Fleiri fréttir

Þóra Arnórsdóttir sjónvarpsmaður ársins

Fréttamaðurinn og þáttastjórnandinn Þóra Arnórsdóttir var valin sjónvarpsmaður ársins á Edduverðlaunahátíðinni sem fór fram í Háskólabíói í kvöld.

Íslendingur á Hawaii: Búist við flóðbylgju í kvöld

„Ég vaknaði við sírenur um klukkan sex í morgun og ég vissi strax að þetta var ekki æfing því þær eru alltaf fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði,“ segir Ásdís Benediktsdóttir sem býr á Hawaii. Búist er við að fimm metra há fljóðbylgja skelli á eyjarnar milli klukkan níu og tíu í kvöld að íslenskum tíma.

Ólafur leiðir VG í Kópavogi áfram

Þegar öll atkvæði í forvali Vinstri grænna í Kópavogi hafa verið talin eru úrslitin þau að Ólafur Þór Gunnarsson er í fyrsta sæti, Guðný Dóra Gestsdóttir er í öðru sæti, Karólína Einarsdóttir í því þriðja, Guðbjörg Sveinsdóttir í fjórða sæti, Arnþór Sigurðsson í því fimmta og að lokum hlaut Hreggviður Norðdahl það sjötta.

Marteinn sigraði í Mosfellsbæ

Marteinn Magnússon, bæjarfulltrúi, fékk 68,7% atkvæða í 1. sæti í prófkjöri framsóknarfélaganna í Mosfellsbæ í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn efnir til prófkjörs í bæjarfélaginu.

Ómar sigraði í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi

Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi, sigraði í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi sem fór fram í dag. Hann fékk 382 atkvæði eða tæplega 40% greiddra atkvæða. Gísli Tryggvason sem gaf kost á sér í fyrsta sætið hafnaði í fimmta sæti. Einar Kristján Jónsson sem einnig keppti um oddvitasætið en var ekki meðal sex efstu.

Árni fær góða kosningu - Böðvar í 2. sæti

Árni Sigfússon, bæjarstjóri, er efstur í prófkjöri Sjálfstæðiflokksins í Reykjanesbæ þegar talinn búið er að telja um helming atkvæða. Hann er tæplega 90% atkvæða í fyrsta sætið. Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi, er í öðru sæti og Gunnar Þórarinsson er í því þriðja. 12 atkvæðum munar á þeim.

Danirnir afla upplýsinga um starfsmenn Gæslunnar

Á vegum Landhelgisgæslunnar eru tveir Íslendingar og fjórir Danir í borginni Concepcion í Chile við eftirlit með lokafrágangi á nýju varðskipi sem er verið að byggja fyrir Íslendinga. Fyrir skömmu náði Landhelgisgæslan tali af Dönunum og eru þeir heilir á húfi en ekkert hefur heyrst frá ÍSlendingunum.

Ómar efstur - Una María í öðru sæti

Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi, er efstur í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi þegar talinn hafa verið 810 atkvæði. Rúmlega 1800 voru á kjörskrá.

Ósammála VG varðandi sjúkrahús Róberts

„Innan Vinstri grænna hefur verið nokkur andstaða við þessa framkvæmd og þá á forsendum þess að um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu sé að ræða. Þessu er ég ósammála því uppbygging að Ásbrú er ekki einkavæðing enda þjónustar sjúkrahúsið erlenda sjúklinga og enginn kostnaður mun falla á Íslendinga,“ segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður viðskiptanefndar.

Íslendingar í Chile hafa ekki látið vita af sér

Utanríkisráðuneytinu er um kunnugt um allt að 35 Íslendinga í Chile en geysiöflugur jarðskjálfti reið yfir landið í morgun. Níu þeirra hafa náð að láta vita af sér gegnum internetið, að sögn Urðar Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins. Talið er að sex Íslendingar hafi verið í borginni Consepcion en upptök skjálftans voru um 90 kílómetra norðaustur af henni.

Slæmt veðurútlit á Hellisheiði

Vegna slæms veðurútlits á Hellisheiði og Þrengslum næstu klukkutíma biður Vegagerðin vegfarendur um að leita sér upplýsinga áður en lagt er af stað. Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Suðurlandi en hálka og skafrenningur á Hellisheiði og snjóþekja og snjókoma í Þrengslum.

Háskólarnir einn lykill að lausn efnahagsvandans

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sagði við brautskráningu nærri 500 kandídata í dag að háskólarnir væru einn lykill að lausn efnahagsvanda Íslands. 478 kandídatar voru brautskráðir frá skólanum í dag en athöfnin fór fram í Háskólabíói. Kandídatar voru brautskráðir af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands með 482 prófgráður.

