Fleiri fréttir

Steingrímur styður Gylfa

„Ég sé ekki að það liggi fyrir neitt annað en að hann hafi svarað samkvæmt því sem hann best vissi á þessum tíma. Ég hef ekkert í höndum sem fær sannað að þarna hafi ásetningi eða vísvitandi verið hallað rétt að máli. Ég hef það ekki. Á meðan nýtur Gylfi Magnússon vafans af minni hálfu,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.

Á sjöttu milljón safnað fyrir börnin í Reykjadal

„Söfnunin gengur stórvel og nú hafa um 5,6 milljónir safnast. Við eigum von á stórum gjöfum á morgun og á þriðjudaginn þegar gangan hefst,“ segir Sólveig Hlín Sigurðardóttir forstöðumaður Reykjadals.

Jazzhátíð Reykjavíkur hefst í dag

Jazzhátíð Reykjavíkur verður formlega sett í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 17 dag. Auk íslenskra tónlistarmanna koma listamenn frá Norðurlöndunum, Frakklandi, Bandaríkjunum og Austurríki fram á hátíðinni sem stendur yfir í hálfan mánuð. Jazzhátíð Reykjavíkur er skipulögð af Jazzdeild FÍH með hjálp frá Menningarsjóði FÍH, Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóði.

Skólabækur með sál ódýrari

Kostnaður framhalds- og háskólanema við bókakaup hleypur á tugum þúsunda, en töluvert er hægt að spara með því að kaupa bækur með sál.

Gylfi: Skil ekki eftir naglaför í parketinu

„Auðvitað hef ég velt því fyrir mér,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, aðspurður hvort hann hafi íhugað að segja sér embætti. Hann segir að það verði ekki erfitt að koma honum út þegar ákvörðun um það verði tekinn. Hann muni ekki skilja eftir naglaför í parketinu. Þetta kom fram í máli Gylfi í þættinum Vikulokin á Rás 1 í dag.

Franskur ferðamaður fékk nýrnasteinakast

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti í Reykjavík á ellefta tímanum í dag með veikan ferðamann. Björgunarsveitarmenn og þyrla Gæslunnar var kölluð út í morgun eftir að neyðarboð barst frá staðsetningartæki fransks ferðamanns sem staddur var suðaustan Hagafells við Markarfljót. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Landhelgisgæslunni er talið að maðurinn hafi fengið nýrnasteinakast.

Segir Gylfa hafa logið

„Þetta eru ekki nægjanlegar skýringar og við sjáum okkur ekki annað fært en að bera fram vantrauststillögu á Gylfa. Þegar farið er yfir það hvað hann sagði og hvenær þá sést að hann var ekki að segja satt,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar.

Leit að Ulrike bar ekki árangur

Leitað var að Ulrike Kimpfler, 46 ára konu búsettri í Borgarnesi, til um klukkan tíu í gærkvöld. Ulrike, sem er þýsk að uppruna en á íslenskan sambýlismann, hefur verið saknað frá því á mánudag.

Þyrla Gæslunnar kölluð út

Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitarmenn voru kallaðar út eftir að neyðarboð barst frá staðsetningartæki ferðamanns á níundatímanum í morgun. Boðin bárust frá Fjallabaki norðan Mýrdalsjökulls ekki langt frá Álfta- og Laugavatni, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Landhelgisgæslunni. Þyrla Gæslunnar kemur á staðinn innan skamms.

Stjórnmálafræðingur: Gylfi vandræðalega tvísaga

Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðingur segir, stöðu Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vera erfiða. Ráðherrann virðist vera „vandræðalega tvísaga", þótt auðvitað megi líta til aðstæðna á þeim tíma, sumarið 2009, til skýringar á athöfnum hans, en þá var meðal annars verið að fjalla um uppgjör gömlu bankanna.

Gylfi Magnússon: Afsögn ekki rædd

„Það er ekki minn skilningur heldur þvert á móti að starfsmenn ráðuneytisins hafi haldið frá mér upplýsingum eða blekkt mig. Ég var fyllilega upplýstur um það sem átti að upplýsa mig um," segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem ræddi við Fréttablaðið í gærkvöld.

Lokuðust í lyftu

Slökkviliðsmenn aðstoðuðu fólk sem lokaðist inni í lyftu í húsi við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt. Fólkið þurfti ekki að dúsa lengi í lyftunni því slökkviliðsmenn komu á staðinn skömmu eftir að það náði að láta vita af sér. Notaður var þartilgerður lykill til að opna lyftuna og amaði ekkert af fólkinu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá varðstjóra.

