Fleiri fréttir

Urriðafossvirkjun deiluefnið

Íbúi í Flóahreppi hefur kært samning sem sveitarfélagið hefur gert við Árborg og Landsvirkjun til samgönguráðherra. Samkvæmt samningnum mun Landsvirkjun greiða vatnsveitu úr Árborg samþykki Flóahreppur aðalskipulag með Urriðafossvirkjun.

Margir ná ekki endum saman

Tæplega fjörutíu prósent heimila landsins, eða 39 prósent, áttu erfitt með að láta enda ná saman á síðasta ári. Þetta kemur fram í lífskjararannsókn Hagstofunnar.

Tæplega 80% í Þjóðkirkjunni

Hlutfall landsmanna átján ára og eldri sem eru skráðir í Þjóðkirkjuna hækkar lítillega milli ára samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Um 78,8 prósent Íslendinga á kosningaaldri voru skráðir í Þjóðkirkjuna 1. janúar síðastliðinn, en hlutfallið var 78,5 prósent í janúar í fyrra.

Ráðuneyti hefur ekki staðfest

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur ekki staðfest umdeilt álit reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga um að auka megi bókfært eigið fé sveitarfélaga um milljarða með því að verðmeta lönd og leigulóðir í efnahagsreikningi út frá áætluðu söluverði eða framtíðartekjum af lóðaleigu.

Vildu frystar milljónir til baka vegna áfellisdóms

Eigendur félagsins Vindasúlna ehf., sem var í eigu feðganna Arons og Karls Steingrímssonar sem gjarnan er kenndur við Pelsinn, vildu hnekkja úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem heimilaði embætti ríkislögreglustjóra að leggja hald á tæplega 93 milljónir vegna meints fjársvikamáls varðandi nýtt húsnæði kínverska sendiráðsins.

Stórlega dregið úr gosinu

Stórlega hefur dregið úr gosinu og má ætla að kvikuflæðið sé nærri 5 tonn á sekúndu miðað við að það var um 200 tonn þegar mest fyrr í vikunni.

Enn einn pilturinn stígur fram og segist hafa lent í meintum nauðgara

Tvítugur piltur í Hafnarfirði sem segist hafa verið nauðgað af þrítugum karlmanni vonar að hann verði dæmdur í fangelsi. Hann upplifði mikla skömm og niðurlægingu eftir atvikið en hann hefur leitað til Stígamóta og gengið til sálfræðings vegna þess. Annar piltur hefur kært manninn fyrir nauðgun en alls hafa fjórir piltar sakað manninn um að hafa leitað á sig.

Vilja póstsamskipti Jóhönnu við Láru vegna launamáls seðlabankastjóra

Fulltrúar minnihlutans í efnahags- og skattanefnd Alþingis hafa óskað eftir að sjá tölvupóstsamskipti forsætisráðuneytis og formanns bankaráðs Seðlabankans þar sem launamál Seðlabankastjóra eru rædd. Þingmenn vilja fá úr því skorið hvort forsætisráðherra hafi sagt sannleikann í málinu.

Besti flokkurinn með hreinan meirihluta

Besti flokkurinn fær hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, 8 kjörna fulltrúa af fimmtán, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, en rúm vika er í kosningar.

Mun færri kaupa sér bíla

Nýskráningum ökutækja hefur fækkað um 12,49% á milli ára, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu. Það sem af er árinu hafa 1.233 ökutæki verið nýskráð en þau voru 1.409 á sama tíma á síðasta ári.

Almannaheill samþykkja siðareglur

Á aðalfundi Almannaheilla, samtaka þriðja geirans, voru samþykktar samhljóða siðareglur fyrir samtökin en unnið hefur verið að gerð þeirra í vetur. Á fundinum, sem haldinn var 19. maí síðastliðinn í húsi Krabbameinsfélags Íslands, var því sérstaklega fagnað að samtökin hefðu nú sett sér slíkar reglur og vonandi gætu þær einnig orðið öðrum gott fordæmi.

Sauðburði lokið í Laugardal

Ær Fjölskyldu- og húsdýragarðsins eru allar bornar og fjöldi lamba hefur aldrei verið meiri, samkvæmt upplýsingum frá Unni Sigþórsdóttur, deildarstjóra fræðsludeildar garðsins.

