Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríkið gæti setið eftir með hundruð milljóna króna skell Íslenska ríkið gæti fengið hundruð milljóna króna skell vegna skemmda, sem urðu á nýja varðskipinu Þór, sem er í smíðum í skipasmíðastöð í Chile. Auk þess verða margra mánaða tafir á afhendingu þess. 1.3.2010 12:00
Ísfélagið með tvö skip í smíðum í Chile Óvissa er nú uppi um ástand tveggja skipa sem Ísfélagið í Vestmannaeyjum er með í smíðum í borginni Talcuano í Chile sem varð illa úti í jarðskjálftanum á laugardag. Skipasmíðastöðin mun vera mjög illa farin og þegar hafa borist fregnir af því að varðskipið Þór sé skemmt en það er smíðað í sömu stöð. 1.3.2010 11:47
Hátt í 20 ætla að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni Hátt í 20 erlendir fjölmiðlar hafa boðað komu sína hingað til lands til að vera viðstaddir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave um næstu helgi. 1.3.2010 11:21
Forsetinn sendir samúðarkveðju til Chile Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í dag sent forseta Chile, Michelle Bachelet, samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni vegna jarðskjálftanna í landinu. 1.3.2010 11:10
Ákveðið í hádeginu hvort unnt verði að opna í Bláfjöllum Tekin verður ákvörðun um það í hádeginu hvort unnt verði að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum í dag. Stefnt er að opnun en gengið hefur á með töluverðum vindhviðum í morgun. 1.3.2010 11:05
Sex Íslendingar eiga eftir að láta vita af sér Enn er ekki vitað um afdrif sex Íslendinga sem talið er að hafi verið í Chile þegar að jarðskjálfti skók landið á laugardaginn. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hafa 34 Íslendingar látið vita af sér. 1.3.2010 10:39
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði vísað úr landi Birgitta Jónsdóttir mun í dag mæla fyrir þingsályktunartillögu þess efnis að fjármálaráðherra láti vinna efnahagsáætlun án aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Meðfultningsmenn Birgittu eru félagar hennar úr Hreyfingunni auk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, Eyglóar Harðardóttur og Höskuldar Þórhallssonar úr Framsóknarflokknum. 1.3.2010 10:14
Ók réttindalaus undir áhrifjum lyfja Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt ökumann, eftir að hann hafði ekið yfir á rauðu ljósi í Hálsahverfi í Reykjavík. Maðurinn, sem var réttindalaus, viðurkenndi að hana neytt amfetamíns og svonefndra læknalyfja. Sjö ölkumenn voru teknir úr umferð í fyrrinótt, þar af fimm vegna ölvunaraksturs og tveir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.- 1.3.2010 08:14
Varðskipið Þór er líklegast skemmt Óttast er að töluverðar skemmdir hafi orðið á nýja verðskipinu Þór, sem er í smíðum í skipasmíðastöð í Chile. 1.3.2010 07:16
Árni Friðriksson kominn til hafnar Hafrannsóknastofnun er nú hætt formlegri loðnuleit og er Árni Friðriksson kominn til hafnar. 1.3.2010 07:03
Kræfir lampaþjófar mynda gróðurhúsin „Ég efast um að ég kaupi fleiri lampa,“ segir Hannes Kristmundsson, garðyrkjumaður í Hveragerði, sem varð fyrir barðinu á þjófum sem stálu frá honum fimmtíu gróðurhúsalömpum. 1.3.2010 06:15
Kostnaður Fljótsdalshrepps tífaldur miðað við Kópavog „Eftir því sem sveitarfélög eru minni, þeim mun meiri er kostnaðurinn á mann. Það hefur verið stefna okkar um áraraðir að mæla almennt með sameiningu sveitarfélaga. En íbúar eiga alltaf síðasta orðið,“ segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS). 1.3.2010 06:00
