Fleiri fréttir

Forseti Íslands sendir íbúum Madeira samúðarkveðjur

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur í dag sent samúðarkveðjur til forseta Portúgals Aníbal Cavaco Silva vegna hinna hörmulegu náttúruhamfara á Madeira en tugir manna hafa látið lífið og margvíslegar hörmungar steðja að íbúunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu.

Ekkert gagntilboð - senda kurteist svar til baka

Fundi stjórnar og stjórnarandstöðu í fjármálaráðuneytinu er nýlokið en þar kom fram að gagntilboð yrði ekki sent til Breta og Hollendinga að sinni. Aftur á móti hafi formenn flokkanna fallist á að senda kurteist svar til baka þar sem vilji Íslendinga til þess að senda samninganefndina aftur út er reifaður.

Innbrotsþjófi vísað úr landi

Pólskum manni var vísað úr landi eftir að hann var handtekinn á Selfossi í síðasta mánuði vegna innbrota. Samkvæmt lögreglunni á Selfossi þá vaknaði grunur um að hann ætti aðild að innbrotum á Selfossi og á Hvolsvelli auk þess sem hann var grunaður um líkamsárás.

Hlaut fangelsisdóm fyrir stolna riffla

Tvítugur maður var dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjölmörg afbrot. Meðal annars hafði hann stolna riffla undir höndum auk þess sem hann gerðist ítrekað sekur um fíkniefnalagabrot.

Segir draugagang í gamla hersjúkrahúsinu á varnasvæðinu

„Við höfum fengið tvær fyrirspurnir en engar formlegar tilkynningar,“ segir Magnús Skarphéðinsson, sérfræðingur í yfirskilvitslegum fyrirbærum, en tveir aðilar hafa sett sig í samband við hann vegna draugagangs á hersjúkrahúsinu að Ásbrú Í reykjanesbæ.

Forsvarsmenn Snowmobile kallaðir til skýrslutöku

Forsvarsmenn Snowmobile verða kallaðir í skýrslutöku hjá lögreglunni á Selfossi á næstu dögum vegna skosku mæðginana sem týndust á Langjökli fyrir viku. Óhappið er rannsakað sem hvert annað slys.

Nýtt aðalskipulag Urriðafossvirkjunar unnið hratt

Sveitarstjórn Flóahrepps hefur ákveðið að hefja aðalskipulagsferli vegna Urriðafossvirkjunar upp á nýtt og vonast til að ljúka því innan sex mánaða. Hreppurinn skoðar enn þann möguleika að höfða mál gegn umhverfisráðherra til að hrinda synjun ráðherrans á fyrra aðalskipulagi.

Jóhanna vonast eftir niðurstöðu í dag

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist vonast til þess að samstaða náist um svar við tilboði Hollendinga og Breta í Icesave-deilunni á fundi sem nú er að hefjast í fjármálaráðuneytinu. Þar hitta forystumenn ríkisstjórnarinnar forsvarsmenn stjórnarandstöðunnar. Náist samstaða um svar má búast við því að hægt verði að svara tilboðinu síðar í dag.

Skrifað undir flugvirkjasamning

Millilandaflug Icelandair komst í fullan gang í morgun, strax eftir að fulltrúar flugvirkja og Icelandair handsöluðu nýjum kjarasamning hjá Ríkissáttatsemjara rétt fyrir klukan átta, og verkfallinu var aflýst.

Teknir með dóp undir stýri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt ökumann, grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Á honum fannst poki með kannabisefnum, og fíkniefni fundust líka á farþega hans. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum.

Samningar í höfn hjá flugvirkjum

Samningar hafa tekist á milli flugvirkja og Icelandair en verkfall hófst á miðnætti í nótt. Enn á eftir að skrifa undir og klára einhver smáatriði en verfallinu hefur verið frestað.

Neyðarblys sáust á lofti í Eyjum

Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út seint í gærkvöldi eftir að neyðarblys sáust á lofti og óttast var að skip eða bátur væri í vandræðum. Björgunarskipið þór var einnig sent út og varðskip, sem var í grennd við Eyjar, hóf einnig leit.

Þjóðarsorg lýst yfir í Portúgal

Búist er við því að stjórnvöld í Portúgal lýsi yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu en að minnsta kosti 42 létust í miklum flóðum á eyjuni Madeira á laugardag.

Götur í Reykjavík rykbundnar

Helstu umferðargötur í Reykjavík voru rykbundnar í nótt til að koma í veg fyrir svifryksmengun. Hún fór nokkrum sinnum yfir viðmiðunarmörk í nýliðinni viku og ef veðurspá stenst út vikuna, verða skilyrði til þess að það geti gerst aftur.

Fundað í hádeginu vegna Icesave

Formenn ríkisstjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar náðu ekki samkomulagi um viðbrögð við tilboði Breta og Hollendinga vegna Iceve málsins á þriggja klukkustunda fundi, sem lauk um átta leitið í gærkvöldi.

Tafir vegna flugvirkjaverkfalls

Verkfall flugvirkja hjá Icelandair hófst á miðnætti, en samningafundur, sem hófst hjá Ríkissáttasemjara í gær, stendur enn. Tafir hafa orðið á öllum brottförum nú í morgunsárið hjá Icelandair og verða næstu upplýsingar gefnar klukkan hálfníu að því er fram kemur á heimasíðu flugstöðvarinnar.

Gróður hefti fok á Kársnesi

Garðyrkjustjóri Kópavogs á að gera tillögur um frágang á landfyllingu vegna bryggjuhverfis á norðanverðu Kársnesi. Að því er kom fram í bæjarráði á fimmtudag frestast framkvæmdir á svæðinu og á meðan er það til vandræða. Úrgangur sé losaður í óleyfi og fok frá svæðinu valdi íbúum í grenndinni angri.

Jarðhiti annar allri orkuþörf landsins

Framleiðsla á rafmagni með jarðhita hefur aukist mikið undanfarin ár og nú er svo komið að fræðilega væri hægt að anna allri almennri orkuþörf landsins með rafmagni þannig framleiddu. Þetta kom fram í erindi Sigurðar Inga Friðleifssonar, framkvæmdastjóra Orkuseturs, á aðalfundi Samorku á föstudag.

Þriðjungur heimila er í vanda

Búast má við að tæplega þriðjungur íslenskra heimila safni upp skuldum, gangi á eignir til að standa undir daglegri neyslu og afborgunum af lánum, eða hafi dregið svo mikið úr neyslu að lágmarksviðmið samfélagsins eiga ekki við hjá þeim.

Vill engu spá um morgundaginn

„Við erum að funda með sáttasemjara og Icelandair mönnum og þetta hefur sinn vanalega gang. En svo get ég ekki gefið neinar upplýsingar aðrar en að menn eru að ræðast við og reyna til þrautar," segir Kristján Kristinsson, formaður samninganefndar flugvirkja.

Ólíklegt að tilboðinu verði svarað á morgun

Það eru skiptar skoðanir á því milli stjórnar- og stjórnarandstöðu hvernig að eigi að bregðast við gagntilboði Breta og Hollendinga, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson við fréttamenn rétt eftir klukkan sjö í kvöld.

Sofandi í öndunarvél

Maðurinn sem var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu frá Stykkishólmi í dag er sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. Hann er alvarlega veikur eftir að raðhús sem hann var í brann í morgun.

Íbúarnir flýja álögurnar á Álftanesi

Fjöldi Álftnesinga ætlar að flytja lögheimili sitt yfir í annað sveitarfélag til að koma sér undan hærri álögum vegna fjárhagsvandræða Álftaness, eftir því sem kom fram í fréttum RÚV. Pálmi Másson bæjarstjóri segir, í samtali við Vísi, að bæjaryfirvöld hafi verið meðvituð um það að þær aðgerðir að hækka útsvar og fasteignaskatt gætu haft þetta í för með sér.

Tamíl Tígrar í íslensku fangelsi

Fjöldi erlendra ríkisborgara sem afplánar fangelsisdóma í íslenskum fangelsum hefur aukist griðarlega að undanförnu. Af þeim 319 sem afplánuðu dóm í íslenskum fangelsum á Íslandi í fyrra voru 67 útlendingar, eða um 21%. Árið 2000 afplánuðu hins vegar 313 fangar í íslenskum fangelsum en þá var fjöldi erlendra ríkisborgara 7, eða 2,2%. Talan tekur til þeirra fanga sem luku afplánun á árinu eða voru í fangelsi í lok þess.

Bílvelta við Höfðabakkabrú

Bíll velti við Höfðabakkabrú í Reykjavík um þrjúleytið í dag. Þrír voru í bílnum. Þeir slösuðust ekki alvarlega eftir því sem Vísir kemst næst en einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar

Maðurinn kominn á gjörgæsludeild

Maðurinn sem var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir að það kviknaði í raðhúsi í Stykkishólmi er kominn á gjörgæsludeild samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Frekari upplýsingar hafa ekki fengist ennþá af líðan hans

Aflvana trilla komin til hafnar

Ásgrímur S. Björnsson, bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar, kom með litla trillu að höfn laust eftir klukkan tólf í dag, samkvæmt upplýsingum frá lóðsinum í Faxaflóahöfn. Báturinn varð aflvana norður af Viðey fyrir hádegi og því þurfti aðstoð við að koma honum að landi. Bátinn hafði rekið í átt að Viðey en slapp framhjá henni.

Vonar að samkomulag takist fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu

Forsætisráðherra vonar að samkomulag náist í Icesave deilunni áður en kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið og telur æskilegt að það gerist. Viðbrögð Íslendinga við gagntilboði Breta og Hollendinga í Icesavedeilunni gætu legið fyrir að loknum fundi forystufólks stjórnmálaflokkanna í dag en líklega þó ekki fyrr en á morgun.

Bruni í Stykkishólmi

Þyrla Landhelgisgæslunnar er að flytja mann á slysadeild Landspítalans eftir að eldur kom upp í íbúðarhúsi í Stykkishólmi í morgun. Óttast er að hann hafi hlotið alvarleg brunasár.

Áfram fundað í dag vegna gagntilboðsins

Forystufólk stjórnmálaflokkanna mun funda í dag til að meta gagntilboð Breta og Hollendinga í Icesavedeilunni sem barst stjórnvöldum í fyrrakvöld. Eftir að hafa farið yfir tilboðið með samninganefnd Íslands í fjármálaráðuneytinu í gær var ákveðið að sérfræðingar reiknuðu út hvað í tilboðinu felst.

Ferðaáætlanir tugþúsunda í óvissu

Vikulangt verkfall flugvirkja hjá Icelandair sem hefst eftir tólf klukkustundir ef samningar nást ekki fyrir miðnætti, myndi setja ferðaáætlanir um tuttugu þúsund ferðamanna víðs vegar um heiminn úr skorðum. Upplýsingafulltrúi Icelandair segist hæfilega vongóður um að samningar náist í tæka tíð.

Ármann leiðir sjálfstæðismenn í Kópavogi

Ármann Kr. Ólafsson sigraði prófkjör sjálfstæðismanna í Kópavogi sem fram fór í gær vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Hann hlaut 1677 atkvæði í 1. sæti eða 52,5% greiddra atkvæða. Hildur Dungal hreppti annað sætið, en Gunnar Birgisson fyrrverandi bæjarstjóri hafnaði í því þriðja.

Karen og Árni hafa sætaskipti - Ármann enn efstur

Þegar talin hafa verið 2600 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi hafa orðið þær breytingar að Karen Halldórsdóttir og Árni Bragason hafa skipt um sæti Ármann Kr. Ólafsson er enn efstur. Hildur Dungal er í öðru sæti og Gunnar Birgisson í því þriðja. Gunnar Birgisson vantar nú 333 atkvæði til þess að ná 1. sætinu. Þetta þýðir að Ármann er enn að auka forskot sitt.

Slökkviliðið fór að Dvergabakka

Slökkviliðið sendi allt tiltækt lið að Dvergabakka klukkan korter í tíu í kvöld. Óttast var að eldur hefði komið upp í íbúð þar. Þegar fyrsti bíll kom á staðinn var ljóst að ekki var um meiriháttar eld að ræða og var þá allt lið fyrir utan bílinn sem var kominn á staðinn afturkallað. Íbúðin var reykræst. Nú er talið að einungis hafi verið um reyk af eldavélinni að ræða en ekki eld.

Loðnuveiðimenn bíða enn

Svo virðist sem loðnan hafi lónað lengra til vesturs frá því í gær. Nú lóðar á loðnutorfur rétt austan við Eyjar. Gísli Óskarsson, fréttaritari í Vestmannaeyjum, hefur það eftir sjómönnum að flestar torfurnar séu á bili sem nær frá Bjarnarey austur í Háfadýpi.

Ármann enn efstur

Ármann Kr. Ólafsson er enn í fyrsta sæti eftir að 1400 atkvæði hafa verið talin. Hann er með 688 atkvæði. Gunnar Birgisson er hins vegar með 601 atkvæði í fyrsta sæti og er ljóst að Ármann hefur aukið nokkuð forskot sitt á Gunnar frá því að fystu tölur birtust.

Ármann í fyrsta sæti

Ármann Kr. Ólafsson er í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi eftir að 500 atkvæði hafa veirð talin. Gunnar Birgisson er í þriðja sæti og Hildur Dungal í öðru.

Sjá næstu 50 fréttir