Veðjað á Dag og Hönnu Birnu

Annað hvort Dagur B. Eggertsson eða Hanna Birna Kristjánsdóttir mun verma borgarstjórastólinn í Reykjavík að loknum sveitastjórnarkosningum eftir viku, ef marka má niðurstöður veðbankans Betsson.

Borgarstjórinn í Árósum heimsækir Reykvíkinga

Nicolai Wammen borgarstjóri í Árósum og einn vinsælasti stjórnmálamaður Danmerkur kemur til landsins í dag og tekur meðal annars þátt í spennandi fundi Samfylkingarinnar um hlutverk borga við að koma samfélaginu út úr kreppunni. Fundurinn fer fram í Norræna húsinu.

Afhentu Rauða krossinum milljón í styrk

Fulltrúar Fræðagarðs, félags háskólamanna, afhentu í dag Rauða krossi Íslands einnar milljón króna styrk til verkefnisins Félagsvinir atvinnuleitenda. Við afhendinguna sagði Bragi Skúlason, formaður Fræðagarðs, að verkefni Rauða krossins bjóði upp á kost sem ekki er annarsstaðar í boði fyrir atvinnuleitendur, og því hafi félagið samþykkt á fundi stjórnar nú í maí að styrkja verkefnið.

Lögreglan lýsir eftir Rihards

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Rihards Jansons, sem fór frá heimili sínu um miðnætti á laugardagskvöldið þann 15 maí og hefur ekkert til hans spurst síðan. Rihards er um 184 cm á hæð, grannur, með skollitað hár og gráblá augu.

Skrifað undir samning um sjálfstætt starfandi leikskóla

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hefur undirritað nýja samninga um rekstrarframlög til 19 sjálfstætt starfandi leikskóla í Reykjavík. Markmiðið með samningunum er að tryggja að sama fé fylgi barni óháð því hvaða rekstrarformi leikskólinn starfar eftir án þess að draga úr sérstöðu og séreinkennum hvers skóla.

Fyrsta gagnaverið tók til starfa í dag

Fyrsta íslenska gagnvaverið, Thor Data Center, tók til starfa í dag. Framkvæmdastjóri félagsins áætlar að gagnaverið muni skapa um 30 störf þegar starfsemi verður komin á fullt.

Dæmdur til að greiða 34 milljónir vegna skattalagabrots

Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða 34 milljónir króna í sekt og í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum sem framin voru í sjálfstæðri atvinnustarfsemi.

Húnabjörgin kölluð út vegna aflvana báts

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Skagaströnd, Húnabjörgin, var kölluð út laust eftir hádegi vegna vélarvana báts sem staddur er í Birgisvíkurpollinum sem er sunnan við Gjögur. Báturinn er 20 tonna netabátur og eru tveir menn um borð.

Festi tána í trépalli: Vinirnir deila á seinagang lögreglu

Eins og greint var frá hér á Vísi í morgun varð uppi fótur og fit í sumarbústað einum í Hrunamannahreppi í nótt þegar piltur festi tána á sér í trépalli við bústaðinn. Vinir piltsins sem voru með honum í bústaðnum til þess að fagna próflokum höfðu hins vegar samband við fréttastofu en þau eru ekki ánægð með viðbrögð lögreglu í málinu.

Símaskráin komin út

Símaskráin er komin út og fer í dreifingu um allt land í dag. Forsíðuna prýðir verk eftir vinkonurnar Önnu Ingólfsdóttur rithöfund og Elísabetu Brynhildardóttur myndlistamann. Þær unnu samkeppni um myndverk á forsíðu Símaskrárinnar 2010 sem efnt var til í vetur.

Ráðherra vill ekki loka háskólum

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að þótt samvinna og sérhæfing háskólanna verði höfð að leiðarljósi sé ekki þar með sagt að það eigi að leggja niður heilu háskólana. Félag prófessora við ríkisháskóla leggur til við rektor Háskóla Íslands að stjórnvöldum verði gert tilboð um að taka við öllum nemendum Háskólans í Reykjavík.

