Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tólf þotur fastar á Keflavíkurflugvelli Icelandair hefur fellt niður allt flug síðdegis í dag vegna lokunar Keflavíkurflugvallar, en ekkert var flogið í morgun vegna þess að vellinum var lokað í nótt. Ekkert innanlandsflug er heldur um Reykjavíkurflugvöll og tólf farþegaþotur eru innilokaðar á Keflavíkurflugvelli. 14.5.2010 11:47
Eyjafjallajökull: Mýrdælingar óska eftir sjálfboðaliðum Síðustu daga hafa Mýrdælingar fengið að kenna á öskufalli frá Eyjafjallajökli og er ástandið víða orðið nokkuð þrúgandi, sérstaklega meðal bænda og ferðaþjónustuaðila. Nú auglýsa heimamenn eftir sjálfboðaliðum til þess að aðstoða við hreinsun. 14.5.2010 10:49
Öllum ferðum Icelandair aflýst í dag Icelandair hefur fellt niður allt flug félagsins síðdegis í dag vegna lokunar Keflavíkurflugvallar sem orsakast af öskufalli úr gosinu í Eyjafjallajökli. 14.5.2010 10:45
Alþingi getur ekki stöðvað ákæru gegn nímenningunum Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þingályktunartillaga þingmanns VG um að fallið verði frá ákæru gegn mótmælendum sem ruddust inn í Alþingi í Búsáhaldabyltingunni sé ótæk. „Við eigum ekki að vera að skipa dómstólum fyrir,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. 14.5.2010 10:40
Öskurigning á Hvolsvelli - myndskeið Lögreglan á Hvolsvelli sendi fréttastofu þetta myndband sem sýnir öskurigninguna sem gengið hefur yfir bæinn frá því í nótt. Í myndskeiðinu sést þegar lögreglumaður fer með hvítt pappírsblað út undir bert loft og áður en langt um líður er örkin orðin kolsvört af ösku. 14.5.2010 10:30
Elti Hrafnhildi til Noregs þrátt fyrir þungan fangelsisdóm Eftir að Bjarki Már Magnússon, sem beitti sambýliskonu sína hrottalegu ofbeldi um nokkurra ára skeið, áfrýjaði þungum fangelsisdómi til Hæstaréttar elti hana konuna til Noregs og áreitti hana. Allan tímann sem Bjarki dvaldi í landinu vaktaði norska lögreglan heimili konunnar sem heitir Hrafnhildur Stefánsdóttir. Rætt er við hana í DV í dag. 14.5.2010 10:01
Öskufall á Hvolsvelli og Selfossi - myndir Öskufallið frá Eyjafjallajökli berst nú í vesturátt og var aska tekin að falla á Hvolsvelli á sjötta tímanum í morgun og um sjöleitið hófst öskufall á Selfossi. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar er ekki útilokað að lítilsháttar öskufall geti orðið á höfuðborgarsvæðinu síðar í dag. 14.5.2010 07:59
Strandaglópar á Keflavíkurflugvelli Fleiri hundruð manns eru nú strandaglópar á Keflavíkurflugvelli eftir að vellinum var óvænt lokað í nótt vegna öskufalls frá Eyjafjallajökli. Reykjavíkurflugvelli var lokað um leið. 14.5.2010 07:15
Yfirgáfu heimili sín - mikið öskufall undir Eyjafjöllum Mikið öskufall var undir Eyjafjöllum í gærkvöldi og fram á nótt. Skyggni fór allt niður í tvo metra þegar verst var, og yfirgáfu nokkrar fjölskyldur heimili sín og gistu annarsstaðar. Undir morgun færðist öskufallið yfir Fljótshlíðina og þar er nú meira öskufall en orðið hefur frá upphafi gossins. Gosmökkurinn nær líka hærra upp en undanfarna daga, eða í rúmlega 30 þúsund feta hæð, sem er u.þ.b. níu kílómetrar. Aska fellur á Hvolsvelli þessa stundina og allt vestur fyrir Hellu, samkvæmt vegfaranda í morgun. 14.5.2010 07:05
Handtökutilskipun í haust Frumvarp er væntanlegt í haust um samsvarandi reglur og í evrópsku handtökutilskipuninni. Ísland getur ekki orðið aðili að henni, þar sem það er utan Evrópusambandsins. Hins vegar hafa Ísland og Noregur gert samning við sambandið um einfaldari framsalsmál. 14.5.2010 06:45
Gömul sannindi í nýrri rannsókn Hormónagetnaðarvarnir virðast geta haft neikvæð áhrif á kynhvöt kvenna, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var í byrjun mánaðarins í læknaritinu Journal of Sexual Medicine. Netúgáfa Time vitnar til rannsóknarinnar undir yfirskriftinni „Lítil kynhvöt, konur? Pillunni kann að vera um að kenna.“ 14.5.2010 06:00
