Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leggur til skipan fjárhaldsstjórnar fyrir Álftanes Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) hefur lagt til við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að Sveitarfélaginu Álftanesi verði skipuð fjárhaldsstjórn sem hafi forystu um endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins. Er það með vísan til 76. greinar sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu segir að Kristjáni L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hafi verið afhent bréf þessa efnis í dag. 4.2.2010 19:12
Sveitarfélögin láti reyna á ákvörðun Svandísar fyrir dómstólum Bæjarstjóri Ölfuss segir nauðsynlegt að látið verði reyna á það fyrir dómstólum hvort ákvörðun umhverfisráðherra um Þjórsárvirkjanir standist lög. Hann segir þetta mikinn skell á sama tíma og sveitarfélagið sé í viðræðum um sex mismunandi fjárfestingarverkefni. 4.2.2010 18:45
Barnaníðingur var rekinn úr Fáfni með „skít og skömm“ „Hann var rekinn úr Fáfni fyrir tíu árum síðan,“ segir forseti Hells Angels á Íslandi, Einar „Boom“ Marteinsson, en greint var frá því fyrr í dag að starfsmaður meðferðarheimilisins Árbótar í Aðaldal, hefði sagst vera einn af stofnendum Fáfnis. 4.2.2010 18:00
Jóhanna ræðir við erlenda fréttamenn Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir enga leynd hafa hvílt yfir fundi hennar með José Manuel Barroso forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel í morgun. Til hafi staðið að hún fundaði með honum á loftlagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn í desember en af því hafi ekki getað orðið. Þá hafi verið ákveðið að fundurinn yrði í febrúar og frá því greint á sínum tíma. Það hafi einnig komið fram í fjölmiðlum á Íslandi á þriðjudag að hún væri að fara til þessa fundar. 4.2.2010 17:27
Jóhannes Jónsson: Óvissu um Haga eytt „Það er fyrir öllu að nú hefur óvissu um framtíð Haga verið eytt,“ segir Jóhannes Jónsson starfandi stjórnarformaður Haga og stofnandi Bónuss í fréttatilkynningu sem send var fyrir stundu. 4.2.2010 17:14
Hæstiréttur sammála héraðsdómi - Rannsókn á Baldri haldið áfram Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem því var hafnað að vísa frá rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Baldur Guðlaugssonar, fyrrum ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins, vegna meintra innherjasvika. 4.2.2010 16:41
Þungir dómar fyrir fíkniefnaverksmiðju staðfestir Hæstiréttur staðfesti í dag þunga fangelsisdóma yfir Jónasi Inga Ragnarssyni og Tindi Jónssyni vegna aðildar þeirra að fíkniefnaverksmiðju sem var upprætt í Hafnarfirði sumarið 2008. Héraðsdómur Reykjanes dæmdi Jónas Inga í tíu ára fangelsi og Tind í átta ára fangelsi vegna málsins. 4.2.2010 16:34
Nauthólsvegur formlega opnaður Nauthólsvegur var formlega opnuður í dag. Nýi vegurinn, sem til þessa hefur gengið undir heitinu Hlíðarfótur, liggur frá Hringbraut út í Nauthólsvík meðal annars að Háskólanum í Reykjavík og Ylströndinni. 4.2.2010 16:25
Dregur úr lestri á Morgunblaðinu Heldur dregur úr lestri á Morgunblaðinu samkvæmt skoðanakönnun Capacent. Á þremur síðustu mánuðum síðasta árs minnkaði lesturinn um 13% hjá fólki á aldrinum 12 til 80 ára á öllu landinu. Á sama tímabili jókst lestur á Fréttablaðinu um 5%. Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen tóku við sem ritstjórar Morgunblaðsins í september á síðasta ári. 4.2.2010 16:19
Ásdís Rán tapaði tryggingamálinu Glysbomban Ásdís Rán Gunnarsdóttir tapaði dómsmáli gegn tryggingafélaginu Verði sem hún höfðaði vegna ágreinings um að bifreið, sem hún ók þegar hún lenti í bílslysi 2007, hefði verið tryggð þegar slysið varð. 4.2.2010 15:51
Gordon Brown gekk of langt Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hafi gengið of langt þegar þarlend stjórnvöld beittu hryðjaverkalögum gegn Íslandi haustið 2008. Íslensku þjóðinni hafi misboðið gróflega. Þá hafi yfirlýsingar Browns um þjóðargjaldþrot Íslands ekki hjálpað til. Skilagreina megi aðgerðir hans og breskra stjórnvalda sem efnahagslagt hryðjuverk. 4.2.2010 15:47
Siðblindir einstaklingar geti ekki lengur níðst á saklausum börnum Dómurinn sem kveðinn var upp í gær í Árbótarmálinu er sögulegur. Aldrei fyrr hefur sannast fyrir dómi að börn hafi sætt kynferðisofbeldi af hálfu starfsmanns uppeldisstofnunar á Íslandi, segir í yfirlýsingu 4.2.2010 15:44
Þorsteinn Davíðsson: Skilaði sérákvæði í Árbótarmálinu Þorsteinn Davíðsson, einn þriggja dómara í Árbótarmálinu, skilað sérákvæði í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær þar sem hann vildi sýkna starfsmann Árbótar af fimm ákæruliðum af sex. 4.2.2010 15:24
Datt í rúllustiga og fékk skurð á höfuðið Rúmlega þrítug kona brenndist illa í fyrirtæki í Mosfellsbæ um miðjan dag í gær samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún var við vinnu sína þegar óhappið átti sér stað en heitt vatn fór á konuna sem brann á annarri hliðinni frá öxl og niður á kálfa. 4.2.2010 14:52
Fjórir handteknir vegna slagsmála Tveir karlar á þrítugsaldri voru fluttir á slysadeild eftir að samkvæmi hafði farið úr böndunum í íbúð í Breiðholti í nótt samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 4.2.2010 14:45
Barnaníðingurinn var einn af stofnendum Fáfnis Karlmaðurinnm sem var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að misnota tvær unglingsstúlkur á meðferðarheimilinu Árbót, kveðst vera einn af stofnendum vélhjólaklúbbsins Fáfnis sem í dag heitir Hells Angels. 4.2.2010 14:37
Jóhanna segir viðræðurnar gagnlegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að fundur sinn með José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Olli Rehn, núverandi yfirmanni stækkunarmála, fyrr í dag hafi verið jákvæður. Þau hafi rætt hreinskilnislega um Icesave málið og samskipti Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 4.2.2010 14:20
Minningarbók um Steingrím Hermannsson Á skrifstofu Framsóknarflokksins liggur frammi minningarbók þar sem þeir sem vilja heiðra minningu Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, geta ritað nafn sitt í. Fram kemur í tilkynningu frá Framsóknarflokknum að hægt verður að koma við á skrifstofu flokksins, í dag, morgun föstudag og á mánudaginn frá klukkan eitt til fimm. 4.2.2010 14:09
Lögreglan lýsir eftir 14 ára stúlku Lögreglan á Akureyri og Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar lýsa eftir Emilíönu Andrésardóttur. Ekkert hefur spurt til hennar frá því föstudaginn 29. janúar þegar hún fór að heiman frá sér. Emilíana er fædd árið 1996. Hún er dökkhærð, um 160 sentimterar á hæð og grannvaxin. 4.2.2010 13:49
Tveir íslenskir hjúkrunarfræðingar til Haítí á vegum Rauða krossins Hjúkrunarfræðingarnir Lilja Steingrímsdóttir og Maríanna Csillag eru á leið til Haítí þar sem þær munu starfa á tjaldsjúkrahúsi þýska Rauða krossins. Tjaldsjúkrahúsið sinnir 700 sjúklingum á dag, og er staðsett við íþróttaleikvang í Carrefour, einu fátækasta hverfi höfuðborgarinnar Port-au-Prince, en þar hafa tugþúsundir manna leitað skjóls við mjög slæmar aðstæður. 4.2.2010 13:34
Leggja til breytingar á meðlagskerfinu Nefnd sem falið var að endurskoða ákvæði barnalaga um framfærslu barna leggur til umfangsmiklar breytingar á meðlagskerfinu. Í frumvarpi sem nefndin hefur sett saman er lagt til rýmri samningsfrelsi foreldra um skiptingu kostnaðar vegna framfærslu barns og um greiðslu meðlags. Áhugasamir eru hvattir til að að kynna sér efni þess og senda dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu ábendingar. 4.2.2010 13:22
Ólafur gagnrýnir laun Margrétar Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, segir að svar borgarstjóra við fyrirspurn sinni um laun og störf Margrétar Sverrisdóttur, varaborgarfulltrúa, staðfesti að hún hafi 212 þúsund krónur í laun á mánuði fyrir að meðaltali einn tveggja klukkustunda langan fund. Tímakaup hennar sé því 100 þúsund krónur. 4.2.2010 13:04
Áttræður karlmaður í skilorðsbundið fangelsi fyrir íkveikju Áttatíu ára gamall karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa valdið eldsvoða í sumarbústaði í Grímsnesi. 4.2.2010 12:57
Leiguverð lækkar Leiguverð hefur lækkað allt að 31, 8 prósent frá vordögum 2008 til dagsins í dag samkvæmt könnun Neytendasamtakanna og birtist á heimasíðu þeirra. Einungis var kannað verð á leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu en gera má ráð fyrir að leiguíbúðir annars staðar séu heldur ódýrari. Þá er ekki um að ræða tæmandi könnun á markaðnum heldur voru einungis skoðaðar íbúðir sem eru auglýstar til leigu hjá leiga.is, Leigulistanum og Rentus. 4.2.2010 12:06
Flest stöðugildi í utanríkisráðuneytinu Alls voru 511,2 stöðugildi á aðalskrifstofum ráðuneytanna í árslok 2009. Þeim hafði þá fjölgað um átta frá því árinu áður. Flestir eða tæplega 90 störfuðu í utanríkisráðuneytinu í árslok 2009. Næstflest stöðugildi voru í fjármálaráðuneytinu og mennta- og menningarmálaráðuneytinu eða 70. Á sama tíma voru 20 stöðugildi í iðnaðarráðuneytinu og 20,6 í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. 4.2.2010 12:05
Verja 150 milljónum í atvinnuverkefni í Reykjavík Borgarráð samþykkti í morgun tillögur atvinnumálahóps Reykjavíkur um úthlutun á 150 milljónum króna til sérstakra atvinnuátaksverkefna. 4.2.2010 12:03
Vonar að framkæmdir við Búðarhálsvirkjun hefjist fljótlega Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, vonar að framkæmdir við Búðarhálsvirkjun hefjist eftir nokkrar vikur. Ákvörðun umhverfisráðherra um að neita að staðfesta skipulagsbreytingar varðandi virkjanir í neðri Þjórsá hamla ekki uppbyggingu álvers í Helguvík. Rangt sé að halda öðru fram, að mati iðnaðarráðherra. 4.2.2010 11:25
Einkaferð Jóhönnu til Brussel Þingmenn tókust á í upphafi þingfundar í dag um ferð Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, til Brussel þar sem hún fundar með José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Fram kom í máli utanríkisráðherra að um einkaheimsókn væri að ræða. Þingmaður Framsóknarflokksins sagði forsætisráðherra hafa smánað þjóð sína. 4.2.2010 10:56
Kosið um fallegasta frímerkið Félagar í félagi frímerkjasafnara völdu fallegasta frímerkið 2009 nýlega með kosningu. Alls hlutu 9 merki atkvæði og yfirburðasigur vann frímerki með mynd af lunda. 4.2.2010 10:51
Vatnstankurinn fundinn Lögreglan á Suðurnesjum hafði upp á þrjátíu þúsund lítra vatnstankinum í gær eftir að fjölmiðlar birtu fréttir af hvarfi hans að beiðni lögreglunnar. Talið var að honum hefði verið stolið úr Sandgerði síðasta haust. 4.2.2010 10:33
Hátt í 100 fjölmiðlakonur funduðu Félag fjölmiðlakvenna harmar uppsagnir kvenna sem hafa gagnrýnt yfirmenn og eigendur fjölmiðla og krefst þess að hneykslanlegar uppsagnir á reyndum fjölmiðlakonum síðustu misserin verði leiðréttar og þær ráðnar aftur til starfa. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Félagi fjölmiðlakvenna. Félagið hélt fund í gær sem hátt í 100 fjölmiðlakonur voru viðstaddar. 4.2.2010 10:27
Jóhanna á fundi með Barroso Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, situr þessa stundina á fundi með José Manuel Barroso forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel. Fundurinn hófst klukkan tíu að íslenskum tíma og er áætlað er að hann standi í um 45 mínútur. 4.2.2010 10:08
Ekki ærumeiðingar - aðeins misskilningur á viðtengingarhætti Umhverfisráðuneytið hefur sent frá sér áréttingu vegna frétta af bókun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps, þar sem meintum ærumeiðingum umhverfisráðherra í ákvörðun um breytingu á aðalskipulagi hreppsins er mótmælt. 4.2.2010 10:00
Hreppsnefnd undrast ákvörðun Svandísar Hreppsnefnd Hrunamannahrepps lýsir undrun sinni á ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, að synja staðfestingar á skipulagsbreytingum varðandi virkjanir í neðri Þjórsá þar sem þátttaka Landsvirkjunar í kostnaði sveitarfélaga við skipulagsvinnu stangist á við skipulags- og byggingarlög. Hreppsnefndin gagnrýnir jafnframt þann langa tíma sem ráðherra hafði málið til umfjöllunar. 4.2.2010 09:30
Tilkynningum til barnaverndanefnda fjölgaði um 16% Tilkynningum til barnaverndanefnda fjölgaði um 16% á fyrstu mánuðum síðasta árs miðað við sama tímabil árið á undan, eða úr 5940 í 6906. Fjölgunin á höfuðborgarsvæðinu er rúmlega 22% en rúmlega 4% á landsbyggðinni. 4.2.2010 09:26
Segir Eið Smára víst hafa átt í ástarsambandi við Vanessu Leigusali Vanessu Perconell, sem er sökuð um að hafa sængað hjá rúmlega hálfu fótboltaliði Chelsea, segir í viðtali við The Sun í dag að hún hefði margsinnis séð Eið Smára heima hjá Vanessu árið 2003. Bæði Eiður Smári og Vanessa hafa þvertekið fyrir að hafa átt í ástarsambandi. 4.2.2010 09:21
Starfsmaður á meðferðarheimili dæmdur í 2 1/2 árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Fyrrverandi starfsmaður á meðferðarheimilinu Árbót í Aðaldal hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum sem vistaðar voru á heimilinu. 4.2.2010 08:46
Handtók tvo timburþjófa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo unga menn í portinu á bak við Bykó í Kauptúni í Garðabæ í nótt, þar sem þeir voru að stela timbri og setja á kerru, sem tengd var við stóran jeppa þeirra. 4.2.2010 06:59
Hugsanlegt vanhæfi ráðuneytis verður skoðað Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segist ekki telja að hún eða starfsfólk dómsmálaráðuneytisins séu vanhæf til að úrskurða um það hvort veita eigi fólki gjafsókn í málum gegn ráðuneytinu. 4.2.2010 06:30
Framkvæmdir bíða rétts tíma Forsvarsmenn UB koltrefja í Skagafirði segjast enn vongóðir um að hægt verði að reisa koltrefjaverksmiðju í Skagafirði en staða á heimsmarkaði er hins vegar sú að ekki verður raunhæft að hefja framkvæmdir fyrr en eftir eitt til þrjú ár. 4.2.2010 06:00
Taílenskum nuddara var úthýst án ástæðu Umboðsmaður Alþingis segir félagsmálaráðuneytið ekki hafa farið að lögum þegar taílenskri konu var synjað um atvinnuleyfi á nuddstofu á Álftanesi. Hugsanlega hafi ráðuneytið bakað sér skaðabótaskyldu en það sé úrlausnarefni dómstóla. 4.2.2010 06:00
Vandinn liggur í skuldabagga Nefnd samgönguráðherra gerir það að tillögu sinni að hafnalög verði endurskoðuð. Eins að verkaskipting hafna verði auðvelduð og úrelding gerð möguleg. Þá er talið æskilegt að eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga verði falið að hafa sérstakt eftirlit með rekstri þeirra. 4.2.2010 06:00
Norðmenn hafa breytt um stefnu í Icesave Norska ríkisstjórnin hefur breytt um afstöðu varðandi stöðu Íslands í Icesave málinu. 4.2.2010 06:00
Ráðherra ósammála bæjarstjórn um HSS Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir fullkomlega raunhæft að sveitarfélagið taki yfir rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) og verkefnið snúist ekki um fjármál sveitarfélaga. Heilbrigðisráðherra er því 4.2.2010 06:00
Foreldrar hafa hagsmuni barna í forgangi í kreppunni „Upplýsingar sem lágu fyrir hjá okkur fram að áramótum eru þær, að börnunum líður almennt vel nú á krepputímum. Foreldrar virðast setja þau í félagslegan og fjárhagslegan forgang.“ 4.2.2010 05:00