Ég hef aldrei fyrr séð hús dansa „Ég hef aldrei fyrr séð hús dansa,“ segir Harpa Elín Haraldsdóttir, sem var sofandi á heimili sínu, á níundu hæð fjölbýlishúss í hverfinu Las Condes í Santíagó, þegar skjálftinn reið yfir. „Veggirnir bylgjuðust um og allt fór af stað inni hjá mér – sjónvarpið lenti úti í horni og kryddið hentist yfir eldhúsgólfið. En það brotnaði bara eitt glas, sem er til marks um góðan undirbúning hér í Chile. Þeir hafa lært af reynslunni í byggingu nýrra húsa. Eyðileggingin í mínu hverfi er í lágmarki.“ 1.3.2010 04:00
Fá nú þjónustu í heimabænum Hafnarfjarðarbær og Vinnumálastofnun hafa samið um stofnun og rekstur atvinnumiðstöðvar sem opnuð verður í Hafnarfirði á næstunni. Óánægja hefur verið meðal atvinnulausra í Hafnarfirði um að þurfa að sækja þjónustu atvinnumiðstöðvar til Reykjavíkur. 1.3.2010 04:00
Breiðband Símans verður að Ljósneti Á næstu tveimur árum ætlar Síminn að tengja um 42 þúsund heimili við nýtt Ljósnet Símans, eða um 60 til 70 prósent heimila á höfuðborgarsvæðinu. Ljósnetið gefur aðgang að allt að 100 Mb hraða á sekúndu. Um er að ræða umfangsmiklar breytingar á Breiðbandi Símans. Með þeim er Síminn tilbúinn fyrir allar þær tæknilegu breytingar sem fyrirsjáanlegar eru á Netinu næstu tíu árin, svo sem tilkomu þrívíddarsjónvarps, að sögn Sævars Freys Þráinssonar, forstjóra Símans. 1.3.2010 03:00
Ríkið styðji við svínaræktina Starfshópur landbúnaðarráðherra leggur til margvíslegar tillögur um hvernig efla megi svínarækt í landinu. 1.3.2010 02:30
Aðild myndi draga þrótt úr landbúnaði „Landbúnaðurinn leggst kannski ekki af, en hann verður ekki jafn þróttmikill,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, um ástandið sem við blasir ef Ísland fær aðild að Evrópusambandinu. 1.3.2010 02:00
Síminn lítilsvirðir ekki þjóðlegar íslenskar afurðir Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir fyrirtækið ekki lítilvirða þjóðlegar íslenskar afurðir í auglýsingum sínum líkt og Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, hélt fram í ræðu á Búnaðarþingi í dag. 28.2.2010 21:03
Íslendingur í Santiago: Fólk enn í miklu áfalli Íslendingur sem staddur var á sjöundu hæð í íbúðarhúsi í höfuðborg Chile ásamt fjölskyldu sinni þegar skjálftinn reið yfir segir fólk þar enn í miklu áfalli. Óvissa ríkir enn um afdrif sjö Íslendinga í Chile. 28.2.2010 19:06
Neikvæðar fréttir hafa aukið áhugann á Íslandi Neikvæðar fréttir í erlendum fjölmiðlum um bankahrunið á Íslandi hafa aukið áhuga útlendinga á landi og þjóð. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að fréttirnar hafi í raun skilað sér í jákvæðri landkynningu. 28.2.2010 19:25
Líta mál Pólstjörnufangans alvarlegum augum Lögreglan leitar nú að strokufanga, Guðbjarna Traustasyni, sem fékk sjö ára fangelsisdóm fyrir þátt sinn í Pólstjörnumálinu. Hann fékk dagsleyfi í gær en skilaði sér ekki á tilsettum tíma tilbaka. 28.2.2010 18:48
Óformlegar viðræður við Breta Bretar hafa óskað eftir frekari upplýsingum um tilboð Íslendinga í Icesave deilunni. Íslenska samninganefndin er stödd í London en ekki hefur verið boðað til formlegra viðræðna. Nefndin hefur verið í viðbragðsstöðu þar ytra síðan Bretar opnuðu á nýjar viðræður á föstudag. 28.2.2010 18:51
Grunur um salmonellu í kjúklingi Komið hefur upp grunur um salmonella smit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna. 28.2.2010 17:56
