Fleiri fréttir

Sjálfstæðismenn velja framboðslista í dag

Átján manns eru í framboði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor sem fer fram í dag. Kosning hófst nú klukkan tíu og stendur fram til klukkan sex.

Hjúkrunarfræðingi dæmdar milljónir

Landspítalinn hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða hjúkrunarfræðingi, sem starfaði þar, tæpar þrjár milljónir króna vegna tekjumissis.

Alþingi ákvað ekki ákæruna

Skrifstofustjóri Alþingis kærði ekki sérstaklega eftir 100. grein hegningarlaga, sem fjallar um það, þegar ráðist er á Alþingi.

Óttast synjun nýrra samninga um Icesave

Hollendingar og Bretar vilja tryggja að verði samningar um Icesave teknir upp að nýju verði niðurstaða þeirra endanleg, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þeir leggja áherslu á að stjórnmálaflokkar hérlendis verði samstiga um að virða niðurstöðu slíkra samninga, verði af þeim. Ekki komi til greina að ferlið endurtaki sig; undirrituðum samningum verði breytt eftir langar umræður á Alþingi.

Íslendingar minntir á eldri samninga

Forsenda þess að Bretar og Hollendingar fáist að samningaborðinu að ný, áður en til þjóðaratkvæðagreiðslu kemur, er að tryggt sé að slíkir samningar haldi en fari ekki í margra mánaða umræður með tilheyrandi breytingum á Alþingi.

Ásbjörn hagnaðist um tugmilljónir

Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd Alþingis, greiddi sér og konu sinni 65 milljónir króna í arð frá útgerðarfélaginu Nesveri árið 2008. Hann var framkvæmdastjóri Nesvers og eini stjórnarmaður. Greint var frá því í DV að sama ár tapaði fyrirtækið 574 milljónum króna og eigið fé var neikvætt um 157 milljónir.

Tvö skattþrep hefðu náð settu markmiði

Afar umfangsmiklar breytingar á skattkerfinu voru keyrðar í gegnum Alþingi á met­tíma fyrir áramót án þess að raunveruleg umræða ætti sér stað um þá fjölmörgu galla sem eru á því kerfi sem nú hefur verið innleitt. Þetta segir Pétur Blöndal, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í efnahags- og skattanefnd Alþingis.

Veiða má 1.272 hreindýr í ár

Umhverfisráðuneytið hefur að tillögu Umhverfisstofnunar ákvarðað hreindýraveiðikvóta ársins 2010. Samkvæmt auglýsingunni verður heimilt að veiða allt að 1.272 hreindýr.

Gerir kröfu upp á 122 milljónir

Ólíkt öðrum stjórnendum Kaupþings gerir Ármann H. Þorvaldsson, fyrrverandi forstjóri Kaupthing Singer & Fried­lander, kröfu í þrotabú Kaupþings upp á 122,6 milljónir króna í formi skuldabréfs.

Eins og best gerist í Evrópu

Kvikmyndaver Atlantic Studios opnar á Ásbrú í Reykjanesbæ, á gamla varnarliðssvæðinu, í dag. Kvikmyndaverið er sagt hið glæsilegasta og jafnast á við það sem best gerist annars staðar í Evrópu.

Finnbogi stýrir nýjum sjóði

Finnbogi Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Sjóðurinn var stofnaður af lífeyrissjóðum sem leggja sjóðnum til þrjátíu milljarða króna og mun sjóðurinn gegna veigamiklu hlutverki í endurreisn íslensks efnahagslífs með fjárfestingum í fyrirtækjum.

Konur hvattar til krabbameinsskoðunar

Einungis 58 prósent kvenna á aldrinum 20 til 24 mæta í krabbameinsskoðun á Íslandi. Það er áhyggjuefni, segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, sem bendir á að í kjölfar skipulegrar leitar hafi tíðni leghálskrabbameins lækkað um 68 prósent og dánartíðni um 87 prósent.

Tap 38 milljarðar á sjóðum Landsvaka

Landsbanki Íslands tapaði alls 38,2 milljörðum króna á markaðsskuldabréfum sem bankinn keypti af peningamarkaðssjóðum Landsvaka í október 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum um afkomuna síðustu mánuði ársins 2008.

Hundrað krónur til Haítí

Borgarstjórn hefur ákveðið að gefa sem samsvarar hundrað krónum fyrir hvern borgarbúa til neyðaraðstoðar á Haítí. Samtals 11,8 milljónir króna. Féð fer til Rauða kross Íslands.

Krefjast sautján þúsund milljarða úr bönkunum

Ekki er hægt að segja nú um stundir hvort lífeyrissjóðirnir tapi fjármunum á falli Kaupþings. Þetta er mat Arnars Sigurmundssonar, formanns Landssambands lífeyrissjóða. Hann segir lífeyrissjóðina hafa lagt fram ýtrustu kröfur í þrotabú Kaupþings og muni sum þeirra verða skuldajafnaðar til móts við gjaldeyrisskiptasamninga lífeyrissjóðanna við bankann en samningarnir reiknast sem skuld þeirra við hann.