Tugmilljóna gjöld á flugið Flugrekendur eru ósáttir við að ekki hafi verið sótt um undanþágu fyrir innanlandsflug vegna kaupa á kolefniskvóta. Frá 1. janúar 2012 þurfa flugfélög að tryggja sér losunarkvóta fyrir kolefnisútblástur. 14.5.2010 06:00
Kynslóðir saman á veiðum „Ég er nú hættur að vinna, þetta er bara áhugamál,“ sagði Kristján Pétursson sjómaður sem hafði lokið löndun á Arnarstapa eftir túr dagsins þegar Fréttablaðið hitti hann í vikunni. Kristján er einn fjölmargra sem stunda strandveiðar. Höfnin á Arnarstapa var þétt skipuð bátum á þriðjudag en strandveiðitímabilið hófst á mánudag. 14.5.2010 06:00
Einu kartöflubændurnir á Vesturlandi „Þetta er auðvitað viss áhætta, maður veit aldrei hversu mikil uppskeran verður,“ segir Þóra Kristín Magnúsdóttir, bóndi á Hraunsmúla í Staðarsveit á Snæfellsnesi, spurð hvernig standi á því að hún og maður hennar, Helgi Sigurmonsson bóndi, séu einu kartöflubændurnir á öllu Vesturlandi. „Það voru fleiri í þessu hér áður fyrr en svo hættu allir nema við.“ Þóra og Helgi höfðu nýlokið við að setja niður útsæðið þegar Fréttablaðið hitti þau. 14.5.2010 05:00
Sjúkraflug í öskufalli bíður vottunar Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja hefur í tvígang kallað til þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja sjúklinga til lands, fremur en að kalla til Mýflug, sem í síðustu viku tók við sjúkraflutningum þaðan af Flugfélagi Vestmannaeyja. 14.5.2010 05:00
Umhverfisvottað ekki dýrara Umhverfisvottaðar hreinlætisvörur eru ekki dýrari í innkaupum en aðrar hreinlætisvörur. Þetta er niðurstaða úr verðkönnun sem Neytendasamtökin gerðu á hreinlætisvörum merktum umhverfisvottun Svansins í lok apríl. 14.5.2010 05:00
Ársverkunum hefur fækkað um tíu þúsund Fækkað hefur um nálega tíu þúsund ársverk í mannvirkjagerð frá þriðja ársfjórðungi ársins 2008 til fyrsta ársfjórðungs 2010. Viðlíka samdráttur hefur ekki orðið í neinni annarri grein frá hruni. Efnahags- og 14.5.2010 04:00
Ráða 100 starfsmenn í sumar Um 100 starfsmenn verða ráðnir í sumarafleysingar hjá Alcoa Fjarðaáli, að því er fram kemur í tilkynningu. Hjá fyrirtækinu starfa um 480 manns, en auk þess vinna rúmlega 300 starfsmenn verktaka á svæðinu. 14.5.2010 03:15
Eyjafjallajökull: Gríðarlegt öskufall undir jökli Mjög mikið öskufall er nú undir Eyjafjöllum. Varðstjóri hjá lögreglunni segir að um klukkan átta hafi nánast verið kolniðamyrkur frá Holtsá og austur fyrir Skóga. Lögreglumenn sem voru á ferð á svæðinu sögðu að skyggni hefði aðeins verið um tveir metrar þegar verst lét. Að sögn lögreglu jafnast öskufallið næstum á við það eins og það var mest á fyrstu dögum gossins og hefur það ekki verið jafn mikið í langan tíma. 13.5.2010 21:11
Bretar hafa enn ekki orðið við beiðni Íslendinga Breska lögreglan hefur enn ekki orðið við beiðni sérstaks saksóknara um að Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, verði handtekinn og framseldur til Íslands. Dómsmálaráðherra segir að framsalssamningur milli Íslands og Bretlands sé í fullu gildi. 13.5.2010 19:18
Útborgunardagur á Hrauninu á morgun Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, fékk um átján og hálfa milljón í laun á viku árið 2006. Dagpeningar hans á Litla-Hrauni nema 3.150 krónum á viku en útborgunardagur er á Hrauninu morgun. 13.5.2010 19:25
Fyrrverandi ráðherrar væntanlega kallaðir fyrir í sumarlok Þeir fyrrverandi ráðherrar sem eru sakaðir um að hafa sýnt af sér vanrækslu í starfi í aðdraganda bankahrunsins verða væntanlega kallaðir fyrir þingmannanefnd í lok sumars. Nefndin mun þá fyrst taka afstöðu til þess hvort ráðherrarnir fyrrverandi verða ákærðir. 13.5.2010 19:21
