Fleiri fréttir

Slökkviliðsmenn á Akureyri telja kjarasamning brotinn

Slökkviliðsmenn á Akureyri fá ekki greiddan frítökurétt né fá að taka hann út í fríum. Slíkt er brot á kjarasamningum og lögum frá árinu 1997, samkvæmt framkvæmdastjóra Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSOS). Ítrekað hefur verið reynt að semja við bæinn að hálfu slökkviliðsmanna en ekkert þokast í málinu. Samkvæmt lögum á frítökuréttur að koma fram á launaseðlum starfsmanna en það hefur til þessa aldrei gerst.

Hundruð hafa ekki rétt á atvinnustyrk

Um 500 manns í Reykjavík þiggja bætur frá Reykjavíkurborg þar sem þeir hafa ekki bótarétt hjá Vinnumálastofnun. Þetta á til dæmis við um þá sem hafa dvalið lengi erlendis. Þeir standa verr að vígi þegar kemur að umsóknum um atvinnu, þar sem atvinnurekandi getur ekki fengið styrk með þeim úr Atvinnuleysistryggingarsjóði.

Hundrað manns við störf við nýju höfnina

Sjö björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar taka að sér gæslustörf við Landeyjahöfn um helgina. Verða þetta í kring um hundrað manns sem vinna með einum eða öðrum hætti við höfnina.

Herða eftirlitið í höfuðborginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með sérstakt eftirlit með eftirvögnum og skráningu og skráningarmerkjum ökutækja um helgina. Þá verður sérstakt hverfaeftirlit í umdæminu vegna þess hversu algeng innbrot eru alla jafna um verslunarmannahelgina.

Búist við metfjölda á Þjóðhátíð

Stærsta ferðamannahelgi ársins er gengin í garð. Búist er við að Þjóðhátíð í Eyjum verði sú fjölmennasta til þessa. Umferðarstofa biður ökumenn að sýna tillitsemi og aðgát. Veðurspáin fyrir landið er hin besta.

Ágóði vatns til Rauða krossins

Rauði kross Íslands mun fá allan ágóða af sölu Pure Icelandic vatnsins á Íslandi. Samningur þess efnis var undirritaður í gær.

Fundu fíkniefni í bílum í Borgarnesi

Lögreglan í Borgarnesi hefur tekið lítilræði af fíkniefnum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er það aðallega kannabis sem hefur fundist. Efnin hafa fundist við eftirlit þar sem bílar eru stoppaðir og fíkniefnahundur látinn þefa af farangri bifreiðarinnar. Kannabisið hefur aðallega fundist hjá ungu fólki.

Ölvaður á tveimur dekkjum

Ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur á Laugarvatni. Þegar lögregla kom á staðinn var bíllinn sem maðurinn ók á, einungis með þrjú dekk undir bílnum. Þá var eitt af þessu þremur sprungið. Hann hafði því einungis tvö heil dekk til að keyra á.

Velti fjórhjóli ölvaður

Maður á þrítugsaldri velti fjórhjóli og lenti undir því seinni partinn í dag. Hann fékk minniháttar höfuðáverka og missti meðvitund. Veltan varð á sveitavegi rétt við Hvalfjarðargöngin, nær Akranesi.

Ólafur Örn nýr bæjarstjóri Ölfuss

Ólafur Örn Ólafsson er nýr bæjarstjóri sveitarfélagsins Ölfus. Alls sóttu 30 aðilar um starfs bæjararstjóra og sá Capacent um ráðningarferlið. Ákveðið var að ganga til viðræðna við Ólaf Örn og liggur nú samkomulag þess efnis að hann gegni stöðu bæjarstjóra félagsins næstu fjögur árin.

Ein líkamsárás kærð í Eyjum

Ein minniháttar líkamsárás var kærð til Lögreglunnar í Vestmannaeyjum í dag og örfá fíkniefnamál komu upp. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hefur þjóðhátíð farið rólega af stað.

Frítt að leggja við Landeyjahöfn

„Það er hætt að rukka fyrir bílana, það þarf enginn að borga fyrir bílastæði," segir Sigmar Jónsson, hafnarstjóri Landeyjahafnar. Siglingamálstofnun ákvað að rukka þá sem geyma bíla sína við höfnina yfir helgina um 1.000 krónur. Sú ákvörðun var dregin til baka.

Hætta á að Umboðsmaður skuldara skaðist

„Ég tel að þetta geti skaðað embættið," segir Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Hún var í hópi umsækjenda um embætti umboðsmanns skuldara, en Runólfur Ágústsson, fyrrverandi rektor á Bifröst var nýlega skipaður í embættið.

