Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Með andláti Steingríms lýkur merkum kafla í þjóðmálasögu Íslendinga Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sent frá sér tilkynningu vegna andláts Steingríms Hermannssonar, fyrrum forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, en hann lést á heimili sínu í Garðabæ í morgun. 1.2.2010 16:11
Útgefandi Morgunblaðsins brotlegur við lög um persónuvernd Útgefandi Morgunblaðsins, Óskar Magnússon, hefur verið úrskurðaður brotlegur við persónuverndarlög þegar hann fór í leyfisleysi inn í einkapóst Jóhanns Bjarna Kolbeinsson, sem þá var blaðamaður Morgunblaðsins. 1.2.2010 15:54
Steingrímur Hermannsson látinn Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra Íslands er látinn á 82. aldursári. Greint er frá þessu á vefsíðu Framsóknarflokksins. 1.2.2010 15:26
Annar maður féll í jökulsprungu á Langjökli Lögreglan á Selfossi barst tilkynning á þriðjudag í síðustu viku um vélsleðaslys austan til á Langjökli en þá féll maður ofan í sprungu og handleggsbrotnaði. 1.2.2010 15:23
Ríkissaksóknari kærir meiðyrði gegn SS Ríkissaksóknari hefur ákært fyrrverandi starfsmann Sláturfélags Suðurlands (SS) fyrir meiðyrði og rógsherferð gegn SS og verður málið tekið fyrir á næsta miðvikudag í Héraðsdómi Reykjavíkur. 1.2.2010 14:34
Lést á Langjökli Konan sem lést eftir að hafa fallið ofan í jökulsprungu á Langjökli um helgina hét Halldóra Benediktsdóttir. Hún var fædd 8. október 1964 og til heimilis að Brekkubyggð 28, Garðabæ. 1.2.2010 14:12
Vill að heilbrigðisnefnd Alþingis fundi með landlækni Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fer fram á fund í heilbrigðisnefnd vegna framkvæmdar fjárlaga. 1.2.2010 13:59
Unglingur handtekinn fyrir að stela upplýsingum um Eið Smára Karlmaður á tvítugsaldri var handtekinn og yfirheyrður í síðustu viku vegna gruns um að hafa stolið trúnaðargögnum frá lögfræðingi Karls Wernessonar, eiganda Milestone ehf., og Eiðs Smára Guðjohnsen. Pilturinn á að hafa selt þær fjölmiðlum samkvæmt heimildum Vísis. Yfirlögregluþjónninn Friðrik Smári Björgvinsson staðfestir að mál af þessum toga sé til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 1.2.2010 13:52
Skipar vinnuhóp til að fjalla um veggjöld Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað vinnuhóp til þess að fjalla um veggjöld. Tilgangurinn er að reifa hugmyndir og ábendingar um hvaðeina sem tengist fjármögnun samgönguframkvæmda til frambúðar. 1.2.2010 13:06
Ákærður fyrir vopnalagabrot og að hóta lögreglumanni Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa haft í eigu sinni táragasbrúsa og í vörslum sínum stóran veiðihníf þann 7. janúar í fyrra. 1.2.2010 13:00
Sameining Lýðheilsustofnunar og Landlæknis gæti orðið til bóta Sameining Lýðheilsustofnunar og Landlæknisembættisins gæti orðið til mikilla hagsbóta og hagræðingar fyrir samfélagið. Þetta segir Geir Gunnlaugsson landlæknir. 1.2.2010 12:04
Strákunum okkar fagnað í Laugardalshöll Það verður fagnaðarfundur í Laugardalshöll klukkan hálfsex í dag, en þá verður tekið á móti íslenska handboltalandsliðinu sem kemur frá Austurríki. 1.2.2010 11:51
Búið að telja að nýju í Hafnarfirði Kjörnefnd hefur lokið við endurtalningu atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði eins og boðað var. Niðurstaðan er óbreytt. 1.2.2010 11:43
Hnífamaður ógnaði lögreglunni Karlmaður vopnaður búrhníf var handtekinn af lögreglunni á Suðurnesjum á fimmta tímanum í nótt. Maðurinn reyndi að komast inn í hús á Hringbrautinni í Reykjanesbæ og lamdi það að utan með skiptilykli. Hann ógnaði síðan lögreglumanni sem hafði af honum afskipti. Maðurinn var nokkuð ölvaður og gistir nú fangageymslur lögreglunnar. Hann verður yfirheyrður á eftir en líklegast sleppt eftir það. 1.2.2010 10:46
Ár liðið frá myndun vinstri stjórnar Ár er liðið í dag síðan að fyrsta vinstri stjórn var mynduð á Íslandi með þátttöku Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. 1.2.2010 09:59