Gefa andvirði 4,5 milljóna

Fjögur íslensk bókaforlög hafa ákveðið að gefa rústabjörgunarsveit Landsbjargar söluandvirði sjö nýrra bóka til að kaupa búnað í stað þess sem skilinn var eftir á Haítí.

Um tuttugu forstjórar með andmælafrest frá kjararáði

Kjararáð hefur sent rúmlega tuttugu forstjórum og forstöðumönnum ríkisstofnana og hlutafélaga bréf þar sem þeim er gefinn frestur til 1. febrúar til að andmæla nýrri ákvörðun ráðsins um launakjör þeirra.

Fannst látinn í Hvalfirðinum

Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hvalfirði síðdegis í dag. Lögreglan hafði áður lýst eftir manninum í fjölmiðlum. Mikil leit hófst og það var ekki fyrr en þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði að honum sem maðurinn fannst látinn.

Hálka á Hellisheiði

Hálkublettir eru á Sandskeiði og í Þrengslum, hálka er á Hellisheiði samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni.

Íslendingunum var aldrei ógnað, fengu bara þakklæti

Íslenska rústabjörgunarsveitin mætti aðeins þakklæti og vinsemd frá íbúum Haiti og var aldrei ógnað þá viku sem hún var að störfum á hamfarasvæðinu. Meðlimir hennar fengu innilegar mótttökur við komuna til Íslands í nótt.

Nafn mannsins sem lést í rörasprengjuslysinu

Maðurinn sem slasaðist í rörasprengjuslysi að kvöldi þriðjudagsins 19. janúar í Hveragerði lést á gjörgæslu Landspítala Háskólasjúkrahúss í nótt. Hann hét Örn Norðdahl Magnússon og var fæddur 3. október 1986, búsettur í foreldrahúsum að Borgarhrauni 33 í Hveragerði. Hann var ókvæntur og barnlaus.

Áfram í varðhaldi

Tveir karlmenn um fertugt voru í gær að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. febrúar, en þeir eru grunaðir um að hafa staðið að innflutning á fjórum kílóum af amfetamíni.

Forgangsatriði að koma börnum í öruggt skjól

Forgangsatriði Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, er að ná til barna á Haítí og tryggja þeim fæðu, heilsugæslu, öruggt skjól og umönnun. UNICEF og samstarfsaðilar vinna hörðum höndum að því að tryggja að fyrir vikulok njóti öll börn undir fimm ára aldri sem hafa misst eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar umönnunar og næringar í öruggu umhverfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi.

Veikindi starfsmanna Landspítalans minnkuðu

Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að þegar tölur úr rekstri spítalans fyrir árið 2009 séu skoðaðar komi meðal annars í ljós að veikindi starfsmanna minnkuðu á síðasta ári. Hann vonar að það sé merki um að spítalinn sé á réttri leið og þrátt fyrir kreppu, inflúensufaraldur og álag á spítalanum líði starfsmönnum betur. Þetta kemur fram í vikulegum pistli hans sem birtist á vef spítalans.

Mannréttindaráð styður Orator í ráðgjafastörfum

Mannréttindaráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gærdag að styðja Orator félag laganema til að veita lögfræðilega ráðgjöf en hún mun fara fram m.a. á bókasöfnum og þjónustumiðstöðvum borgarinnar.

Útvarpsstjóri skilar bílnum

Páll Magnússon, útvarpsstjóri, mun skila bifreið sem Ríkisútvarpið hefur greitt fyrir og hann hefur haft til umráða undanfarin ár. Bifreiðin sem er af gerðinni Audi Q7 hefur verið umdeild og gagnrýndi til að mynda flokksráð Vinstri grænna hlunnindi Páls á fundi sínum um síðustu helgi.

Styrkja hjálparstarfið á Haítí

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að leggja fram 35 milljónir króna vegna ferðar Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar til Haítí. Ennfremur ákvað ríkisstjórnin að veita af ráðstöfunarfé sínu 15 milljónir króna til hjálpar- og uppbyggingarstarfs íslenskra félagasamtaka á Haítí og verður þeim úthlutað í samstarfi við félagasamtök. Auk þess hefur utanríkisráðuneytið veitt rúmum 22 milljónum króna til verkefna vegna björgunaraðgerðanna. Heildarframlag ríkissjóðs vegna jarðskjálftanna á Haítí er því orðið 81 milljón króna, en reiknað er með að 8,7 milljónir króna endurgreiðist úr almannavarnarsjóði Evrópusambandsins.

Fimmtán sagt upp á fréttastofu RÚV

Fimmtán starfsmönnum á fréttastofu Ríkisútvarpsins var sagt upp gær og í dag en það á meðal eru fréttamenn, tæknimenn og annað starfsfólk. Fyrir uppsagnirnar störfuðu rúmlega 100 starfsmenn á fréttastofunni og því fengu 15% starfsmanna þar uppsagnarbréf.