Tíu gistu fangageymslur

Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt þrátt fyrir að engin meiriháttarmál hafi komið upp og gistu tíu fangageymslur, að sögn lögreglu. Tveir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ölvunarakstur og þá stöðvaði lögregla í nótt för ökumanns sem talinn var aka undir áhrifum fíkniefna.

Gengjaátök í fangelsunum

Brotamenn sem afplána í íslenskum fangelsum mynda í auknum mæli hópa, sem síðan lenda í átökum innan fangelsisveggjanna. Þetta segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar.

Ekkert svigrúm til bjórhækkana

Heimsmarkaðsverð á byggi hefur tvöfaldast á síðustu mánuðum vegna uppskerubrests í Evrópu, líkt og verð á hveiti. Má því búast við því að verð á bjór muni hækka töluvert í kjölfarið hér á landi.

Mjólkurfrumvarp hindrar nýsköpun

Viðskiptaráð hefur sent frá sér álit á frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til búvörulaga. Viðskiptaráð gagnrýnir frumvarpið og hvetur til þess að það nái ekki fram að ganga.

Útlendar sveitir vilja æfa hérna

Alþjóðarústabjörgunarsveit Hollendinga (USAR-NL) vill halda æfingu á Gufuskálum, æfingasvæði íslensku rústabjörgunarsveitarinnar (ÍA). Á vef Lands­bjargar segir að fulltrúar sveitarinnar hafi rætt þetta á fundi með stjórnendum íslensku sveitarinnar í byrjun vikunnar.

Erlendir tjónabílar bannaðir

Óheimilt verður að skrá ökutæki hér á landi sem eru skráð sem tjónaökutæki erlendis, frá og með áramótum. Samgönguráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til Umferðarstofu.

Um 1.300 hafa skrifað undir

Undirskriftasöfnun til að mótmæla þeim fyrirætlunum bæjarráðs Akureyrar að byggja KFC veitingastað við Hafnarstræti, hófst fyrir um viku. Um 1.300 manns hafa skrifað undir á vefsíðunni sem stofnuð var í þessum tilgangi.

Gylfi situr áfram í embætti

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra mun sitja áfram í embætti, segir Benedikt Stefánsson, aðstoðarmaður hans, í samtali við Vísi.

Verkfallið skapar álag á slysadeild

Aukið álag er á slysadeild Landspítalans i Fossvogi vegna verkfallsins, samkvæmt upplýsingum sem Vísir fékk frá hjúkrunarfræðingi á deildinni.

Stefnt að Icesave samningaviðræðum með haustinu

Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands hittast í næstu viku til að ræða Icesave málið. Þetta hefur danski viðskiptavefurinn epn.dk eftir ónafngreindum heimildarmanni úr íslensku stjórnsýslunni. Heimildarmaðurinn segir að samningaviðræður muni standa yfir í ágúst og í byrjun september.

Sendi forsetum Pakistan og Kína samúðakveðjur

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í dag forseta Kína Hu Jintao samúðarkveðjur vegna náttúruhamfaranna sem orðið hafa í Kína undanfarna daga. Á annað þúsund hafa látist og mikill fjöldi misst heimili sín enda eyðilegging þorpa og byggða gífurleg.

Ræddu gagnrýni á Gylfa

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ræddu saman í síma í kvöld um þá gagnrýni sem beinst

Styðja við bakið á Stjörnunni og Reykjadal

Bónus ætlar að styrkja Stjörnuna um 1,5 milljónir króna og sumarbúðirnar í Reykjadal um eina milljón króna. Ákvörðun um stuðninginn er tekin í tilefni af því að ný og stærri Bónusverslun er að opna í Kauptúni á morgun.

Traust Jóhönnu til Gylfa skilyrðum háð

Forsætisráðherra ber enn traust til viðskiptaráðherra, en traust hennar er því skilyrði háð að hann geti gefið greinargóðar skýringar á ásökunum sem settar hafa verið fram á hendur honum. Þingmenn Hreyfingarinnar ætla að leggja fram vantrauststillögu á hendur viðskiptaráðherra ef hann segir ekki af sér.

Flugfélag Íslands kærir hugsanlega aðgerðir slökkviliðsmanna

Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands íhugar að kæra aðgerðir slökkviliðsmanna. Hann segir tjón félagsins vegna aðgerðanna nema milljónum og harmar að þeir láti kjaradeiluna bitna á ferðafólki og fyrirtæki sem enga aðild eigi að kjaradeilunni.

Um 150 ný störf skapast til áramóta

Um 150 ný störf skapast fram að næstu áramótum með þeirri ákvörðun borgarráðs sem tekin var fyrr í sumar um að breyta forgangsröðun á framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 og verja 500 milljónum í átaksverkefni skapast.

Lögreglan leitar að Sindra

Lögreglan á Selfossi leitar að Sindra Þór Ragnarssyni, fjórtán ára gömlum. Sindri Þór er 1,77 cm á hæð. Hann er klæddur í hvíta adidas peysu og beislitaðar carhartt buxur. Í dag er hárið á honum heldur styttra en það er á meðfylgjandi mynd og brúnleitt.

Gylfi brunar í bæinn

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er á leiðinni í bæinn en hann hefur verið í sumarleyfi undanfarna daga og utan símasambands.

Búið að aflýsa fluginu - Farþegar ósáttir

Flugfélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa fyrirhuguðu flugi til Húsavíkur þar sem slökkviliðsmenn komu í veg fyrir að farþegar kæmust um borð. Næsta flug til Húsavíkur er áætlað klukkan fjögur og segjast starfsmenn vonast til þess að unnt verði að koma farþegum um borð í það flug.

Reyna að stöðva flugfarþega á Reykjavíkurflugvelli

Um fjörutíu slökkviliðsmenn eru nú á Reykjavíkurflugvelli til þess að mótmæla innanlandsflugi til Húsavíkur en þangað var Akureyrarflug dagsins fært þar sem slökkviliðsmenn fóru í verkfall í morgun. Slökkviliðsmennirnir reyna að hindra að farþegar komist um borð.

Munu ekki fara út í ólöglegar aðgerðir

„Meðan þeir halda sig inni á svæðinu sem slíku, teljum við okkur ekki getað gert neitt til að hindra þeirra för. Ef þeir fara út fyrir svæðið er viðbúið að við hindrum för bílsins," Anton Carrasco slökkviliðsmaður og verkfallsvörður á Húsavík. Anton er staddur á Aðaldalsfluvelli á Húsvík ásamt fimmtán til tuttugu örðum slökkviliðsmönnum.

Isavia: Ekki slegið af öryggiskröfum

Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia segir að ekkert sé slegið af öryggiskröfum á Aðaldalsvelli við Húsavík en þangað stendur til að vísa Akureyrarflugi dagsins vegna verkfalls Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Slökkviliðsbíll hefur verið fluttur frá Bakkaflugvelli til þess að uppfylla öryggiskröfur og munu starfsmenn Isavia manna hann.

Tveggja krónu eldsneytislækkun

Atlantsolía og Orkan lækkuðu bensínlítrann um tvær krónur í morgun og díselolíuna um eina krónu. Bensínlítrinn kostar nú innan við 195 krónur hjá báðum félögunum og dísellítrinn innan við 192 krónur.

„Tíu þúsund lítrar eru ekki neitt“

Samtökin Beint frá býli vilja að heimild til heimaframleiðslu utan kvótakerfis í umdeildu mjólkurfrumvarpi sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra verði hækkuð úr tíu þúsund lítrum í þrjátíu þúsund. Samtökin segja að frumvarpið gangi ekki nógu langt í núverandi mynd.

Verulega slegið af öryggiskröfum í Húsavíkurflugi

Landssamband Slökkviliðs og sjúkraflutningamanna telur að með því að flytja gamlan slökkvibíl frá Bakkaflugvelli til Húsavíkur til þess að hægt sé að lenda á flugvelli bæjarins sé verið að slá verulega af öryggiskröfum sem alla jafna séu gerðar í farþegaflugi.

Fara yfir grundvallaratriði og meta stöðuna

„Við erum að fara yfir grundvallaratriði í þessum málum og ræða saman,“ segir Sverrir Björn Björnsson formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Um 70 félagsmenn hittust í Húnabúð í Skeifunni klukkan níu í morgun til að fara yfir stöðuna í samningaviðræðum en þriðja verkfall þeirra hófst klukkan átta í morgun og lýkur á miðnætti.

Friðjón aðstoðar Bjarna Ben

Friðjón R. Friðjónsson tekur í dag tímabundið við starfi aðstoðarmanns Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Sigurður Kári Kristjánsson var aðstoðarmaður Bjarna Benediktsson þar til hann tók sæti á þingi í apríl síðastliðnum. Það gerði hann þegar að Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálftæðisflokksins, tók sér leyfi frá þingstörfum á meðan sérstakur saksóknari skoðar hvort tilefni sé til að taka málefni sem snúa að peningamarkaðssjóðum bankanna til rannsóknar. Illugi var í stjórn Sjóðs 9 hjá Glitni.

Sjá næstu 50 fréttir