Glæpagengi lét greipar sópa um Akureyri Lögregluna á Akureyri grunar að glæpagengi hafi heimsótt bæinn á laugardagskvöldið, gagngert til að láta greipar sópa í bílum heimamanna. 1.2.2010 08:14
Stoðtækjaframleiðandinn Össur gefur vörur til Haítí Stoðtækjaframleiðandinn Össur ætlar að gefa vörur til jarðskjálftasvæðanna á Haítí, þar sem margir eiga um sárt að binda. Gefnar verða vörur sem læknar á Haítí telja sérstaklega þörf á, meðal annars gervilimir, en margir misstu útlimi í hamförunum. Staðið verður að þessu í samstarfi við Project Medishare samtökin, sem hafa aðgang að flugvellinum í Port au Prince.- 1.2.2010 08:09
Endurtalning atkvæða breytti engu Engin breyting varð á tveimur efstu sætum á lista sjálfstæðismanna í prófkjörinu Hafnarfirði, eftir endurtalningu atkvæða í gærkvöldi. Það var gert þar sem aðeins tvö atkvæði skildu að frambjóðendur í fyrsta og annað sæti, við fyrri talningu. Nýliðinn í bæjarstjórn, Valdimar Svavarsson mun því skipa fyrsta sætið og Rósa Guðbjartdóttir annað sætið,en hún hefur setið í bæjarstjórn allt þetta kjörtímabil.- 1.2.2010 07:32
Vill Guantanamo fangana til Íslands Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætti að opna herstöð að nýju á Íslandi og koma þar fyrir föngum úr hinum illræmdu Guantanamo fangabúðum. Þetta segir David Hale, stjórnarformaður bandaríska fyrirtækisins, Global Economics, í grein sem birtist í Financial Times. 1.2.2010 07:25
Stórþjófur rændi verslanir Ríflega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir rán, fjölmörg innbrot, þjófnaði og fleiri brot. 1.2.2010 05:30
10 milljarðar í þróun og framkvæmd Rammasamningur milli Akureyrarbæjar og Strokks Energy ehf. var undirritaður á Akureyri í síðustu viku. Samningurinn kveður á um að koma á fót koltrefjaverksmiðju á Akureyri, fyrstu sinnar tegundar á landinu. Akureyrarbær leggur til lóð á Rangárvöllum við rætur Hlíðarfjalls, nálægt höfuðstöðvum Norðurorku. 1.2.2010 04:00
Vefþjónn nefndarinnar við öllu búinn Unnið hefur verið að því undanfarnar vikur að gera vef rannsóknarnefndar Alþingis viðbúinn miklu álagi sem búast má við að verði á honum þegar skýrsla nefndarinnar um bankahrunið verður gerð opinber. Sérstakur viðbúnaður tæknimanna verður fyrstu dagana eftir birtingu en vefurinn verður gæddur þeim eiginleikum að hægt verði að leita eftir efnisorðum, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. 1.2.2010 03:30
Tannheilsu íslenskra barna hrakar stöðugt Fyrsti dagur árlegrar tannverndarviku er í dag. Í ár verður sjónum sérstaklega beint að börnum. Ekki er vanþörf á því, en rannsóknir sýna að tannheilsa íslenskra barna er mun verri en annarra barna á Norðurlöndum. 1.2.2010 03:30
Reykjavík verði gerð að alvöru hjólaborg „Heildarmarkmið áætlunarinnar er að gera Reykjavík að framúrskarandi góðri hjólaborg,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og formaður starfshóps um hjólreiðaáætlun sem samþykkt hefur verið í borgarstjórn. „Reykjavík hefur mjög margt til þess að bera að verða góð hjólaborg,“ segir Gísli sem bendir á til dæmis að borgin sé ekki mjög hæðótt, auðvelt sé að ferðast meðfram strönd hennar, götur séu tiltölulega breiðar sem gefi svigrúm til að bæta við hjólastígum og veðurfar sé gott fyrir hjólreiðafólk meirihluta ársins. 1.2.2010 03:00
Mikill skortur á dagforeldrum Leikskólasvið hefur beint tilmælum til þjónustumiðstöðva í 101, 105 og 107 Reykjavík, það er Vesturbæ, Miðbæ og Hlíðum, um að finna dagforeldra til starfa. 1.2.2010 02:30
Íslendingar á bótum sendir til síns heima Dæmi eru um að Íslendingum sem þiggja bætur í Danmörku hafi verið skipað úr landi. 1.2.2010 02:00
Mótmæla afnámi gjaldfrelsis Eldri borgarar í Kópavogi mótmæla harðlega þeirri ákvörðun sveitarfélagsins að afnema gjaldfrelsi eldri borgara í sundlaugar bæjarins. Hefur félag þeirra sent bæjarstjórn Kópavogs bréf þessa efnis. 1.2.2010 01:00