Meirihluti barna í Reykjavík ganga í skólann

Þrjú af hverjum fjórum grunnskólabörnum í Reykjavíka ganga í skólann sinn. Önnur eru keyrð, hjóla eða ferðast með öðrum hætti. Þetta kemur fram í viðamikilli könnun á leiðavali, öryggi og ferðamáta barna í skólann.

Útsendingar svæðisstöðva RÚV lagðar niður

Útsendingar svæðisstöðva Ríkisútvarpsins verða lagðar niður á næstunni. Þremur starfsmönnum stofnunarinnar á Austurlandi hefur verið sagt upp og húsnæði RÚV á Egilsstöðum er til sölu. Þetta kemur fram á fréttavefnum Austurgluggi.is

Leggja krans á tröppur Alþingishússins

Öryrkjabandalag Íslands stendur fyrir táknrænni athöfn við Alþingishúsið í dag klukkan fjögur. Þar mun Guðmundur Magnússon, formaður bandalagsins, leggja blómakrans á tröppur þinghússins. Guðmundur segir að niðurbrot velferðarkerfisins sé hafið og þá mótmælir hann þeirri áráttu stjórnvalda að byrja alltaf á lífeyrisþegum þegar að draga þurfi saman seglin.

Stoltur af íslensku sveitinni

Íslenska rústabjörgunarsveitin sem leitaði rústum húsa sem hrundu í jarðskjálftanum á Haítí í síðustu viku komu til landsins um tvöleytið í nótt.

Bankarnir færa vinum húseignir á silfurfati

Formaður Húseigendafélagsins fullyrðir að bankarnir séu að færa vinum og vandamönnum húseignir sem þeir leysi til sín á silfurfati til að fegra bókhaldið. Ástandið sé jarðvegur fyrir mikla spillingu.

Lést af völdum sprengingar í Hveragerði

Ungi maðurinn sem slasaðist alvarlega þegar rörasprengja sprakk í höndum hans í heimahúsi í Hveragerði á þriðjudagskvöldið, lést á gjörgæsludeild Landsspítalans í nótt. Hann komst aldrei til meðvitundar eftir slysið. Hann var 23 ára og búsettur í Hveragerði.

Gegn fátækt og félagslegri einangrun

Evrópuráðið og Evrópusambandið hófu í gær Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun undir yfirskriftinni „Stöðvum fátækt!“. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingarmálaráðherra, segir að íslensk stjórnvöld séu að fara að ráðast í gríðarlegt átak til að rjúfa einangrun og auka virkni þeirra sem glíma við langtímaatvinnuleysi.

Mörður: Páll segi af sér og skili jeppanum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar vill að Páll Magnússon segi af sér sem útvarpsstjóri. Hann gagnrýnir stjórn stofnunarinnar og tekur upp hanskann fyrir Vinstri græna og ályktun sem samþykkt var flokksráðsfundi flokksins um síðustu helgi þar sem þungum áhyggjum var lýst af stöðu fjölmiðla á Íslandi.

Hreyfingin: Mótmælendurnir voru að sinna skyldu sinni

Hreyfingin vill að Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, dragi til baka kærur gegn hópi fólks sem ruddist inn í Alþingishúsið í desember 2008. Hópurinn hafi einungis verið að sinna sjálfsagðri borgaralegri skyldu sinni.

Baráttufundurinn í Eyjum á YouTube

Upptökur af fjölmennum baráttufundi í Vestmannaeyjum í gærkvöld, sem boðaður var til að mótmæla fyrningarleið, álagi á útflutning ísfisks og afnámi sjómannaafsláttar, eru nú aðgengilegar á vefsvæðinu YouTube. Fundurinn var sendur út beint á vef Eyjafrétta í gær.

Háskólanemum fjölgar

Nemendur á framhalds- og háskólastigi og hafa aldrei verið fleiri hér á landi en haustið 2009. Í framhaldsskóla voru skráðir 29.698 nemendur og 19.008 í háskóla eða samtals 48.706. Skráðum nemendum hefur fjölgað um 3,0% frá fyrra ári sem er lítið eitt meiri fjölgun en árið áður. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofan hefur tekið saman og eru birtar á vef stofnunnarinnar.

RÚV hafnar aðdróttunum Vinstri grænna

Stjórn Ríkisútvarpsins harmar ályktun flokksráðs Vinstri grænna um síðustu helgi og „hafnar þeim aðdróttunum sem þar er beint að starfsfólki og starfsemi RÚV.“ Stjórnin telur ályktunina meiðandi fyrir starfsfólk Ríkisútvarpsins og lýsa fádæma vanþekkingu flutningsmanna og þeirra sem hana samþykktu.

Rústabjörgunarsveitin kom heim í nótt

Liðsmenn íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar komu heim til Íslands um tvöleytið í nótt. Sveitin hafði dvaldi í rúma viku við björgunarstörf á jarðskjálftasvæðinu á Haítí. Hún flaug með vél frá Iceland Express í fyrradag til Nassau á Bahamaeyjum en þar var gist í fyrrinótt. Þaðan var flogið til Halifax áður en sveitin sneri til Íslands.

Sjá næstu 50 fréttir