Óheppinn bíleigandi fær ekki tjón bætt Óheppinn bíleigandi á Reykjavíkursvæðinu varð fyrir tæplega 200 þúsund króna tjóni þegar dekkjaþjófar létu greipar sópa á bílaplani fyrir framan heimil hans. Tryggingafélag mannsins neitar að bæta tjónið. 28.2.2010 19:00
Pólstjörnufanginn ófundinn Lögreglan leitar enn að fanganum Guðbjarna Traustasyni sem hún lýsti eftir fyrr í dag. Hann skilaði sér ekki úr dagsleyfi frá fangelsinu að Litla Hrauni í gær. 28.2.2010 17:42
Aðildarumsóknin best heppnaða brella seinni ára „Hugmyndin að sækja um og sjá hvað er í boði er vafalaust best heppnaða pólitíska brella seinni ára. Ekki getur fólk verið á móti því að kostir aðildar séu kannaðir,“ sagði Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, við upphaf Búnaðarþings í dag. 28.2.2010 17:25
Aðeins þriðjungur hlynntur ESB-aðild Tæplega 60% landsmanna eru andvígir inngöngu Íslands í Evrópusambandið en 33,3% eru hlynntir aðild. Hátt í 60% landsmanna segjast ekki bera neitt eða lítið traust til stjórnvalda þegar kemur að því að gæta hagsmuna þjóðarinnar í umsóknarferli um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent-Callup gerði fyrir Bændasamtökin í tengslum við Búnaðarþing sem var sett í Bændahöllinni í dag. 28.2.2010 16:59
Bæjarstjórinn hvorki sár né reiður „Ég á erfitt með að svara því. Aftur á móti er ég hvorki sár né reiður," segir Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, spurður um úrslitin í prófkjöri sjálfstæðismanna í bæjarfélaginu en hann var ekki meðal sex efstu. „Félagar mínir eru mun leiðari yfir þessu en ég." 28.2.2010 16:19
Ekki vitað um átta Íslendinga í Chile Af 40 Íslendingum sem taldir eru hafa verið í Chile í gær þegar jarðskjálfi skók landið í gærmorgun hafa 32 látið vita af sér en utanríkisráðuneytið hefur ekki heyrt frá átta Íslendingum sem taldir eru vera í Chile. 28.2.2010 15:46
Flestir treysta Steingrími Flestir treysta Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra og formanni VG, til að leiða þjóðina út úr efnahagsvandanum samkvæmt skoðanakönnun sem Plúsinn gerði fyrir útvarpsþáttinn Sprengisand á Bylgjunni. 30% treysta Steingrími best, 28% Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins, 21% Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar og 20% Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni Framsóknarflokksins. 28.2.2010 15:06
Sveinn Andri spyr um ferðir Agnesar á „heilsuhæli“ í boði auðmanna Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður, spyr hvort Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, sé til þess bær að fjalla um bankahrunið og útrásina með trúverðugum hætti. Hann vill vita hversu oft hún þáði boð um dvöl á „heilsuhælum” erlendis frá íslenskum viðskiptajöfrum. 28.2.2010 14:20
Lýst eftir Pólstjörnufanga Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Pólstjörnufanganum Guðbjarna Traustasyni. Hann skilaði sér ekki úr dagsleyfi frá fangelsinu að Litla Hrauni í gær. Eftirgrennslan eftir honum hefur ekki skilað árangri. Talið er að Guðbjarni dvelji á Reykjavíkursvæðinu. 28.2.2010 13:54
„Öfugmæli að kenna sáttmálann við stöðugleika“ Aðalsteinn Baldursson, formaður verkalýðsfélags Húsavíkur, vill slíta stöðugleikasáttmálanum sem aðilar vinnumarkaðsins og stjórnvöld undirrituðu í fyrrasumar. Það eina samningurinn hafi gert er að þyngja gríðarlega byrðar almennings í landinu. Því sé ekki að kenna sáttmálann við stöðugleika. 28.2.2010 13:45
Vill hætta við þjóðaratkvæðagreiðsluna Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að hætt verði við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave lögin um næstu helgi. Viðsemjendur Íslands hafi lagt fram gagntilboð. 28.2.2010 13:02
