Innlent

Maður lést í vinnuslysi í dag

Alvarlegt vinnuslys var um klukkan 16:00 í dag við nýbyggingu við Sefgarða á Seltjarnarnesi samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.

Þar féll karlmaður á þrítugsaldri niður af vinnupöllum þar sem hann var að vinna við þak hússins með þeim afleiðingum að hann lést samstundis að talið er.

Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.




Tengdar fréttir

Alvarlegt vinnuslys á Seltjarnarnesi

Alvarlegt vinnuslys varð á Seltjarnarnesi um klukkan fjögur í dag. Maður féll af vinnupalli og er alvarlega slasaður. Lögreglan gefur ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×