Allt að 25 Íslendingar í Chile

Ábendingar hafa borist til utanríkisráðuneytisins um allt að 25 Íslendinga í Chile en geysiöflugur jarðskjálfti reið yfir landið í morgun. Sjö Íslendinganna hafa náð að láta vita af sér en engar fregnir hafa borist af hinum 18, að sögn Urðar Gunnarsdóttur upplýsingarfulltrúa ráðuneytisins.

Tæplega 500 hafa kosið í Kópavogi

Tæplega 500 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi klukkan tvö. Þrír takast á um fyrsta sætið í prófkjörinu. „Það hefur verið jöfn og þétt þátttaka," segir Haukur Ingibergsson, formaður kjörstjórnar. Hann segir að fyrstu tölur verði lesnar skömmu eftir að kjörfundi lýkur klukkan 18.

Fagnar aukinni umræðu um spilavíti

„Menn mega ekki láta tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur. Þetta verður að vera fagleg umræða þar sem við metum kosti og galla," segir Arnar Gunnlaugsson aðspurður um álit heilbrigðisráðuneytisins um opnun spilavíta hér á landi. Hann fagnar aukinni umræðu um málefnið.

Listi Grindvíkinga stofnaður

Nýtt framboð Lista Grindvíkinga var formlega stofnað á dögunum og mætti fjöldi fólks til fundarins. Að fundinum stóð breiður hópur fólks sem hefur áhuga á að gera Grindavík að betri bæ fyrir bæjarbúa á komandi árum og viðhafa heiðarleg og opinská vinnubrögð, að fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Útilokað að leysa deiluna á viku

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, segir útilokað að hægt verði leysa Icesave deiluna áður en þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram eftir viku.

Líklegt að Ísland einangrist

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, óttast að fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave geti orðið hálfgerð markleysa þar sem fyrir liggur mun betra tilboð frá Bretum og Hollendingum. Breska dagblaðið The Times telur líklegt að Ísland einangrist á Alþjóðavettvangi náist ekki að leysa deiluna.

Enn á gjörgæsludeild

Maðurinn sem slasaðist þegar hann ók á brúarstólpa við Svínavatn í Austur-Húnvatnssýslu í gærkvöldi er enn á gjörgæsludeild. Líðan hans er hinsvegar sögð eftir atvikum góð og hann er ekki í öndunarvél.

Kallar samkomulagið stólpípusamning

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, kallar Icesave samkomulagið sem gert var í fyrrasumar stólpípusamning. Í pistli á Pressunni hvetur hún landsmenn til að hafna lögunum sem samþykkt voru í lok síðasta árs.

Ný forysta kosin - yfirlýsingar að vænta frá Guðjóni

Landsþing Frjálslynda flokksins fer fram um miðjan næsta mánuð. Þar verður ný forysta flokksins kjörin. Yfirlýsingar er að vænta frá Guðjóni Arnari Kristjánssyni um hvort hann muni sækjast áfram eftir formannssætinu. Frá þessu er greint í tilkynningu frá flokknum.

Íslendingar í Chile

Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um fjóra Íslendinga í Chile þar á meðal á vegum Landhelgisgæslunnar. Öflugur jarðskjálfti upp á 8,8 á Richter skók landið í morgun. Ekki er vitað hvort Íslendingarnir hafi verið á skjálftasvæðinu.

Tveir af fréttastofu Stöðvar 2 tilnefndir

Tveir fréttamenn á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis eru tilnefndir til Blaðmannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands fyrir árið 2009. Guðný Helga Herbertsdóttir er tilnefnd í flokknum rannsóknarblaðamennska ársins og Lóa Pind Aldísardóttir fyrir bestu umfjöllun ársins.

Ekki boðað til nýrra viðræðna

Ekki hefur verið boðað til nýrra viðræðna við Breta og Hollendinga vegna Icesave málsins. Hluti íslensku samninganefndarinnar kom til landsins í gær og fundaði með forystumönnum stjórnmálaflokkanna. Bretar og Hollendingar vildu ekki fallast á gagntilboð Íslendinga sem fól í sér lægri vaxtakostnað og þriggja ára vaxtafrí.

Átta prófkjör í dag

Átta prófkjör fara fram á landinu í dag vegna komandi bæjar- og sveitarstjórnarkosninga. Á Ísafirði efnir Í-listinn til prófkjörs, en hann er sameiginlegt framboð Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra og óháðra. Samfylkingin efnir einnig til prófkjörs í Reykjanesbæ.