U2 messa í Hafnarfirði í kvöld Messan í Ástjarnarkirkju í kvöld verður með sérstöku sniði því þar verða eingönu sungin lög eftir írsku rokksveitina U2. Þá er predikunin innblásin af textum Bono, söngvara hljómsveitarinnar. 13.5.2010 19:12
Eyjafjallajökull: Gosmökkurinn heldur hærri í dag en undanfarið Gosvirknin í Eyjafjallajökli virðist nokkuð stöðug núna en mökkurinn er þó nokkuð hærri í dag en í gær. Í stöðuskýrslu frá Veðurstofunni segir að ekkert bendi til þess að gosinu sé að ljúka. Óróinn er nokkuð stöðugur og hefur verið svipaður síðustu sólarhringa og um klukkan fjögur í dag mældust fjórir skjálftar undir jöklinum. Skjálftarnir voru allir grunnir. 13.5.2010 17:52
Árekstur í Viðarrima Harður árekstur varð í Viðarrima í Grafarvogi nú á fimmta tímanum. Dælubíll frá slökkviliðinu var kallaður á vettvang ásamt lögreglu- og sjúkrabíl þar sem óttast var að maður væri fastur í bílnum. Það reyndist þó ekki vera rétt en maðurinn var þó nokkuð slasaður og fluttur á slysadeild. Óljóst er um líðan hans á þessari stundu. 13.5.2010 16:32
Lögmenn Jóns tóku við kyrrsetningarbeiðninni Breskir lögmenn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hafa fengið í hendur kyrrsetningarbeiðni frá slitastjórn Glitnis. Stefnan var afhent lögmönnum Jóns klukkan eitt að íslenskum tíma í London í dag. Steinunn Guðbjartsdóttir formaður slitastjórnar staðfestir að stefnunni hafi verið komið til lögmanna Jóns Ásgeirs og að það sé fullnægjandi. 13.5.2010 16:04
Flutningabíll valt á Kleifaheiði Flutningabíll með um 12 tonn af fiski fór út af veginum sunnanmegin á Kleifaheiði við Patreksfjörð fyrir hádegi í dag. Bíllinn fór eina veltu og stöðvaðist um 20 metra frá veginum í brattri hlíðinni. 13.5.2010 15:23
Íslenskar konur lausar úr haldi í Bretlandi Tveimur ungum íslenskum konum sem setið hafa í fangelsi í Bretlandi frá því í júlí í fyrra hefur verið sleppt úr haldi. Þær tældu mann í íbúð í Lundúnum þar sem átta menn biðu hans og börðu hann og rændu. 13.5.2010 14:50
Eyjafjallajökull: Breytingar á áætlun Icelandair Icelandair hefur tilkynnt breytingar á flugáætlun sinni í ljósi þess veðurspá gefur til kynna að Keflavíkurflugvöllur gæti lokast hluta morgundagsins vegna gossins í Eyjafjallajökli. 13.5.2010 14:33
Risaljósmynd þekur héraðsdóm Listahátíð í Reykjavík setti í dag upp gríðarstóra ljósmynd eftir Sigurð Guðmundsson á framhlið Héraðsdóms Reykjavíkur, við Lækjartorg. Uppsetningin hófst klukkan 12 og gert var ráð fyrir að hún stæði í um það bil tvær klukkustundir. 13.5.2010 13:45
Fulltrúar sjómannafélagsins gerðu aldrei athugasemdir við stefnu Gildis Fulltrúar Sjómannafélags Íslands gerðu aldrei athugsemdir við fjárfestingastefnu Gildis-lífeyrissjóðs og allir fulltrúar félagsins á ársfundi sjóðsins sem haldinn var á dögunum greiddu atkvæði gegn tillögu um að stjórn og framkvæmdastjóri segðu af sér. Þetta kemur fram í svarbréfi framkvæmdastjóra Gildis-lífeyrissjóðs við bréfi sjómannafélagsins. 13.5.2010 13:38
Gæsluvarðhald yfir Magnúsi rennur út á morgun Gæsluvarðahaldið yfir Magnúsi Guðmundssyni, fyrrvernadi bankastjóri Kaupþings í Lúxembúrg rennur út á morgun. Magnús var handtekinn á fimmtudaginn í síðustu viku og úrskurðaður í 7 daga gæsluvarðhald daginn eftir. 13.5.2010 12:20
Tillögu um rannsóknarnefnd vísað til bæjarstjóra Tillögu bæjarfulltrúa Vinstri grænna í Kópavogi um að skipuð verði nefnd til að yfirfara stjórnkerfi og stjórnsýslu bæjarins var ekki samþykkt af meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Henni var vísað til umsagnar bæjarstjóra. 13.5.2010 12:16
Ragnar Aðalsteinsson: Réttlát málsmeðferð útilokuð Ragnar Aðalsteinsson verjandi í máli nímenningana sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi segir útilokað að sakborningarnir í málinu fái réttláta málsmeðferð fyrir dómi. Dómari sleit þinghaldi í gær án fyrirvara en þá höfðu átök brotist út fyrir utan réttarsalinn. 13.5.2010 11:57
Ellefu kórar syngja Fúsalög í Vetrargarðinum Ellefu kórar munu í dag sameina raddir sínar og syngja Fúsalög, lög eftir hinn ástsæla Sigfús Halldórsson tónskáld í Vetrargarðinum í Smáralind á milli klukkan eitt og þrjú. Tónleikarnir eru hluti af árlegri menningarhátíð Kópavogsbæjar, Kópavogsdaga, sem nú stendur yfir. 13.5.2010 10:50
Jóni birt stefnan í New York Jón Ásgeiri Jóhannessyni hefur verið birt stefna slitastjórnar Glitnis á hendur honum, Lárusi Welding og fimm öðrum, að sögn breska blaðsins Guardian. Blaðið greinir frá því á vef sínum að Jóni Ásgeiri hafi verið afhent dómsgögnin í annarri lúxusíbúða sinna í Manhattan í New York. 13.5.2010 10:31
Fjórar líkamsárásir kærðar Fjórar líkamsárásir voru kærðar í Reykjavík nótt. Að sögn lögreglu var engin þeirra þó alvarleg. Töluverður erill var í miðborginni enda skemmtistaðir opnir frameftir. Þá voru nokkri teknir fyrir meintan ölvunar og eða fíkniefnaakstur. Á Suðurnesjum gekk skemmtanahald næturinnar hinsvegar mjög vel fyrir sig að sögn lögreglu. 13.5.2010 10:30
Svipaður gangur í gosinu Svipaður gangur er í gosinu í Eyjafjallajökli og verið hefur undanfarna daga. Lögreglan á Hvolsvelli segir að gosmökkurinn sé enn í svipaðri hæð og verið hefur en engar fregnir hafa borist af öskufalli í dag en samkvæmt spá Veðurstofunnar eru horfur á öskufalli sunnan og suðaustan eldstöðvarinnar. 13.5.2010 10:00
Stal Hesti Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði í nótt mann sem virtist hafa óeðlilega mikinn áhuga á skiltum og vegvísum því hann hafði stolið nokkrum slíkum um nóttina. 13.5.2010 09:56
Engin formleg höfnun borist í máli Sigurðar Breska lögreglan hefur ekki hafnað handtöku Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, formlega. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. 13.5.2010 09:38
Mergsugu Glitni í eigin þágu Sýslumaðurinn í Reykjavík tekur afstöðu til beiðni slitastjórnar og skilanefndar Glitnis um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Lárusar Welding og Pálma Haraldssonar strax eftir helgi, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Verði sýslumaður við beiðninni má gera ráð fyrir að allar eignir þremenninganna hér á landi verði frystar, þar á meðal 45 prósent eignarhlutur Jóns Ásgeirs í Gaumi og eignarhlutur Pálma í Iceland Express auk annarra eigna þeirra hér á landi. 13.5.2010 09:00
Vill freista þess að ljúka Icesave innan mánaðar Ríkisstjórnin vill láta á það reyna hvort unnt sé að ná Icesave-samkomulagi við Breta og Hollendinga fyrir þingkosningarnar í Hollandi eftir tæpan mánuð og ræddi málið við forystumenn stjórnarandstöðunnar í dag. 12.5.2010 23:00
Vill að Alþingi stöðvi ákæru gegn mótmælendum Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, hefur lagt fram þingsályktun á Alþingi um að skrifstofustjóra Alþingis verði falið að fara þess á leit við 12.5.2010 20:16
Brynjar Níelsson formaður Lögmannafélags Íslands Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður var kjörinn formaður Lögmannafélags Íslands á aðalfundi félagsins í dag. Hafði hann þar með betur en Heimir Örn Herbertsson mótframbjóðandi hans. 12.5.2010 19:37
Bifreið ekið á barn Bifreið var ekið á barn á Akurvöllum um hálfníuleytið í kvöld. Sem betur fer reyndust meiðslin vera minniháttar og samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum reyndist ekki nauðsynlegt að flytja viðkomandi á slysadeild. 12.5.2010 21:15