Sjö kínversk börn ættleidd

Síðdegis í gær komu heim til landsins sjö íslenskar fjölskyldur sem dvalið höfðu í tvær vikur Kína fyrir milligöngu Íslenskrar ættleiðingar. Með í för voru sjö nýir Íslendingar, fimm stúlkur og tveir drengir sem fjölskyldurnar

Óttaðist um önnur vatnsréttindi

Ísland sat hjá þegar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöld að aðgangur að hreinu vatni skyldi teljast til mannréttinda. Utanríkisráðuneytið óttast að þetta grafi undan öðru samkomulagi um vantsréttindi. Þingmaður vill að fulltrúi Íslands hjá Sameinuðu Þjóðunum og utanríksimálaráðherra skýri málið.

Stefna Arion banka vegna gengistryggðs húsnæðisláns

Arion Banka var birt stefna í morgun vegna gengistryggðs fasteignaláns sem Sjómannafélag Íslands tók í júlí 2007. Í janúar á þessu ári hafði félagið greitt 37 milljónir fyrir 15 milljóna króna lán. Lögmaður félagsins telur að lánið sé í íslenskum krónum, en ekki hefur áður reynt á lögmæti lána af þessu tagi.

Vítisengill stefnir íslenska ríkinu

Dómsmálaráðuneytið staðfesti fyrir skömmu ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa Leif Ivar Kristiansen, leiðtoga norskra Vítisengla, frá Íslandi. Samkvæmt heimildum Vísis vinnur Kristiansen að því núna ásamt lögmanni sínum að stefna íslenskra ríkinu vegna brottvísunarinnar.

Lögreglan með umfangsmikið eftirlit um helgina

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með viðamikið eftirlit um verslunarmannahelgina eins og jafnan áður. Áhersla hefur verið á eftirlit með ferðavögnum/eftirvögnum og skráningu og skráningarmerkjum ökutækja. Slíkt eftirlit hefur verið mjög virkt hjá lögreglu síðustu vikur og

Birgitta krefst svara vegna vatnsréttinda

Birgitta Jónsdóttir, alþingismaður Hreyfingarinnar, hefur óskað eftir því að fulltrúi Íslands í fastanefnd Sameinuðu þjóðanna og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra verði kallaðir fyrir nefndina vegna frétta af því að Ísland hjá við atkvæðagreiðslu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær, þar sem samþykkt var tillaga um að aðgangur að hreinu vatni verði mannréttindi.

Íslensk kona syngur hlutverk Hans

Íslensk mezzosópran, Dóra Ármannsdóttir, syngur eitt aðalhlutverkið í uppfærslu á óperunni Hans og Grétu sem verður frumsýnt á vegum Pacific Opera í Sidney í Ástralíu á morgun. Dóra segir að alls verði fjórar sýningar á sívinsælu verki Engelbertd Humperdinck.

Ísland sat hjá við atkvæðagreiðslu SÞ

Mannréttindaskrifstofa Íslands telur að aðgangur að hreinu vatni teljist til mannréttinda. Ísland sat hins vegar hjá við atkvæðagreiðslu í Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær, þar sem samþykkt var tillaga um að aðgangur að hreinu vatni séu mannréttind

Yfir þrjú þúsund án vinnu í meira en ár

Gangi spár eftir mun atvinnuleysi í ágúst og september verða minna en í sumar, eða í kringum 7 prósent. Í október eru þó líkur á að fjölga muni á ný á atvinnuleysisskrá.

Þjófur handtekinn í nótt

Lögreglan handtók í nótt karlmann, sem er grunaður um að hafa brotist inn í veitingahús í miðborginni í nótt og síðan inn í bíla við Hverfisgötu. Ekki liggur fyrir hverju hann stal, en málið er í rannsókn.

Tugþúsundir á atvinnuleysisbótum

Framteljendum til skatts fækkaði í fyrra miðað við árið á undan að sögn ríkisskattstjóra. Hlunnindi og launatekjur þjóðarinnar lækkuðu um 38 milljarða króna milli ára en atvinnuleysisbætur hækkuðu um 16,7 milljarða. Álagning ríkisskattstjóra nú er sú fyrsta eftir sameiningu skattumdæma um síðustu áramót. Í frétt frá embættinu segir að skil á framtölum hafi verið betri en síðustu ár. Áætla hafi þurft á mun færri einstaklinga en í fyrra eða 13.750 miðað við 22.330 framteljendur fyrir tveim árum.

Orkubúskapur styrkist en veiði dvínar

Miðlunarlón við virkjanir Landsvirkjunar eru að fyllast tveimur til fjórum vikum fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir, að því er segir í frétt frá fyrirtækinu.

Ráðherra fagnar viðræðum

Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, segir líkindi með stöðu Íslendinga í upphafi aðildarviðræðna við ESB og stöðu Svía þegar þeir gengu í sambandið.

Hugar að sportbátamiðstöð

Ný bæjarstjórn á Ísafirði veltir upp möguleikanum á því að gera bæjarfélagið að sportbátamiðstöð. Frá þessu er greint í Bæjarins besta.

Hraðakstur á leið í Herjólf

Nokkuð hefur borið á hraðakstri á nýja veginum að Landeyjarhöfn undanfarna daga að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Þónokkrir hafa verið sektaðir fyrir hraðakstur.

Hefðu átt að fresta sjálfkrafa

Þeir viðskiptavinir Íslandsbanka sem tóku verðtryggð húsnæðislán árið 2005 hafa fengið send bréf þess efnis að nú sé komið að vaxtaendurskoðun. Vextir lánanna voru upphaflega 4,15 prósent en lánasamningar kveða á um rétt bankans til hækkunar vaxtaálags á fimm ára fresti. Með bréfinu fylgdi umsóknareyðublað þar sem lánþegar geta sótt um frest á vaxtaendurskoðunardegi til þriggja ára.

Hafa fundið 185 beinagrindur

Beinagrind af manneskju með Pagets-sjúkdóminn fannst við fornleifauppgröft á Skriðuklaustri í Fljótsdal í vikunni. Steinunn Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur og ábyrgðarmaður verkefnisins, segir margt merkilegt hafa komið í ljós við uppgröftinn, en þetta er níunda sumarið sem unnið er við hann.

Mannfólk til sýnis í fyrsta sinn

Mannskepnan verður í fyrsta sinn til sýnis í sínu náttúrulega umhverfi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um næstu helgi. Sýndir verða þrír karlar og ein kona.

Pantanastaða sterk og afkoma góð

Hagnaður heildarstarfsemi Marel eftir skatta á öðrum fjórðungi þessa árs var 117 milljónir evra (18,4 milljarðar króna), en var á sama tímabili í fyrra 17,3 milljarðar evra (2.716 milljarðar króna). Mikill munur skýrist af einskiptiskostnaði í ár og eignasölu í fyrra.

Bankastjórar með tvöföld laun forsætisráðherra

Bankastjórar fjögurra stærstu viðskiptabankanna höfðu í fyrra allir hærri laun en forsætisráðherra landsins þrátt fyrir stefnu stjórnvalda um að engir starfsmenn á vegum ríksins hafi hærri laun en forystumaður ríkisstjórnarinnar.

Miðbæjarskólinn fær 120 milljónir til aðlögunar

Fjármálaráðherra lagði fram tillögu á fundi ríkisstjórnar í byrjun síðustu viku um að leggja fram 500 milljónir króna í uppbyggingu og viðhald ýmissa opinberra bygginga í landinu. Fjárframlagið var samþykkt á fundinum og listi yfir byggingarnar var síðar samþykktur í vikunni af efnahags- og viðskiptanefnd.

Fjórðungs hækkun á leiguverði á hálfu ári

Fermetraverð leiguhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 17,5 prósent á sex mánuðum. Stærstu eignirnar hækka mest. Leiguverð hefur ekki verið hærra síðan á vormánuðum fyrir hrun. Leigjendur vantar málssvara.

Hörð keppni um tjaldstæði

Gestir Þjóðhátíðarinnar árlegu í Vestmannaeyjum eru margir hverjir mættir á svæðið og byrjaðir að koma sér fyrir. Heimamenn merktu fyrir tjöldum sínum í gærdag, en sá siður hefur lengi ríkt í dalnum.

Tekjur Íslendinga: Skoðaðu frítt á Vísi

Vissir þú að Jón Gnarr er með hærri tekjur en Jóhanna Sigurðardóttir? Eða að Hreiðar Már fór úr 36 milljóna tekjum í 300 þúsund krónur? Nú er hægt að skoða tekjur um þúsund Íslendinga frítt á Vísi.

Nokkur fíkniefnamál í Vestmannaeyjum

Samkvæmt varðstjóra hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum er eitthvað að fólki komið til eyjarinnar. Margir af þeim eru í „yngri kantinum“, eins og hann orðaði það. Þá er einhver ölvun hjá fólki en engin alvarleg atvik hafa komið upp.

„Þetta var bara algjört bull“

Björgólfur Thor Björgólfsson segir að einkavæðingarferlið hafi stökkbreyst frá því að hann keypti Landsbankann ásamt föður sínum í árslok 2002. Í ítarlegu viðtali við Viðskiptablaðið á morgun segir Björgólfur að þeir feðgar haldið að þeir myndu fá einhvern tíma til að koma Landsbankanum á ról.

Sjá næstu 50 fréttir