Varðskipið ólaskað eftir jarðskjálftann Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að svo virðist við fyrstu sýn að varðskipið Þór sem nú er í smíðum í borginni Concepsion fyrir Gæsluna hafi sloppið við skemmdir í jarðskjálftanum sem reið yfir Chile í gærmorgun. Skipasmíðastöðin hafi hins vegar verið rústir einar eftir skjálftann. 28.2.2010 12:22
Gerðu óspart grín að Páli og Katrínu Fangavaktin og Bjarnfreðarson unnu flestar Eddur á Edduverðlaunahátíðinni sem fram fór í gærkvöld. Kvikmyndagerðarmenn notuðu tækifærið og gerðu óspart grín að útvarpsstjóra og menntamálaráðherra vegna fyrirhugaðs niðurskurðar. 28.2.2010 12:06
Íslenska samninganefndin í viðbragðsstöðu Íslenska samninganefndin í Icesave málinu er nú í viðbragðsstöðu í Bretlandi ef til nýrra viðræðna kemur. Óformlega samskipti hafa átt sér stað en ekki hefur boðað til samningafundar í dag. 28.2.2010 11:58
Þjóðahátíð í Álftamýrarskóla Þjóðahátíð verður haldin í annað sinn í Álftamýrarskóla í Reykjavík milli klukkan eitt og þrjú í dag. Af 350 nemendum skólans eru 17% af erlendum uppruna og eiga að minnsta kosti annað foreldri af erlendu bergi. Nemendur í skólanum eru alls af 25 þjóðernum. 28.2.2010 11:49
Bæjarstjóranum á Akranesi hafnað Gísla S. Einarssyni, bæjarstjóra á Akranesi, var hafnað í prófkjöri sjálfstæðismanna í bæjarfélaginu í gær. Hann var ekki meðal sex efstu. Gunnar Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar, sigraði prófkjörið. 28.2.2010 10:28
Búnaðarþing hefst í dag Búnaðarþing hefst í dag í Bændahöllinni og stendur fram á miðvikudag. Aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, jarðalög, fjármál bænda og uppbygging félagsskerfis þeirra verða helstu mál þingsins auk hefðbundinna þingstarfa, að því er segir í tilkynningu frá Bændasamtökunum. 28.2.2010 10:13
Varað við hálku Snjóþekja og skafrenningur eru á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar og Mosfellsheiði er ófær. Þá er varað við hálku og hálkublettum um allt land. 28.2.2010 10:06
Ekkert heyrst frá 13 Íslendingum Að minnsta kosti 300 manns hafa látist vegna jarðskjálftans sem skók Chile í gær. Forseti landsins, Michelle Bachelet, sagði í ávarpi í gær að talið væri að skjálftinn hafi haft áhrif á heimili og líf tveggja milljóna Chile búa. Rafmagn, símalínur og vatnsveitur liggja enn niðri á stórum skjálftasvæðum og eyðileggingin er mikil. 28.2.2010 09:58
Skíðasvæðið í Bláfjöllum ekki opnað í dag Hvassviðri kemur í veg fyrir að hægt sé að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum í dag, eins og vonast hafði verið til. 28.2.2010 09:50
Friðjón leiðir Samfylkinguna í Reykjanesbæ Friðjón Einarsson, verkefnisstjóri, sigraði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í gær. Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi, sem sóttist einnig eftir fyrsta sætinu hafnaði í öðru sæti. 28.2.2010 09:39
Árni sigraði í Reykjanesbæ - Gunnar í öðru sæti Árni Sigfússon, bæjarstjóri og núverandi oddviti sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ, fékk yfirburðakosningu í fyrsta sætið í prófkjöri flokksins í gær eða 92%. Hörð keppni var um annað sætið og eftir að fyrstu tölur voru birtar höfðu Böðvar Jónsson og Gunnar Þórarinsson sætaskipti. Þegar upp var staðið fékk Gunnar tæplega 60 fleiri atkvæði en Böðvar í það sæti. 28.2.2010 09:32
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent