Fleiri fréttir

Ær með garnaveiki aflífaðar

Garnaveiki hefur greinst í þremur ungum ám á bæ í Fáskrúðsfirði. Þær voru skoðaðar 6. janúar að beiðni bóndans á bænum og ákvað héraðsdýralæknir Matvælastofnunar að aflífa þær allar þar sem þær voru óeðlilega horaðar, þótt þær ætu allar eðlilega. Engin merki sáust þó um skitu.

Ráðherra hafnar dómsdagsspá S&P

Sérfræðingur matsfyrirtækisins Standard & Poor's sagði í viðtali við fréttaveituna Bloomberg í gær að raunhæfur möguleiki sé fyrir greiðslufalli íslenska ríkisins vegna óvissu um lyktir Icesave-deilunnar. Þessi hætta endurspeglist í hækkandi skuldatryggingarálagi sem komi til vegna óvissu um framtíð efnahagsaðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi.

Byrjað að undirbúa heimferð

Íslenska rústabjörgunarsveitin á Haítí fór í könnunarleiðangra um miðborg höfuðborgarinnar Port-au-Prince í gær til að kanna hvort einhver fyndist þar á lífi í rústunum. Leitin hafði engan árangur borið í gærkvöldi.

Skilanefnd tekur yfir D‘Angleterre-hótelið

Skilanefnd Landsbankans mun á næstu vikum taka yfir hótel­rekstur NP Hotels í Danmörku og einkaþotur í eigu leigufyrirtækisins IceJet. „Samningar eru mjög langt komnir og við erum mjög sátt við það,“ segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans.

Heróín fyrir mestu fíklana

danmörk Þeir Danir sem fíknastir eru í heróín geta frá og með miðjum næsta mánuði fengið efnið á kostnað ríkisins, fyrst í Óðinsvéum.

Enn að reikna greiðslujöfnun

Viðskiptavinur Íbúðalánasjóðs, sem hafði byrjað í greiðslujöfnun en ákvað svo að afþakka hana, fékk svar frá sjóðnum um að hann gæti ekki afþakkað greiðslujöfnunina, nema hann fyrst greiddi upp alla fjárhæðina sem sett hafði verið á jöfnunarreikninginn.

Gefur 230 tonn af vatni til Haítí

Hjálparstarf Jón Ólafsson, eigandi vatnframleiðandans Icelandic Glacial, hefur gefið 230 tonn af vatni á 400 þúsund flöskum til þeirra sem eiga um sárt að binda á hamfarasvæðunum á Haítí.

Vissi mest um lestur dagblaða

Jóhannes Karl Sigursteinsson, stjórnandi hjá birtingardeild auglýsingastofunnar EnnEmm, hlaut fyrstu verðlaun í jólagetraun söludeildar Fréttablaðsins, sem um jólin var með lauflétta getraun meðal auglýsenda byggða á staðreyndum um lestur dagblaða á Íslandi. Á meðal spurninganna var hvaða blaði sé dreift til rúmlega áttatíu þúsund heimila á hverjum degi.

Frambjóðendur minntir á lögin

stjórnmál Ríkisendurskoðun birti fyrir helgi upplýsingar og eyðublöð fyrir frambjóðendur í prófkjöri eða forvali fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, 29. maí.

Fréttastjóri ekki aðili að málinu

Hæstiréttur hefur vísað frá dómi kæru fréttastjóra Stöðvar 2, Óskars Hrafns Þorvaldssonar, sem fór fram á það að fallið yrði frá þeirri ákvörðun að þinghald í svokölluðu mansalsmáli sem upp kom á Suðurnesjum í haust yrði lokað.

Strandveiðar skila síðri afla

Rúmlega helmingur forsvarsmanna fiskmarkaða og fiskkaupenda taldi að gæði þess fisks sem barst á land í strandveiðunum í sumar stæðist ekki samanburð við annan afla. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skýrslu Háskólaseturs Vestfjarða um framgang og áhrif strandveiðanna.

Frekari tækifæri til náms

Tvö ráðuneyti, mennta- og menningarmála og félags- og tryggingarmála, hafa samið um frekari námstækifæri fyrir ungt fólk í atvinnuleit. Með því er tækifærum til náms fjölgað.

Maður lést í vinnuslysi í dag

Alvarlegt vinnuslys var um klukkan 16:00 í dag við nýbyggingu við Sefgarða á Seltjarnarnesi samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.

Íslendingabarinn Jósef opnar í Austurríki

Íslendingar sem eru staddir í bænum Linz í Austurríki hafa opnað bar í miðborginni, við aðalgötuna, að sögn Ólafs Thordersen, sem að öllu jöfnu sinnir embætti bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ. Tilefnið er að sjálfsögðu EM í handbolta sem hefst á morgun en von er á allt að 100 Íslendingum vegna mótsins.

Hlaut höfuðáverka eftir vinnuslys

Karlmaður um fimmtugt var færður á slysadeild í morgun eftir að hann féll af vinnpöllum úr mikilli hæð. Maðurinn var að störfum í Tunguhálsi. Samkvæmt lögreglunni hlaut maðurinn áverka á höfði. Ekki er ljóst hver líðan mannsins er. Annar karlmaður lést í vinnuslysi sem bar svipað að síðdegis í dag.

Ríkisstjórn og stjórnarandstaða funda enn

Ríkisstjórn fundar enn með stjórnarandstöðunni en fundurinn hófst upp úr klukkan átta í kvöld og er haldinn í stjórnarráðshúsinu. Þetta er annar fundurinn með sem ríkisstjórnin heldur með stjórnarandstöðunni en þar er reynt að ná samstöðu í Icesave málinu.

Funda með fulltrúum norsku ríkisstjórnarinnar um brotthvarf AGS

Þann 4. febrúar næstkomandi munu þrír fulltrúar frá Attac-samtökunum á Íslandi, þeir Einar Már Guðmundsson rithöfundur, Bjarni Guðbjörnsson sagnfræðingur og Gunnar Skúli Ármannsson læknir hitta fulltrúa norsku ríkisstjórnarinnar á opnum fundi í Ósló samkvæmt tilkynningu frá samtökunum.

Kennarar gefa tvær milljónir til Haítí

Kennarasamband Íslands ákvað á stjórnarfundi síðastliðinn föstudag að leggja ellefu þúsund evrur eða um tvær milljónir króna inn á söfnunarsjóðsreikning Alþjóðasambands kennara til styrktar Haítí.

RÚV tapar milljón á dag undir stjórn útvarpsstjóra

Ríkisútvarpið hefur tapað rúmri milljón á dag þann tíma sem Páll Magnússon hefur verið útvarpsstjóri, sem eru öllu meira en stofnunin tapaði á dag í útvarpsstjóratíð fyrirrennara hans. Frá árinu 2002 hefur launakostnaður Ríkisútvarpsins aukist töluvert umfram laun á almennum launamarkaði.

Spyr hvort línuívilnun verði fyrir árabátaútgerð

Aflakóngur smábátaflotans spyr hvort stjórnvöld ætli að veita þeim viðbótarkvóta sem róa á árabátum. Það sé í ætt við það að verðlauna menn fyrir að handbeita línu, eins og nú er áformað. Þá efast hann um réttlæti þess að ætla að leigja bara sumum sérstakan skötuselskvóta.

Djákninn á Haítí: Verður aldrei samur eftir jarðskjálftann

Íslenskur guðfræðinemi sem var á Haítí þegar jarðskjálftinn reið yfir segist aldrei verða samur eftir að hafa orðið vitni að þeim hörmungunum sem dunið hafa á þessu fátæka landi. Íbúar hafi sýnt styrk, stillingu og trúfestu þrátt fyrir ömurlegar aðstæður.

Ung kona grunuð um að smita HIV með gáleysislegri hegðun

Landlæknisembættinu tókst ekki að koma lögum yfir unga HIV-smitaða konu sem grunur lék á að hefði smitað aðra með gáleysislegri hegðun. Sóttvarnarlæknir segir að rannsakað sé hvort fjölgun HIV-smitaðra hér á landi megi hugsanlega mega rekja til þessa máls.

Alvarlegt vinnuslys á Seltjarnarnesi

Alvarlegt vinnuslys varð á Seltjarnarnesi um klukkan fjögur í dag. Maður féll af vinnupalli og er alvarlega slasaður. Lögreglan gefur ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.

Kynna Ísland erlendis

Stórar kynningarherferðir á íslenskum ferðaiðnaði, kynning á íslenskum sjávarafurðum, kynning á endurnýjanlegri orku og tækni, íslenskir úrvalskokkar sem elda fyrir almenning, tónleikar, kvikmynda- og listahátíðir eru meðal þeirra fjölmörgu viðburða sem Iceland Naturally hefur skipulagt vestanhafs fyrir árið 2010.

Stjórn og stjórnarandstaða funda áfram um Icesave

Forystumenn ríkisstjórnarinnar stefna að því að funda með fulltrúum stjórnarandstöðunnar klukkan átta í kvöld. Á fundinum verður haldið áfram að reyna að ná samstöðu í Icesave málinu.

Álagið á slysadeild gífurlegt, eldra fólk haldi sig heima

Ófeigur Þorgeirsson yfirlæknir á slysa- og bráðdeild Landspítalans segir að mikið hafi verið að gera á deildinni í dag vegna hálkunnar og álagið gífurlegt. Tilvikin þar sem um beinbrot sé að ræða eru orðin hátt í 60 talsins, brot sem rekja má til hálkunnar.

Leita vitna vegna líkamsárásar

Lögreglan á Selfossi leitar vitna að líkamsárás á skemmtistaðnum 800 Bar á Selfossi um klukkan þrjú aðafaranótt sunnudagsins 9. janúar síðastliðinn.

Sakborningar munu eiga kost á að koma athugasemdum á framfæri

Sakborningarnir í mansalsmálinu munu eiga kost á því að vera í herbergi nálægt dómssalnum þar sem þeir eiga kost á því að fylgjast með vitnaleiðslum yfir brotaþola í gegnum fjarfundabúnað. Þetta segir Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari hjá embætti Ríkissaksóknara.

Fyrstu niðurstöður hugsanlega í lok vetrar

Sérstakur saksóknari á ekki von á því að niðurstöður í þeim málum sem embættið hefur nú til rannsóknar liggi fyrir fyrr en í lok vetrar. Þá verði hægt að taka ákvörðun um það hvort gefnar verði út ákærur eða ekki.

Segir mannréttindi brotin á meintum mansalsmönnum

„Ég tel að niðurstaða meirihluta Hæstaréttar sé mjög umdeilanleg. Það er hluti af málsvörn mannsins að hann sé á staðnum þegar að mikilvægt vitni gefur skýrslu," segir Eiríkur Elís Þorláksson, verjandi eins Litháans sem ákærður er fyrir aðild að mansali í máli 19 ára gamallar litháískrar stúlku.

Bjarni útskýrði sjónarmið sín fyrir Hollendingum

Hollenska blaðið De Pers birti viðtal við formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson, á bloggsíðu blaðsins á dögunum og var það vinsælasta blogg blaðsins þann daginn, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

Litháar víkja úr dómsal í mansalsmáli

Litháarnir sem ákærðir eru fyrir aðild að mansali í máli 19 ára stúlku munu þurfa að víkja úr dómsal á meðan að stúlkan ber vitni gegn þeim, samkvæmt úrskurði Hæstaréttar á föstudaginn.

Geir vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni

Geir Sveinsson, sem sækist eftir öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, vill að flugvöllurinn í Vatnsmýrinni verði áfram þar. Þetta segir hann á bloggsíðu sinni. Ástæðuna segir hann að engin haldbær rök hafi komið fram um af hverju og hvert flugvöllurinn eigi að fara.

Margir hafa slasast í hálkunni

Starfsfólk slysadeildar Landspítalans vill vara fólk við þeirri launhálku sem er á götum borgarinnar. Í morgun streymdi inn á slysadeild fólk sem hafði runnið til og dottið í götuna á leið í skóla og í vinnu. Margir eru illa brotnir eftir óhöppin.

Steingrímur sagði aldrei að Icesave væri of flókið fyrir þjóðaratkvæði

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, sem var í viðtali við Svenska dagladet um helgina, sagði aldrei í samtalinu við blaðamanninn að málið væri of flókið til þess að hægt væri að kjósa um það í þjóðaratkvæðagreiðslu. Innlendir sem erlendir miðlar fjölluðu um málið í gær og þar var vitnað til inngangs blaðamannsins sænska sem var að túlka orð Steingríms.

Landaverksmiðja í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti landaframleiðslu í bruggverksmiðju í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði í gærkvöldi. Þar voru fleiri hundruð lítrar af gambra í gerjun í nokkrum stórum plasttunnum og tæki til að sjóða úr honum landa, en eftir suðuna telst hann orðinn markaðsvara.

Festust á Hellisheiði

Hjálparsveitir úr Hveragerði og Selfossi voru kallaðar út í gærkvöldi til að hjálpa fólki, sem hafði farið út á ómerktan vegslóða á Hellisheiði og fest bíl sinn. Björgunarmenn fundu bílinn brátt og náðu honum upp, og amaði ekkert að fólkinu um borð. Lögreglan varar ökumenn við að aka inn á ómerkta slóða, einbíla í náttmyrkri.

Sjá næstu 50 fréttir