, sem lögreglan í Árnessýslu stöðvaði austan við Laugarvatn í gærkvöldi hefur verið búinn að aka svo lengi á öðru framdekkinu sprungnu, að það og felgan voru horfin og bremsuskálin var eydd upp til agna.

Ungt par með barn í bílnum tekið undir áhrifum fíkniefna

Ungt par, sem var stöðvað á bíl sínum við eftirlit lögreglunnar í Borgarnesi í gærkvöldi, reyndist undir áhrifum fíkniefna og fundust auk þess fíkniefni á karlmanninum. Með í för var lítið barn þeirra og ætlaði fólkið í langferð.

Þýskt eftirlitsskip á rúntinum undan Arnarstapa

Fólk á Arnarstapa á Snæfellsnesi undraðist í gærkvöldi að þýska eftirlitsskipið Meerkatze skyldi lóna þar fram og aftur nokkrar mílur undan ströndinni, líkt og skipverjar væru að leita að einhverju.

Sjá næstu 50 fréttir