Stjórnin felli Icesave lögin úr gildi

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, leggur til í grein í Fréttablaðinu í dag að ríkisstjórnin leggi fyrir Alþingi að fella Icesave lögin úr gildi og hætti þannig við þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Víða þungfært

Vegasamband við Vestfirðir eru að mestu lokað frá öðrum landshlutum vegna ófærðar og ekki stendur til að ryðja í dag á vegum norðan Búðardals, hvorki vestur Barðastrandarsýslu né norður á Strandir. Svínadalurinn er þungfær og ófært er í Reykhólasveit og á Þröskuldum, nýja veginum sem átti að bæta samgöngur til Vestfjarða. Þæfingsfærð er í Ísafjarðardjúpi og á Ströndum en Steingrímsfjarðarheiði er þungfær.

Steingrímur var kominn á fætur

Vakningalest samtakanna Nýs Íslands, á sex eða sjö bílum, mætti klukkan níu í morgun að heimili Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, í Seljahverfi í Breiðholti í því skyni að vekja hann upp. Steingrímur var hins vegar vaknaður og kom til dyranna fullklæddur enda sagðist hann vera á leiðinni norður í land.

Skíðavæði opin

Hlíðarfjall er opið í dag frá tíu til fjögur. Veðrið þar er gott, logn og fimm stiga frost. Meira en nóg af snjó og allar lyftur opnar. Einnig er opið á skíðasvæðinu á Dalvík og í Tindastól í Skagafirði. Gott færi er á öllum svæðunum.

Róleg nótt hjá lögreglu

Nóttin virðist víðast hvar hafa verið róleg hjá lögreglumönnum. Talsvert var um að fólk væri að festa bifreiðar sínar í snjónum og þurfti að kalla eftir aðstoð.

Árekstur á Öxnadalsheiði

Tvö umferðarslys urðu í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í gærkvöldi og nótt. Fyrra óhappið varð klukkan ellefu þegar tveir bílar lentu saman á veginum um Öxnadalsheiði. Skammt frá í Hörgárdal varð annað slys klukkan fimm í nótt en þá varð einnig tveggja bíla árekstur. Engin slys urðu á fólk, að sögn lögreglunnar á Akureyri. Rekja má bæði óhöppin til slæms skyggnis og mikillar ofankomu.

Eftirlitið lítið og vanmáttugt

Ein af orsökum íslenska efnahagshrunsins var sú hve eftirlitskerfið á fjármálamarkaði byggðist á mörgum litlum stofnunum. Þetta hindraði markvissa upplýsingamiðlun og leiddi til skaðlegra tafa á ákvörðunum

Jóhanna vongóð um að betri lausn náist

„Ég lít alls ekki svo á að það hafi slitnað upp úr viðræðunum. Málið er erfitt en ég tel að það séu tækifæri í stöðunni. Markmiðið er að ná árangri og ég hef fulla trú á að það takist.“

Evrópubúar sækja í flugnám hjá Keili

Tafir hafa orðið á því að þjálfun kínverskra atvinnuflugmanna hefjist í flugskóla Keilis í Reykjanesbæ. Samkvæmt skýrslu sem Capacent vann fyrir bæjarstjórn Reykjanesbæjar nýlega átti verkefnið að hefjast í janúar og skapa tólf störf á árinu. Af því varð ekki. Nú er ho

Breytt afstaða til fólksbílsins

Samgöngur eru lykil­atriði í borgum, segir Terry Moore sem rannsakað hefur samband samgangna og landnýtingar. Eins og hann bendir á, og er kannski augljóst, er það eitt fyrsta sem huga þarf að er nýtt hverfi er

Styrkti á rangan hátt

Kópavogsbær kann að hafa farið á skjön við lög þegar hann veitti ekki bein fjárframlög til Sjálfstæðisflokksins árið 2008, heldur keypti auglýsingar í málgögnum flokksins.

Vilja aftengja stjórnmál og fjársterka aðila

Fulltrúar meirihlutans í forsætis­nefnd Reykjavíkurborgar taka ekki undir tillögu fulltrúa Vinstri grænna um að framlög til að borga sérfræðiaðstoð fyrir flokkana í borgarstjórn verði lækkuð um 15 milljónir króna.

Unnið að lausn tannréttingadeilu

Kristín Heimisdóttir, formaður Tannréttingafélags Íslands, er bjartsýn á að deilur tannréttingasérfræðinga og yfirvalda leysist á næstunni. Kristín segir tannréttingasérfræðinga hafi lagt til lausn sem liggi á borði ráðherra. Fulltrúar tannréttingalækna munu funda með starfsmönnum heilbrigðisráðuneytis næsta mánudag.

Telur spilavíti spilla heilsufari

Heilbrigðisráðuneytið leggst alfarið gegn því að heimilað verði að opna spilavíti hér á landi. Þetta segir í umsögn ráðuneytisins um málið sem skilað var til iðnaðarráðuneytisins í síðustu viku.

Sjá næstu 50 fréttir