Blóðtaka ef HÍ tæki námið í HR yfir

Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, segir að full þörf sé á því að skólinn sé starfræktur áfram. Hann er því ósammála félagi prófessora við ríkisháskóla sem leggur til við rektor Háskóla Íslands að stjórnvöldum verði gert tilboð um að taka við öllum nemendum Háskólans í Reykjavík, samkvæmt frétt Fréttablaðsins.

Atvinnulausir fá vinnu í nágrenni gosstöðva

Samkomulag hefur náðst um að sveitarfélögin í nágrenni gosstöðvanna í Eyjafjallajökli muni bjóða einstaklingum á atvinnuleysisskrá atvinnau við afleysingar og aðstoðar við búskap, en fjölmörg verk þarf að vinna á næstu dögum og vikum vegna áhrifa gossins.

Fiskibátar í vandræðum

Sex fiskibátar,aðallega strandveiðibátar,lentu í vandræðum á miðunum við landið í gær og þurftu aðstoð. Vandræðin stöfuðu einkum af vélarbilunum eða bilunum í stýrisbúnaði.

Fékk sér í aðra tána og festi hana

Lögreglunni á Selfossi barst í nótt beiðni um aðstoð við stálpaðan ungling,sem hafði fest tá í trépalli umhverfis heitann pott við sumarbústað í Hrunamannahreppi, og gat sig hvergi hreyft.

Hestamenn funda um pestina

Hagsmunahópar í hestamennsku ætla í dag að eiga fund með landbúnaðarráðherra og ráðuneytismönnum vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin, vegna kvefpestar og hita sem herjar á hross um allt land.

Var í Hollandi en kemur í dag

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, kemur til landsins í dag. Hann hefur dvalið í Hollandi, þar sem hann hefur átt fundi. Hann vildi lítið tjá sig um málið, en sagði þó ekki beinlínis vera í lögregluaðgerðum, heldur snérist ferðin um fundi og skipulagningu.

Segja Beaty hafa sagt ósatt

Ross J. Beaty, forstjóri Magma Energy, er sagður hafa sagt blaðamönnum tímaritsins Reykjavík Grapevine ósatt um fyrirætlanir fyrirtækisins hér á landi.

Prófessorar leggja til að HÍ taki yfir alla kennslu í HR

Félag prófessora við ríkisháskóla leggur til við rektor Háskóla Íslands að skólinn geri stjórnvöldum tilboð um að taka við öllum nemendum Háskólans í Reykjavík. Í tillögunni segir að líklega kosti það skólann um einn milljarð króna en 1,5-2 milljarðar sparist á háskólastiginu.

Ingólfur og Hreiðar sæta áfram farbanni

Hæstiréttur staðfesti í gær farbannsúrskurð héraðsdóms yfir Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á Íslandi. Kvöldið áður staðfesti Hæstiréttur farbann yfir Hreiðari Má Sigurðssyni. Samkvæmt úrskurðunum er þeim óheimilt að yfirgefa landið þangað til 28. maí.

Vilja mosku hjá Veðurstofunni

Félag múslima á Íslandi á í viðræðum við Reykjavíkurborg um byggingarlóð fyrir mosku. Í erindi til skipulagsfulltrúa leggur félagið til þrjár mögulegar lóðir. Helst vilja múslimar reisa moskuna á borgarlandi við Bústaðaveg vestan við hús Landsvirkjunar og Veðurstofunnar.

Knúti breytt í sjóræningjaskip

Knútur RE, 30 tonna netabátur sem smíðaður var í kringum 1960, gengur á næstunni í endurnýjun lífdaga sem sjóræningjaskip í skemmtigarðinum í Grafarvogi. Þar mun báturinn vera hluti af nýrri og glæsilegri minigolfbraut sem smíðuð verður í kringum „golfvöllinn“. Þessi ævintýralegi 18 holu golfvöllur verður annar tveggja sem til stendur að opna á svæðinu.

Rætt um ýmsar hliðar orkumála

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra situr nú hnattvæðingarþing norrænu ráðherranefndarinnar í Danmörku.

Fresta lokun göngudeildar

SÁÁ hefur ákveðið að fresta lokun göngudeildar á Akureyri en henni átti að loka 1. júní.

Sjá næstu 50 fréttir